Morgunblaðið - 12.11.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977
3
Viðhorf almennings til ís-
lensks iðnaðar hafa breytzt
mjög tii batnaðar f kjölfar iðn-
kvnningarárs. Almenningur er
nú betur upplýstur og sú skoð-
un að ekkert sé gott hjá inn-
lendum framleiðendum er með
öllu horfin. Þetta sagði Pétur
Sveinbjarnarson á blaða-
mannafundi hjá Islenskri iðn-
kynningu I gær.
Þá kom einnig fram að í þeim
fjórum könnunum sem iðn-
kynning gekkst fyrir kom í ljós,
að með mikilli auglýsingaher-
ferð væri hægt að auka mark-
aðshlutdeild innlendra iðnvara
mjög. Fyrstu tvær kattnanirnar
sem gerðar voru í mai og júní
1976 sýndu að almenningur var
fáfróður um islenskan iðnað, en
með meiri þekkingu jókst
markaðshlutdeildin mjög. Er
þriðja könnunin var gerð, i
febrúar síðastliðnum, hafði ver-
Pétur Sveinbjarnarson (t.v.) og Hjalti Geir Kristjánsson á blaða-
mannafundinum I gær.
Markaðshlutdeild íslenskra iðn-
vara jókst á iðnkynningarári
Kostnaður við iðnkynningu nam 30 milljónum
ið hafður í frammi mikill áróð-
ur, aðallega með auglýsingum i
sjónvarpi, og kom þá i ljós að
markaðshlutdeildin hafði auk-
ist um 4%. Siðasta könnunin,
sem gerð var i siðasta mánuði
sýndi hins vegar að um leið og
áróðrinum var hætt, minnkaði
markaðshlutdeildin og nálgast
hún nú að vera svipuð og var
fyrir iðnkynningu.
Alls munu um 180 þúsund
manns hafa tekið þátt i við-
burðum iðnkynningarársins og
þar af 103 þúsund í sýningun-
um: islensk föt ’76, islensk mat-
væli og iðnkynning í Laugar-
dal. Islensk iðnkynning hóf
starfsemi sina 3. september i
fyrra og lauk i síðasta mánuði.
Fyrir utan þessar þrjár sýning-
ar, gengst iðnkynning fyrir iðn-
kynningardögum, auk þess sem
öllum þjónustuklúbbum lands-
ins var boðið að þeim yrði
kynnt starfsemin.
Iðnkynningarárið kostaði 30
milljónir, fyrir utan það fé sem
bæjar- og sveitarfélög lögðu
fram. I Reykjavik var kostnað-
urinn 43 milljónir, en iðnkynn-
ingin mun þó ekki kosta
Reykjavíkurborg neitt, þvi
gróði varð bæði á sýningunni í
Laugardal og á happdrætti iðn-
kynningar. Mun það vera eins-
dæmi að iðnkynning kosti við-
komandi bæjarfélag ekki neitt.
A afstöðnu iðnkynningarári
var islenskur iðnaður kynntur
sem ein heild en nú munu fyrtr-
tækin sjálf reyna að kynna sína
vöru og hasla sér völl á innlend-
um markaði, þar sem góður
jarðvegur virðist vera þar fyrir
islcnska iðnvöru. Jafnframt
munu svo fyrirtækin sem ein
heild halda áfram áróðri sinum.
Þá munu fyrirtækin reyna að
vinna meira inn á við og leitast
við að mennta betur iðnverka-
fólk, bæta hönnun og merking-
ar vöru, halda iðnkynningu
meðal framleiðenda og reyna
að afla sér markaða.
Iðnkynningarárið hefur opn-
að islenskum iðnaði dyr inn á
innlendan markað og með því
sem áunnist hefur, getur mark-
aðshlutdeild hans aukist veru-
lega.
Flugskýli nr. 4 á Reykjavlkurflugvelli.
Flugleiðir:
Kaupa flugskýli nr. 4
fyrir 161,5 milljónir kr.
í gær var gengið frá
samningum milli Flug-
leiða h.f. annars vegar og
samgöngumálaráðuneytis-
ins hins vegar um kaup
Flugleiða á flugskýli nr. 4
á Reykjavíkurflugvelli,
fyrir 161,5 milljónir króna.
Flugskýli nr. 4 á Reykja-
víkurflugvelli, sem Flug-
leiðir hafa nú keypt, var
fljótlega eftir bruna flug-
skýlis nr. 5 breytt í við-
gerðaskýli, en áður hafði
það eingöngu verið notað
til geymslu. Flugmála-
stjórn sá um viðgerðir á
ytra byrði skýlisins og ein-
angrun þess. Flugleiðir
létu leggja í það hita, nýja
raflögn og vinnuljós og
byggðu ennfremur milli-
vegg í skýlið.
Þá byggðu Flugleiðir um
SVO sem fram kom í Mbl. í vik-
unni var sendibílst jóranum í
Geirfinnsmálinu sleppt úr haldi í
vikunni eftir að rannsókn hafði
farið frani á meintum rönguni
framburði hans fyrir dómi.
Rannsóknaraðilar hafa litið
viljað segja um hvað kom fram
við rannsóknina, nema hvað Þórir
1000 fermmetra hús við
hlið skýlisins, sem notað er
sem verkstæði, lager og
skrifstofur.
Oddsson, deildarstjóri við Rann-
söknarlögreglu rikisins staðfesti i
samtali við Mbl. i gær, að bílstjór-
inn hefði algerlega haldið sig við
hinn nýja og breytta framburð og
ekki kannast við neina ferð til
Keflavikur í tengslum við Geir-
finn Einarsson. Að öðru leyti vildi
Þórir ekkert um málið segja.
Geirfinnsmálið:
Bílstjórinn hélt fast
við nýja framburðinn
Framsóknarfélögin í Reykjavík:
Hörð átök
um prófkjör
Samþykkt með 84 atkvœðum gegn 14
FULLTRAUARAÐ Framsóknar-
félaganna í Reykjavík ákvað á
fundi í fyrrakvöld að fram færi
prófkjör um skipan framboðslista
Framsóknarflokksins i Reykjavík
við næstu alþingiskosningar. Mik-
illar andstöðu gætti frá áhrifa-
niönnum f flokknum gegn próf-
kjöri, en þrátt fyrir það sam-
þykkti fundurinn með 84 atkvæð-
um gegn 14 að prófkjör skyldi
fara fram dagana 21. og 22. janú-
ar næstkomandi.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins urðu mikil átök á
fundinum og miklar umræður.
Helztu andstæðingar prófkjörs á
fundinum voru Eysteinn Jónsson,
Jón Kjartansson og Markús
Stefánsson. Lýsti Jón þvi m.a.
fram á fundinum, að hann vildi
hafa framboðslista flokksins
óbreyttan frá síðustu alþingis-
kosningum. Stóðu átökin siðan
um það.
Einn fundarmanna, sem
Morgunblaðið ræddi við kvað
þennan fund marka timamót í
sögu Framsóknarflokksins, þar
sem ákveðnir menn, sem ráðið
hefðu lögum og lofuln í flokknum
um langt árabil biðu ósigur. A
fundinum var mikið lof borið á
Eystein JónsSon og var tekið und-
ir það með gífurlegu lófaklappi.
Kristinn Finnbogason, sem ver-
ið hefur formaður Fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykja-
vtk sótti ekki fundinn, en sendi
fundinum orðsendingu, þar sem
hann sagði af sér formennsku
vegna veikinda. Var Jón Aðal-
steinn Jónasson, kaupmaður i
Sportval kjörinn formaður í hans
stað, en Jón Aðalsteinn hefur ver-
ið varaformaður Fulltrúaráðsins
um skeið.
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins:
Dregið
í kvöld
í KVÖLD verður dregið í haust-
happdrætti Sjálfstæðisflokksins
og eru I dag síðustu forvöð að
tryggja sér miða, þvi drætti
verður ekki frestað.
Afgreiðsla happdrættisins er i
Valhöll, Háaleitisbraut 1. Verður
hún opin til kl. 23 i kvöld, sími
82900 og geta menn látið senda
eftir greiðslum og einnig er hægt
að fá miða heimsenda.
Endurbyggjum
bílvélar
Við endurbyggjum flestar
geróir benzín- og dieselvéla.
Rennum sveifarása.
Plönum hedd og vélarblokkir.
Borum vélarblokkir.
Rennum ventla og ventilsæti.
Eigum ávallt varahluti í flestar
geröir benzín- og dieselvéla.
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 17
s. 84515 — 84516