Morgunblaðið - 12.11.1977, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977
m biMAK
|H9 28810
car rental 24460
bilaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
LOFTLEIDIR
2T 2 1190 2 11 38
Innilegustu þakkir til allra þeirra
sem glöddu okkur með höfðmg-
legri veislu, simtölum. skeytum
og gjöfum á gullbrúðkaupsdegi
okkar í Skógum 5. nóv. 197 7.
Guðlaug M.
Gísladóttir
Þorbergur Bjarnason
Hraunbæ.
Nýkomið
„GABRIEL"
höggdeyfar
J. Sveinsson & Co.f
Hverfisgötu 116
Reykjavík
,,Samfélagid
verður að sjá
örnefnaarf-
inum borgið”
FIIWMTlU þáttlakendur frá Dan-
mörku, Finnlandi, tslandi, Nor-
egi, Svíþjóð og Vestur-Þýzkaland
tðku þátt í ráðstefnu Norrænu
samvinnunefndarinnar um
nafnarannsóknir (NORNA) á
Hanoholmen í Finnlandi dagana
23.—25. september. Var fjailað
þar um verndun gamalla örnefna,
ekki sfzt á svæðum, sem fara und-
ir þéttbýli, og margvísleg vanda-
mál, sem upp koma í samhandi
við nýjar nafngiftir.
Af íslands hálfu Iagði Þórhall-
ur Vilmundarson, forstöðumaður
Örnefnastofnunarþjóðminja-
safns, fram erindi um nýnefni og
örnefnavernd á íslandi. I lok ráð-
stefnunnar var samþykkt ályktun
þar sem segir m.a.: „Samfélagið
verður að sjá örnefnaarfinum
borgið og gæta þess, að nýjar
nafngiftir fari þannig úr hendi,
að örnefnin verði vel nothæf og
menningararfurinn varðveitist í
samfélagi, sem er sifelldum bréyt- '
ingum undirorpið."
(Úr fréttatiikynningu frá Ör-
nefnastofnun).
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
12. nóvember
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Þórunn Magnéa
Magnúsdóttir les söguna
„Klói segir frá“ eftir Annik
Saxegaard (6).
Tilkynningar kl. 9.00. Létt
iög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
Barnatími kl. 11.10: Dýrin
okkar. Jónína Hafsteinsdótt-
ir cand mag. sér um tímann.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilk.vnningar. Tónleikar.
S ÐOEGIÐ
13.30 Vikan framundan. Sig-
mar B. Hauksson tekur
saman dagskrárkynningar-
þátt.
15.00 Norsk vísnalög. Tone
Ringen, Ase Thoresen,
Yokon Gjelseth, Lars Kelv-
strand og Bört-Erik Thoresen
syngja. Sigurd Jansen stjórn-
ar Norsku skemmtihljóm-
sveitinni sem leikur með.
15.40 Islenzkt mál. Jón Aðal-
steinn Jónsson cand. mag.
talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
Frá útvarpinu í Hamborg.
Sinfónfuhljómsveit útvarps-
ins leikur tónverk eftir Josef
og Johann Strauss. Stjórn-
andi: VVilli Boskovsky.
17.00 Enskukennsla (On We
Go), f tengslum við kennslu í
» LAÚGARDAGUR
12. nóvember 1977
| 16.30 Iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.15 OnVVeGo
Enskukennsla.
4. þáttur endursýndur.
18.30 Kaly(L)
Nýr hreskur myndaflokkur í
sex þátluni, byggður á sögu
eftir Susan Collidge.
Leikst.jóri Julia Sniitli.
Aðalhlutverk Ulaire VVald-
er, Ed Bishop og Julia
I.ewis.
1. þáttur.
Katy er fimmtán ára gömul.
II ún býr í smábæ í Banda-
rfkjunum ásamt þremur
systkinum sfnuni og löður.
en móðir barnanna er látin
fvrir nokkrum árum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Enska knaltspyrnan
II lé
20,00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 l'ndir sama þaki
Islenskur franihaldsmy nda-
flokkur í léftiim dúr.
V
sjónvarpi; — fjórði þáttur.
Leiðbeinandi: Bjarni Gunn-
arsson menntaskólakennari.
17.30 Framhaldsleikrit
barna og unglinga: „Sámur“
eftir Jóhönnu Bugge-Olsen
og Meretu Lie Hoel. Sigurður
Gunnarsson þýddi. Leik-
5. þátlur Milli hæða
Þátturinn verður endur-
sýndur niiðvikudaginn 16.
növember.
20.55 Gaupan í skógum Sví-
þjóðar
Sa-nsk fræðslumynd um
gaupur.
Kvikniyndatökumaðurinn
Jan Lindblad fylgdist með
læðu og tveimur kettlingum
hennar einn viðburðarfkan
ágústdag.
Þýðandi og þulur Björn
Baldursson.
(Nordvision — Sa-nska
sjónvarpið)
21.45 II Ijóðláti maðurinn
(The Quiet Man)
Bandarfsk bfómynd frá ár-
inu 1952.
Leikstjóri John Ford.
Aðalhlutverk John VVayne
og Maureen O'Hara.
llnefaleikarinn Sean
Thornton verður manni að
bana f keppni. Hann ákveð-
ur því að hætta hnefaleikum
og snúa aflur til heiniabæj-
ar síns.
Þýðandi Jön Thor Haralils-
son.
23.50 Dagskrárlok.
stjóri: Guðrún Þ. Stephen-
sen. Annar þáttur: Sauða-
drápið. Persónur og leikend-
ur:
Erlingur/ Sigurður Skúla-
son, Magni/ Sigurður Sigur-
jónsson, Nfels bóndi/ Jón
Hjartarson, Lars/ Guðjón
Ingi Sigurðsson, Anna/
Helga Þ. Stephensen, þulur/
Klemenz Jónsson.
18.10 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Baðstofulff í Grímsey og
leiklist á Borgarfirði eystra.
Jökull Jakobsson ræðir við
Sigurjónu Jakobsdóttur;
fyrri hluti.
20.05 Frá tónlistarhátfðin f
Helsinki á liðnu sumri.
a. Konsertþættir eftir
Francois Couperin og Sex
spænsk þjóðlög eftir Manuel
de Falla. Róman Jablonski
leikur á selló og Krystyna
Borucinska á píanó.
b. „Frauenliebe und Leben",
lagaflokkur op. 42 eftir
Robert Schumann. Irja
Auroora syngur. Gustav
Djupsjöbacka leikur á píanó.
20.55 Frá haustdögum. Jónas
Guðmundsson rithöfundur á
ferð um vestanverða áifuna.
21.30 Píanótónlist eftir Bach,
Scarlatti og Chopin. Dinu
Lipatti leikur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
íþróttir kl. 16.30:
Fjölbreytt
ef ni að vanda
Efnið verður fjölbreytt og úr
ýmsum áttum í íþróttaþætti
Bjarna Felixsonar sem hefst í
sjónvarpinu kl. 16.30, að því er
fram kom í spjalli við Bjarna f
gær. Mun hann sýna frá ls-
landsmótunum í körfubolta og
blaki. Þá mun hann eiga viðtal
við formann Iþróttasambands
Danmerkur. Kurt Möller. I síð-
asta þætti spjallaði Bjarni við
Kurt og þá töluðu þeir um
íþróttasamskipti Norður-
landanna og þau vandkvæði
sem við væri að etja í því sam-
bandi. Var Möller mjög opin-
skár í tali sínu og ræddi hlutina
hreint út. Mun Bjarni spjalla
við Kurt Möller um fþróttir í
Danmörku í dag.
Ymsar erlendar íþróttafrétta-
myndir verða sýndar f þættin-
um í dag, einkum frá Norður-
löngunum. Þá mun verða rætt
við formann Borðtennissam-
hands Islands, Gunnar
Jóhannsson, en sambandið á
fimm ára afmæli í dag. Þá mun
þátturinn sennilega enda á
mynd frá Heimsmeistaramót-
inu f listhlaupi á skautum sem
fram fór í Tokyo í vor.
I leiknum úr ensku knatt-
spyrnunni eigast við Arsenal
og Birmingham, en að sögn
Bjarna er leikurinn fjörugur
og skcmmtileg mörk skoruð.
Bjarni Felixson sagðist ekki
vera búinn að skipuleggja þátt
sinn á mánudagskvöldið. Þó
sagðist hann mundu sýna frá
íþróttaviðburðum helgarinnar
eins og hann mundi komast
yfir. Verður það mest frá bolta-
fþróttunum, eins og Bjarni
komst að orði, en einnig verður
sýnt frá móti Borðtennissam-
bandsins þar sem hinn heims-
frægi tennisieikari Kjell
Johannsson verður meðal þétt-
takenda. Einnig sagðist Bjarni
sýna eitthvað af erlendum
íþróttamyndum, þ.á m. mynd-
um frá heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu, en þar fá
menn m.a. að sjá Sviss, Noreg,
Austurríki og Tyrkland.
Nýr brezkur mynda-
flokkur í sex þáttum hef-
ur göngu sína í sjón-
varpinu kl. 18.30 í dag.
Eru þættirnir byggðir á
sögu eftir rithöfundinn
Susan CoIIidge og
nefnast Katy en það er
nafn aðalpersónunnar
sem er fimmtán ára
göniul stúlka. Býr Katy í
Bandaríkjunum ásamt
föður sínum og þremur
systkinum, þar sem
móðir hennar er Iátin.
Myndin er af Claire
Walder sem fer með
hlutverk Katy.
Sjónvarpsmyndin
John Wayne í kvöld
íslenzkir sjónvarps-
áhorfendur fá um þessar
mundir að sjá hvert stór-
menni hvítatjaldsins af
öðru. Síðasta laugardag
voru frægir menn á
skjánum í ágætum
vera hin
kvöldsins,
21.45 segir
vestra. í kvöld fá menn
að sjá eina af
ódauðlegum hetjum
vestranna, John Wayne.
Að vísu er Wayne ekki í
hlutverki kúreka í kvöld,
en engu að síður ætti
myndin að
ágætasta.
Kvikmynd
sem hefst kl.
af hnefaleikaranum Sean
Thornton sem verður
manni að bana í keppni.
Við þann atburð ákveður
Thornton að yfirgefa
hringinn og snýr til síns
heima. Margt fróðlegt og
stundum óvænt tekur þá
við. Helsti mótleikari
John Wayne í kvöld er
Maureen O’Hara sem
einnig er góðkunn fyrir
kvikmyndaleik sinn.
Meðfylgjandi mynd er af
þeim. Myndinni stýrði
John Ford.