Morgunblaðið - 12.11.1977, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1977
33
félk í
fréttum
Seglskip fyrir fullum seglum eru alltaf glæsileg sjón. Þetta er
skólaskipið „Sagres“ frá Portúgal sem siglir fullum seglum út úr
höfninni I Kiel. Stúlkan í forgrunninum veifar f kveðjuskyni til
áhafnarinnar sem eru 194 manns.
Heimsins besta
par i hjóla-
skautahlaupi
heitir „The Cali-
fornian Hobie
Team“. Þeir
hafa nýlega haf-
ið sýningarferð
um Evrópu þar
sem þeir ætla að
sýna listir sínar í
Englandi,
Frakklandi, ítal-
iu og Sviss. Hér
sjáum viö annan
aðilann sýna list-
ir sínar.
Það var leikarinn Kudolf Nureyev sem hér heiisar Margreti prinsessu, eftir frumsýningu á mvndinni
„Valentino". Myndin sem var frumsýnd f London fjallar um ævi Valentinos en hann var einn
þekktasti og dáðasti leikari þöglu myndanna. Við hlið Nure.vevs stendur leikkonan Leslie Caron.
Það var haldinn Telly „Kojak“ Sav-
alas dagur nýlega í Mexíkanska
landamærabænum Tijuana, til
heiðurs hinum fræga leikará. 20
þúsund myndum af honum var
dreift yfir bæinn úr þyrlu og gata
var skírð í höfuðið á honum.
Þagad um
mannrán
Róm, 10. nóv. Reuter.
FJÖLSKYLDA Grazioli hertoga,
er rænt var á mánudag, fór þess á
leit við blaðamenn í dag að þeir
skrifuðu ekkert um mannránið að
þvf er virðist vegna þess að samn-
ingatilraunir við mannræningj-
ana stóðu yfir.
Eftir að hertoganum var rænt
hringdi ónafngreindur maður og
krafðist 10 milljarða lira lausnar-
gjalds, ella yrði hertoginn liflát-
inn.
Borgfirðingar —
Mýramenn
Almennt hlutafjárútboð í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu vegna stofnunar Prestahnjúks h.f.
Upphæð hlutabréfa er kr 5000. —,
10.000. — , 50.000 — og 100 000 —
Áhugaaðilar hafi samband við undirritaða fyrir
25 nóvember n.k.: Konráð Andrésson í síma
7113 og 7155, Halldór Brynjúlfsson, simi
7370 og 7355, Jón Þórisson, sími um Reyk-
holt, Sveinbjörn Blöndal, simi um Varmalæk,
Erling Gissurarson, sími 1094.
Kristniboðs-
1977
Eins og undanfarin ár verður annar sunnudagur í nóvem-
ber (13. þ.m.) sérstaklega helgaður kristniboðinu og þess
minnst í ýmsum kirkjum og á samkomum á morqun.
Á eftirfarandi guðsþjónustum og samkomum viljum við
vekja athygli:
Akranes:
Kristniboðs-kvöldguðsþjónusta í Akraneskirkju kl.
8.30 e.h. Benedikt Arnkelsson, guðfræðingur, prédikar
Séra Björn Jónsson, sóknarprestur þjónar fyrir altari
Akureyri:
Guðsþjónusta í Minjasafnskirkju kl. 11.00 f.h. Skúli
Svavarsson, kristniboði, prédikar. Séra Pétur Sigurgeirs-
son, vigslubiskup, þjónar fyrir altari.
Kristniboðssamkoma í kristniboðshúsinu Zion kl.
8.30 e.h. Gunnar Sigurjónsson, guðfræðingur, og Skúli
Svavarsson, kristniboði, tala.
Hafnarfjörður:
Guðsþjónusta i Hafnarfjarðarkirkju kl. 2.00 e.h. Bene-
dikt Jasonarson, kristniboði, prédikar Séra Gunnþór
Ingason, sóknarprestur, þjónar fyrir altari.
(Kaffisala til ágóða fyrir kristniboðið verður í húsi
K.F.U.M og K. við Hverfisgötu frá kl 3 — 6 e.h.)
Kristniboðssamkoma í húsi K.F.U.M. og K. við
Hverfisgötu kl. 8.30 e.h. Séra Jónas Gíslason, dósent,
talar. Æskulýðskór K.F.U.M. og K. í Reykjavík syngur.
Reykjavík:
Guðsþjónusta i Neskirkju kl. 11.00 f.h. Jónas Þóris-
son, kristniboði, prédikar. Séra Frank M. Halldórsson,
sóknarprestur, þjónar fyrir altari.
Guðsþjónusta i Arbæjarskóla kl. 2.00 e.h. Benedikt
Arnkelsson, guðfræðingur, prédikar. Séra Guðmundur
Þorsteinsson, sóknarprestur, þjónar fyrir altari.
Guðsþjónusta í Hallgrimskirkju kl. 11.00 f.h. Ingunn
Gísladóttir, safnaðarsystir, annast kristniboðsþátt. Sókn-
arprestur, séra Ragnar Fjalar Lárusson, prédikar og
þjónar fyrir altari.
Guðsþjónusta i Háteigskirkju kl. 2.00 e.h. Baldvin
Steindórsson, varaform. S.Í.K., prédikar. Séra Arngrimur
Jónsson, sóknarprestur, þjónar fyrir altari.
Kristniboðssamkoma í húsi K.F.U.M. og K. við Amt-
mannsstíg kl 8.30 e.h. Jónas Þórisson, kristniboði, sýnir
nýjar litskuggamyndir og talar. Fjórar ungar stúlkur
syngja.
Á ofangreindum stöðum og — eins og áður sagði i
ýmsum öðrum kirkjum landsins, verður islenzka kristni-
boðsstarfsins minnst og gjöfum tíl þess veitt móttaka
Kristniboðsvinum og velunnurum eru færðar beztu þakk-
ir fyrir trúfesti og stuðning við kristniboðið á liðnum
árum, og þvi treyst, að liðsinni þeirra bregðist eigi heldur
nú.
Samband íslenzkra Kristniboðsfélaga.
Aðalskrifstofa Amtmannsstíg 2B,
Pósthólf 651.
Gíróreikningur nr. 65100,
Reykjavik.