Morgunblaðið - 27.11.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.11.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVBMBER 1977 # GEIR HALLGRIMSSON á fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokks: raun og veru er þetta mál Og þannig hefur Sjálfstæðisflokkurinn litið á það fram til þessa Ég vona að þessi stefna eigi ekki eftir að breytast á þann veg, að fjárhagssjónarmiðið nái yfirhöndinni. Ef þannig færi, hefðum við glat- að þeirri sjálfsbjargarviðleitni, sem felst í því að vinna hörðum höndum fyrir lífsviðurværi okkar og leysa vanda okkar sjálf. Með sjálfs- bjargarviðleitninni hyrfi síðan sjálfstæðið Sjálf- stæðisflokkurinn mundi ekki þá rísa undir nafni unni Við höfum haft kjark í okkur bæði til að tala við aðrar þjóðir og gera samninga þrátt fyrir andstöðu En hver efast um það, að rétt hefur verið haldið á málum á þessu sviði, nú þegar árangurinn er kominn i Ijós Það hafa verið gerðar margar og miklar samþykktir í hita baráttunnar, en miklu skiptir að hafa yfirsýn yfir málin til lengri tíma, og ég hika ekki við að segja að það hefur Sjálfstæðis- flokkurinn haft, og rikisstjórnin í heild Nú eru samþykktar yfirlýsingar um það, að það megi VIÐISLENDINGAR GREIÐUM EK VEGNA ÖRYGGIS OG VARNA Þyrftum að greiða 13,5 milljarða ef við hefðum sömu útgjöld og Norðmenn og Danir vegna landvarna Hér fer á eftir í heild ræða sú, sem Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti á fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í fyrradag: Á þessum flokksráðsfundi er ástæða til þess að við hugleiðum nokkuð hvað hefur áunnist á þessu kjörtímabíli, hver hefði staðan orðið ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið utan ríkis- stjórnar og hvaða árangur hefur orðið af aðild og forystu Sjálfstæðisflokksins i rikisstjórninni á þessu kjörtímabili Ég vil biðja menn að leiða hugann að þvi hvað hefði orðið um varnir landsins, ef vinstri stjórnin hefði setið áfram við völd þetta kjör tímabil Varnarliðið væri farið af landi brott Efast má um að við værum i Atlantshafbanda- laginu Landið væri opið og óvarið Ég tel raunar, að það sé tímabært fyrir okkur íslendinga að láta af sifelldum deilum um veruna i Atlantshafsbandalaginu og varnar samstarfi við Bandaríkin. Tæplega 30 ára reynsla hefur sannað okkur rættmæti þeirrar stefnu, sem fylgt hefur verið Reynsla samaðila okkar að bandalaginu er sú sama og þeir viðurkenna hana með samstöðu um öryggis- og varnarstefnuna inn á við og út á við, Ekki sæmir lengur, að hér á landi sé verið dð deila um jafn augljósa staðreynd og þá, að Atlants- hafsbandalagið er helsta forsenda þess, að friður haldist i okkar heimshluta og varnarvið- búnaður bandalagsþjóðanna er til þess fallinn að koma i veg fyrir styrjöld. Aðíldm að banda- laginu og dvöl varnadiðsins hér á landi á grundvelli aðildarinnar, eiga að vera hornstein- ar islenskrar utanríkisstefnu að óbreyttu ástandi, en ekki sifellt þrætuepli þeirra, sem ekki vilja viðurkenna staðreyndir Um leið og ég segi þetta, verðum við Sjálfstæðismenn þó að vera þess albúnir að halda uppi rökræðum og umræðum um nauð- syn þess að vernda öryggi okkar og stuðla að vörnum landsins meðan á móti þeim er mælt En andstæðingar okkar á þessum vettvangi eru á undanhaldi Það sýna viðbrögð Alþýðu- bandalagsins sem nýverið hefur haldið lands- fund sinn hér í Reykjavik, þar sem þetta mál var ekkert aðalatriði í stefnuskrá bandalagsins og ætti það að vera nokkur vitnisburður um, hvað sá flokkur telur vænlegt að hafa á kosrv ingastefnuskrá sinni, til þess að afla fylgis. bað er Ijóst, að ef við höldum uppi merki öryggis og varna, þá verður það til þess að afla okkur fylgis Æskilegast væri, að við hættum þó að deila um þessi einfóldu grundvallaratriði og gætum heilshugar snúið okkur að hinu. sem ávallt á að vera íhugunar- og umhugsunarefni, hvort gera þurfi frekari ráðstafanir til varnar i landinu en nú er. Verði níðurstaðan sú, t.d., eftir slíkt mat, að byggja þurfi nýjan flugvöll. t d á Austurlandi eða annars staðar og leggja vegi sem tengi flugveHina, verðum við að gera okkur grein fyrir því, að við verðum að sætta okkur við aukin umsvif varnarliðsins Slikur nýr flugvöllur reistur i varnanna þágu, kallar á lið og herbúnað til þess að hann komi að gagni Allar aðrar þjóðir hafa í raun og veru þurft að framkvæma slikt mat og meta hve mikil umsvif og höft þær vilja leggja á daglegt líf sitt á friðartimum til þess að vera viðbúnar árás eða ófriði eða koma i veg fyrir ófrið Við stöndum (slendingar frammi fyrir sama vanda þótt við höfum ekki eigin her. Aðrar þjóðir verða að svara þeirri spurningu þegar þær gera fjárlög sín hvað mikið þær vilja borga í skatt til þess að halda við her sínum og varnarviðbúnaði Við íslendingar erum það heppnir, að aðrar þjóðir, og sérstaklega Banda- ríkjamenn, hafa létt þessum útgjöldum af okk- ur Við greiðum ekki eina krónu af okkar fjárlögum tíl varna og öryggis landsins Við skulum hafa þetta í huga, þegar talað er um, að við eigum að taka gjald fyrir varnar- stöðina Bandarikjamenn vörðu 6% af þjóðar- framleiðslu sinni tif varnarmála 1976, Bretar 5,1%, Norðmenn 3,1% og Danir 2.8% i þessu sambandi er því rétt að benda á, að ef við hefðum þessi útgjöld, islendingar og þyrft- um á næsta ári að verja 3% af þjóðarfram- leiðslu okkar i þessu skyni, mundi það nema um 13,5 mill|örðum islenskra króna í Bandaríkjunum er 4,9% af landsmönnum á aldrinum 18—45 ára i hernum, 3,2% i Bretlandi, 3.4% i Danmörku og 5,2% i Nor- egi. Ef jafn margir íslendinga; hlutfallslega og Norðmenn væru bundnir við þessi störf, þá væri fjöldi þeirra 2,300 Sá mannafli mundi bæði duga skammt til varna landsins og væri okkur dýrkeyptur miðað við þá eftirspurn eftir vinnuafli, sem nú er En til þess getur komið, að við þurfum að hafa mannafla, sem að einhverju leytí gegndi varnarstörfum og öryggisgæslu Til þess gæti komið, að við þyrftum að efla landhelgisgæslu okkar og löggæslu með þeim hætti, að við værum ekki uppnæmir fyrir einni hleypiskútu. eða fáeinum vopnuðum bófum^ef að landi kæmi. og áhöfn- in gengi á land, eins og Jón Sigurðsson benti raunar á á siðustu öld Og meðal annars gæti til þessa komið, þegar ástand í heimsmálum er orðið slíkt, að við teldum timabært að varnar- liðið færi af landi brott. í þessu sambandi er þó aðalatriðið að gera sér grein fyrir því, að ísiand er mikilvægur hlekkur í varnarkerfi hins frjálsa heims. En það mikilvægi er ekki siður mikilvægi fyrir framtið okkar en annarra þjóða Eigum við að nota mikilvægi íslands fyrir aðrar þjóðir til þess að setja verðmiða á (sland? Ég svara nei Til þess má aldrei koma Við getum í raun og veru með sama hætti sett verðmiða á Þýzkaland og síðan spurt Hvers vírði er Noregur, hvers virði er Bretland eða Bandarikin? Þegar við gerum dæmið upp. þá erum við öll hin vestrænu, frjálsu ríki, mikilvæg Við erum mikilvæg hvert öðru og hvert fyrir sig Við erum hvert öðru þanmg háð og gerum varnarsamninga vegna gagnkvæmra hagsmuna og vegna þess að við viljum tryggja öryggi okkar Auðvítað vitum við það, að Bandarikin eru i sjálfu sér ekki að leggja í þann kostnað, sem þau hafa af varnaraðstöðunni i Keflavík, okkar vegna út af fyrir sig Þau eru að gera það fyrír sjálf sig Við víljum Ijá þeim þessa aðstöðu, ekki vegna Bandarikjanna, heldur vegna okkar eigin hagsmuna. Hér er um gagnkvæma hags- muni að ræða, sem við skulum ávallt hafa i huga Sumir hafa sagt, að tilvist varnarliðs hér á landi værí í raun og veru til þess falín að við værum nokkurs konar fallbyssufóður og við ættum þess vegna að taka gjald fyrir varnar- stöðina En ef varnarstöðin gerir hættuna meiri og öryggið minna, þá eigum við auðvitað að láta varnarliðið fara Sannleikurinn er sá, að varnarliðið er hér til þess að koma í veg fyrir að við séum fallbyssufóður Ef við ætlum að taka fjármuni fyrir það að aðrir leggja nokkuð á sig til að tryggja öryggi okkar, þá hefðum við engan varnarsamning átt að gera Og þá eigum við að láta varnarliðið fara Svo einfalt i SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKURINN OG LANDHELGISMÁL Næst er ástæða til þess að gera sér grein fyrir því, hvernig ástandið væri í landhelgís- málunum, ef atbeina Sjálfstæðisflokksins hefði ekki notið við Við siðustu kosningar voru það taldar skýjaborgir, þegar Sjálfstæðisflokkurinn hafði það á stefnuskrá sinni að færa fiskveiði lögsöguna út í 200 mílur. Við munum það, að Lúðvik Jósefsson sagði að það gæti nú beðið Það gæti beðið eftir að Hafréttarráðstefnunni lyki og ekkert lægi á Hafréttarráðstefnunni er enn ekki lokið. og það er vist og áreiðanlegt að það væri ekki búið að færa fiskveiðilögsöguna út i 200 milur ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki einmitt sett það á stefnuskrá sina við síðustu kosningar og það hefði verið sett í stefnuskrá rikisstfórnarinnar Við munum, að þá var jafnvel ekki búið að vinna sigur i baráttunni fyrir 50 milunum Þá var í gildi samningur við Breta um að þeir gætu fiskað hér 1 30 000 tonn á ári hverju Og við munum að þegar þeim samningi lauk. var gerður samningur við Vestur-Þjóðverja, en það tókst ekki að ná samkomulagi við Breta Þá sögðu sumir. og ekki sist stjórnarandstaðan, að það mætti ekki tala við aðrar þjóðir Að það mætti ekki undir neinum kringumstæðum semja um deilumál Það var fyrir neðan virðingu okkar (slendinga að hafa slíkt á stefnuskrá okkar Við viljum leysa deilumál með samningum Og það tókst Fyrst tókst að gera samning við Vestur- Þjóðverja og siðan. eftir hatramma deilu, við Breta 6 mánaða samkomulag náðist við þá, sem rann siðan út án þess að það væri endurnýjað, þrátt fyrir að andstæðingar okkar segðu að það mundi verða gert, og það hefði ríkisstjórnin i hyggju Með sama hætti rennur nú út samkomulagið við Vestur-Þjóðverja á miðnætti næstkomandi mánudag Það er búið að hreinsa islenska fiskveiðilögsögu út i 200 milur af erlendum fiskiskipum. ef undan eru tekin örfá norsk, belgisk og færeysk skip Er þetta ekki árangur? Eigum við ekki að minnast þessa árangurs? Og hver okkar efast um að það er ekki sízt Sjálfstæðisflokknum að þakka, að þessi árangur hefur náðst Ég vil ekki setja neinn skugga á samstarfs- flokk okkar í rikisstjórn i þessu máli Hann ætti það ekki skilið vegna þess að rikisstjórnin hefur saman unnið að þessum sigri. En það er engum vafa bundið. að við höfum sam- eiginlega markað þá stefnu með samning- um, þegar því var að skipta. sem hefur lyktað þannig, að við sitjum einir að fiskveiðilögsög- ekki hafa samninga áfram við Færeyinga, við Belga og við Norðmenn Og mér er sagt, að síðan hafi t.d. verið látið að því liggja að við mættum ekki semja um að leyfa Færeyíngum að veiða nokkra loðnu hér við land Fiskifræð- ingar segja. að það megi veiða milli milljón og hálfa aðra milljón tonn af loðnu hér við land Yfirstandandi ár hefur verið mjög gott veiðiár og við höfum fiskað samtals um 750 — 800 þúsund tonn af loðnu Og öll þau skip, sem hafa getað og viljað stunda loðnuveiðar hafa verið að því Samt höfum við ekki fiskað meir í frumvarpi að Hafréttarsáttmála, sem við erum að berjast fyrir að fá samþykkt á Haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, eru þau ákvæði okkar mikilvægust í fyrsta lagi. að það sé strandríkið. sem ákveði hvað mikið megi veiða innan fiskveiðilögsögu þess I öðru lagi að strandríkið sjálft ráði þvi og ákveði og dæmi um, hvort það er megnugt að fiska þetta magn Og í þriðja lagi sé það strandrikið sjálft, sem semji um umframafla, sem það telur sig ekki geta veitt, við aðrar þjóðir, til þess að fullnægja fæðuþörf sveltandi heims Ef við núna höguðum okkur þannig. að við brytum á móti þriðja boðorðinu i þessum Hafréttarsátt- mála eða frumvarpi að honum, hvaða svip setti það á okkur á þeirri ráðstefnu? í hvaða hættu stofnuðum víð þvi ákvæði í heild? Það er vissulega fylgst með okkur íslendingum á þessu sviði Þröngsýni, einsýni, verður að víkja i þessum efnum sem öðrum. Og við verðum að hafa kjark til þess að sannfæra fólkið um það rétta i hverju máli fyrir sig Það er einfaldara að hefja áróður fyrir þvi, að við eigum einir að sitja að öllu. Það er fyrírhafnarmeira að sýna fólki fram á rök þess að til lengdar þjónar samningur t.d við Færeyinga hagsmunum okkar betur Við Sjálfstæðismenn höfum yfirleitt þann málstað, sem erfiðara er að flytja, vegna þess að hann skyggnist dýpra undir yfirborðið en yfirborðsmennska og áróðursyfirlýsingar stjórnarandstöðuflokkanna Og það er út af fyrir sig gott og göfugt hlutskipti Það er t d skammsýni að segja upp samningunum við Belga, sem eru hér með innan við 10 smáskip að veiðum sem eru að syngja sitt síðasta Þau veíða 5—6 þúsund tonn og þar af innan við 1000 tonn af þorski Og þetta magn fer minnkandi Það er skynsamlegt að heimila þessar veiðar áfram út frá því sjónarmiði, að það er e.t.v. gott að hafa eitt land innan Efnahagsbandalagsins, sem við höfum tengsl við á þessu sviði. um leið og við höfum sagt við Bretland bg við Vestur-Þýskaland og Efna- hagsbandalagið í heild, að eins og á stendur höfum við ekki aðstöðu til þess að gera fisk- veiðisamninga Nörðmenn fiska hér frá 1 500 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 27. NÖVEMBER 1977 til 2500 tonn með litlum skipum og sama og ekki neitt af þorski heldur tegundir sem við höfum lítið lagt okkur eftir að veiða Við höfum emnig hagsmuna að gæta gagnvart Norð- mönnum Við höfum samskipti við þá t d við skiptingu hrefnuafla hér á norðurhöfum. En þessum tveim þjóðum hefur verið falið að skipta sín á milli þunnum afla af alþjóðahval- veiðiráðinu Þess vegna verðum við að hugsa málin frá öllum hliðum áður en við samþykkj- um slikar yfirlýsingar sem hafa verið alltof núverandi stjórn tekur við völdum og fær i arf yfir 50% verðbólgu og skuldir og hallarekstur alls staðar. versna viðskiptakjörin á fyrstu tveim árum, sem þessi ríkisstjórn er að störf- um, um þriðjung Það er von að þessi þróun hafi komið illa við margan manninn. Það er von að núverandi rikisstjórn hafi átt við ramman reip að draga Auðvelt er að benda á, hvaða árangri núverandi rikisstjórn hefur náð við þessar kringumstæður og þessi skil- yrði Það er hægt að telja það upp í nokkrum Kl EINA KRONU LANDS OKKAR mikið i tisku i ýmsum félagssamtökum hér á landi, með þvi er í raun og veru skákað i þvi skjólinu. að ábyrgðin sé ekki á hverjum ein- stökum fundarmanni eða félagsmanni heldur ræður sá sem hæst gellur Við skulum að þessu athuguðu slá þvi föstu, að aðild og forysta Sjálfstæðisflokksins í rikis- stjórn, þar sem sjávarútvegsráðherrann hefur verið Sjálfstæðisflokksmaður, hefur haft úr- slitaþýðingu um þann mikla árangur, sem víð höfum náð i landhelgismálinu EFNAHAGSMÁL Þá er rétt að víkja að efnahagsmálunum Og ég held að rétt sé og nauðsynlegt, að rifja upp, hvernig ástandið var þegar núverandi rikis- stjórn tók við völdum Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það, en við munum að verðbólgan var yfir 50% á þvi ári Við munum, að þá var taprekstur á atvinnuvegum lands- manna. Það var 25% tap á frystihúsunum i landinu Það var milljarðatap á útgerð togara og fiskiskipa. Allir sjóðir voru tómir og marga milljarða vantaði bæði i atvinnulánasjóðina og t d Byggingasjóð ríkisins Halli ríkissjóðs var I milljörðum talinn Og halli rikisfyrirtækja og skuldasöfnun sömuleiðis Póstur og simi var búinn að eyða öllu orlofsfé og Rafmagnsveitur rikisins voru i mörghundruð eða milljarða króna halla. Til þess að bjarga því máli þá þurfti auðvitað að setja á nýjan skatt Hækka verðjöfnunargjald rafmagns Fjórfalda eða fimmfalda að þvi er mig minnir. Áburðarverk- smiðja ríkisins og Sementsverksmiðja rikisins voru reknar með miklum halla Rikisútvarpið var búið að éta upp myndarlegan húsbygging- arsjóð sinn og stofna til hundruð milljón króna skulda í bönkum landsins Sveitarfélögunum hafði verið neitað um gjaldskrárhækkanir þannig að það varð að auka erlendar lántökur til Hitaveitu Reykjavikur og Rafmagnsveitu Reykjavikur, sem siðan hefur komið niður á notendum i hærra gjaldi fyrir þessa þjónustu Sveitarfélögin söfnuðu skuldum i viðskipta- bönkunum og öll fyrirtæki i landinu raunar lika, þannig að svo mikill halli varð á peninga- markaðnum að hann hafði aldrei áður verið meiri fyrr eða siðan Ég held að það sé rétt að við munum þetta allt saman, vegna þess að ráðm við þessu voru engin önnur heldur en að jafna stöðu rikis- sjóðs, rikisfyri rtækja og sveitarfélaga með hækkun skatta, með hækkun gjaldskrár og þvi er sú dýrtiðarþróun, sem átti sér stað eftir stjórnarskiptin að miklu leyti af völdum fyrri stjórnar En það er ekki nóg með þetta Eftir að mjög mikilvægum atriðum I fyrsta lagi var verðbólgan komin niður í 26% á fyrra helm- ingi þessa árs. Viðskiptajöfnuður er að nást þvi að við bjuggum við 11 —12% halla miðað við þjóðarframleiðslu Jöfnuður náðist í ríkisfjármálunum á síðasta ári, á peningamark- aðnum hvað snertir útlán og sparifjármyndun árinu áður Þetta er auðvitað þvi að þakka, að rikis- stjórnin hafði kjark i sér til að beita sér fyrir aðhaldsaðgerðum, draga úr þjóðarútgjöldum Sá samdráttur kom þyngst niður á einkaneysl- unni Það skal játað. Kjararýrnun einstakling- anna varð þvi tilfinnanleg En samt tókst með viðunandi hætti að ná samkomulagi við sam- tök launþega, er gerðu sér grein fyrir nauðsyn þessara ráðstafana Við settum það aftur á móti á stefnuskrá rikisstjórnarinnar að auka framkvæmdir á ákveðnu sviði sérstaklega, þ e.a.s. á sviði orkumála, til þess að koma því svo fyrir að við þyrftum minna á erlendum gjaldeyri að halda en áður vegna verðhækkana á oliu Þetta hefur að vissu leyti haft það i för með sér, að eftirspurnarþensla hefur verið hér innanlands á vinnumarkaðnum annars vegar, og við höfum fjármagnað þessar framkvæmdir með erlendum lántökum hins vegar. Það má vissulega ræða það og ég get út af fyrir sig fallist á, að við hefðum þurft að draga meira úr framkvæmdum hins opinbera almennt heldur en gert var En hins vegar var þarna um þann kost að velja, að reyna að ná ákveðnum áföngum i framleiðslu orku i landinu til þess að spara þegar til lengdar léti Það er rétt, að frá miðju þessu án hefur það valdið okkur vonbrigðum, að verðbólgan hefur aftur farið i vöxt Og það er engum blöðum um það að fletta, að auðvitað hafa launasamning- arnir átt drýgstan þátt i þeirri breytingu Með þessu er ég ekki að segja, að það væri ekki eðlilegt að launastéttir landsins fengju nokkra kjarabót þegar viðskiptakjörin snérust til hins betra seinni hluta siðasta árs og á þessu ári Sérstaldega vegna þess að kjararýrnun, minnk- un þjóoarútgjalda, hafði einkum lent á laun- þegum landsins og á einkaneyslunni Þess vegna var augljóst, að þarna þurfti að eiga sér stað breyting. En því miður tókst ekki að ná samstöðu um hóflegri kauphækkanir i krónu- tölu Það tókst ekki að ná samstöðu um að ætla sér bætt lífskjör á lengri tima og þvi verður nú launahækkunin i krónutölu á yflr- standandi ári, frá byrjun til loka árs, um 60% Það segir sig sjálft, að það er ekkert efnahags- kerfi sem getur gleypt slíka kauphækkun i krónutölu án þess að hún komi fram í verðlag- inu Og það er út af fyrir sig sárt til þess að vita, að með slíkri krónutöluhækkun kaups náist ekki nema 6—8% kaupmáttaraukning Markmið hlýtur að vera að ná þeirri kaupmátt- araukningu, sem viðskiptakjör út á við leyfa eða aukin framleiðni inn á við gefur skilyrði til með öðrum hætti Og að þvi verðum við að stefna En umfram allt skulum við, Sjálfstæðis- menn, ekki láta þetta hafa þau áhrif á okkur, að allt sé ómögulegt og ekki sé um neitt annað að gera en að gefast upp í baráttunni við verð- bólguna Við höfum að vísu þurft að sætta okkur við, að sóknin gegn verðbólgu beri ekki þann árangur, sem við höfðum vonað, en það er lífsnauðsyn að við látum ekki hugfallast. missum ekki sjónir á markmiðinu og höldum baráttunni ótrauðir áfram. þótt hún taki lengri tima en við héldum í upphafi Og að því leyti höfum við orðið fyrir vonbrigðum _______STAÐANI DAG Þá liggur næst fyrir að átta sig á hver staðan er i dag. Og hvað beri að gera nú, og i þeim efnum er auðvitað eðlilegt að ég geri ykkur grein fyrir þvi, við hvaða vanda rikisstjórnin og Alþingi er nú^að berjast einkum og sér i lagi Og þá nefm ég fyrst afgreiðslu fjárlaga. en útlit er fyrir, að þegar áhrif kauphækkana, sérstak lega vegna samninga við opinbera starfsmenn. eru útreiknuð. þá muni vera um 7 milljarða króna f|árhagsvanda rikissjóðs að ræða Ef við svo setjum okkur það markmið að erlendar lántökur fari ekki fram úr afborgunum erlendra lána og mögulega einhverri lántöku erlendis til viðbótar til þess að bæta gjaldeyrisstöðu lands- ins, þá setur þetta þröngar skorður bæði fyrir Geir Hallgrimsson flytur ræðu sina á fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins i fyrradag lánsfjármögnun lánsfjár- og framkvæmdaáætl unar landsins i heild Þetta þýðir að við verð um að skera niður ýmsar þær framkvæmdir, sem við teljum út af fyrir sig æskilegar, sem e.t.v. er hægt að segja að skili arði En þetta er nauðsynlegt, ef við viljum standa við það heit að auka ekki erlendar skuldir landsins og það er ennfremur. og ekki sllður nauðsynlegt. ef við viljum draga úr þenslunVi innanlands. og eftir spurninni bæði eftir vinnuafli og þjónustu, vegna þess að við höfum ekki stjórn á stefn- unni i launa- og tekju og verðlagsmálum, ef við höfum ekki stjórn á eftirspurninni innan- lands Af hálfu ríkisvaldsins er okkur einkum á tVeim sviðum mögulegt að leggja okkur fram i baráttunni gegn verðbólgu, og það er annars vegar við stjórn rikisfjármála. með því að sjá um að jöfnuður sé á rikissjóði. hins vegar með stjórn á peningamarkaðnum með þvi að sjá svo um að sjjarifjármyndunin sé eins mikil eða meiri en útlánin Hvað hið fyrra snertir, þá þýðir það, að við verðum að hafa kjark til þess að skera niður annað hvort opinberar framkvæmdir eða þjón- ustu. þótt nauðsynlegar séu Hvað peninga- markaðinn snertir. verðum við að hafa kjark til þess að koma á jafnvægi á lánamarkaðinum með þvi að örva sparifjármyndunina og hækka vexti eða verðtryggingu i þvi skyni Það hafé verið skiptar skoðanir um hávaxtastefnu eða lágvaxtstefnu Það hafa verið skiptar skoðanir um það, hvort verðtryggja beri lánsfjármagn eða hækka vexti í mínum huga er þetta eitt og hið sama Það er sama að verðtryggja pening- ana og að taka vexti, sem samsvara að upp- hæð til verðbólguþróuninni á hverjum tima. En hins vegar getur verið auðveldara að sannfæra fólk um að verðtryggingin sé réttlátari én háir vextir M a þess vegna hefur verið tekinn upp verðbótaauki, verðtryggingarálag á vexti. til þess að fara þessa verðtryggingarleið Það er sagt að atvinnuvegirnir hafi ónógt fjármagn, og vissulega hafa þeir ónógt fjármagn meðan sparifjársöfnunin er ekki til staðar Til þess að örva hana verðum við að sjá svo um, að fólk sem sparar sé jafn vel sett eða betur þegar til peninganna þarf að gripa og þegar það lét peningana af hendi. Ella kaupir þetta fólk vörur og þjónustu. setur peninga sina i steinsteýpu, sem örvar eftirspurnarjjensluna innanlands og eykur á verðbólguna Þetta held ég að okkur sé i raun og veru öllum Ijóst, en þetta eru staðreyndir, sem nauðsynlegt er að tengja úrlausn einstakra mála Þetta er skýrmg á þvi af hverju ekki er unnt að gera allt i einu Skýringin á þvi að við verðum að velja og hafna, skýringin á þvi, að þið, forystusveit Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum. getið staðið frammi fyrir þvi að geta ekki lofað kjósendum öllu sem kjósendur óska eftir að fá _______VERÐBÓLGAN Að störfum er svokólluð Verðbólgunefnd sem sett var á stofn fyrir rúmu ári og við gerðum okkur vomr um að lyki störfum s I vetur Þá fóru kjarasamnmgar i hond og það reyndist ekki unnt að ná samstöðu um lúkn mgu á nefndarstorfum við þær kringum stæður, svo æskilegt sem það hefði ella verið, einmitt til þess að byggja á niðurstoðum nefndarinnar við stefnumorkun i launa og tekjumálum Þessi nefnd hefur aftur tekið til starfa og ætlunin er að hún starfi sleitulaust nú fram að jólum og hafi þá lokið störfum sinum að öðru leyti en að taka ákvarðanir eða draga j ályktanir og ganga úr skugga um hvort sam- staða næst. eða nauðsynlegt reynist að ganga frá meiri hluta og minni hluta ályktun Og j verður að þvi stefnt að þessu Verði lokið áður en þing kemur aftur saman að loknu jólaleyfi Hvermg sem fer um storf þessarar nefndar. hljótum við Sjálfstæðismenn að fylgjast mjög vel með störfum Tiennar Jafnhliða og hún situr að störfum hljótum við að marka stefnu okkar i efnahagsmálum Þá stefnu sem við flytjum kjósendum i kosningabaráttunni á vori komanda Sú stefna hlýtur að fela i sér það sem ég hef gert grem fyrir. jöfnuð i rikisfjár málum, jöfnuð á peningamarkaðnum, jofnuð i viðskiptunum við útlönd Og hún hlýtur einnig að snerta tekju- og launastefnuna ! landinu Það er að visu ekki á valdi stjórnvalda heldur frjálst samnmgsefm milli launþega og vmnu veitenda hvert kaupgjald skuli vera á hverjum tíma Þessi samtök taka það stundum óstinnt upp, ef stjórnvöld skipta sér af þeirri stefnu- mörkun Launþegar skiljanlega þegar stjórn völd segja að kaup megi ekki hækka Vinnu- veitendur skiljanlega þegar stjórnvöld segja að kaup eigi að hækka og megi hækka En sannleikurinn er sá. að við verðum að koma þessum aðilum saman. og stjórnvöfd geta ekki verið afskiptalaus með öllu, heldur verða þau að efna til samráðs og sameigmlegrar stefnu mótunar á þessu sviði Við getum ge'ngið út frá því sem visu, að fari kauphækkamr innanlands fram yfir framleiðsluaukningu eða viðskipta- kjarabata leiðir það til verðbólgu Og verð bólga er engum til hagsbóta, launþegum e t v allra sist FRJALSRÆÐIS STEFNAN Aður en ég lýk máli minu er gott að minna á að samkvæmt stefnu okkar Sjálfstæðismanna skiptir mestu máli að skapa skilyrði fyrir frjáls um samskiptum einstaklinga hvers þjóðfélags á efnahagssviðinu Gagnstætt þvi sem er stefna ándstæðinga okkar, að rikisvaldið eigt að skijtta sér af öllum hlutum og ákvorðunum Við rifjum upp gjarnan. S|álfstæðismenn þann mikilvæga árangur, sem náðist með myndun Viðreisnarstjórnarmnar 1960, þegar voruinnflutmngur var gefinn frjáls og engmn hafði trú á að það væri mögulegt En það var mögulegt Skrefið var stigið og hver vill hverfa aftur til hafta? Jú. það eru ýmsir sem vilja hverfa aftur til hafta Og ég staðhæfi að ef Sjálfstæðisflokksins hefði ekki notið við stjórn völinn og vinstri stjórn setið að voldum vær um við búnir að fá gjaldeyrishöft á þessum siðustu 3 — 4 erfiðleikaárum En við verðum að halda áfram. Sjálfstæðismenn. og við ger um okkur ekki ánægða með það að halda þvi frelsi sem komið var áður en þessi stjórn var skipuð Við ætlum okkur að skapa meira frelsi og það frelsi verðum við að skapa á peninga- markaðnum, á lánamarkaðnum með jafn vægisstefnu okkar i peningamálunum Við verðum að auka frelsi i gjaldeyrismálunum með þvi að koma þvi til leiðar að islensk króna sé jafn verðmæt hvar sem er i heiminum og launþeginn geti tekið úr launaumslagi sinu og eytt sinum penmgum hvar sem er i heiminum. en það verður aðems gert með þvi að gera það aðlaðandi að eyða þeim hér eða spara þá hér á landi Það gerum við ekki nema koma á jafnvægi i viðskiptunum við útlond Og við verðum i þrið|a lagi að koma á frelsi i verðmyndun. sem em getur tryggt húsbórida vald neytenda og launþega á markaðnum Þá eru þeir ráðandi um það hvaða vorur eru á boðstólum eða við hvaða verði þær eru seldar Þessi þrjú markmið frjálsræðisstefnunnar komu fram i stefnuræðu minni á Alþmgi i haust með fullu samþykki og samkomularji samstarfsmanna okkar í ríkisstjórn Og nú skulum við fylgia á eftir Sjálfstæðismenn i <jóðu samstarfi við okkar samstarfsflokk og láta efndir fylgja orðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.