Morgunblaðið - 15.12.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FllMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
15
Særótið vió suðurströndina — Særótió við suðurströndina — Særótið við suðurströndina
2/2 meters
flóðhæð þeg-
ar veðurofs-
inn gekk yfir
Grindavík 14. des.
OFSAVEÐUR gekk hér
yfir Grindavík í morgun
með miklum sjógangi.
Veðurofsinn byrjaði um
níuleytið og náði fljót-
lega hámarki. Þar sem
stórstreymi var einmitt á
þessum tíma var flóð-
hæðin geysimikil, eða
2—2XÆ metri þegar verst
lét.
Nokkrar skemmdir
urðu hér á bátum og
mannvirkjum. Báturinn
Erlingur KE 20 gekk upp
á svokallaða Kvíabryggju
í mestu hryðjunum og er
þar ennþá eins og með-
fylgjandi mynd sýnir
glögglega. Þá skemmdust
trillur sem stóðu á
sjávarkambinum hér við
þorpið nokkuð, þó engin
mjög alvarlega að því er
talið er við frumskoðun.
Sjóvarnargarðurinn
sem er hér við þorpið
skemmdist nokkuð er
sjór gekk stöðugt yfir
hann. Þá skemmdist stór
olíutankur töluvert þeg-
ar hann varð fyrir ágangi
og dældaðist mikið.
Sjór flæddi inn í mörg
hús og m.a. flæddi inn í
bæði fiskvinnsluhúsin
hér, Hópsnes og Þor-
björn, en skemmdir eru
þó ekki taldar alvarlegs
eðlis, en það er bæði dýrt
og mikið verk að hreinsa
húsin þar sem mikið
drasl og þang flæddi þar
um allt. Einnig urðu ein-
hverjar skemmdir á
íbúðarhúsum og fjárhús
hér úti á kambinum fyrir
utan bæinn skemmdist
töluvert er gaflinn gekk
hreinlega alveg inn.
Þegar verst lét var
algerlega ófært milli
húsa hér niðri í bænum
næst höfninni.
Guðfinnur.
Erlingur KE 20, tuttugu tonna bátur, sem gekk upp á „Kvfabryggju“ í óveðrinu i gær í Grindavík.
Mikill sjór gekk á land í óveórinu og varð ófært milli húsa nálægt höfninni.
Ljósmyndir (iuófinnur
IRA hótar fleiri
hermdarverkum
Belfast 14. des. AP.
MIKIL hræðsla greip um sig með-
al almennings í Belfast og
Londonderry eftir að sjö sprengj-
ur sprungu þar í gær, að sögn
lögreglu.
Sprengingarnar fylgdu í kjölfar
aðvörunar frá öfgaarmi IRA, þar
sem sagt var, að IRA myndi enn
auka hermdarverk sín í desem-
bermánuði.
Sprengjurnar í gær sprungu í
sportvöruverzlun í Belfast og i
smáverzlunum í Londonderry.
Enginn meiddist en skemmdir
urðu talsverðar.
Breskir hermenn slökktu eld-
ana, en þeir gegna störfum
slökkviðliðsmanna meðan þeir
eru í verkfalli. Síðan hermennirn-
ir tóku að sér slökkvistörf, hefur
IRA margsinnis komið fyrir
sprengjugildrum við brunahana
og hefur það gert hermönnum
mjög erfitt fyrir við slökkvistörf-
in.
Presley
Nashville. Tennessee, 14. desember. AP.
Uppboðshaldarinn Don B.
Smith segist eiga von á um 700
aðdáendum Elvis heitins
Presley þegar hann hefur upp-
boð sitt í kvöld á um 40 gripum
úr eigu hins látna konungs
rokktónlistarinnar.
Ekki sagðist Smith geta gert
sér í hugarlund hversu mikið
fé fengist fyrir gripina. „Hér er
um tilfinningar og tilbeiðslu að
ræða og ekki auðhlaupið að því
að meta slfkt til fjár,“ sagði
Smith.
Smith keypti gripina, sem
eru á uppboðinu, af Presley
uppboó
sjálfum en einnig hefur hann
fehgið þá hjá ættingjum hans.
Meðal þess, sem er á boðstólum,
er stórt málverk af einu húsa
Presleys og hefur Smith þegar
hafnað 75 þúsund dollara til-
boði i það. Ramminn, sem upp-
haflega var um málverkið
hefur verið sagaður í 'A senti-
metra langa búta og vill Smith
fá a.m.k. 4—5 dollara fyrir
hvert stykki. Loks má nefna að
Lincoln Limousine bifreið
Presleys, árgerð 1960, er á upp-
boðinu, en henni hefur verið
ekið 31 þúsund mílur og er ein
34 bifreiða sinnar tegundar.
Fjárlög fyrir færeyska þingið
Þórshöfn. Færeyjum 13. desember
LANDSSTJ ÓRI Færeyja
lagði í dag fram fjárlög fyr-
ir árið 1978—79 á færeyska
landsþinginu. Fjárlögin
nema 438 milljónum fær-
eyskra króna.
Landsstjórinn, Demmus
Hentze, sagði að reiknað væri meó
að tekjur af sköttum næmu 236
milljónumog af tollum 198 millj
Fjárlögin eru 40 milljónum
hærri en síðustu fjárlög. Framlög
til heilbrigðismála eru nú 10
milljónum hærri, til menntamála
7.3 milljónum hærri, til sam-
gangna 4.1 milljónum hærri og til
félagsmála 4 milljónum hærri.
Stærstu liðir fjárlaganna eru
samgöngur, 83 milljónir, félags-
mál. 74.1 milljónir, og framlag til
fiskveiða 74 milljónir.
útvar p/ kassettulæki
Lang
og miðbylgja
Bæði fyrir rafhlöður
eða venjulegan straum.
Verð aðeins kr. 32.690.—
PHIUPS
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 2Ó455 — SÆTÚN 8 — 15655