Morgunblaðið - 10.01.1978, Page 10

Morgunblaðið - 10.01.1978, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10, JANUAR 1978 Rætt við Oliver Guðmunds- son prentara og tónlistar- mann sjötugan Gengur bezt að semja í hávaða 1 DAG er sjötugur Oliver Guðmundsson prentari í Reykja- vík, en hann var m.a. um árabil setjari í Prentsmiðju Isafoldar og vann t.d. við setningu Morgun- blaðsins í fjölda ára. Blm. heim- sótti Oliver á heimili hans og konu hans, Láru Einarsdóttur. Oliver Guðmundsson hefur einnig fengizt við ýmislegt annað en prentverk, er hann ma.a sjálf- menntaður tónlistarmaður og hef- ur samið allmörg lög um ævina. En fyrst er talinu vikið að því hvar hann er fæddur og hverjir foreldrar hans voru: — Ég er fæddur í Ólfasvík 10. jan, 1908 segir Oliver, en faðir minn var skósmiður þar og organ- isti, og hét Guðmundur Guðjóns- son. Móðir mín hét Sigríóur OIi- versdóttir. Eg hef alla tíð verið mikið fyrir tónlist og hef ég e.t.v. lært mest af því er ég fór með föður minum i kirkju ,og lærði sálmalög og nótur. *— Þegar ég var 14 ára flutt- umst við til Reykjavikur og lærði ég í fyrstunni skósmiðina, en vann einnig ýmislegt annað, var á sjó og vann fiskvinnu o.fl. en þeg- ar ég var 17 ára var auglýst eftir 4 nemurn til að læra prentverk. Það var Isafold, sem auglýsti og ég var einn af mörgum sem sótti um og var ráðinn. Þótti prentnámið ekki merki- legt nám í þá daga? — Jú, það þótti nokkuð merki- legt i þá daga, þetta var allflókið til að byrja með, en það var spennandi að læra þetta. Námið tók fjögur og hálft ár og var Her- bert Sigmundsson aðalleiðbein- andi minn við námið og Gunnar Einarsson verkstjóri, en hann tók við stjórn í tsaföld þegar Herbert fór þaðan. Þá var Isafold til húsa í Austurstræti 8 þar sem bókabúð- in var lengst af. Ekki var tsafold eina prent- smiðjan? — Nei, Gutenberg var einnig starfandi þá, en þessar tvær voru þær stærstu á þessum tíma, í kringum 1920. Ég var við prent- námið i fjögur ár, slapp við þetta hálfa ár því Herbert hvarf þá frá tsafold og setti á stofn sína eigin prentsmiðju og tók þá Gunnar Einarsson við eins og ég gat um áðan. Hjá Gunnari var ég síðan vélset jari i 49 ár, fyrst í Ísafold og siðar í Leiftri eftir að Gunnar keypti þá prentsmiðju með okkur Kristjáni Sæmundssyni. Gunnar Einarsson var mjög duglegúr maður og kom isafoldarprent- smiðju á traustan grundvöll og er óhætt að segja að honum féll aldrei verk úr hendi. Hann var mikill skapmaður en alltaf fljótur að sættast og við vorum alla tið miklir vinir. I sambandi við það dettur mér i hug saga af því er hann sagði mér upp fimm vikur í röð, i hverri viku, en réð mig alltaf aftur. A þfeim árum vann ég um tíma hjá Víkingsprenti og fór síðan til Vestmannaeyja til að hjálpa kunningja mínum að koma upp smiðju og dvaldi þar i einn eða tvo mánuði. Þegar ég kom til baka hitti ég Gunnar á götu og spurði hann mig hvað ég væri að gera. Ég sagði honum það og hann spurði hvort ég vildi ekki koma til sín og vinna og gerði ég það og eftir það var ekki um neina „árekstra" að ræða á milli okkar. Oliver gat þess einnig að Gunn- ar Einarsson hefði verið honum eins og annar faðir og nefndi sem dæmi er hann bauð sér með til Þingvalla þegar hnn átti viku sumarfrí í Isafold en það var fyrsta árið hans þar. Dvöldu þeir fyrst á Þingvöllum og fóru siðan í Borgarfjörð og minntist Oliver þessarar ferðar með mikilli ánægju. Þú vannst við að setja Morgun- blaðið í nokkur ár? — Já, það var í ein 12—15 ár sem ég vann við setningu á Morgunblaðinu og kynntist ég þá mörgum góðum mönnum. Bezt kynntist ég e.t.v. Valtý Stefáns- syni ritstjóra svo og Jóni Kjartanssyni, sem var ritstjóri um tima og við Valtýr vorum þeir einu í smiðjunni sem urðum dús en annars þéraði hann alla. — En það að við Valtýr urðum dús gerðist þannig að við vorum báðir eitthvað örlítið í því, hvern- ig sem á þvi stóð við vinnuna og kom hann einu sinni niður frá skrifstofu sinni á efri hæðinni og rabbaði við mig. Þá sagði hann: Heyrðu Oliver við erum nú orðnir svo góðir vinir, eigum við ekki að verða dús? Jú, ég þakkaði honum fyrir og við urðum síðan dús á formlegan máta, drukkum og kysstumst og vorum við alltaf góð- ir vinir eftir þetta. Manstu aðrar sögur af samstarfi ykkar Valtys? — Ég man t.d. á þjóðhátiðinni á Þingvöllum árið 1930, þá var Morgunblaðlð með fréttir og greinar um þjóðhátiðina og fór ég austur eins og margir aðrir. Val- týr var þar einnig og er leið á daginn sagði hann við mig að nú þyrfti ég að fara heim og setja MorgUnblaðið og fengum við far með einhverjum pallbíl i bæinn. Valtýr rak svo á eftir bilstjóran- um að við héldum að við myndum lenda út af veginum í hverri beygjunni, en til þess kom þó ekki og um nóttina var Morgunblaðið prentað og kom út daginn eftir og var sent austur til Þingvalla. — Mér likaði ákaflega vel við allt starfsfólk hjá Morgunblaðinu. Það var nú ekki mjög margt i þá daga, árin kringum 1930—1940 og enn man ég m.a. að Axel Thor- steinsson og Ivar Guðmundsson voru við erlendar fréttir og Arni Óla var með innlendar fréttir og Lesbók um tima a.m.k. og ýmsir fleiri. Var ekki vinnutími óreglulegur á þessum árum? Jú, það var mest unnið að kvöld- og næturlagi, við byrjuðum kl. fimm og vorum að til þrjú, fjögur og fimm á morgnana. Fór mestur tíminn í að biða eftir er- lendu fréttaskeytunum. Þú hefur sett ýmislegt fleira en Morgunblaðið um ævina? Já, ég var mikið i orðabókum, setti m.a. ensk-íslenzka orðabók eftir Boga Ólafsson og islenzk- enska eftir Arngrim Sigurðsson og líka danskar orðabækur og líka var ég mikið í alls konar skýrsl- um, veðurfarsskýrslum og þess konar. Minnst hef ég verið við að setja bækur. Þó setti ég einhvern hluta Heimsljóss eftir Laxness og man ég það að handrit hans var mjög vel unnið og þurfti engu að breyta þar ncma að einn punkt vantaði á einum stað og þá bað hann mikiliega afsökunar á þvi og var hann mjög kurteis og þægi- legt að vinna fyrir hann. Einnig man ég eftir annarri bók, bókinni um manninn. Þú hefur þá kynnst ýmsum mál- um í gegnum starfið? - Oliver Guðmunds- son heima við orgel- ið. Hann er einnig með nótnahefti sem út hafa verið gefin eftir hann. Já, maður gerði það svo sem, en það hefur nú lekið út aftur að mestum hluta. Helzt er ég vel heima í enskunni, enda var ég í Englandi um tíma til að kynria mér prentverk. Hefur aðferðin við setningu breytzt mikið á þfnum starfsferli? — Nei, það er ekki hægt að segja það, vélarnar sem notaðar eru við setningu eru svo til alveg eins og þegar ég hóf námið, en framfarirnar hafa að sjálfsögðu orðið miklar i prentinu almennt og nú er mjög mikið farið að prenta i offset. Svo við snúum okkur að tónlist- inni, leikurðu á mörg hljóðfæri? Nei, aðallega á orgel sem ég lærði af föður minum, eins og ég sagði i upphafi, og reyndar af sjálfum mér kannski meira, en ég lærði margt þegar ég fór í kirkju og faðir minn spilaði. Annars hef ég líka spilað nokkuð á harmón- ikku og lék mikið á böllum hér áður fyrr, á hinum ýmsu veitinga- húsum í Reykjavík, Hótel tslandi og Hótel Borg og víðar. Þá lék ég með mönnum eins og Carli Bill- ich, Bjarna Böðvarssyni, Paul Bernburg og fleirum og stundum hringdi Paul í mig rétt áður en hljómsveitin átti að leika á ein- hverju ballinu og þá spurði hann hvort ég gæti komið og „pilað" með sér. Sennilega hef ég lika verið fyrsti maðurinn sem lék á harm- onikku í útvarp, en það var hjá Ottó Arnar. Nú hefur þú einnig samið tals- vert af lögum? — Ég hef fengizt nokkuð við það já, ég hef alltaf haft gaman af tónlist og ég held ég hafi samið mitt fyrsta lag þegar ég var 14 eða 15 ára gamall, og lagið Hvar ertu vina? samdi ég t.d. 15 ára. Nefna má einnig fleiri lög er kunn eru eftir Oliver, Nætur- kyrrð og Við mánans milda ljós og fleiri sem mikið voru leikin hér áður fyrr. Hafa mörg lög hans verið gefin út á nótum og senn er væntanlegt fyrsta lagahefti hans en í því eru 30 lög, einsöngslög, kórlög og danslög. — Þeir Carl Billich og Páll Halldórsson organisti hafa verið mér hjálplegir við útsetningar á þessum lögum, sagði óliver,og hafa þeir farið yfir útsetningar mínar á mörgum lögunum. Hvenær hefurðu helzt samið lögin? — Bezt gengur það þegar ég er í nógu miklum hávaða og ys, ég vil ekkert frekar hafa kyrrð og ró i kringum mig þegar ég er að semja. Yfirleitt hef ég getað sam- ið lög við hvers kyns aðstæður. Einu sinni samdi ég lag er við hjónin vorum á ferð austur á landi, á Fljótsdalshéraði, en þá varð til lagið Hrislan og lækurinn við texta Páls Olafssonar. Lækur þessi er rétt við Atlavík í Hall- ormsstaðaskógi og er auðvelt að skilja það að Páll skulí hafa hrif- izt af þessum stað svo fallegur sem hann er. Leikurðu ennþá á hljóðfæri þér til gamans? — Það er nú orðið minna um það, ég gríp þó í það. Eg er nú löngu hættur að spila á böllum, en að undanförnu hef ég verið að vinna nokkuð að þessu nótnahefti minu. Að lokum er Lára Einarsdóttir spurð að þvi hvort Oliver hafi ekki lítið verið heima við ef hann var mikið að vinna á nóttunni og spila á böllum í og með. Kvað hún það hafa komið fyrir að hann væri ekki heima heilu dagana og næt- urnar, en það hafi alltaf verið stuttan tima í einu. Að lokum má geta þess að Oli- ver Guðmundsson verður heima i dag. % Hór er Oliver við setjaravélina í ísa- fold.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.