Morgunblaðið - 10.01.1978, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.01.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978 13 S. 83450 NÍNA, TÍZKUVERZLUN Miðbæ, Háaleitisbraut 58- til fjárflötta úr landinu og óhagkvæmra viðskiptahátta Viðskiptabankarnir eru einfærir um að ákveða eðlilega vexti Ef þessi breyting kæmist á. yrðu allir þeir sem í dag vinna við gjaldeynseftir- lit og hundruð manna sem nú vinna I allskonar fjármagnsskömmtunarskrif- stofum atvinnulausir og gætu farið að sinna arðbærum störfum Jafnframt þessum ráðstöfunum þarf að aðskilja tekjuhugtak skattalaganna frá verð- bólguhugtakinu Verðbólga skapar engin verðmæti og stendur þvi ekki undir skattgreiðslum 5. Afnema þarf margvíslegar hömlur og höft sem lögð hafa verið á atvinnu- frelsi manna Opinber afskipti á að einskorða við gæðakröfur Gefa þarf verðmyndunina frjálsa og setja einn toll á atlan innflutning. Afnema allar sjálfvirkar lánveitingar. hvort heldur er út á framleiðslu eða fjárfestingu Þess- ar breytingar myndu skapa atvinnu- greinunum stórkostlega framleiðslu- möguleika, jafnframt þvi sem grund- vellinum væri kippt undan ýmis konar óarðbærri starfsemi Jafnframt þessu þarf að breyta öllum opinberum stofn- unum og fyrirtækjum i hlutafélög Rik- issjóður má eiga öll bréfin, en eftir þessa breytingu yrðu þessi fyrirtæki að samræma tekjur sínar og útgjöld og forstjórar þeirra fengju það vald sem þeir þurfa að fá Hin miðstýrða fjár- málastjórn islenzka rikisins er fyrir löngu orðin gjaldþrota Þegar rikisspit- alarnir, menntaskólarnir, vegagerðin og Tryggingarstofnun rikisins, og ekki sizt raforkuverin losna undan þeirri pólitisku áþján sem þessar stofnanir nú eru i, gætu allir aðilar farið að sinna verkefnum sínum Alþingi fengi tima til að hugleiða ástand efnahagsmála. en forstjórar ríkisstofnananna tima til að sinna rekstri þeirra og hinn frjálsi vinnumarkaður fengi að njóta ágætra starfskrafta þeirra manna sem áður unnu i Fjárlaga- og Hagsýslustofnun 6. Félagafrelsi þarf að endurreisa svo sem stjórnarskrá landsins kveður á um Þannig verður að afnema félagaánauð verkalýðsfélaganna Þau eiga að vera frjáls samtök launþega á sama hátt og þau eru i nálægum löndum Ef stjórn- völd leyfa valdajafnvæginu i þjóðfélag- inu að raskast meir en orðið er, og fást ekki til að skilja að stefna ber að valddreifingu en ekki valdboði. liður ekki á löngu þar til verkalýðsforingjarn- ir fara að berjast um jarlstignina og verður þá ekki langt að biða endaloka sjálfstæðisins, þvi gjaldþrota jarlar munu enn sem áður þurfa kóng leiti fyrst tillagna Fiskifélags Is- lands og Hafrannsóknastofnunar-| innar, en svo hefur ekki verið gert í þessu tilviki, eins og ætlast er til í lögum þeim er reglugerðin byggir á“. Lög þau, sem hér um ræðir, eru Landgrunnslögin frá 1948 og lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi ís- lands frá 1976. í báðum þessum lögum eru, að dómi Suðurnesja- manna, skýr ákvæði, um þetta efni. Suðurnesjamenn telja það misskilning hjá ísfirskum skut- togaraeigendum ef þeir halda að ráðuneytinu sé nægilegt að leita álits þeirra einna í svona málum. Ef slíkt ætti að gilda þá verður fyrst að breyta, i þá veru, lögum þeim er hér um ræðir. Varðandi það að vert sé að vekja athygli á að allar aðgerðir um samdrátt í þorskveiðum hafi valdið tilfinnanlegum truflun- umá veiðum og vinnslu, og komið illa við marga, þá á þetta ekki við um vestfirska togara því þeir hafa aukið þorskafla sinn ár frá ári og er hann hvað mestur á síðast liðnu ári. Það má vel vera rétt hjá þeim Vestfirðingum að 12 daga þorsk- veiðibannið í desember s.l. hafi bitnað harðast á vestfirskri línu- útgerð, en í því sambandi má benda á að Vestfirðir og Suðurnes eru ámóta stór útgerðarsvæði, þegar á heildina er litið, og enn- fremur að þegar þetta 12 daga veiðibann var sett þá stunduðu 30 skip veiðar með linu frá Vest- fjörðum en 60 frá Suðurnesjum. Hvað viðkemur hvatningu þeirra vestfirðinga til skipstjórn- armanna og sjómanna á Suður- nesjum, um að láta hina skamm- sýnu útvegsmenn þeirra ekki leiða sig til lögbrota, þá vil eg upplýsa að Útvegsmannafélag Suðurnesja var eina útvegs- mannafélag landsins, sem hvatti alla er hyggðu á útgerð með þorskanetum á ný hafinni vetrar- vertið, til þess að sækja um veiði- leyfi. Hins vegar verður að telja það verðugt verkefni fyrir útgerðar- forkólfa á Vestfjörðum ef þeir vildu í framhaldi af þessu reyna að lægja þær óánægjuraddir, sem uppi eru, með sunnlenskum sjó- mönnum varðandi margvisleg málefni sjávarútvegsins i dag. Eg leyfi mér að mótmæla því að útvegsmenn á Suðurnesjum hafi verið dylgjur og svigurmæli i garð sjávarútvegsráðherra. Mér er vel kunnugt um að Suðurnesjamenn telja Matthías Bjarnason mörgum kostum búinn, sem prýða mega góðan sjávarútvegsráðherra, en að hann sé hafinn yfir alia gagn- rýni verður að vera einkaskoðun skuttogaramanna á Vestf jörðum. Að lokum vil eg taka fram, að eg er einungis starfsmaður Út- vegsmannafélags Suðurnesja og hef þar engin félagsleg réttindi. Þann tima sem ég hef starfað hjá Suðurnesjamönnum hef eg sann- færst um það að hnútukast ýmsra málsmetandi aðiia á Vestfjörðum i garð fiskvinnslumanna á Suður- nesjum, þar sem talað er um að erfiðleikar fiskvinnslunnar stafi af óstjórn og skussahætti, er i hæsta máta ódrengilegt. Erfið- leikarnir eiga sér allt aðrar orsak- ir, og mætti skrifa um það langt mál. Til er islenskt orðtak, sem þekkt er frá byrjun 19. aldar, er þannig hljóðar, „þeir dæma eins og veltist i þeim vömbin“. Orðtak- ið á rætur að rekja til þess, að dómar manna eru mjög háðir því hvernig meltingarfærin starfa. Mér hefur fundist að þetta eigi einkar vel við um afstöðu ýmissa Vestfirðfnga, til margvíslegra málefna, sem upp hafa komið, í umræðum um atvinnumál þjóðar- innar að undanförnu. Ingólfur Arnarson, framkvæmdastjóri Utvegsmannafélags Suðurnesja. ÚTSALAN byrjar í dag, þriðjudag þessa dags. Af þeim er eiga verk á sýningunni eru Henri Cartier-Bresson líklega frægastur. Hann er fæddur 1908 í nágrenni Parísar, lagði stund á málaralist hjá André Lhote og byrjaði að taka ljós- myndir árið 1930. Fréttaljós- myndir voru fyrst birtar eftir hann 1932 í Vu og fyrstu ljós- myndasýninguna hélt hann í Madrid 1933. Bresson lærði kvikmyndun hjá Paul Strand. Hann starfaði sem aðstoðarleik- stjóri hjá Jean Renoir 1936. langan heiminn og dvelur í ýmsum löndum. Hann hefur haldið fjölda sýninga í öllum meiriháttar söfnum og myndir eftir hann hafa birst í öllum helztu timaritum heims. Hann hefur gert nokkrar heimilda- kvikmyndir og jafnframt fjöld- ann allan af bókum. Meðfylgjandi mynd tók ljós- myndari Morgunblaðsins Ölafur K. Magnússon af einni ljósmynd Bresson, heitir hún „A götukránni". Ingólfur Arnarson merki þetta nær yfir tæplegt 700 fermílna svæði. Þá vil eg benda á að undanfarin sumur hefur stóru svæði, i Garð- sjó, verið lokað, fyrir öllum veið- um, vegna hrygningar sildar. Þessu hafa Suðurnesjamenn tek- ið möglunarlaust. Hitt verður að segja að ýmsum hefur þótt ein- kennilegt að ekki hefur þurft að loka svæðum viðar við landið þar sem vitað er að hrygning síldar á sér stað. Vegna yfirlýsingar vestfirðing- anna um að þeir séu harmislegnir yfir þeirri skoðun Útvegsmanna- félags Suðurnesja að reglugerðin um veiðar i þorskfisknet sé ólög- lega sett, þá verð eg að segja aðí ekki virðist harmur þeirra vera djúpstæður þar sem ljóst er að þeir hafa einungis lesið hluta þess, sem Suðurnesjamenn hafa sagt um það mál. Um þetta segir orðrétt i ályktun Útvegsmannafélags Suðurnesja, sem samþykkt var 9. desember s.l. „Félagið telur að reglugerð þessi geti ekki öðlast gildi og ástæðulaust sé að taka hana til eftirbreytni, nema ráðuneytið I Frönsk ljósmyndasýning NÚ stendur yfir í franska bóka- safninu á Laufásvegi 12 ljós- myndasýning á verkum fimm frægra ljósmyndara í Frakk- landi. Þeir eru Brassai, Henri Cartier Bresson, Jean Philippe Charbonnier, Robert Doisneau Izis og Marc Riboud. Sýningin stendur til 22. janúar og er opin frá kl. 17—22 alla daga. A sýningunni eru ljósmyndir allt frá árunum 1930 fram til Gerði kvikmynd um sjúkrahús- in á Spáni á dögum lýðveldisins og' um heimkomu stríðsfanga árið 1945. Hélt sýningu árið 1946 í Museum of Modern Art í New York. Stofnaði ásamt Robert Capa, David Seymour og Georges Rodger fréttaljós- myndastofuna Magnum, sam- eignarfélag ljósmýndara. Bresson ferðast um endi- Ein myndanna á sýning- unni. BUXUR BLÚSSUR MUSSUR PEYSUR og m. fl. á góðu verði MIKIL VERÐ- LÆKK- UN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.