Morgunblaðið - 10.01.1978, Side 28

Morgunblaðið - 10.01.1978, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978 Jón I>. Árnason: „Ég harma að vera fæddur og þurfa að Hfa á þeirri öld, sem ég fæddist á. Ég hefði miklu heldur viljað vera uppi einni eða tveimur öldum fyrr, eða á Nýsteinöld, en þetta er nú einu sinni líffræðileg ti/vi/jun. " — Claude Léví-Strauss. Lífríki og lífshættir II Eftir u.þ.b. 10 ár mun mannkyninu hafa fjölgað um 1.000.000.000 Afleiðingar: Þrengsli, hungur og blóðsúthellingar. Framtíðin er spásögn Sérhver einstaklingúr er sinn eiginn spámaður. Ekki af ásetningi, ekki af hugsýn, held- ur af eðlisávísun, náttúruþving- un, sjálfsbjargarhvöt. Hann verður stöðugt að hafa augun á framtíðinni. Ef hann gerir það ekki, er hæpið að hann fái lifað daginn til kvölds. Maur, sem fer yfir götu. án þess að hafa gætur á um- ferðinni, hvort bíll nálgast frá hægri eða vinstri, reynir ekki að gera sér grpin fyrir, hvort hann kemst hindrunarlaust yf- ir götuna eða hversu hratt hann þarf að ganga eða hlaupa, h-lýtur í flestum tilfellum að gjalda fyrirhyggjuleysi sitt með limlestingum eða jafnvel lífi sínu. Aðgæzlan, sem til þess þarf, að forðast slysið er vissu- lega ekkert andlegt afrek, hún er svipuð viðbrögðum fugla, sem fljúga á burt, eða annarra dýrategunda, er leita felustaðar og skjóls, þegar hætta nálgast. Eðlishvötin ein sér nægir þó í fæstum tilbrigðum lífsins. Það sanna hinar tíðu slysfarir og önnur hrakföll, bæði einstakl- inga og hópa. Frá óláni verður sjaldan unnt að forða, nema íhygli og umhugsun komi einnig til. Löngunin til þess að víkja tjaldi því, er hylur framtíðina, til hliðar og öðlast þannig vitneskju um örlögin, sem á bak við það dyljast, er jafngöm- ul mannkyninu. Sú þrá byggist ekki eingöngu á meðvitaðri nauðsyn þess að komast hjá ófarnaói, heldur ekki síður á ósk um að geta notið lífsins við öruggar aðstæður og áhyggju- leysi. Nú á dögum, ekki síður en frá upphafi vega, leitar fjöldi fólks á fund atvinnuspá- trúða (í Earís einni eru t.d. taldar vera yfir 20.000 spákon- ur í fullu starf) og sérfræðinga í ýmsum greinum í þeim til- gangi að afla frétta úr framtíð- inni. Frumstæðustu veiðiþjóðir urðu að huga að morgundegin- um til þess að auka möguleika sína á að lifa hann af. Nútíma- maðurinn er síður en svo óháðari þörfinni fyrir að hyggja að komandi tíma. Hann hefir e.t.v. ennþá brýnni þörf fyrir að hugsa um framtíðina, reyna að skyggnast inn í fram- tíðina, gera framtiðaráætlanir, hyggja að varúðarráðstöfunum, í stuttu máli: spá, langt eða skammt fram í tímann, um óorðna atburði. ÓRADÝPI Hæfileikinn til þess að sjá fram í tímann er mjög verulega undir því kominn að geta dreg- ið rökréttar ályktanir af at- burðarás fortíðarinnar, og verð- ur sjálfsagt seint lögð of rík áherzla á mikilvægi þess. Þess- um hæfileikum, eins og öllum öðrum hæfileikum og gjöfum náttúrunnar, er afar misjafn- lega skipt á milli jarðarbarna. Sumir, langsamlega flestir, láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Það er hinn sofandi meirihluti. Aðrir og þeir eru hverfandi fáir, leggja sig í líma við að gera sér og öórum rök-1 studda grein fyrir stöðu manns og heims í sköpunarverkinu eftir ár, áratugi og aldir. Það er hinn hugsandi minnihluti. Á milli þessara hópa er óradýpi staðfest allt frá fæðingu. Af eðli málsins leiðir, að sér- hver tiiraun til þess að lýsa framtíðinni verður háð ófáum óvissuþáttum, og er auk þess talsvert vogunarspil. Ef spádómurinn reynist rangur, verður spámaðurinn að at- hlægi, og má teljast vel sloppið. Ef hann hefir hins vegar haft rétt fyrir sér, verður hann fyrir enn meiri óþægindum, a.m.k. öfund, jafnvel aðkasti, allt eftir því, hvort góðspá eða illspá hef- ir rætzt. Þetta á alveg sérstak- lega við, þegar spáin hefir haft í sér fólgna aðvörun eða varúðarkröfu. Þá verður hún með öllu ófyrirgefanleg, því að bjartsýnin er svo dásamlega huggunarrík — og ábyrgðar- laus. Vægustu viðbrögð bjart- sýnisbjálfáns, þegar reynt er að töfra hann niður úr skýjunum, eru venjulega þau, að skella skollaeyrum og vísa öllum rök- semdum út í vindinn. Með aðhrópi eins og „svartsýnis- seggur", „heimsendaspá- maður“, „afturhaldskurfur" o.s.frv. er málið afgreitt. Slíkar undirtektir hafa marg- ir víðkunnir framsýnismenn orðið að Iáta sér lynda. Þannig segir t.d. hinn heimskunni, enski liffræðingur og snjalli rit- höfundur, Gordon Rattray Taylor, í formála bókar sinnar, „How to Avoid the Future",: „Margar hinna líffræðilegu athugana minna, sem á sín- um tíma voru taldar alltof langsóttar, staðfestir raun- veruleikinn frá ári til árs. Matvælaskorturinn, sem ég sá ‘að var yfirvofandi fyrir fimm árum, er þegar orðinn staðreynd, og allir, er þá staðhæfðu svart á hvítu, að við myndum framleiða um- framgnægtir matvæla, geta varla verið mjög upp með sér af hinni spásagnarlegu magalendingu sinni núna. „Jú, víst ríkir nú hungurs- neyð“, er mér reyndar snúðuglega samsinnt, „en með nokkrum metsölubók- um verður henni ekki bægt frá dyrum.““ Einmitt! Nærtækara dæmi um fárán- leika bjálfabjartsýninnar skal hér og nefnt. í júní 1977 urðu aðilar ís- lenzka vinnumarkaðarins á eitt sáttir um, að 60% kauphækkun til handa nálega öllu verka- og starfsfólki í landinu á næstu mánuðum væri hreint engin óhæfa. Þegar fáeinir hugsandi menn tóku í sig kjark og bentu þeim á, að slíkur hagvaxtar- draumur hlyti að ofbjóða kjara- bótaþoli íslenzkra atvinnuvega, voru þeir hrópaðir niður og sak- aðir um „svartagallsraus". En nú rösku hálfu ári síðar? Hvaðan berast nú kvein úr krókum? Og að síðustu er ekki úrvegis að minna á atlögurnar að kenningum brezka hag- fræðingsins prestlærða, A útrýmingarskrá: LEÐURBLAKA Sofandi meirihluti, hugsandi minnihluti Malthus og Carson í leit að vanfundn- um svörum Thomas R. Malthus (1766—1834) um vandamál fólksfjölgunar, sem Ricardo reisti á kenningu sína um Járn- harða launalögmálið. Kenningu Malthusar hefir verið úthúðað af leikum og lærðum í nær 150 ár; þær hafa verið kallaðar „svartagallsraus“ og þaðan af verra. En nú? Nú eru þær að sannast. Sums staðar þegar sannaðar. Með ógnvænlegri þunga en líklegt er að Malthus hafi nokkru sinni órað fyrir. A útrýmingarskrá: BIFUR NÁTTÚRU- rAnsskapur — LÍFSRÝMIS- EYÐING Þar sem tvær manneskjur bjuggu árið 1950, munu búa fjórar árið 1990 og átta i kring- um árið 2020. Að líkindum heldur færri í Mið-Evrópu, en þeim mun fleiri í Austur- og Suðaustur-Asiu, Mið- og Suður- Ameríku, þar sem þær munu e.t.v. verða 16—20. ítalski efna- hagssagnfræðingurinn, Carlo Cipolla, talaði fyrir ekki löngu um ,,Malthusar-gildru“ í sam- bandi við þessa þróun, er ógn- aði allri tilveru okkar. Fólks- fjölgunarþensla, er fer fram úr aukningu matvælaframleiðslu, á víðfeðmum svæðum jarðar, er þess vegna ekkert línurit, sem auðvelt er að þurrka út, heldur hrollvekjandi staðreynd. Þegar er þannig komið, að rösklega þriðjungur mannkyns þjáist stöðugt af fæðuskorti. Samtímis þessum ósköpum á sér stað dagvaxandi náttúru- ránsskapur og lífsrýmiseyðing. Orku- og hráefnaforða jarðar er eytt án minnstu fyrirhyggju. Andrúmsloftið forpestast af eiturefnum úr verksmiðjum og samgöngutækjum; sömuleiðis jarðvegur, ár, fljót, stöðuvötn, og inn- og úthöf. Tún, akrar, skógar og annað gróðurlendi hverfur fyrir steinsteypu- og stálmannvirkjum — og bíla- brautum. Bókstaflega átakan- leg er tortiming dýrarikisins. Á fyrstu átján öldum frá upphafi A ýtrýmingarskrá: SKOGARFROSKUR tímatals okkar varð að meðal- tali ein spendýrategund útdauð á hverjum 55 árum. Á 20. öld- inni hefir einni verið útrýmt að meðaltali árlega. Fyrir nær tveim áratugum spáði Rachel Carson „þöglu vori“, þegar eng- inn fugl myndi syngja framar. Fréttir, sem borizt hafa hin siðustu ár frá ítalíu og Þýzkalandi, staðfesta með raunalegum hætti, hversu rök- réttar áhyggjur hennar voru. Að athuguðu máli verður Ijósara með degi hverjum, að ekki verður sigrazt á ógnum þeim, er steðja að og þjá líf- ríkið, með káki utan í hvim- leiðar afleiðingar, sem þá og þá stundina gera lífið leitt. Naum- ast er heldur við því að búast, að hefðbundnar tækniframfar- ir geri róttæka stoð. Málið snýst ekki um afmörkuð viðfangsefni eins og það, hvernig hagkvæm- ast dæmist vera að losna við eða eyða sorpi og skarni, ellegar hvort eða hvernig beri að friða tiltekna landsskika, enda þótt hvort tveggja sé í sjálfu sér gott og blessað svo langt sem nemur. Um vandamálin í einstökum atriðum og hugsanlegar úr- lausnir hefir heilmargt nýtilegt verið birt. Engan veit ég þó hafa dirfzt að nefna heildar- eða frambúðarlausn. A hinn bóginn hafa viss umsvif komizt í tízku á þessu sviði, sem þjóna ákaflega vafasömum sérhags- munatilgangi, svo og hlálegur boðskapur um, að ekki sé áhorfsmál að fórna beri náttúruríkinu á altari Mammons, og eru iðulega blásnar út hinar fávíslegustu afsakanir þeirri speki til dýrðar (Sbr. Harald Sioli: „Ökologie und Lebensschutz in internationaler Sicht“, Frei- burg im Breisgau 1973). Þessi spurning er því fyrir löngu orðin knýjandi: Hefir nokkur gert sér fulla grein fyrir, hversu örlaga- þrungin verkefnin eru og komizt að raun um þær duldu og djúpstæðu orsakir, er valda þvi, að tilvera mannkynsins á jörðinni verður æ vafasamari? Tilgangur þessa greinaflokks er m.a. að leitast við að komast að því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.