Morgunblaðið - 10.01.1978, Page 30

Morgunblaðið - 10.01.1978, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANUAR 1978 Aldarminning: Gróa Jónsdóttir Kœrnested og Óli Ólason Kœrnested Fædd 10. janúar 1878. Dáin 27. des. 1963. Fæddur 11. marz 1881. Dáinn 28. febr. 1944. 1 tilefni þess, að hún amma mín blessunin hefði orðið hundrað ára í dag, en einnig og ekki síður, að þegar hún dó fyrir 14 árum, var ekkert um hana skrifað þá sest ég nú niður og minnist hennar, það er að segja, fyrir opnum tjöldum. Það fór nú samt svo við upplýs- ingaöflun í þessa grein, að í ljós kom, að við andlát afa míns, lýð- veldisárið, var heldur engin grein rituð. Ég nota því tækifærið og tileinka þeim báðum þessar hug- leiðingar, þó að ég muni ekki svo langt, að hann var og hét. Gróa Jónsdóttir var fædd í Há- koti í Flóa, en sá bær er nú horf- inn sjónum, fyrir réttum 100 ár- um, yngst 4 systra. Foreldrar hennar voru þau Jón Helgason, f. 1834, d. 1892, og Gróa Helgadóttir, f. 1842, d. 1879. Systur hennar voru þær, Guðlaug er giftist Hans Gíslasyni í Fitjakoti á Kjalarnesi, Jóhanna sem giftist Júlíusi Helga- synidrá Helgastöðum á Skeiðum, en þau bjuggu alian sinn búskap á Rútsstöðum í Flóa og næstyngst þeirra sytra var Sigrún sem ólst upp á Hurðarbaki 1 Flóa oggiftist Halldóri Magnúsi Ölafssyni en þau bjuggu í Reykjavik og síðar í Hafnarfirði. Gróa ólst upp á Gneistastöðum til 14 ára aldurs, er hún fluttist til Reykjavikur. Þar var hún m.a. í vist hjá Samúel söðlasmiði Ölafs- syni og Matthíasi í Holti. Á þess- um árum virðist hún ekki hafa stundað mikið „útstáelsi" svo ég noti orð sem var henni tamt, þvi í bréfi sem hún skrfaði Sigrúnu systur sinni árið 1898, er eftirfar- andi frásögn af henni sjálfri og bæjarlifinu i Reykjavík. „Lítið hef ég skemmt mér i sumar, nema þennan eina útreiðartúr, sem þú ert víst búin að frétta af. Svo hef ég hvergi getað komið hér í bæn- um og enga haft með mér úti, svo vanalegast hef ég ekkert farið út á sunnudögum, nema ef ég hef farið að hlusta á Herinn þegar hann hefur verið úti. Það hefur aldrei verið spilað á Austurvelli nema svolitið á sunnudagskvöldið var, svo ekki hefur maður skemmt sér við það“. En dvöl hennar í Holti hefur sjálfsagt ver- ið henni talsverð lífsfylling út af fyrir sig, því þessi timi mun hafa mótað fas hennar og viðmót meira en flest annað, enda heimilið vel þekkt menningarheimili. Ásgeir Ásgeirsson forseti, lýsti æsku- heimili móður sinnar, Jensínu Bjargar Matthíasdóttur, en hún var dóttir þeirra Matthíasar Markússonar er kenndur var við Holt, og konu hans Sólveigar Páls- dóttur. „Þau reistu sér býli á Skóla- vörðuholtinu, miðja vegu milli Skólavörðunnar og" Tugthússins. Það var kallað í Holti. Gerðu þau þar reisulegan bæ, úr timbri, með tveim burstum og ræktuðu all- mikið tún í kring. — Húsakynni voru mikil og gestkvæmt af frændum og vinum af Suður- og Vesturlandi. Jón Sigurðsson var þar heimagangur, en þeir Jón og Matthlas voru þremenningar. Þar gisti og Eíríkur á Brúnum þegar hann lagði í sína Ameríkuför. — Þóttu þau Holtshjónin umfram allt vanda uppeldi barna sinna. Iðni, ástundun og góðir siðir voru 1 heiðri hafðir". Þessi lýsing frá Jensínu á heimilinu á Holti, mun einnig hafa átt við þann tíma er Gróa dvaldi þar, þó að húsráðendur væru þá ekki þeir sömu nema að einhverju leyti, því lengi býr af fyrstu gerð. En af þessu góða heimili fór hún svo til Bernhöftsfjölskyld- unnar og upp úr því í Bernhöfts- bakarí, þess er nú er á umdeild- um stað við Bankastræti og þar afgreiddi hún m.a. sykursnúða og kringlur. Þaðan lá leiðín svo vest- ur á Breiðabólstað á Skógar- strönd, til vistar hjá prests- hjónunum Lilju og Jósef Hjör- leifssyni (Jósef og Einar H. Kvar- an voru bræður). Þarna stundaði hún sína kaupavinnu, við kyrrð og fegurð Breiðarfjarðar, og þar kynntist hún Óla Kærnested. Á ferðalagi fyrir stuttu á þessum slóðum, tjölduðum við í fallegu skógarkjarri skammt frá Breiðar- bólstað. Þá tók hugmyndaflugið völdin og amma og afi hlupu þarna um og það var gaman að fylgjast með þeim. Óli Ólason Kærnested fæddist að Bakkafit í Hellnasókn á Snæfellsnesi 11. mars árið 1881. Foreldrar hans voru Óli Einars- son Kærnested f. 1840, d. 1905 og Herdfs Jónsdóttir f. 1841, d. 1887, þau eignuðust 7 börn, en aðeins 3 þeirra komust á legg. Það voru auk afa míns Óla, þær Elín senl giftist Ólafi Jóhannessyni og bjuggu þau i Stykkishólmi, og Steinunn sem giftist ekki, en var heitbundin Magnúsi Dalhoff. Óli Ó. Kærnested ólst upp á bænum Gjarðey i Breiðaból- staðarsókn á Snæfellsnesi og þar mun hafa verið þegar kaupakon- an úr Reykjavík vistaðist til prest- hjónanna á Breiðabólstað. Ekki veit ég, en mig grunar, að Reykja- víkurstúlkan hún Gróa Jónsdóttir hafi á þessum árum verið föngu- leg og vel til höfð og hafi búið að dvölinni á Skólavörðuholti hjá Matthíasi, en pilturinn frá Gjarð- ey var lika eftir myndum að dæma fríður sýnum og svipgóður og ég er ekkert undrandi á því, að með þeim tókust kærleikar. Árið 1903 lést sr. Jósef á Breiða- bólstað og þá flutti Gróa til Reykjavíkur og sama ár flutti Óli til Bildudals við Arnarfjörð. Amma flutti svo vestur til hans og þau giftu sig þar 21. október 1905. Allt byrjaði þetta vel á Bildudal og þar fæddist fyrsta barn þeirra, Gísli Friðrik árið 1906. Afi vann þarna tilfallandi vinnu eins og gengur, en svo tók hann að sér að smíða bát og það fór svo, að þegar kaupandinn átti að greiða and- virði hans, þá stóðst ekki það sem um var talað og afi tapaði þarna öllu sínu. Fluttust þau nú til Reykjavikur og bjuggu um tíma hjá Sigrúnu systur ömmu á Ný- lendugötunni. Var eftir því tekið, hvað dvölin á Bíldudal hafði breytt ungu konunni mikið. Annað barn þeirra Aðalsteinn fæddist svo í Reykjavík árið 1908 en 1909 flytjast þau út í Viðey og fara að vinna þar. Hún í fiski, en hann hjá „Milljónafélaginu“. Ár- + Faðir okkar. tengdafaðir og afi BJÖRN BJÓRNSSON fyrrum kaupmaður i NeskaupsstaS er látinn Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna Björn Björnsson Ari Björnsson Þorsteinn Björnsson Jóhanna Björnsdóttir Ágúst Björnsson og barnaborn GuSlaug Ingvarsdóttir S igriSur Jónsdóttir Emy Björnsson Jónas Jónasson Elín Magnúsdóttir Vigdis SigurSardóttir + Sonur minn SIGURÐUR KÓLBEINSSON. stýrimaSur, varð bráðkvaddur að heimili sinu þann 8 þ m Ingileif Gisladóttir. + Eiginmaður minn GÍSLI JÓHANNSSON sem lézt á Borgarspítalanum fimmtudaginn 5. janúar verðúr jarðsung- inn frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 1 2. janúar kl. 13.30 Grímheiður Pálsdóttir + Útför ástkærs sonar okkar og bróður, JÓNS HALLS, fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 1 1 janúar kl. 1 3.30. Ólöf Stefánsdóttir, Stefán Karlsson, Karl Ómar Jónsson, Kristin Karlsdóttir, Björn Karlsson., + Útför bróður míns, JÓNS OTTÓS JÓNSSONAR frá Litla-Bæ. fer fram frá Fossvogskrikju, miðvikudaginn 1 1 janúar kl 1 5 Elísabet Jónsdóttir Dungal. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR BJARGMUNDSSON, trésmiður, Bústaðavegi 95, sem andaðist 28 desember, verður jarðsunginn frá Dómkrikjunni fimmtudaginn 1 2 janúar kl 1 3 30 Bjöm J. Sigurðsson, Eybjörg Sigurðardóttir, Dagþjört Sigurðardóttir, Erna J. Sigurðardóttir, Geir J. Geirsson, Kjartan Guðmundsson, Pétur Kjartansson, barnaborn og barnabarnabórn. + Sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi SÖLVI ÞORSTEINSSON, Hafnarfirði, lézt af slysförum 5. janúar Lilja Sipos Joe Sipos, Ásgeir Sölvason. Edda Larsen. Þórdls Sölvadóttir. SigurðurG. Baldursson, Erla Sölvadóttir. Birgir Ólafsson. Kristin Sölvadóttir, Benedikt Kröyer. Steinunn Sölvadóttir, Stefán Simonarson, Guðrún Ásgeirsdóttir og barnabörn. + Maðurinn minn, ÓLAFURBENÓNÝSSON, frá Háafelli, Skorradal, , lézt í Borgarspítalanum 8 janúar Sigríður S igurðardóttir + Eiginmaður minn og faðir okkar. JÓN ÞÓR ÞÓRHALLSSON, Giljaseli 7, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1 1. janúar kl 13 30 Sigurlaug Ólöf GuSmundsdóttir, GuSmundur Þór Jónsson, Ingvar Páll Jónsson. Þökkum af alhug auðsýnda okkar og systur Guð blessi ykkur öll + samúð við andlát og jarðarför litlu dóttur Friðdís Björnsdóttir, Benedikt Guðmundsson. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem vottuðu okkur samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, fósturmóður og ömmu, MARÍU JÓNSDÓTTUR, Álfaskeiði 46, Hafnarfirði. Sigrún Rósa Steinsdóttir, Einar Ólafsson, Þordís Steinsdóttir, Gunnlaugur Guðmundsson, Þorbjörg Halldórsdóttir, Sigmar Guðmundsson ______________og barnabörn.__________________________________ + Þökkum innilega vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, GUÐBJARGAR SNORRADÓTTUR, Bjarnalandi, Dalasýslu Snorri Einarsson, Eina Guðjónsdóttir, Hólmfriður Einarsdóttir, Magnús Kristinsson, Þorsteinn Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.