Morgunblaðið - 10.01.1978, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1978
39
Ósamkomulag
milli Gromy-
kos og Sonoda
Moskvu 9. janúar AP. — Reuter.
UTANRÍKISRAÐHERRA Jap-
ans, Sunao Sonoda, hóf í dag við-
ræður sfnar við utanrfkisráðherra
Sovétrfkjanna, A. Gromyko, og
japanskar heimildir hermdu, að
þeir hefðu fljótlega orðið ósáttir
um nokkur atriði I sambandi við
friðarsamning milli landanna.
Japanir og Sovétmenn hafa
aldrei samið formiega frið frá því
heimstyrjöldinni siðari lauk, en
í felum
í 30 ár
Belgrad AP.
„ÉG GERÐI aldrei neitt
af viti öll þessi ár, og fór
aldrei út úr húsi. í gegn-
um gluggana sá ég niður
á þorpið en vegfarendur
sá ég sjaldan, því hús
okkar eru fjarri þorp-
inu. Þegar ég heyrði fólk
hlæja í þorpinu grét ég.“
Svo segir Janez Rus,
64 ára, frá þeim 30 árum
er hann lifði í felum i
húsi systur sinnar. Rus
var hermaður í heims-
styrjöldinni siðari, og
þegar henni lauk þorði
hann ekkí að gefa sig
fram af ótta við að verða
dæmdur fyrir stríðs-
glæpi. Hann hélt sig því í
húsi systur sinnar þang-
að til í siðasta mánuði að
lögregla gerði húsleit
hjá henni og fann Rus.
Grunsemdir þorpsbúa
vöknuðu þegar systir
Rus fór að kaupa rak-
vélarblöð og óvenjumikl-
ar matarbirgðir. Þeir
gerðu lögreglu viðvart
og það varð til þess að
hún lét til skarar skríða.
viðræður þeirra á milli fóru sfðast
fram fyrir tveimur árum.
Fregnir herma að Sonoda hafi
hafið viðræðurnar á því að ítreka
fyrri kröfu Japana um að Sovét-
ríkin skiluðu aftur fjórum syðstu
Kúrileyjunum, sem þeir hertóku í
lok stríðsins. Eyjarnar eru tæpir
5.000 ferkilómetrar á stærð, en
hingað til hafa allar samningavið-
ræður strandað á þeim.
Sovétríkin vildu eins og áður
gera samning um gagnkvæma
samvinnu landanna en það telja
þeir skref f átt að fullgildum
friðarsamningi.
Þjóðirnar munu halda áfram
samningaumleitunum, en ekki er
búizt við neinni breytingu á af-
stöðu ráðherranna.
Þá ræddu ráðherrarnir einnig
um gerð fiskveiðisamnings milli
Framhald á bls. 24.
SOVÉZKA fimleikakonan heimsfræga, Olga Korbut, gekk í dag í heilagt hjóna-
band í Minsk í Sovétríkjunum og er eiginmaður hennar aðalsöngvari popphljóm-
sveitarinnar Pesniary, Leonid Bortkevich að nafni. Sjást hjónakornin hér og er
Olga í kjólnum fræga, sem hún keypti í Bandaríkjunum um árið.
Úlfaþytur í N-írlandi
vegna rædu Jack Lynch
Belfast, 8.-9. jan. AP. — Reuter.
UPPI VARÐ fótur og fft f hópi
sambandssinna f Ulster á mánu-
dag, er sá rymtur barst þeim til
eyrna að rfkisstjórnir Breta og
Irska lýðveldisins hefðu komist
að leynilegu samkomulagi f Dubl-
in um framtfð þessa blóði drifna
landshluta. Brugðust talsmenn
þeirra harkalega við og kváðust
mundu draga sig til baka úr
samningaviðræðum, er hafa verið
á um nokkurt skeið milli Roy
Mason, ráðherra N-lrlandsmála f
Bretlandi, og stjórnmálaflokka f
Ulster um nýtt stórnarform f N-
Irlandi. Þá munu sex þingmenn
Sambandsflokksins f Westminst-
er koma saman á þriðjudag til að
ákveða hvort þeir skuli halda
áfram yfirlýstum stuðningi sfn-
um við rfkisstjórn James Callagh-
ans, er þarf á öllu sfnu að halda
til að halda meirihluta sfnum f
þinginu. Ókyrrð þessi mun vera
tagi sem væri, myndi kveða á um
þátttöku kaþólska minnihlutans,
en Slíkri valddeilingu hafa leið-
togar mótmælenda andmælt.
Einnig talaði Lynch um hugan-
lega uppgjöf saka fyrir byssu-
menn og þá er kærðir hafa verið
fyrir sprengjutilræði á vegum
hins ólöglega írska lýðveldishers.
Leiðtogar sambandssinna gerðu
enga tilraun til að sekkja gremju
sína yfir ummælum Lynch og
kölluðu þau viðurstyggileg. Einn-
ig mun Ian Paysley og Lýðræðis-
legur sambandsflokkur hans hafa
slitið þátttöku sinni f viðræðun-
um við Mason og slegið sér saman
með öðrum forgöngumönnum
mótmælenda og þingmönnum
brezka Ihaldsflokksins í stjórnar-
andstöðu í þeirri afstöðu sinni að
það, sem Lynch sagði í ræðu sinni,
mætti túlka sem viðurkenningu
fyrir hinn úthýsta lýðveldisher.
Talsmaður brezka íhaldsflokks-
ins í málefnum N-Irlands lét eftir
sér hafa að yfirlýsingar Lynch
sköpuðu „mjög alvarlegt ástand“.
Gæti IRA (lýðveldisherinn) nú
farið að hlakka til þess að fá upp-
gjöf saka fyrir morð sín og hefðu
Framhald á bls. 24.
Finnland:
Lítill áhugi á for-
setakosningunum
Helsinki, 9. jan. AP
EFTIR að nýjustu skoðanakann-
anir f Finnlandi leiddu f ljós að
þátttaka f kosningum forseta á
sunnudag og mánudag mundi
verða minni en 65 að hundraði og
lokaniðurstöður frá Svfþjóð
sýndu að aðeins um 3 af hundraði
128.000 Finna, er þar búa hefðu
Urho Kekkonen, Finnlandsfor-
seti, hefur áhyggjur af því að
áhugaleysi fólks um kosningarn-
ar kunni að verða virt til verri
vegar erlendis.
greitt atkvæði, kom Urho
Kekkonen fram á fjöldafundi og
hvatti þær 3,5 milljónir manna,
er kosningarétt hafa f landinu, til
að fara á kjörstað. Hann sagði f
ávarpi sínu að dræm kosninga-
þátttaka kynni að verða mistúkuð
utan Finnlands.
Kekkonen, sem er núverandvi
forseti landsins, kallaði kosning-
arnar „eins konar þjóðaratkvæða-
greiðslu“ þar sem þegnunum
væri gefinn kostur á að segja til
um hvort þeir vildu halda áfram
stuðningi sínum við utanrikis-
stefnu þá er hann hefur verið
fylgjandi síðan 1956. Hann kvaðst
ekki hafa áhyggjur af sinu eigin
gengi í kjörinu, en ef marka má
nýlega skoðanakönnun mun
Kekkonen hljóta um nitíu af
hundraði atkvæða þeirra, er
sögðust ætla að kjósa, en and-
stæðingar hans fjórir mun þá
væntanlega skipta með sér þeim
10 hundraðshlutum sem eftir eru.
Samkvæmt skoðanakönnunum
voru það yngstu kjósendurnir,
sem minnstan áhuga höfðu á að
greiða atkvæði, þeir sömu og ekki
hafa séð neinn annan en Kekkon-
en fara með embætti forseta.
Viðhorf þeirra lýsir sér vel í þvi,
sem tvítug stúka svaraði til er
fréttamaður spurði hana á götu:
„Mér finnst, að hann hljóti að
verða endurkosinn án þess að ég
greiði atkvæði."
Jack Lynch, forsætisráðherra
Irska lýðveldisins og formaður
„Fianna Fail“, stærsta þingflokks
landsins, er vann stórsigur f kosn-
ingunum f júnf sl.
sprottin af ræðu er forsætisráð-
herra trska lýðveldisins, Jack
Lynch, flutti f útvarpi um sfðustu
helgi, en af henni réðu sambands-
sinnar að um laumulegan sam-
blástur rfkisstjórnanna hefði ver-
ið að ræða.
1 ræðu sinni í frska útvarpinu
fullyrti Lynch að tími væri nú til
kominn að brezka ríkisstjórnin
lýsti yfir þeim ásetningi sínum að
hætta afskiptum á N-Irlandi „og
auðsýna áhuga sinn á því að sam-
eina írsku þjóðina“ með þvi að
fjarlægja það lagalega „stálþil“ er
hamlar einingu N-Irlands og
Irska lýðveldisins. I sama ávarpi
kom fram hjá Lynch að Callaghan
hefði látið í ljós við hann að nýtt
stjórnarform í N-írlandi, af hvaða
Nordmenn banna
notkun gerfilitar-
efna í fiskiðnaði
ALGJÖRT bann hefur verið lagt
við notkun gervilitarefna f fisk-
iðnaði f Noregi frá fyrsta janúar
sfðastliðnum, og er Noregur þar
með fyrsta landið sem stfgur
þetta skref.
A síðustu árum hefur leyfileg-
um gerviefnum fækkað mjög
verulega og þvi kom þetta bann
engum á óvart. Aðeins náttúruleg
litarefni munu nú verða leyfð, en
þó munu viss takmörk gilda um
notkun þeirra, til dæmis verður
ekki leyfilegt að nota þau þar sem
þau hafa ekki verið notuð áður.
Bannið mun fyrst og fremst hafa
áhrif á framleiðslu „reykts ufsa“
(sjólax) og styrjuhrogna (kavf-
ars), þó svo leyfi hafi fengist til
að nota gervilitarefni við fram-
leiðslu þeirra þangað til náttúru-
legt litarefni sem hentar hefur
fundizt. Tilraunir með náttúruleg
litarefni eru þegar hafnar, en
erfiðlega gengur að finna efni
sem hafa sömu endingu og þola
ljós jafnvel.
Þeir sem fást við vinnslu þorsk-
hrogna, hafa verið heppnari.
Tveir af stærstu framleiðendum
Noregs hafa ákveðið að nota sömu
litarefni og nú eru notuð í rjómaís
og ávaxtasafa, og sænskur fram-
leiðandi hefur nú i athugun að
nota alls engin litarefni. Það virð-
ist því sem spurningunni hvort
„við borðum með augunum en
ekki maganum" verði senn svar-
að.
Ást Townsends á Margréti kulnuð
„ÉG ber ekki lengur neinar til-
finningar til hennar. Það er svo
langt slðan þetta gerðist." Með
þessum orðum rauf Peter
Townsend 22 ára þögn sem
hann hefur haft um samband
sitt við Margréti prinsessu, en
vonlaus ást þeirra var aðal-
fréttaefni dagblaða um allan
heim 1955.
Townsend var orrustuflug-
maður í heimsstyrjöldinni sið-
ari. Faðir Margrétar, Georg
konungur VI. af Englandi, sem
nú er látinn, gerði hann að yfir-
hestaverði sinum og braut með
þvi ævagamla hefð, aldrei fyrr
hefði þekkzt að yfirhesta-
vörðurinn væri ekki úr
konungsfjölskyldunni. Seinna
hækkaði konungur Townsend i
tign og gerði hann að aðstoðar-
yfirþjóni hirðarinnar.
31
Margrét
Townsend
Townsend hitti Margréti
fyrst i salarkynnum konungs-
hallarinnar og síðar kynnti
konungur þau hvert fyrir öðru.
Tonwsend var þá giftur maður,
en þegar hann tók að dveljast
langdvölum við hirðina, rofnaði
samband þeirra hjóna, unz þau
að lokum skildu. Þau Margret
og Townsend urðu æ samrýmd-
ari, en sakir andstöðu kirkjunn-
ar og mótmæla konungsfjöl-
skyldunnar og almennings gátu
þau aldrei gifzt, og því fór svo
að 31. október 1955 gaf Margrét
út eftirfarandi yfirlýsingu: „Ég
hef ákveðið að kvænast ekki
Peter Townsend, kafteini.“
Yfirlýsing hennar batt enda á
ástarsamband þeirra, og leiðir
þeirra skildu algjörlega.
Nú er Townsend kvæntur í
annað sinn, og býr ásamt konu
sinni og börnum rétt utan við
Paris. Hann hefur nýlokið við
ævisögu sína og fjallar hann
þar meðal annars um samband
sitt og Margrétar.
1960 giftist Margrét ljós-
myndaranum Anthony Arm-
strong-Jones, en hjónaband
þeirra endaði 1976 og búa þau
nú sitt í hvoru lagi, en þau eiga
tvö börn.