Morgunblaðið - 13.01.1978, Síða 29

Morgunblaðið - 13.01.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JANUAR 1977 29 i) W A VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI !\f f/JÆrs^-U^'U 11 „Þarna voru ekki neinar dje- skotans symfóniur á ferðinni. Nei, þetta var sko ekta englasöng- ur.“ Að lokum vil ég færa öllum þeim, sem að þessari skemmtun stóðu, beztu þakkir og er viss um að ég mæli þá fyrir munn allra, sem á hlýddu. Vistmaður á Hrafnistu." Það er gott að'fá stöku sinnum að greina frá þvi sem vel er gert, það er ekkert of mikið af þvi i þessum dálkum, það er eins og umkvörtunarefnin séu alltaf ofan á í skrifum okkar, þó að þau séu að sjálfsögðu einatt nauðsynleg; 0 Lærum af þeim „Það gerist æ algengara að Islendingar fari til útlanda og aki þar um, annaðhvort á sínum eigin bílum eða á bílaieigubilum. Ekki er nema gott um þetta að segja, en eitt mætti þó nefna, en það er að þeir ökumenn, sem þannig gerast þátttakendur í erlendri umferð, ættu að gera sér far um að iæra af þeirri reynslu og helzt að miðla öðrum af henni. Fyrir stuttu heyrði ég um að Félag ísl. bif- reiðaeigenda hygðist hafa for- göngu um ferð til útlanda, þar sem menn tækju eigin bíla með og notuðu þá erlendis i nokkrar vik- ur. Finnst mér einmitt hér komið tækifærið að FlB gangist fyrir einhvers konar fræðslufundi eða því líku er heim kemur úr þessari ferð ef af verður, og fái þar öku- menn til að greina frá þvi helzta sem þeir telja að læra megi af erlendri umferð. Gæti það vel orð- ið smá lyftistöng í starfi félagsins og jafnframt dettur mér i hug hvort félagið þurfi hreinlega ekki að halda smá námskeið i akstri á hraðbrautum áður en út i svona ferðerfarið. Ahugamaður. Þessir hríngdu . . 0 Góður spurn- ingaþáttur Utvarpshluslandi: — Það er góður þátturinn i útvarpinu á sunnudagsmorgnum, Veiztu svarið, og þar hafa komið fram margir ágætir menn og svar- að erfiðum spurningum. Hefur þessi þáttur því um margt verið fróðlegur, en þó sakna ég spurn- inga úr Islendingasögunum. Þær mættu vel vera 2—3 í hverjum þætti. Annað atriði mætti einnig athuga I framtiðinni, þegar valdir eru þátttakendur, en það er að hafa konur þar, en ekki menn í meirihluta. Ég leyfi mér að stinga uppá konu eins og t.d. Guðrúnu P. Helgadóttur, og ég held þvi fram að margar konur gætu sómt sér eins vel i þessum þáttum og karl- menn. Úr þvi ég er farin að ræða við Velvakanda langar mig að minn- ast i leiðinni á að i Mbl. nýlega stóð um konu að hún hefði kvænst. Slikt er ekki sagt um kon- ur, þær giftast, en það eru menn sem kvænast. Annað dæmi um slæma meðferð á tungunni, ekki úr Morgunblaðinu, heldur af SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson fundi, er ég sat nýlega, en þar var verið að ræða um málefni barna og talað i sifellu um að börnin föttuðu ekki hitt eða þetta. Að mínu viti er þetta slæm dönsku sletta og ekkert annað, sá ég þetta orð nýlega í Familie Journal og það er hálfhlægilegt finnst mér þegar háskólagengið fólk er að tala yfir okkur ómenntuðu fólki að það skuli ekki geta talað góða íslenzku. 0 Hvf ekki tvö sjónvörp? Hulda: — Ég hef verið að velta þvi fyrir mér með fólk, sem kaupir litasjónvarp, af hverju endilega þurfi að láta innsigla tækin. Þvi HOGNI HREKKVÍSI . _ ©1*7B Helgarnar geta stundum orðið mjög erfiðar. Lækn- isráðið er þá oftast hið sama. S\G6A V/öGA £ 'V/LVtkAW mega menn ekki hafa fleiri en eitt sjónvarp, rétt eins og má hafa fleiri en eitt útvarp á hverju heimili. Sjónvörp sem eru 12—14 ára gömul eru hvort eð er ónýt og ekki nokkur sem vill kaupa þau og ég skil því ekki hvers vegna ekki má bara láta þau vera á heimilunum áfram, það má nota þau. annars staðar og heimilin hafa meiri not fyrir þau i gangi fremur en innsigluð einhvers staðar í geymslu. Ég get ekki heldur séð að það sé neinu að tapa, afnotagjöldin eru hvort eð er ekki greidd, ef tækin eru inn- sigluð og þvi mætti vel hugsa sér að leyft yrði að nota gömlu tækin áfram, eins og ég nefndi áðan, svipað og er með útvarpið. Á Þorláksmessu var dregið í hinu árlega bílnúmera- happdrætti Styrktarfélags vangefinna. Vinningar í happdrættinu voru 10 talsins, en heildarverðmæti rúm- ar 14 milljónir. Aðalvinningurinn, Plymouth Volare-bifreið, kom á miða R 44921 og sýnir myndin, er Tómas Sturlaugsson, fram- kvæmdastjóri félagsins, afhendir hinum nýja eiganda, Jóhanni Gunnari Sigurðssyni, lyklana að hílnum. Enn eru tveir vinningar í happdrættinu ósóttir, R 18115 og R 63142. 7 Utvegsbændur í Eyjum: Mótmæla tíu daga þorskveiðibaimi í net EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt einróma á fundi stjórn- ar og trúnaðarmannaráðs Utvegs- bændafélags Vestmannaeyja, sem haldinn var hinn 30. des. 1977. „Fundur, haldinn í stjórn og trúnaðarmannaráði Útvegs- bændafélags Vestmannaeyja 30. des. 1977 mótmælir harðlega þeirri fyrirætlun sjávarútvegs- ráðuneytisins að setja á 10 daga veiðibann með þorskfisk-netum á miðri komandi vetrarvertfð. En verði talið óhjákvæmilegt að beita þvilíkum friðunaraðgerðum, vill fundurinn benda á eftirfarandi, sem verða mætti til úrlausnar svo vandasömu verkefni: 1. Þorskanet verði tekin í land 20. til 30. april 1978. 2. Á sama tima og þorskanetin eru tekin á land skal banna allar þorskveiðar í botn- og flotvörpu jafnlangan tíma, þannig að þorsk- ur verði ekki meira en 10% af heildarafla í hverri veiðiferð, því ekki er hægt að sjá mismun á því i hvaða veiðarfæri þorskur er veiddur. 3. Leyfilegur þorskafli Færey- inga i islenzkri landhelgi á árinu 1978 er ákveðinn jafnmikill og þorskafli Vestmannaeyjabáta var á vetrarvertiðinni 1977, veiddur í þorskanet. Nýgerðum veiðiheimildar- samningi, við Færeyinga, er því mótmælt eindregið, um leið og bent er á, að ekki er hægt að ætlast til, að islenzkir útgerðar- og fiskimenn taki alvarlega jafn harkalegar veiðitakmarkanir, með þorskanetum, sem sjávarút- vegsráðuneytið hefur i hyggju að láta koma til framkvæmda nú á komandi vertið meðan slíkur veiðiheimildarsamningur er i gildi.“ Útsala Útsala Mikil verðlækkun. Glugginn Laugavegi 49 Útsala Utsala Terylenebuxur, Nylonúlpur, Terylenefrakkar. Skyrtur. Nærföt o.fl. Andrés Skólavörðustíg 22. Þessi staða kom upp I skák ( þeirra Gaidarovs og Batakovs á meistaramóti lettnesku borgar- innar Rigu í fyrra. Gaidarov, sem hafði hvítt, náði nú óstöðvandi sókn: 13. Rg5! — fxg5, (Eða 13.. . . fxe5, 14. Bxh7+ — Kh8, 15. Rxe6 — De8, 16. Bc2) 14. Bxh7+ ! — Kxh7, 15. hxg5+ — Kg8, 16. Hh8+ ! ! og svartur gafst upp. Eftir 16. ... Kxh8, 17. Dh5+ — Kg8, 18. g6 er hann óverjandi mát. Gaidarov varð skákmeistari Rigu og af þessari skák að dæma var hann vel að því kominn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.