Morgunblaðið - 29.01.1978, Qupperneq 1
48 SIÐUR
24. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sló í bardaga
S-Yemena og
Saudi-Araba
London 28. janúar. AP.
MIKI.IR bardagar brutust út f
vikunni milli hcrsveita Suður-
Yemena og Saudi-Arabíu vid
landamæri rfkjanna tveggja að
því er segir í dag í arabiska blað-
inu A1 Manar sem er gefið út í
London. Segir þar að bardagar
hafi staðið skammt frá eyðimerk-
urbænum Wadiah. Engar tölur
voru gefnar um mannfall en látið
að því liggja að bardagarnir
hefðu verið hinir heiftúðugustu.
Blaðið sagði að þetta hefði leitt
til þess að utanríkisráðherra
Saudi-Arabíu hefði farið skyndi-
lega til Kuwait til að leita eftir
stuðningi ef á þyrfti að halda við
þá fyrirætlun Saudi-
Arabíumanna að fá Persa til að
grípa til íhlutunar ef á þyrfti að
halda. Heimildir í London hafa
það fyrir satt að íranskeisari hafi
hinar mestu áhyggjur af því
hversu mikil hætta gæti stafað af
því marxiska stjórnarfari sem rík-
ir í Suður-Yemen og Eþíópíu
einkum hvað varðar siglingar um
Adenflóa og Rauða hafið. Ekki
liggur ljóst fyrir hverjar lyktir
málið fékk en af bardögum hefur
ekki frétzt meira að sinni.
LISSABON — Mario Soares forsætisráðherra Portúgals með
hinum nýja utanrikisráðherra í stjórn hans, miðdemókratanum
Vitor Sa Machado. Allhörð gagnrýni hefur komið fram á þá
ákvörðun Sósíalistaflokksins að ganga til samstarfs við miðdemó-
krata, og hafa einkum sósialdemókratar PSD haft sig í frammi
með þá gagnrýni, en mjög djúpstæður pólitískur og persónulegur
ágreiningur er á milli forystumanna sósialdemókrata og sósíal-
ista.
TENG HSIAO PING aðstoðarforsætisráðherra Kina (tv) sézt hér ásamt Ne Win forseta Burma (th.)
Myndin tekin í forsetahöllinni í Rangoon á föstudag, en Teng er í opinberri heimsókn í Burma. Þá var
tilkynnt í Katmandu á laugardagsmorgun að Teng myndi koma í opinbera heimsókn til Nepals dagana
3.—6. febrúar. Teng hefur litið verið á faraldsfæti siðan hann komst á ný í náð og valdastöðu i Kína,
þar til nú að hann fór til Burma og mun síðan fara til Nepals nokkrum dögum eftir heimkomuna.
Fárvidrið í Miðvesturríkjunum:
Sextíu fórust -
óttazt um 200
Simaniynd AP.
Chicago, 28. jan. Reuter
ÖTTAZT er um öryggi 200
manns, sem talið er að sitji fastir
á vegum úti í einni mestu stór-
hrið sem komið hefur í manna
minnum í miðvesturfylkjum
Bandaríkjanna. Vitað er um að
minnsta kosti 60 manns, sem hafa
látið lífið af völdum þessa fár-
viðris. Carter forseti hefur lýst
yfir neyðarástandi í Ohio, Indi-
ana og Michigan, og ríkisstjórinn
í Ohio segir að hér sé um að ræða
verstu náttúruhamfarir í sögu
fylkisins. Svo mikill er veðurofs-
inn á þessum slóðum að þegar
vindarnir koma yfir vötnin miklu
til Kanada hafa rúður í háhýsUm
í Toronto látið undan og brotnað.
Ljóst er að þegar hefur orðið
margra milljóna dala eignatjón af
Sadat fer til Banda-
ríkjanna á föstudag
Washington,
Kairó, Damaskus
28. janúar.
AP. Reuter.
BÚIZT var við opin-
berri tilk.vnningu síðla
laugardags þess efnis
að Sadat Egyptalands-
forseti myndi leggja af
stað til Bandaríkjanna
næstkomandi miðviku-
dag. Fyrst fer hann til
Marokko til viðræðna
við Ilassan konung, sem
hefur stutt hann dyggi-
lega. Hann kemur til
Bandaríkjanna á föstu-
dag og mun ræða við
Carter forseta í Camp
David. A leið heim er
álitið að hann mundi
fara til London, París-
ar, Bonn og Vinarborg-
ar og ræða þar við ráða-
menn. Heimildir hafa
fyrir satt, að Sadat
muui hlýða á skýrslu
v. aforseta sins, Hosni
IV jharak, áður en förin
er hafin. Mubarak fór í
m >rgun frá Kairó í
slyndiferð um átta
A abalönd og mun
ei inig koma við í Iran.
! fréttum frá Mið-
austurlöndum segir í
morgun, laugardag, að
útlit sé nú betra en áður
og af ýmsu megi ráða að
viðræður Athertons að-
stoðarutanríkisráðherra
við ýmsa forystumenn
Israela og Egypta hafi
borið þann góða árang-
ur að and. ú isloft sé nú
annað en fyrir nokkru.
Þýkir ráðherrann hafa
sýnt lipurð og kænsku í
viðræðum sinum.
Talsmaður þings
Frelsissamtaka
Palestinu sagði i morg-
un, að þær tilraunir sem
nú stæðu yfir til að
koma á samkomulagi
með Israelum og Egypt-
um myndu hafa það eitt
að markmiði að lögfesta
hernám israela. ,Hann
sagði einnig, að hann
vonaði að fundurinn
sem hefst í Alsír í
næstu viku með leiðtog-
um þeirra Arabaríkja,
sem harðast hafa gagn-
rýnt Sadat Egyptalands-
forseta, myndi ná víð-
tækri samstöðu um að-
gerðir sem gætu bundið
enda á hið viðbjóðslega
samsæri zíonistanna og
heimsvaldasinnanna.
völdum fárviðrisins en einnig hef-
ur mikið tjón orðið vegna þess að
skólar, verksmiðjur og önnur fyr-
irtæki hafa orðið að loka. Um 4
þúsund björgunarmenn leita nú
Manntjón
í flóðum
Jóhannesarborg, 28. jan. Reuter
AÐ MINNSTA kosti tólf manns
létust f miklum flóðum sem hafa
orðið á stórum svæðum í Pretorfu
sfðasta sólarhring og eru ekki
í rénum. A sfðasta sólarhring var
úrkoman þarna 240 millimetrar.
Lýst hefur verið yfir neyðar-
ástandi í ýmsum hverfum
Jóhannesarborgar vegna þessa.
Fjórir létu lífið og 20 slösuðust,
margir alvarlega, þ.egar farþega-
lest skolaðist út af járnbrautar-
spori sínu. í Pretoríu sagði í út-
varpsfréttum að fjögur lik hefðu
fundizt á bökkum Apiesfljótsins
sem hefur vaxið gríðarlega í
rigningunum. Tveir drukknuðu í
miðborginni þegar flóðbylgja
færði bifreið þeirra i kaf og þeim
tókst ekki að komast út og vitað er
að kona og ungt barn hennar
drukknuðu er bill sem þau voru i
sópaðist út af vegi í vatnselgnum.
Þá er fjöldi manns i nauðum
staddur og hefst við í trjám og
uppi á húsaþökum. Björgunar-
sveitir og allt tiltækt lögreglulið
hefur verið kallað út og er óttázt
að margir fleiri séu látnir, enda
ljóst að tuga manna er saknað og
með öllu óvitað um afdrif þeirra.
Ekki er það til að bæta ástandið
að rafmagnslaust og simasam-
bandslaust er á flóðasvæðunum.
við mjög erfiðar aðstæður að 200
manns, sem talið er að sitji fastir í
sköflum á vegum úti í Illinois og
Pennslyvaniu. í Indiana varð árs-
gamall drengur úti þegar móðir
hans komst ekki með hann inn í
hjólhýsi, sem var heimili þeirra.
Niu jnanns fórust í Ontario, en
þar man enginn eftir öðru eins
veðrj. Flugvellir á þessum slóðum
hafa allir verið lokaðir en eru nú
að komast í.gagnið að nýju. Raf-
magnsleysi hefur orðið víða, og í
Ohio er talið að um 90 þúsund
heimili séu rafmagnslaus. Fjöldi
fólks hefur orðið að láta fyrir
berast í neyðarbúðum, en margir
eru nú að búast til heimferðar þar
sem búið er að ryðja suma vegi.
Telja yfirvöld í Ohio einsýnt að
ekki verði búíð að koma vegakerf-
inu í fylkinu í samt lag fyrr en
síðari hluta næstu viku. 1 Ohio er
ástandið einna verst, og er tjón
bænda til dæmis metið á 48 millj-
ónir dala. Spáð er áframhaldandi
frosti á óveðurssvæðinu en það
torveldar mjög björgunarstarf.
Barsmíðar
með bjúga
Stokkhólmi 28. jan. Reuter
ARGUR og uppstökkur vegfar-
andi sem átti fótum sínum fjör
að launa þegar minnstu mun-
aði að bíll æki hann niður,
hefndi sin grimmilega á öku-
manninum. Þegar bilstjórinn
nam staðar til að kanna hvort
vegfarandinn hefði hlotið
skrámur á flóttanum undan
bílnum, sló vegfarandinn bíl-
stjórann í rot með 40 sm löngu
bjúga sem hann hélt á.