Morgunblaðið - 29.01.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1978
V erkamannabústaðirnir:
Gengið tíl samninga
við Breiðholt hf.
STJÓRN verkamannabústaðanna
í Reykjavik samþykkti á fundi í
gær að ganga tíl samninga við
Breiðholt hf. um byggingu 216
íbúða í Hólahverfi, Breiðholti III,
með því skilyrði að tilskilin
bankaábyrgð lægi fyrir af hálfu
fyrirtækisins.
Sex vérktakar gerðu tilboð í
framkvæmdirnar og átti Breið-
holt hf. lægsta tilboðið,
674.492.000 krónur, sem var tæp-
um 63 milljónum lægra en
kostnaðaráætlun, sem hljóðaði
upp á 737.180.000 krónur.
Endurlalning á atkvæd-
um framsóknarmanna
„VIÐ ætlum að endurskoða öll
kosningagögnin, bæði varðandi
prófkjörið vegna alþingiskosn-
inganna og prófkjörið vegna
horgarst jórnarkosninganna. Það
hafa greinilega orðið einhver
mistök við talninguna, en það hef-
ur enginn beðið um endurtaln-
ingu og okkur hefur ekki borizt
nein kæra,“ sagði Jón Ahraham
Olafsson, formaður kjörstjórnar
vegna prófkjörs Framsóknar-
flokksins í Reykjavík.
Jón sagði, að á mánudag hefðu
aðeins verið talin upp atkvæði
þeirra Þórarins Þórarinssonar,
Kristjáns Friðrikssonar og Sverr-
is Bergmann, en nú væri meining-
in að ,,taka allt í gegn“.
Framhald á bls. 46
/
Björgunarstöðvar SVFI
opnar almenningi í dag
í DAG er.u liðin 50 ár frá stofnun
Slysávarnafélags Islands og eins
og kom fram í frétt Mbl. á
fimmtudag er það ætlunin að
halda upp á afmælið; ,,ekki með
veizluhöldum heldur vinnu“, eins
og Gunnar Friðriksson, forseti
SVFÍ, orðaði það. i dag verða
allar björgunarstöðvar SVFÍ opn-
ar almenningi og tók RAX þessa
mynd í gær í Gróuhúð, er félagar
Björgunarsveitarinnar Ingólfs i
Réykjavík voru að undirbúa allt
fyrir gestakomuna. A bls. 23, 24,
25 og 26 i Mbl. í dag er efni um
SVFÍ og sögu þess.
Reykjavíkurskákmótið:
Ágreiningur milli S.í. og
íslenzku stórmeistaranna
AGREININGUR er kominn
upp milli stórmeistaranna
Friðriks Olafssonar og Guð-
mundar Sigurjónssonar og
Skáksambands tslands um
greiðslu „dagpeninga" eða
„fæðispeninga" meðan á
Reykjavíkurskákmótinu stend-
ur. „Þessi ágreiningur er um
dagpeninga," sagði Friðrik
Olafsson, er Mbl. ræddi við
hann. „Það er viðtekin venja á
skákmótum erlendis, að at-
vinnumönnum cr ekki mismun-
að, hvað dagpeninga varðar,
hvað sem búsetu þeirra líður.
Við lítum á okkur sem atvinnu-
menn og viljum sæta sömu
kjörum og aðrir á þessu móti,
hvað þetta atriði varðar. Guð-
mundur Sigurjónsson kvaðst
ekkert vilja láta hafa eftir sér
um málið, en Einar S. Einars-
son, forseti Skáksambands Is-
lands, kvað hvorugan stór-
meistarann hafa sett málið
fram sem skilvrði fyrir þátt-
töku. „Við greiðum þeim sömu
þátttökuþóknun og erlendu
stórmeisturunum," sagði Ein-
ar, „en hins vegar teljum við að
þeir geti ekki gert kröfu til
þess að fá sömu upphæð í fæðis-
peninga og erlendu stórmeist-
ararnir, sem búa á hótcli allan
mótstímann. Hins vegar erum
við reiðubúnir til að greiða
þeirn útlagðan kostnað vegna
þátttökunnar í mótinu og það á
við um alla íslenzku keppend-
urna.“
„Við munum greiða íslenzku
stórmeisturunum sömu þátt-
tökuþóknun og erlendu stór-
meisturunum og atvinnumönn-
unum,“ sagði Einar. „Þessi
þóknun er 200 dollarar á mann
og er ætluð sem vasapeningar,
en auk þess munum við svo
greiða gistingu erlendu stór-
meistaranna og fæði á hótelinu.
Hins vegar teljum við, að stór-
meistararnir íslenzku, sem báð-
ir eru á launum hjá ríkinu og
tefla í sínum heimabæ, géti
ekki gert kröfu til þess að fá
greitt fullt hótelfæði meðan á
mótinu stendur, þar sem á þá
verði í þessu tilfelli að lita sem
aðra menn, er ganga til vinnu
sinnar í Reykjavík.
Skáksambandið er reiðubúið
til að greiða útlagðan kostnað
þeirra vegna þátttökunnar og
þá greiða þær máltíðir, sem
þeir verða mótsins vegna að
snæða á hótelinu, og að sjálf-
sögðu fá þeir veitingar sem aðr-
ir meðan teflt er. Þetta gildir
fyrir alla íslenzku þátttakend-
urna og einnig erum við reiðu-
búnir til að sjá þeim fyrir að-
stöðu á hótelinu, þegar þeir til
dæmis eiga biðskákir að
kvöldi."
Baráttuskemmtun áhugafólks um verndun gömlu húsanna austan Aðalstrætis hófst á Hallærisplaninu
klukkan 14 í gær. Ljósm. Mbl. RAX.
UPPLYFTIN
Nútíma vörudreifing byggist á
hraða, öryggi og sjálfvirkni. Með
bílpallslyftunni frá HMF verður lestun
og bsun leikur einn.
Notkunar- og hreyfimöguleikar
hennar eru margir sem stjórnast frá
fœranlegri stjómstöð.
• Lyftigeta 1000 kg. og lSOOkg.
• Eigin þyngd 250 kg. og 390kg.
• Hentar öllum vöru-
flutningabílum.
• Auðvelt í ásetningu.
PALL'
LYFTUR
SALA-VIÐHALD • WÓNUSTA
LANDVÉLAR HF.
Smiðjuvegi 66. Sími: 76600.
Skáksambandið:
I lögbannsmál
vegna nýja
húsnæðisins
„VIÐ fórum fram á lögbann á
þeirri fyrirætlan að breyta inn-
ganginum að okkar skrifstofum á
þriðju hæðinni að Laugavegi 71,“
sagði Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambands lslands, í samtali
við Mbl. í gær. „Úrskurður hefur
ekki verið kveðinn upp, en eftir
honum er nú beðið.“
Einar sagði, að innréttingar
skrifstofa Skáksambandsins
hefðu verið langt komnar, þegar
hefjast átti handa um að færa til
innganginn. Sagði Einar að vinnu
lyki nú um helgina og ætlar Skák-
sambandið að flytja inn á mánu-
daginn.
„Að sjálfsögðu skipulögðum við
okkar húsnæði út frá inngangin-
um, eins og hann var, þegar við
keyptum hæðina, og þess vegna
getum við ekki fallizt á það, að
inngangurinn verði bara allt í
einu færður til," sagði Einar S.
Einarsson. Mbl. tókst í gær ekki
að ná sambandi við aðila þann,
sem byggði Laugaveg 71 og seldi
S.Í. þriðju hæð hússins.
©
INNLENT