Morgunblaðið - 29.01.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1978
3
Guðmundur Benedikts-
son fyrrv. borgargjald-
keri áttræður í dag
GUÐMUNDUR Benediktsson
fyrrverandi borgargjaldkeri er
áttræður f dag. Hann er fæddur
29. jan. 1898 á Stóra-Hálsi f Grafn-
ingi. Foreldrar hans voru Bene-
dikt Eyvindsson bóndi þar og síð-
ar að Gljúfurholti f Ölfusi og
kona hans Margrét Gottskálks-
dóttir.
Guðmundur lauk stúdentsprófi
1922 og lögfræðiprófi frá Háskóla
Islands 1926. Setti hann þá á stofn
málflutningsskrifstofu og var
jafnframt ritstjóri vikublaðsins
Islands.
Arið 1930 tók Guðmundur við
starfi bæjargjaldkera i Reykja-
vík, síðar borgargjaldkera, og
gengdi því óslitið þar til í ársbyrj-
un 1969, eða í 38 ár. Þá vann hann
og að ýmsum öðrum málum í þágu
borgarinnar.
Guðmundur tók virkan þátt i
starfi Sjálfstæðísflokksins. Hann
var m.a. formaður Heimdallar og
átti sæti í stjórn Landsmálafélags-
ins Varðar í átta ár, þar af fimm
ár sem formaður. Þá var hann
formaður Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík í sjö
ár.
Guðmundur hefur unnið mikið
að ritstörfum. Hann var m.a. um
tíma meðútgefandi að timaritinu
Þjóðinni og fjöldi ritgerða og
greina hefur birzt eftir hann í
blöðum og tímaritum, flestar um
þjóðfélags- og stjórnmál.
Kona Guðmundar er Þórdis
Vigfúsdóttir og eiga þau þrjú
uppkomin börn.
Guðmundur tekur á móti gest-
um í Domus Medica eftir kl. 3 í
dag.
Skákþing Reykjavíkur:
Efstu menn með
innbyrðis biðskák
NtJUNDA umferd Skák-
þings Reykjavíkur 1978
var telfd á föstudagskvöld.
Haraldur Haraldsson vann
Björn Sigurjónsson, Björn
Jóhannesson vann Bene-
dikt Jónasson og Jónas P.
Erlingsson og Júlíus
Friðjónsson geru jafntefli.
Biðskákir urðu hjá Þresti
Bergmann og Hauk
Angantýssyni, Þóri Ólafs-
syni og Braga Halidórssyni
og Benóný Benediktssyni
og Leifi Jósteinssyni.
Þeir Bragi og Þórir eru efstir
með 5Í4 vinning og innbyrðis bið-
skák. Björn Jóhannesson er með
5!4 vinning, Haukur Angantýsson
er með 5 vinninga og biðskák,
Benóný Benediktsson er með 4l/i
vinning og biðskák og Haraldur
Haraldson er með 4!4 vinning.
I B-flokki er Jóhann Hjartarson
efstur með 8!4 vinning eftir níu
umferðir.
Tíunda umferð verður tefld í
dag og síðasla uinferðin á mið-
vikudag.
Eigum mikið úrval af
Gluggatjalda velour
Bómullar breidd í 20 cm verð 3500 —
Dralon breidd 140 cm. verð 2880.—
Nylon breidd 1 80 cm. verð 3586. —
Hvitt rósótt dúkadamask breidd 1 60 cm verð
812.— meterinn Blómastórisar
T9e(naðarvörubúð T9.B.JC. h.(.
Vesturgötu 4, sími 13386.
„Gamaldags " hurdir
Nýjar hurðir með gamaldags
útliti.
Breytum gömlu hurðunum i
„gamaldags" með fullning-
um að yðar óskum Munstur
og viðarliki 42 tegundir
Sýnishorn á staðnum
‘ Srúnásí
EGILSTÖÐUM
-s-
FORMCQ
Skipholt 25 - Reykjavik ■
\ a/nnr ».»6 7 - 20.17
Simi 24499
J
Muníö
Þorrablótið
og
Júgóslavíu
kynninguna
é Hótel Sögu
í kvöld
MEÐ
ÚTSÝN
TIL
úgóslaví
NYJAR SPENNANDI
UTSYNARFERÐIR
BEZTU GISTISTAÐIRNIR
Dagflug
með DC-8 þotu
I Porec
Hotel PARENTIUM A-fl.
Hotel DELFIN B-fl.
I Portoroz
GRAND
HOTEL
METROPOL
Glæsilegt hótel
i bezta flokki
FlugleiSa
„LOFTBRÚNNI" til:
• Ítalíu,
• Júgóslavíu og
• Grikklands.
Brottf arardagar
PORTOROZ
—POREC
Júni: 9 , 30.
Júlí: 13.
Ágúst: 3., 17
Sept : 7
FerJteskrifstofan
ÚTSÝN
ÖRYGGI - ÞÆGINDI - ÞJONUSTA
Það er með ÚTSÝN,
sem ferðin borgar sig.
Austurstræti 1 7, II. Simar 26611 og 20100