Morgunblaðið - 29.01.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1978
7
Bréfið, sem Páll postuli reit
kristnum mönnum i Róma-
borg, geymir ekki aðeins þær
flóknu guðfræðihugmyndir,
sem nútímamönnum flestum
þykja flóknar og sumar trá-
leitar, heldur einnig sumar
fegurstu og spaklegustu lífs-
reglurnarsem N. testam.
geymir. í 1 2. kapitula bréfs-
insminnir hann á spádóms-
gáfuna. eina af andagáfun-
um, sem hann mat mikils og
var sjálfur gæddur að eigin
sögn. Þá talar hann um þjón-
ustuna sem eina megin-
dyggð kristinna manna, um
bróðurkærleikann, um gleð-
ina, þolinmæðina, vonina,
gestrisnina, um samúðina
með annarra manna kjörum,
gleðina með þeim, sem glað-
ir séu, og samhyggð með
þeim, sem sorgir þjá, og loks
segir hann: „Verið hver öðr-
um fyrri til að veita hirtum
virðingu."
Mun ekki okkur báðum,
mér og þér, þeirrar dyggðar
þörf?
„Hver öðrum fyrri til að
veita hinum virðingu." Ævin-
lega í einlægni glaður yfir
velgengni annarra, aldrei
öfundssamur þegar öðrum
hlotnast það, sem maður
hefði óskað sjálfum sér,
ævinlega að taka velgengni
annarra eins og maður hefði
sjálfur hlotið happ
Veitið
hinum
virðingu
Við tölum um bræðralag
og bróðurelsku, í kirkjunum
er ekki um annað talað
meira, en er okkur þá Ijóst,
að þetta er einn sannasti
prófsteinninn á það, hvort
bróðurelskan er flærðarlaus:
Getur þú glaðst yfir vel-
gengni annarra eins og væri
velgengni þín?
„Grátið með grátendum"
segir i þessum bréfkafla Á
öld hinna miklu fréttamiðla
berast daglega fregnir viðs-
vegar að af hörmulegum
sorgarefnum margra. Snerta
af nokkurri alvöru þær sorgir
hjarta þitt ef þeir, sem fyrir
þeim örlögum verða eru þér
ekki á nokkurn hátt vanda-
bundnir? Og þó verður lik-
lega flestum sjálfsagðara að
hryggjast af hörmum annarra
en að gleðjast fölskvalaust af
velgengni þeirra. Verðurekki
mér og þér erfitt að gleðjast
af einlægni yfir því að aðrir
menn njóti hamingju, sem
okkur var neitað um? Til þess
þarf þann sigur yfir sjálfsúð-
inni, sem næsta fágætt er að
menn vinni til fulls.
Eg man göfugan mann, og
af fáu varð mér Ijósari göfug-
mennska hans en einu atviki.
Að ósk meðeigenda sinna
neyddist hann til að selja
dýrmætt atvinnutæki.
Styrjöldin síðasta skall á og
fyrirtækið varð æ gróðavæn-
legra í höndum nýju eigend-
anna. En eins og hann væri
eigandinn ennþá sjálfur hélt
hann áfram að fylgjast með
velgengni þess og gleðjast af
hverjum sigri. Slíkt hugarfar
er fágætara miklu en vera
ætti. Öfundsemin er ein hin
versta ódyggð Hversvegna
gat ég ekki orðið fyrir þessu
láni spyr sjálfselskan, þegar
aðrir hreppa lán, sem við
hefðum óskað sjálfum okkur.
Hvað er það, sem við
öfundum aðra menn af?
Spyrjum um það, og þá
kemur í Ijós að oftast öfund-
um við náungann af því, sem
ekki er raunverulegt efni öf-
undar. Öfundum við aðra
menn af því, að þeir eru
dyggðugri en við? Öfundum
við aðra af því að þeir eru
fórnfúsari en við? Öfundum
við aðra menn af því að þeir
eru gjafmildari en við, dreng-
lundaðri en við? Öfundum
við nokkurn mann af því að
hann er sannara Guðsbarn
en við, og er þó nokkuð til,
sem er dýrmætara en það?
Nei, við öfundum náungann
af haqsmunavelgengni hans
og af því að hann kemst
hærra i metorðastiga mann-
félagsins. „Verið hveröðrum
fyrri til að veita hinum virð-
ingu," — þetta ererfið
námsgrein en nayðsynleg til
lærdóms.
Ekki er þetta skemmtileg
mynd, en óskiljanlegri og
óskemmtilegri verður hún
þegar þess er gætt, að ótrú-
lega oft segir öfundin þannig
til sín, að menn þola vel-
gengni þeim, sem þeir telja
standa fyrir neðan sig í
mannfélagsstiganum, og
geta einnig öfurndalítið eða
öfundlaust horft á frama
þeirra, sem þeir telja standa
sér ofar eða miklu ofar i
mannfélaginu. Eneftirþvi
hef ég tekið, að mörgum
verður erfiðara að gleðjast,
þegar „jafningi" þeirra hlaut
happ eða lán, sem þeir hefðu
óskað sjálfum sér.
Það er auðvitað ekkert vit i
þessu, engin skynsamleg rök
fyrir þessu, en óneitanlega er
þetta oft eins og hér segir: Ef
þú stendur jafnfætis ein-
hverjum, áttu þá ekki erfið-
ara með að þola gremjulaust
að hann þokist upp, en hinir,
sem „ofar" þér eða „neðar"
standa? Oft hefi ég þótzt
sannreyna þetta, oftsinnis
þótzt sjá þetta, e.t.v. er
reynsla þin af mönnunum í
þessu efni önnur en min.
Skaðlegastur verður þessi
löstur, eins og raunar ýmsir
fleiri lestir i þjóðfélagi, sem
er svo fámennt, að þar þekkir
hver annan, beint eða
óbeint, eins og er hér í sam-
félagi okkar Það er alveg
vist, að hvergi er erfiðara en í
svo litlu þjóðfélagi að vera
„hver öðrum fyrri til að veita
hinum virðingu" og gleðjast i
einlægni af þvi að einhverj-
um „hinum" gengur vel.
í hug mér eru lærdómsrík
dæmi og mikillar athygli
verð. Þau rúmast ekki á
þessu blaði. Eg verð að
geyma mér þau. En öll skul-
um við geyma lifsreynslu
polstulans, hún er sigildur
prófsteinn á bræðralag eða
ekki-bræðralag, og þó ennþá
fremur á veglyndi eða ekki-
veglyndi.
OWMPIA
FYRIRFERÐALITIL EN FULLKOMIN
Olympia SGE 45 rafritvélin hefur kosti stórrar skrifstofuvélar
þótt hún sé bæöi minni og ódýrari. Fram og am
aftur dálkaval, 44 lyklaborð, 8 endurtekn - s&E
ingalyklar, hálft stafabil til .. B
leiðréttinga o.m.fl.
Rétt vél fyrir þann sem
hefur lítið pláss en mikil
verkefni.
Leitiö nánari
upplýsinga.
Olympia
Intemational
(Ml^©(ftQ(y^ KJARAINI HF
skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8. sími 24140
Svipmyndir
á svipsfundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 • Gegnt Þjóðleikhúsinu
áTBmm..... ............
Vandaðar saumakörfur
r >v
BÚTASALA
IJTSALA
Okkar vinsæla bútasala og útsala hefst á morg-
un, mánudag. Geysilegt úrval af bútum og
efnum í metratali. Allt að 50% afsláttur. Ath.
stendur aðeins í fjóra daga. Komið og gerið
hagstæð kaup.