Morgunblaðið - 29.01.1978, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1978
Afmæliskveðja:
Hulda Á. Stefánsdótt-
ir fyrrum
Frú Hulda Á. Stefánsdóttir
fyrrum skólastjóri og húsfreyja á
Þingeyrum varð 80 ára 1. jan.
1977 — fyrir rúmu ári. Þann dag
komu saman á heimili hennar og
fjölskyldu hennar mikið fjöl-
menní. Þarna voru ættingjar og
vinir, og í hópi þeirra síðarnefndu
margir nemendur frú Huldu frá
ýmsum árgöngum Kvennaskólans
á Blönduósi og Húsmæðraskóla
Reykjavíkur, þar sem hún hafði
verið forstöðukona beggja þeirra
skóla um árabil.
Ég var í hópi þeirra, er voru
nemendur i Kvennaskölanum á
Blönduósi fyrir 42 árum. Við vor-
um mættar þarna margar, en ekki
allar, fimm eru nú látnar og aðrar
búsettar á fjarlægum stöðum. Nú,
ári síðar var ég aftur í hópi ætt-
ingja hennar og vina á sama heim-
ili á nýársdag. Ég og við öll glödd-
umst yfir að sjá hana aftur glaða
og veitandi eins og ávalt áður. Eg
fann, að okkur nemendum henn-
ar var ekki ofaukið í hópi þessa
fólks; frá henni streymdi hlýja og
umhyggja til okkar.
Það er ætið vandi að þakka vin-
arhug og gjafir svo vel sem vert
er, en það er þó eins og ég sé ekki
sátt við sjálfa mig, ef ég læt hjá
líða að senda minni kæru vinkonu
kveðju og einlægar þakkir fyrir
allt þótt seint sé.
Frú Hulda Á. Stefánsdóttir
fæddist á nýársdag eins og fyrr
getur, einkadóttir hjónanna Stef-
áns Stefánssonar skólameistara
og Steinunnar Frímannsdóttur.
skólastjóri
Því má segja, að gleðirik hefur
þessi nýársgjöf verið, eins og sól-
argeisli um hávetur; það er ekki
að éfa, að lítil systir var kærkom-
in fyrir bróðurinn, Valtý, enda
urðu þau samrýnd ævilangt.
Frú Huldu var ætlað stórt hlut-
verk í lífinu og þvi hlutverki hef-
ur hún sannarlega valdið. Hún óx
inn í komandi birtu lengri daga
og gróandi þjóðlífs. Hún naut ást-
ríkra foreldra, er bæði voru mikil-
hæf svo af bar. Móðir hennar var
snillingur í öllu handbragði svo
að orð fór af, og mun það hafa
gengið í erfðir til dótturirtnar, því
að enn I dag kennir Hulda lista-
úrvinnslu úr íslenzku ullinni, sem
mestri fullkomnun næst með
hinni fornu aðferð, kömbunum og
rokknum. Á þvi sviði sem og ann-
ars staðar stendur hún vörð um
menningu og verðmæti, er ekki
mega hverfa og gleymast.
Mörg spor mun Hulda hafa átt
við hlið föður síns út um um-
hverfi Möðruvalla, kynnst
snemma gróðrinum í heimahag-
anum og lært að þekkja nöfnin á
sérhverju blómi og lyngi. Stefán
skólameistari var öðrum fremri i
fræðslu um gróðurríki lands síns.
Enginn vafi er á því, að báðir
þessir listrænu eiginleikar for-
eldranna hafa verið mótandi á
barnssálina og verið hin góða fyr-
irmynd ævilangt. „Með víðari
sjón yfir hauður og höf, sá horfir
er blómin skilur".
Ég hef verið svo gæfusöm að
kynnast Huldu Stefánsdóttur vel
og eignast vináttu hennar. Hún
Þessi mynd af Huldu er gerð af
Rfkarði Jónssyni og er hún gjöf
frá nemendum á árinu 1932—37
til Kvennaskólans á Blönduósi í
tilefni 60 ára afmælis hennar 1.
janúar 1957.
býr yfir miklum persónutöfrum,
svo að hvarvetna er eftir henni
tekið; hún tranar sér aldrei fram
né hrósar sér yfir unnum verkum,
en í hjarta sínu gleðst hún yfir
öllu, sem áunnist hefur til heilla
og blessunar, það veit ég af kynn-
um mínum við hana. Við nemend-
ur hennar vorum sammála um, að
betri kennara væri ekki hægt að
hugsa sér. Sérstaklega er mér
minnisstætt er hún kenndi okkur
reikning. Það var svo ljóst og auð-
velt að skilja dæmið, þannig lagði
hún fram aðferðina, skýrt og án
margra frávika, sem gátu verið
villandi. En fjölhæfnin var slík að
telja má til undrunar. Hún hafði
yndi af að fræða, hvort heldur var
í bóklegum fögum eða að leið-
beina með handavinnuna. Hún
átti oft leið á herbergin, þar sem
við nemendurnir vorum að
bjástra við verkefni og réðum
ekki við fyrr en hún hafði komið
okkur á sporið. Einnig kenndi
hún á piano eða orgel, þeim er
áhuga höfðu.
Frú Hulda æfði kór i skólanum
á hverjum vetri og lék sjálf undir
á orgel eða piano eftir því sem við
átti. Hvern morgun hóf hún
kennslu og störf dagsins með því
að safnast var saman i dagstofu
skólans og sunginn sálmur. Þetta
atriði er mér sífellt þakkarefni,
því fátt er göfugra en að syngja
saman, og ekkert sameinar jafn-
vel og kallar fram góðvilja í hugs-
un hvers og eins. Og það þarf að
velja ljóð og lag, sem gott er að
skilja og fegurð felst í. Auk sálm-
anna var hún sérstaklega fundvis
á einmitt þetta. Dótturina Guð-
rúnu eignaðist frú Hulda 20. marz
þennan vetur, sem ég var á skól-
anum. Blessað barnið var okkur
mjög kært og hefur verið ávalt
síðan. Guðrún er arkitekt að
menntun og orðin þjóðkunn í sínu
starfi.
Ég hefði viljað láta fyrr í ljós
þakkir mínar til vinkonu minnar,
frú Huldu. Hún hefur svo marg
sinnis verið mér nálæg og góð.
Sérstök fyrirmynd hefur verið
mér og okkur öllum, nemendum
sinum, með lífi sínu og starfi. Allt
vex og dafnar, sem vel er gert.
Með sínu frábæra lífsstarfi, trú á
land sitt og þjóð, hefur frú Hulda
Á. Stefánsdóttir, gefið fordæmi
og veganesti, sem ógleymanlegt
er og varðveitt mun til lærdóms
um langa framtíð.
Eg hef ekki ætlað mér með lín-
um þessum að rekja æfiferil
Huldu ýtarlega. Hún er fyrir
löngu þjóðkunn og metin að sinni
samtíð allt frá því, er hún stóð
kornung sem kennari við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri. Heyra
má á þeim nemendum hennar
þaðan, að hennar hafi verið sakn-
að mjög, er hún hvarf úr þeirri
stöðu og gekk í hjónaband. Hulda
Á. Stefánsdóttir giftist árið 1923
Jóni S. Pálmasyni bónda á Þing-
eyrum, hann lézt fyrir rúmu ári.
Þau bjuggu um 20 ára skeið á
Þingeyrum og mun þeim hjónum
báðum hafa þótt sérstök ábyrgð
fylgja búsetu á þessum merka
stað, þar sem Þingeyraklaustur
stóð til forna, en staðinn prýðir
síðar hin veglegasta kirkja. Hulda
var organisti kirkjunnar meðan
hún átti heima á staðnum. Ég
veit, að blessi’'* ; írkjan á Þingeyr-
um var þeimv „áum það guðs-
hús, sem sífellt þarf að vera vel
um gengið og viðhaldið. Þar var
að finna styrk í bænum í einrúmi
og predikun prestsins á helgidög-
um. Það er eitt af áhugamálum
Huldu nú, að allt verði gert til
þess, að kirkjan megi um aldir
standa og þjóna sínu hlutverki á
Þingeyrum eins og hún hefur gert
fram á þennan dag. Kirkjan er nú
rúmlega eitt hundrað ára og sér-
stök og vönduð að allri gerð, hlað-
in úr höggnu grjóti, svo haglega
að um listaverk er að ræða.
Margir hafa haft orð á þvi við
mig, hve hátiðlegt hafi verið að
koma til kirkju á Þingeyrum.
Hjónin bæði svo gestrisin og höfð-
ingleg í fasi og veitingum. Og
eftir umræður um þjóðmál o.fl.
héldu gestir heim með ný ihugun-
unarefni og innsýn í verkefni,
sem hvarvetna blöstu við. Það var
svo margt, sem húsfreyjunni lá á
hjarta og vildi koma í fram-
kvæmd. Eiginmaður hennar
þekkti hæfileika hennar, og þótt
hennar mætti illa missa við frá
heimili þeirra, þar sem hún
stjórnaði af festu og mildi, þá
vissi hann, að eftir henni var leit-
að til annarra starfa vegna mennt-
unar hennar og hæfileika. Hún
hafði yndi af að fræða, svo að ekki
var gott að standa í vegi fyrir því
glæsilega viðfangsefni, er henni
bauðst, að taka við skólastjórn
Kvennaskólans á Blönduósi, og
svo síðar Húsmæðraskóla Reykja-
víkur. Báðir þessir skólar nutu
forsjár hennar um langan tíma,
og saga þeirra mun geyma nafn
Huldu henni til heiðurs um
ókomna tima.
Frú Hulda var ein af stofnend-
um Kvenfélags Sveinstaðahrepps
og var i stjórn þess. Formaður
Sambands norðlenzkra kvenna
var hún um langan tíma. Á því
sézt, að málefni kvenna hafa átt
ötulan málsvara, þar sem hún fór.
Og ekki er mér grunlaust, að enn í
dag sé til hennar leitað með fyrir-
lestur á ráðstefnum kvenna, þeg-
ar þörf er á ýtarlegu erindi um
íslenzka menningu og kynningu á
heimilis-listiðnaði. Meðan hún
átti heimili í Háteigssókn i
Reykjavik kom hugur hennar til
kvenfélagsins brátt í ljós og áhugi
fyrir starfi þess. Nú er Hulda
flutt í Hallgrímssókn, og ekki efa
ég, að hvar sem hún fer eða er,
gróa blóm við götu hennar. Hún
er alltaf kærkominn gestur á sam-
komur Kvenfélags Háteigssóknar
og hefur oft flutt þar ræður og
ljóð, svo minnisstætt er.
En mér eru efst í huga með
þessari fátæklegu kveðju minni,
þakkir okkar nemenda hennar frá
Kvennaskólanum á Blönduósi vet-
urinn 1934—35, og læt þvi hér
fylgja kveðjuheillaóskir, er við
sendum henni á áttræðisafmæl-
inu:
„Guð þig blessi, hans geislar
bjartir
ylji og lýsi þér æfikvöldið.
Menntun alla af mildi veittir.
Þökkum af alhug þjóönýt störfin".
Á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, er Hulga hin góða
móðir og amma, sem á svör við
öllum áleitnum spurningum, á
alltaf tiltæka sögu og ljóð og telur
ekki eftir sér að spila á píanóið,
langspil, gítar eða harmoniku, ef
þau hljóðfæri eru rétt að henni og
börnin biðja hana. Sama gildir
fyrir okkur sem eldri erum. Alltaf
er hún eftirsótt til að grípa í
hljóðfærið á skemmtunum okkar.
Þannig er Hulda enn í hinu stóra
hlutverki lífs síns á ævikvöldinu,
sem yljar og gieður í bjarmanum
frá viðburðarfkri ævi. Á heimili
hennar er kynslóóabilið ekki til.
Öll fjölskyldan í sama húsi.
„Gamla myndin góða“.
Guð gefi góðri vinkonu gleðileg
komandi ár og allar stundir ylrik-
ar.
Útsala — Útsala
Barnafatnaður úlpur, buxur, peysur, skyrtur,
blússur, bolir, prjónagarn, taubútar.
Mikill afsláttur.
Faldur, Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Hlutabréf til sölu
Stórkostlegt tækifæri ,í atvinnurekstri á Akur-
eyri. Verulegur hluti hlutabréfa í einni stærstu
verksmiðju norðurlands til sölu. Ársvelta ca.
1 00 milljónir króna. Trygg og vaxandi verkefni.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu minni.
Bergur Guðnason hdl.
Langholtsvegi 115, Reykjavik, sími 82023.
■rlandsl
23.-27. mars
/ þessari einstöku fimm daga páskaferð er
enginn virkur dagur, því farið er á
skírdag og komið aftur 2. páskadag.
Flogið verður beint til Dublin og dvalist
þar á tveimur eftirsóttum hótelum:
Hótel South County
Hótel Jurys
TSamvinnu-
ferðír
Austurstræti 12 sími 27077
Dublin er dœmigerð írsk stórborg og þar
eru þjónustustöðvar almennings opnar
meira og minna alla páskahelgina.
Fararstjóri okkar aðstoðar og skipuleggur
skoðanaferðir.
Leitið nánari upplýsinga tímanlega og
látið skrá yður í þessa eftirsóttu ferð.
LANDSYN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG16 SÍMI28899
Lára Böðvarsdóttir
frá Laugarvatni