Morgunblaðið - 29.01.1978, Side 18

Morgunblaðið - 29.01.1978, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1978 „ Hálanda-hrollvekjan sem minnir á reyfara eftir Agöthu Christie SCOTT-ELLIOTT HJONIN. Þin}>maðurinn fyrrverandi var 82 ára að aldri og góðum efnum búinn. Ættingjar hans segja, að íbúð hjónanna í Riehmond Court hafi verið „paradís þjófa“, og megi fastlega gera ráð fyrir að samanlagt verðmæti dýrgripanna þar hafi farið yfir 100 þúsund sterlingspund. o Að undanförnu hefur um fátt verið meira rætt i Bretlandi en morðmál, sem manna á milli er kallað Hálanda hrollvekjan. Fundizt hafa fimm lík, eitt i farangursgeymslu bifreiðar, en fjögur á viðavangi i Skotlandi. Fyrir fáeinum dögum var Archibald nokkur Hall handtekinn i Edinborg fyrir þjófnað, en nú hefur honum ásamt Michael Kitto verið gefið að sök að hafa þessi morð á samvizkunni. Þjóðkunnar persónur hafa tengzt þessu máli, en þvi hefur verið likt við reyfara eftir Agöthu Christie. Archibald Hall var um tima þjónn Scott Elliotts, fyrrverandi þingmanns Verka mannaflokksins, en lík hans fannst núlega á afviknum stað i Skotlandi og lik konu hans skömmu siðar. Hall gekk siðar i þjónustu lafði Hudson, ekkju fyrrverandi ráðherra og þing- manns íhaldsflokksins. Kunnugir lýsa Hall svo að hann sé persónugervingur Jeeves, þjónsins óborganlega i sögum Wodehouse Óaðf innanlega klæddur, afar nákvæmur og svo kurteis og fágaður i framkomu að nálgast tilgerð. Á Kirkle ton, heimili lafði Hudson, komst hann i vinfengi við garð- yrkjumann. sem ýmislegt bendir til að hafi eitt sinn verið i þjónustu Scott Elliotts Fyrir hálfu ári hvarf garðyrkjumaður inn og hefur ekkert til hans spurzt siðan. Nokkru siðar, eða i september, lét Archibald Hall af starfi sinu hjá lafðinni að eigin ósk. Hann hefur greinilega gengið i augun á konum og kom nýlega i Ijós að hann átti vingott við efnaða kaupkonu um átta ára skeið Hazel Fontaine segist enn unna honum hugástum, enda þótt hann hafi brugðist henni. Hafi hún verið örlát á fé við Hall, auk þess sem hún hafi keypt handa honum Jaguarbifreið. Lík hins aldraða þingmanns flutt af felustaónum. Skriður komst á mál þetta sunnudaginn 15 janúar sl Varð það með þeim hætti að Scotland Yard barst fyrirspurn frá rannsóknarlögreglunni i Newcastle-under-Lyme í Staffordskíri Tveir menn höfðu komið í forngripaverzlun í bænum 5 janúar og boðið til sölu silfurgripi og Meissen-postulín Þeir sýndu persónuskilríki eins og venja er þegar slik viðskipti fara fram, en til frekara öryggis tók forngripasalinn niður skrásetningarnúmer silfurgrárrar Cortinu. sem þeir óku Þegar í Ijós kom að eitthvað var bogið við p>ersónuskilríkin beindist athyglin að bilnúmerinu, og lá brátt fyrir að bilaleigufyrirtæki var eigandinn. en bifreiðin hafði verið tekin á leigu i nafni Walter Scott-Elliotts. fyrrum þingmanns Verkamannaflokksins fyrir Accrington Rán, blóðblettir, líkfundur Lögreglan tók sér næst fyrir hendur að grennslast fyrir um Scott-Elliott Lyktaði því vafstri með þvi að lögreglan brauzt inn í ibúð hans i Knigtsbndge i Lundúnum í íbúðinni var allt á tjá og tundri, og blóðblettir voru á útidyraþröskuldinum og gólfteppi. auk þess sem mikið af verðmætum var á bak og burt Áður hafði lögreglan sett mennina, sem viðskipti áttu við forngripasalann í Newcastle, í samband við lik. sem fannst i lækjarsprænu rétt hjá veginum milli Glasgow og Carlisle á jóladag Likið var af konu. sem klædd var karlmannsfötum og bundin á höndum og fótum Taldi lögreglan víst að likið væri af Mary nokkurri Coggle, sem þekkt var undir nafninu ..Belfast-Mary” Mánudaginn 16 janúar bárust lögreglunni upplýsingar, sem voru árangur af reglubundnu eftirlitsstarfi hennar Eigandi Blenheim House Hotel i námunda við Edinborg fékk illan bifur á Lögreglan að störfum við Middle Farm. tveimur gesta sinna. sneri sér til lögreglunnar og gaf henni upp nöfn þeirra og skrásetningarnúmer bifreiðar, sem þeir óku, en það var rauður Ford Granada í Ijós kom að hvorugur var eigandi bifreiðarinnar. og þegar lögreglan fór að skoða bílinn og leita i honum fannst lik með plastpoka á höfði i farangurs- geymslunni Likið reyndist vera af Donald Hall. 37 ára sibrota- manni, og bróður Archibalds Hall. en honum var sleppt úr fangelsi þremur dögum áður en lögreglan fann líkið Var nú leikurinn tekinn að æsast og þótti ástæða til að hefja viðtæka leit á nokkrum stöðum í Skotlandi Árla morguns miðvikudaginn 18 janúar fannst svo þriðja líkið i Glen Affric, sem er 55 kilómetra suður af Inverness Leitarmaður kom auga á mannshöfuð undir alparósarrunna Likið var af karlmanni og var tekið að rotna Andlitið var óþekkjanlegt og virtust dýr hafa verið þar að verki, en likið hafði verið dysjað í grunnri gröf Lögreglan í Lundúnum hefur staðfest að hér sé um að ræða lik Scott-Elliotts. en skozka lögreglan hefur ekki viljað lýsa þvi yfir formlega Hóglífi og viðskipti Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á maður nokkur að hafa tekið á leigu ibúðarhúsið Middle Farm í Newton Arlosh i Cumbria i september eða október sl Um helgar var hann tiður gestur i þorpskránni ásamt félaga sinum Að sögn nágranna voru þeir í meira lagi ölkærir og virtust hafa gnótt fjár til umráða, en voru heldur klaufskir við að kveikja upp i arninum hjá sér I nóvember-mánuði urðu nágrannar varir við konu. sem Trjá- klippingar Nú er rétti tíminn að huga að klippingu trjáa og runna Getum bætt við verkefnum Pantanir teknar í síma 86340 skrúðgarðadeild. Eigum til afgreiðslu nú þegar snjódekk: E 78x14 F 78x14 C 78x14 MJÖG HAGSTÆTT VERÐ. Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR BORGARTÚNI 29 SlMAR 16740 OG 3G900 Þá er hann loksins kominn stærsti og sterkasti sleðinn í flotanum. 65 hestafla vél tvö 15" belti eitt skíði eða framhjól Tilvalinn fyrir björgunarsveitir og sem vinnutæki. Gísli Jónsson & Co Hf„ Sundaborg, Klettagarðar 11, Simi 86644. Ski-Doo, Alpine 1978 frá Bombardier í Kanada.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.