Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 Erfingjar Einars Benediktssonar höfða mál: Véfengja útgáfurétt Braga h.f. á verkum skáldsins MALSHÖFÐUN erfingja Einars Benediktssonar skálds gegn út- gáfufélaginu Braga h.f. var þing- fest fyrir bæjarþingi Reykjavfk- ur sfðastliðinn fimmtudag. Málið snýst um eignar- og höfundarétt að rituðu máli Einars Benedikts- sonar og er véfengt að f gildi sé samningur um útgáfurétt Braga h.f. á verkum Einars, en til hans er vitnað af forsvarsmönnum félagsins. Samkvæmt upplýsingum Ragn- ars Aðalsteinssonar hæstaréttar- lögmanns sem flytur málið fyrir erfingja Einars er málshöfðunin jafnframt byggð á því að jafnvel þótt svo kunni að vera að Einar hafi gert þennan samning 17. jan- úar 1938 við Braga h.f., þá hafi hann verið svo farinn af heilsu, bæði líkamlega og andlega, að samningurinn sé ekki bindandi. Fara slíkar ástæður eftir umáögn lækna og krufningarskýrslu, en til vara er einnig byggt á ýmsum höfundarréttarlegum sjónarmið- um i núgildandi höfundaréttar- lögum og meginreglum höfundar- réttarlaga frá 1905, sem var fyrsta lagasetning um þetta efni hér- lendis. Þar er á því byggt að samningar um höfundarréttinn séu ekki í samræmi við góðar venjur á því sviði, séu ógildir eða Framhald á bls. 47. Fengu ekkí laun sín hjá Orkustofnun „ÞAÐ ER rétt, að sumt fólk sem starfar með mér við Orkustofnun fékk ekki greidd laun nú um mánaðamótin og ég veit ekki til þess, að nein skýring hafi verið gefin á því,“ sagði dr. Axel Björnsson jarðeðlisfræðingur f samtali við Mbl. f gær. Axel sagði, að flestir sérfræðingar Orku- stofnunar væru lausráðnir þannig að gerður væri við þá árssamning- ur, sem sfðan væri endurnýjaður. „Hingað til hefur það gengið sjálfkrafa fyrir sig að framlengja þessa samninga," sagði Axel. Guðmundur Pálmason, deildar- Lundur: Vopnaðir menn réð- ust inn til íslendings stjóri hjá Orkustofnun, sagði að hann kynni ekki skýringu á þessu. Guðmundur staðfesti að skuldir vegna framkvæmda vfð Kröflu á síðasta ári, sem hefðu farið fram úr áætlun, næmu um 270 milljónum króna. Mbl. reyndi árangurslaust að ná sambandi við Þórodd Th. Sigurðs- son orkumálastjóra. Þorsteinn Geirsson, yfirmaður launadeildar fjármálaráðuneytisins, kvaðst ekkert kannast við þetta launa- mál starfsmanna Orkustofnunar. Þá reyndi Mbl. að ná sambandi við yfirmenn iðnaðarráðuneytis- ins, en ráðuneytisstjórinn Páll Flygenring, og skrifstofustjórinn Árni Þ. Arnason, eru erlendis og í Þorvarð Alfonsson, aðstoðarmann iðnaðarráðherra, tókst ekki að ná áður en blaðið fór í prentun. Reykjaneskjördæmi: Próflqöri Sjálfstæðis- manna lýkur í dag ÞRÍR vopnaðir Svfar réðust inn á heimili fslenzkrar konu; Auðar Armannsdóttur, f Lundi f Svíþjóð fyrri föstudagsnótt. Mennirnir, sem voru vopnaðir hnffum, spörk- uðu f húsráðanda og slógu tvo gesti hennar, Svfa og fslenzkan námsmann, Geir Rögnvaldsson, niður, auk þess sem þeir veittu Geir áverka á fæti. Eftir að menn- irnir höfðu brotið allt og bramlað í fbúðinni að leit að peningum, fóru þeir aftur, en þessa sömu nótt réðust þeir inn í fimm aðrar fbúðir f sama fjölbýlishúsi og særðu þá m.a. sænskan karlmann það illa með hnffsstungu, að hann liggur þungt haldinn í sjúkra- húsi. Mennirnir hafa allir náðst. Þetta föstudagskvöld var hald- inn íslendingafagnaður heima hjá Auði Ármannsdóttur. Flestir gestirnir voru farnir. þegar hringt var á dyrabjölluna og hélt Auður fyst, að þar væru íslend- ingar á ferð og opnaði. Réðust þá inn þrir menn, vopnaðir hnífum, slógu karlmennina niður, spörk- uðu í konurnar og sneru öllu við í leit að peningum. Tókst Auði að lokum að sannfæra mennina um það, að enga peninga væri að finna í fbúðinni og hurfu þeir þá á braut, en skaru fyrst á tengilínu símans í íbúðinni. Lögreglan var svo kvöldd til og kom þá í ljós, að þessir þremenn- ingar höfðu ruðzt inn f sex stúdentaíbúðir í sama húsinu, meitt fólk og slasað og valdið miklu eignatjóni, auk þess er þeir gátu fundið. Lögreglan náði tveimur mann- anna laugardagskvöldið eftir og sá þríðji gaf sig fram á sunnudag. Ekki var búið að dæma í máli mannanna í gær. Haukursótti um starfið sem honum var vikið úr NVLEGA ar auglýst laust til umsóknar starf rannsóknar- lögreglumanns í Keflavík, en starfinu hafði Haukur Guðmundsson gegnt áður en honum var vikið frá. Morgunblaðið fékk það stað- fest hjá Hauki í gær, að hann hefði á mánudaginn lagt inn umsókn um starfið. Kvaðst Haukur hafa afhcnt Jóni Eysteinssyni bæjarfógeta um- sóknina persónulega og í leið- inni bent honum á meðmæli, sem til væru í bréfasafni dómsmálaráðuneytisins. Umsóknarfrestur rennur út á morgun. PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna f Reykjanesi fer fram um þessa helgi. Kjörstaðir eru 13 og voru þeir opnaðir klukkan 10 f gær- morgun og var þátttaka þá strax góð. 1 dag verða kjörstaðir opnir klukkan 10—22. Tólf frambjóð- endur eru f kjöri en kjósendum er heimilt að bæta við tveimur nöfnum á Iistann. Meðlimir sjálf- stæðisfélaganna f kjördæminu hafa rétt til að kjósa svo og allir aðrir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins, sem hafa kosningarétt f kjördæminu. Frambjóðendurnir tólfu eru: Arni G.rétar Finnsson, Hafnar- firði, Asthildur Pétursdóttir, Kópavogi, Eiríkur Alexanders- son, Grindavík, Helgi Hallvarðs- son, Kópavogi, Matthías Á. Mathiesen, Hafnarfirði, Oddur Ólafsson, Mosfellssveit, Ólafur G. Einarsson Garðabæ, Páll V. Danfelsson Hafnarfirði, Richard Björgvinsson, Kópavogi, Salóme Þorkelsdóttir, Mosfellssveit, Sigurgeir Sigurðsson, Seltjarnar- nesi og Sigurpáll Einarsson, Grindavík. Kosning fer þannig fram að Norræn tré- dúkka finnst á Baffinslandi? TRÉBRÚÐA í líki norræns manns hefur fundizt á Baffins- eyju og fundur hennar gæti bent til þess að norrænir menn hafi ferðazt alla leið til heims- skautasvæða Kanada sam- kvæmt Reutersfrétt f gær- kvöldi. Lfkneskið sem er frá þrett- ándu öld, er um 5,5 centimetra langt og sýnir mann f norræn- um klæðum. 1 hann er skorinn. Iftill kross en ekkert andlit er á lfkneskinu. Bandarfkskir forn- leifafræðingar fundu gripinn f fyrrasumar, en kanadfska þjóð- minjasafnið skýrði ekki frá fundinum fyrr en í gær. Þó að fundurinn benti til þess að nor- rænir menn hafi farið til Baff- inslands á þessum tfma, getur þó verið að Eskimóar hafi farið með gripinn þangað og keypt hann af norrænum mönnum annars staðar, til dæmis á Ný- fundnalandi þar sem minjar um norræna menn hafa fund- izt. Lfkneskið fundu Deborah og George Sabo, sem stunda nám í fornleifafræði heimsskauta- svæða við Michigan State Uni- versity í East Lansing. Þau fundu einnig Eskimóa-muni. Morgunblaðið bar þessa frétt undir Þór Magnússon, þjóð- minjavörð. Þór sagðist ekkert geta sagt um þessa frétt. Reynslan hefði sýnt, að nayð- synlegt væri að vera varkár i ummælum um slíka fundi í Ameríku. Hins vegar kvaðst hann bíða spenntur eftir að heyra frekari fréttir. í þessu sambandi er og forvitnilegt • að rifja upp, það sem Jón Jóhannesson prófessor skrifaði um siglingar og landa- fundi norrænna manna í þjóð- veldisbindi islendingasögu sinnar. Þar segir Jón: „Enginn vafi getur leikið á, að hin nýju lönd hafa verið í Norður- Ameríku, en ekki heíur tekizt að benda á þau, enda ekki við því að búast, að lýsingum á svo fjarlægum löndum sé að treysta. Auk þess þarf að taka allt, sem ritað hefur verið um Vfnlandsferðir, upp til nýrrar rannsóknar frá því sjónarmiði, sem hér hefur verið bent á, um skyldleika heimildanna, og munu menn þá vafalaust kom- ast að nýjum niðurstöðum um margt. Þó er einna líklegast, að Helluland sé Baffinsland og Markland sé Labrador, og af þeirri sögn i Grænlendinga- sögu, að á Vínlandi hafi sól haft eyktarstað og dagmálsstað um skammdegi, þykir mega ráða, að Vínland hafi verið fyrir sunnan 50° norðlægrar breidd- ar, Á nafnið Vínland má hins vegar ekki treysta um of til ákvörðunar landsins, því að verið getur að Leifur hafi verið svipaður áróðursmaður og faðir hans í nafnfiftum. Eldri heimildir um Vínland eru fáskrúðugar. Adam af Brimum hefur það eftir Sveini (Jlfssyni Danakonungi, að margir hafi fundið í úthafinu ey, sem sé kölluð Vínland, af því að þar vaxi villtur vínviður. Hann hefur það einnig eftir Dönum, að þar vaxi sjálfsáið korn. Líklega er þaðan runnin sögnin í Þorfinnssögu um hveitiakra sjálfsána og vfnvið vaxinn í Vínlandi. En Adam skjátlaðist oft um fjarlæg lönd, og verður því að taka þessari sögu hans með varúð. Þó virðist ljóst, að einhverjar fréttir um fund Vínlands hafi borizt til eyrna honum. Ari kannast við Vfnland og veit að þar hefur byggt þjóð, er menn hugðu vera hina sömu, sem minjar fundust eftir á Grænlandi og kölluð var Skrælingjar. Sögn Ara er merk, þvf að hann hafði góða aðstöðu til að vita hið rétta. Má nefna sem dæmi, að Hallfríður, dóttir Framhald á bls. 46. kjósandinn kýs ákveðinn mann í ákveðið sæti framboðslistans til Alþingis. Skal þetta gert með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn manna á kjörseðlinum og tölusetja í þeirri röð, sem óskað er að þeir skipi framboðslistann. Enginn prófkjörsseðill er gildur • nema merkt sé við fimm menn á seðlinum. Einnig er hverjum kjósanda í prófkjörinu heimilt að kjósa tvo menn, sem ekki eru í framboði með því að rita nöfn þeirra á prófkjörseðilinn þó skal það tekið fram að nauðsynlegt er að heimilisfang þess sem stungið er upp á fylgi- Eins og áður sagði verður kosið á 13 stöðum víðs vegar um kjör- dæmið eða: Á Kjalarnesi og Kjósarhreppi í Fólkvangi, Mos- fellshreppi í Hlégarði, Seltjarnar- nesi í anddyri íþróttahússins, Kópavogi í Sjálfstæðishúsinu, Garðabæ í barnaskólanum við Vífilsstaðaveg, Hafnarfirði í Sjálfstæðishúsinu, Vogum í Glað- heimum, Njarðvík í Sjálfstæðis- húsinu, Keflavík i Sjálfstæðishús- inu, Garði í dagheimilinu Gefnar- borg, Sandgerði í leikvallarhús- inu, Hafnarhreppi f skólahúsinu í Höfnum og að lokum í Grindavik en þar verður kosið í Félags- heimilinu Festi. Ef að þátttaka í prófkjörinu nemur lA eða meira af fylgi Sjálf- stæðisflokksins við síðustu Framhald á bls. 46. Stal 5 bílum og ók öllum þeirra út af UPPLÝSTIR hafa verió nokkrir bílþjófnaðir, sem framdir hafa verið í Hafnarfirði nýverið. Er það 17 ára piltur úr bænum, sem hefur orðið- uppvis að því að stela fjórum bílum og ennframur að hafa brotizt inn hjá verkstæðinu Bretti h.f. i Hafnarfirði, þar sem hann skemmdi nokkra bíla og stal einum. Öllum bilunum ök hann útaf. Hitaveitukostnaður 26% af kostnaði við olíuhitun húsa SU meinlega villa slæddist inn í frétt blaðsins af hækkun hita- veitu í gær, að sagt var, að eftir þessa 18% hækkun hitaveitunnar myndi kostnaður við hitun húsa með hitaveitu vera 26% ódýrari en hitun húsa með olíu. Þetta á að vera, að kostnaður við hitun húsa með hitaveitu er 26% af kostnaði við að hita með olíu. Biðst blaðið velvirðingar á þessari meinlegu villu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.