Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 Á snjómaðurinn sovézkan frænda? Moskvu. 3. febrúar. AP. Ferðaáætlun FÍ’78kominút SNJÖMAÐURINN hræðilegi sem býr í Himalayjafjöllum á að öll- um Ifkindum náfrænda, sem bú- settur er á gresjunum f Norð- austur-Sfberíu, að þvf er Tass- fréttastofan skýrði frá f dag. tbúar fjallaþorpsins afskekkta Verkhoyansk eru ekkert yfir sig hrifnir að nábúa sfnum, sem gengur undir nafninu „Chuchunaa" sagði Tass enn fremur. I gamla daga ráðlögðu fbúar fjallaþorps þess aðkomumönnum að vera aldrei eínir á ferli er dimma tæki, enn fremur að vera á varðbergi í fjöllunum og alls ekki að gana meðfram ánni, því þar ættu þeir á hættu að fyrirhittí Chuchunaa. Chuchunaa þýðir útlagi á mál- lýzku fjallabúa. Hann er sagður tveir metrar á hæð með langa handleggi sem ná niður fyrir hné. Hreindýrabændur, veiðimenn og sveppatínslumenn hafa rekizt á ógnvættinn, sem yfirleitt hefur hundskast á brott í skjóli myrk- urs. Hann ku vera mjósleginn, loðinn með dökkt andlit, lágt og kúpt enni, breiða hökkkökkukuauuauua.slgir Tass og enn fremur að snjómaður þessi klæðist hreindýraskinnum, gefi frá sér skræki, nærist á hráu kjöti og hafi stundum laumast að mannabústöðum og stolið sér í svanginn. Sovézkir vísindamenn telja að villimaðurinn Chuchunaa sé meir en þjóðsaga ein, þótt ekki hafi hans orðið vart síðan 1950. Einn vísindamannanna tjáði Tass að sjónarvottum hefði borið saman í smáatriðum um útlit og hegðan útlagans. Sagnir herma enn fremur að Chuchunaa hafi fælt ýmsa íbúa byggðarlagsins á brott, jafnvel lengra upp í fjöllin. Aðrir álíta að snjómaður þessi sé löngu dauður, þar sem ekki hafi sést til hans svo lengi. En landssvæðið, þar sem hann á að búa er flestum óþekkt auðn, sem þyrlur geta ekki einu sinni kannað. Sovézkir vísindamenn binda vonir við að snjómaðurinn þeirra, lifi í fjallafylgsnum og margir álíta hann frummann frá stein- öld, sem hafi aldrei komist í tæri við siðmenningu, sagði Tass enn- fremur. FERÐAAÆTLUN Ferðafélags Is- lands fyrir árið 1978 er komin út og í frétt frá Ferðafélaginu segir m.a.: Eins og undanfarin ár er reynt að hafa ferðir við allra hæfi, sem áhuga hafa á að ferðast og kynn- ast landinu i raun. Aætlunin er fjórþætt: 1 fyrsta lagi eru sumar- leyfisferðirnar, eða þær ferðir, sem standa í fjóra daga eða leng- ur. Þær ferðir eru alls 23. Er þar að finna ferðir á fegurstu og þekktustu staði landsins. Á Horn- strandir verða farnar 5 ferðir fjórar f júlí og ein í ágúst. Tvær ferðir verða í Kverkfjöll, ein í Lónsöræfi, svo eitthvað sé nefnt. Ætlunin er að hefja skipulagðar gönguferðir milli Landmanna- lauga og Þórsmerkur í sumar, ef tekst að koma göngubrú á Syðri- Emstruá, en vonir standa til að það verði gert í vor. í öðru lagi eru helgarferðir. Þær standa að jafnaði yfir frá föstudagskvöldum til sunnudags- kvölds. Fayið verður-'í Þórsmörk, Landmannalaugar og á KjöL Gist er i sæluhúsum Ferðafélgsins á þessum stöðum. Einnig er stefnt að því að fara eina eða tvær ferðir vikulega til annarra staða og dvelja þar við náttúruskoðun og gönguferðir m.a. til Heklu, Gönguferð á Eirfksjökul, Snæ- fellsjökul, Kerlingar í Vatna- kjökli o.fl. o.fl. í þriðja lagi eru dagferðir, þær standa yfir heilan dag eða hluta úr degi. Þessar ferðir eru farnar alla sunnudaga árið um kring. í áætluninni er getið um ca. 100 slíkar ferðir, en bætt verður við ferðum eftir þvf sem ástæður gefa tilefni til. Einnig eru fyrirhugað- ar fræðslu- og kynningarferðir á náttúru- og sögu landsins, eins og undan farin ár. Á s.l. sumri hóf félagið ferðir á Esju og voru farnar 25 ferðir á fjallið með um 1700 þátttakend- um. Þar sem þessar ferðir gáfu svo góða raun, var ákveðið að skipuleggja ferðir með sama hætti á Vffilsfell næsta sumar. Eru nokkrar ferðir þangað aug- lýstar í áætluninni, en verður fjölgað ef ástæða þykir. Einnig eru nokkrar ferðir fyrirhugaðar á Esju, þótt þeirra sé ekki getið sérstaklega i áætluninni, sem hér liggur fyrir. í fjórða lagi eru svo ferðir deilda F.f. fyrir norðan og austan. Þetta nýmæli var tekið upp í áætluninni fyrir tveimur árumjóg mæltist vel fyrir. Á sj. ári urðu ferðir F.I. fleiri en nokkru sinni áður eða 234 og farþegafjöldinn varð 8021 eða 34 að meðaltali í ferð. ! Útsala — Útsala ^ Mikið úrval flauelsbúta og margir aðrir efnisbútar. Buxur — skyrtur — peysur o.m.fl. Q O Buxna-og bútamarkaðurinn. 1 o ö < 73 Mörg dauðsföll af völdum eldsvoða á heim- ; ^ ilum stafa af vanþekkingu á viðbrögðum og J" réttum undankomuleiðum þegar eldur brýst " ** út. Þetta barn hljóp í felur. Eru eldvarnir i lagi á þínu heimili? Junior Chamber Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.