Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 48
AUíiLÝSINGASÍMINN ER: 22480 Jfioreimblfiíiivi Lækkar hitakostnadinn SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 Banaslys á Reykja- nesbraut íNjarðvík BANASLYS VARÐ á Reykjanesbraut í Njarðvík í fyrrinótt. 21 árs gamall Reykvíkingur varð fyrir bifreið og beið bana. Ekki er hægt að birta nafn hans að svo stöddu. Lögreglunni í Keflavík barst tilkynning um slysið um klukkan tvö aðfarar- nótt laugardagsins. Hafði maðurinn verið á gangi við Reykjanesbrautina og varð hann fyrir fólksbifreið, sem var á leið frá Keflavík. Gerðist þetta við húsið Þórshöfn. Ekki var vitað um það í gær hvaða erindi maðurinn hafði átt til Keflavíkur. Fíkniefnamálið mikla: Annar madur úrskurðaður í 60 daga varðhald ■ Ljtísni. RAX. BORGARSTJÓRI, Birgir ísleifur Gunnarsson, leikur fyrsta leiknum fyrir Jón L. Arnason, heimsmeistara sveina, í skák hans gegn enska stórmeistaranum IVliles á Reykjavíkurskákmótinu í gær. Einar S. Einarsson forseti skáksambands íslands flutti ávarp við setningu mótsins og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra flutti setningarræðu. 2. umferð verður tefld á Hótel Loftleiðum kl. 14 í dag. Hrauneyjafossvirkjun: Sænskt fyrirtæki vill byggja í sam- vinnu við 3 íslenzk FÍKNIEFNADÓMSTÓLL- INN framlengdi í gær gæzluvarðhaldsúrskurð 24 ára gamals Reykvíkings um 60 daga vegna rann- sóknar fíkniefnamálsins Munum stol- ið af sýningu Slysavarna- félagsins SYNINGAHGLUGGI var brotinn hjá Karnabæ í Austurstræti í fyrrinótt og stolið tveimur merkjabyssum og einni linu- byssu, sem voru þar til sýnis í tilefni 50 ára afmælis Slysavarna- félags Islands. Að sögn Hannesar Hafstein, framkvæmdastjóra félagsins, eru þettagamlar byssur sem koma engum að gagni en byssurnar hafa heimildargildi fyrir félagið. Eru það því eindreg- in tilmæli að þjófarnir skili byss- unum hið fyrsta. AFLVÉLAR Kröfluvirkj- unar voru gangsettar til reynslu klukkan 11 í gær- morgun og gekk það allt saman vel, að sögn Einars Tjörva Elíassonar, yfir- verkfræðings Kröflunefnd- ar. Japanskir sérfræðingar frá Mitsubishi — verk- smiðjunum japönsku reynslukeyrðu vélarnar ásamt starfsmönnum við Kröflu. Samkvæmt upplýsingum Einars Tjörva fær virkjun- in nú gufuafl frá þremur borholum, 7, 9 og 11. Afla- vélar Kröfluvirkjunar verða ekki álagsprófaðar fyrr en seinna í þessum mánuði og fyrr fæst ekki úr því skorió hve mikil raf- magnsframleiðsla mikla, sem dómstóllinn og fíkniefnadeild lögreglunn- ar hafa nú til meðferðar. Eins og fram kom í Mbl. í gær, var 23 ára gamall maður úr- skurðaður í allt að 60 daga gæzlu- varðhald í fyrradag vegna þessa máls, og eru þetta lengstu gæzlu- varðhaldsúrskurðir, sem kveðnir hafa verið upp í ffkniefnamáli hérlendis. Morgunblaðið hafði í gær samband við Arnar Guð- mundsson, fulltrúa við Fíkniefna- dómstólinn, og spurðist fyrir um þetta mál. Sagði Arnar að málið væri mjög alvarlegs eðlis og ákaf- lega erfitt í rannsókn. Sagði hann að þessir löngu úrskuróir væru að mati dómsins nauðsynlegir i þágu rannsóknar málsins og gæfu þeir til kynna, að ekki væri búist við að lausn fengist á málinu í bráð nema aðstæður breyttust. Nú sitja fjórir menn í gæzlu- varðhaldi vegna rannsóknarinn- ar, en eins og fram hefur komið í Mbl. leikur grunur á að umræddir menn séu viðriðnir smygl á mörg- um kílóum af fíkniefnum. Einum manni var sleppt úr gæzluvarð- haldi í fyrradag en hann hafði setið inni síðan fyrir jól. virkjunarinnar verður. Einar Tjörvi sagði í gær, að menn gerðu sér vonir um að virkjunin myndi geta framleitt 5 megavatta orku miðað við það gufuafl, sem nú væri fyrir hendi í fyrr- nefndum þremur holum. ÞRJU íslenzk verktaka- fyrirtæki, Miðfell, ístak og Loftorka, hafa í samvinnu við sænska fyrirtækið Skánska Sementsgjuteriet AB gert Landsvirkjun til- boð um að taka að sér sam- kvæmt samningi allar byggingarframkvæmdir við Hrauneyjafossvirkjun og býðst sænska fyrirtækið til þess að lána til verksins 100 milljónir sænskra króna eða jafnvirði 4.7 milljarða íslenzkra króna til 8 ára með 7.75% árs- vöxtum. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, formað- ur stjórnar Landsvirkjun- ar, staðfesti í gær að þessir aðilar hefðu sýnt þessari framkvæmd áhuga. Hefðu þeir kynnt Landsvirkjun lauslega hugmyndir sínar um að taka verkið að sér samkvæmt samningi. Af hálfu stjórnar Landsvirkj- unar hefði engin afstaða verið tekin til málsins og því séu enn óbreyttar þær fyrirætlanir, sem verið hafi um að bjóða bygging- arhiuta verksins út í nokkrum áföngum. Leifur Hannesson, fram- kvæmdastjóri Miðfells h.f., kvað rétt að þessi fyrirtæki hefðu sent slíkt boð til Landsvirkjunar. Hann kvað þetta tilboð vera til komið vegna þess að sænskt fjár- magn væri í boði og til þess að koma því á framfæri leitaði Skánska Sementsgjuteriet sam- starfs við íslenzk fyrirtæki. Með því kvað hann unnt að gera þessa framkvæmd miklu meir íslenzka en virkjunarframkvæmdir fram að þessu hefðu verið. Ekkert svar hefði borizt frá Landsvirkjun, enda tilboðið meir sett fram í tillöguformi eða sem hugmynd. Ef þessu boði yrði tekið — sagði Leifur, er gert ráð fyrir að samið yrði um verkið eftir sérstöku fyrirkomulagi, sem hann kvað nokkra nýiundu. Er gert ráð fyrir að allir aðilar, sem að málinu stæðu, yrðu virkir, bæði hönnuðir og eigendur sem og verktakar. Kvað hann framlag eigendanna geta haft áhrif á verðið. Er gert ráð fyrir að það verði endurskoð- að og hagnaðarprósenta verktaka fari minnkandi eftir því sem heildarkostnaður verksins færist fjær þeirri áætlun, sem upphaf- lega er miðað við. Ef verkið yrði ódýrara, kæmi það og báðum aðil- um, eigendum og verktaka til góða. Þess vegna er þetta sveigj- anlegt og eins konar samvinnu- form á þessu — sagði Leifur Hannesson, Bruni í Hafnarfirði SNEMMA í gærmorgun kom upp eldur í verksmiðjunni Berki við Hjallahraun í Hafnarfirði, en verksmiðja þessi framleiðir m.a. plasteiningar. Slökkviliðið kom fljótt á staðinn og gekk vasklega fram við slökkvistörfin og urðu skemmdir því ekki verulegar. Hagkvæmari útboðstími en þegar Sigalda var boðin út TILBOÐIN, sem bárust í vélar og rafbúnað Hrauneyjafossvirkjunar, svo og stöðvarhúss- krana með fylgihlutum voru mjög hagstæð eins og fram kom f Morgunblaðinu í gær. Tilboðin bæði voru um 1,1 milljarði króna undir áætlun I.andsvirkjunar. Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri, formaður stjórnar I.andsvirkjunar sagði f samtali við Morgunblaðið f gær að augljóslega væri nú mjög hagkvæmt að bjóða út slfk verk, tilboðsgjafa skorti verkefni og þeir hefðu teygt sig eins langt og þeim væri kostur. Greinilegt væri að tfminn nú væri miklum mun hagkvæmari en 1973, er Sigölduvirkjun var boðin út. Voru tilboð þá hærri en búizt hafði verið við. Aflvélar við Kröflu reynzlu- keyrðar í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.