Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 33 EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Sveinafélag pípulagningamanna Ákveðið hefur verið að viðhafa alsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðar- mannaráðs. Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins fyrir kl 1 7 þriðjudaginn 7. febrúar 1 978 Kjörstjórn. 75áraídag: Gunnlaugur E. Briem frv. ráðuneytisstjóri 75 ára er í dag Gunnlaugur-E. Briem, fyrrverandi ráðuneytis- stjóri. Liðin eru tæp 15 ár síðan við kynntumst fyrst og síðan hefur aldrei skugga borið á vináttu okk- ar. Fyrir 15 árum hafði Gunnlaug- ur starfað þrjár tylftir ára í Stjórnarráðinu og þjónað eða leið- sagt a.m.k. tveim tylftum ráð- herra, sumum þeirra tvisvar og jafnvel oftar. Að sjálfsögðu dundi margt yfir þjóðina og margt gerðist á þessum tíma. Mig minn- ir, að ég hafi heyrt Gunniaug ein- hvern tíma segja: „Ráðherrarnir koma og fara. Mikið sé ég eftir þeim öllum. Maður verður samt lítið var við stefnubreytingu". Gunnlaugur brá líka oft á leik og átti t.d. mjög auðvelt með að leika sig fokreiðan, ef það dugði til að leysa mál. Þótt Gunnlaugur sé mikill stemningsmaður, leggur hann þó meir upp úr raunsæi en orðræðum og mímik. Þótt Gunn- laugur hafi verið meðmæltur nýj- ungum og endurbótum, var hann þó jafnan lítið ginkeyptur fyrir nýjum byltingarkenndum patent- aðferðum. Jafnvel holskeflum ný- tískulegra stjórntækja og aðferða tók hann með stöku jafnaðargeði og ró á meðan aðrir stóðu á önd- inni. Gunnlaugur skilaði til okkar yngri manna hefðbundnum stjórnunaraðferðum, sem eiga sér aldalanga þróun og reynslu. Ef við varðveitum ekki hið liðna og þess sem ávinnst með hverri kynslóð, værum við enn á steinaldarstigi. Ekki er þó nóg að varðveita þá menningu og þekk- ingu, sem náðst hefur, heldur verður sifellt að breyta og bæta eftir þvi sem reynslan kennir okk- ur. íhaldssemi og breytingarþörf eru því báðar nauðsynlegar til árangurs. Bæði þessi sjónarmið eiga sér jafnan málsvara í hverju þjóðfélagi. Jafnan er það svo, að hinir ungu vilja breyta, en hinir eldri halda í. E.t.Vj.væri eðlilegra, að sá sem byrjar lífið, reyni að halda J þann ávinning, sem þegar er til staðar, en sá eldri vilji breyta í samræmi við þá reynslu, sem lifið hefur kennt honum. Ég ætla mér ekki þá dul, að reyna að svara þvi, hvernig náttúran út- hlutar hlutverkum og af hverju svona en ekki hinsegin, en ég nefni þetta hér vegna þess, að hlutverk okkar embættismanna vill oft vera vörn fyrir fengna reynslu, þ.e. hið íhaldssamara hlutverk. Sumum hættir til að telja meira varið i hitt hlutverkið og margir keppast við að vera höfundar að breytingum og endurbótum. í tímans rás tók Gunnlaugur við stórum haug af breytingartillög- um og nýjungarkröfum. Hann hafði aldrei þá aðferð að geyma mál, eyða þeim, kæfa eða svæfa. Atvinnumálaráðuneytið var aldr- ei nein söltunarstöð. Öll mál voru jafnan afgreidd án tafar, ef Gunn- laugur gat á annað borð ráðið þar um. Þvi var það ekki ósjaldan, að Gunnlaugur hafði hið óvinsæla hlutverk að gera grein fyrir af hverju erindum var synjað. Ösér- hlífni og hreinskilni Gunnlaugs kostaði hpnn að sjálfsögðu oft óvinsældir, en sæi Gunnlaugur vit I tillögum eða von til betra lifs, hikaði hann heldur aldrei við að ldggja þyí máli lið. iHér' hefi, é{j aðeips , tæpt; á nökkrum eiginleikum Gunnlaugs. Aienn erii oft tnetnir eftir framan- AUGLYSINGATEIKNISTOFA MYIMDAMÓTA Aðalstræti 6 sími 25810 KEXVERKSMIÐJAN FRÓN um og okkur hættir mörgum til að meta okkur sjálfa eftir þeim mælikvarða. Margir blindast i ásókninni eftir gloríu og glamri. Höfuðkostur Gunnlaugs er, að hann er rótfastur hann sjálfur Hann viðurkennir takmarkanii lífsins en afneitar þeim ekki Hann einbiínir ekki á hið full komna lokamark, heldur hefui hann ríka tilfinningu fyrir þróui einstaklings og þjóðfélagsins Hann skynjar vel mismun þess a< sýnast og að vera, mismun hugai burðar og raunveruleika. Þótt Gunnlaugur sé nú orðinn 75 ára, njótum við áfram glað- lyndi hans og finnum fyrir ein- beitni hans og krafti. Jón L. Arnalds. heima daglega íslenskt rúgkex med smjöri, osti, (t.d. kúmenosti)»kæfu eda eggi og síld. Berdu þad saman vid hrökkbraud til sömu nota og vittu hvort hefur vinninginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.