Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.1978, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn GuSmundsson. Björn Jóhannsson. Árni GarSar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100. Aðalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuSi innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakiS. Nauösynlegt er að fólk átti sig á því, í sambandi við umræður þessa dagana um efnahags- mál, að ekki er rætt um að skerða þurfi kjör almenn- ings — heldur að halda óbreyttum kaupmætti frá því sem nú er. Almenn kjaraskerðing er ekki til umræðu — heldur hitt að kjörin geta ekki batnað meir en orðið er að sinni. Þegar horft er til lífs- kjara fólks í þriðja heimin- um er engum í kot vísað hér, þótt sagt sé, að ekki sé hægt að bæta lífskjörin enn meir á þessu ári. En eftirtektarvert er, að jafn- vel meðal auðugri ná- grannaþjóða okkar er stað- an sú sama, að ekki er að- stæða til kjarabóta á þessu ári. Þetta kom m.a. fram i frétt í Morgunblaðinu sl. miðvikudag frá Noregi en þar var vitnað til ummæla Per Kleppe, fjármálaráð- herra Noregs, í viðtali við norska blaðið Aftenposten. Ráðherrann sagði m.a.: „Það er ekki grundvöllur fyrir almennri hækkun á ráðstöfunartekjum. Þróun- in í utanríkisviðskiptum er svo alvarleg um þessar mundir, aö ríkisstjórnin verður að gera breytingar á efnahagsstefnu sinni.“ 1 samtalinu við Aften- posten segir ráðherrann ennfremur skv. frétt Morg- unblaðsins, ,,að aðeins lítill hluti bænda svo og það eft- irlaunafólk, sem verst er sett, geti vænzt þess, að rauntekjur þess hækki í ár. Hátekjufólk megi á hinn bóginn gera ráð fyrir, að lækka í launum og er þá átt við ráðstöfunartekjur. Kleppe segir, að langflestir bændur fylgi iðnverkafólki í launum, en til athugunar sé að koma á verulegum láglaunabótum til þeirra, sem búi við lökustu kjörin. Séu það einkum sveiflur í utanríkisverzluninni, sem valdi erfiðleikum svö og aukinn kostnaður við fram- leiðsluna innanlands. Verði áframhald á þeirri þróun, samtímis því, sem neyzla innanlands fari vax- andi verði þess skammt að bíða að óhagstæður greiðslujöfnuður Norð- manna við útlönd verði al- gjörlega óviðráðanlegur.“ Fregn þessi er athyglis- verð fyrir okkur íslend- inga af ýmsum ástæðum. í fyrsta lagi sýnir hún, að Norðmenn eiga við ná- kvæmlega sama vanda að stríða og við. Almenningur þar í landi getur ekki búizt við kjarabótum á þessu ári. Einungis lítill hluti bænda og það eftirlaunafólk, sem verst er sett getur búizt við einhverjum kjarabótum. Hátekjufólk í Noregi getur jafnvel búizt við kjararýrn- un. 1 öðru lagi er staðan þannig hjá þjóð, sem nú er að byrja að fá afrakstur af olíuauði undan ströndum sínum. En sá olíuauður dugar samt ekki til þess að tryggja Norðmönnum kjarabætur í ár. í þriðja lagi bendir Kleppe á, að haldi neyzla heima fyrir áfram að vaxa verði greiðslujöfnuður Norðmanna við útlönd óviðráðanlegur. Þegar við kynnumst þessum aðstæð- um í Noregi er ljóst, að við íslendingar þurfum ekki að vera óánægðir með það, þótt við verðum, eins og Norðmenn, að sætta okkur við óbreytt lífskjör á þessu ári. Forseti Alþýðusambands íslands, sem er einn af for- ystumönnum Alþýðu- flokksins hér, mætti gjarn- an minnast þess, að í Nor- egi situr nú stjórn Verka- mannaflokksins og að það er fjármálaráðherra Verkamannaflokksstjórn- ar, sem lýsir því yfir, að nú sé ekki grundvöllur til frekari kjarabóta í Noregi á þessu ári. Við íslendingar búum á engan hátt við hagstæðari skilyrði í okkar utanríkis- verzlun en Norðmenn. Þeir eru fiskveiðiþjóð eins og við og fá sama verð, eða a.m.k. ekki hærra, fyrir fiskafurðir sínar en við. En þar að auki búa Norðmenn yfir ýmsum öðrum auðlind- um. Þeir eiga enn stærsta kaupskipaflota heims. Þeir flytja út timbur og pappír. Þeir eru að verða eitt helzta olíuveldi á norður- hveli jarðar. Úr því að Norðmenn hafa ekki efni á kjarabótum á þessu ári, höfum við íslendingar það enn síður. K jarabætur í Noregioghér j Reykjavíkurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦-»Laugardagur 4. febrúar Vorið 1974 Þessa dagana eru efnahagsmál mjög til umræðu og nokkurrar eftirvæntingar gætir vegna þeirra aðgerða, sem bersýnilega eru í vændum í efnahagsmálum. Af því tilefni hefur miðstjórn ASÍ sent frá sér ályktun, þar sem varað er við því, að hróflað verði við gild- andi kjarasamningum og málgagn Alþýðubandalagsins, Þjóðviljinn, hefur uppi hótanir í garð rfkis- stjórnarinnar. Ekki er því úr vegi að rifja upp atburði vorsins 1974, Alþýðubandalagsmönnurn og öðr- um til umhugsunar. Vorið 1974 var viðburðaríkt í íslenzkum stjórnmálum. 1 febrú- / armánuði það ár höfðu verið gerðir kjarasamningar, sem vinstri stjórnin er þá sat að völd- um bar mikla ábyrgð á. Þrír ráð- herrar hennar sátu vikum saman yfir samningamönnum á Loft- leiðahótelinu og áttu verulegan þátt í þeirri niðurstöðu, sem þá varð. Kjarasamningar þessir leiddu til þess, að öngþveiti blasti við í efnahags- og atvinnumálum. Full samstaða náðist ekki í vinstri stjórninni um aðgerðir. Björn Jónsson, þáverandi og núverandi forseti ASI sagði af sér ráðherra- störfum. Ólafur Jóhannesson efndi til þingrofs og kosningar voru boðaðar. Undanfari þessara atburða höfðu verið miklar umræður í vinstri stjórninni um aðgerðir í efnahagsmálum. I þeim umræð- um vakti það mesta athygli, að ráðherrar Alþýðubandalagsins, þeir Lúðvík Jósepsson og Magnús Kjartansson lögðu fram tillögu : ríkisstjórninni um almenna kaup- lækkun. Þeir lögðu til, að allir þeir, sem náð höfðu fram í kjarasamningum meira en 20% kauphækkun yrðu að sæta því, að laun þeirra yrðu lækkuð á ný þannig að kauphækkun yrði ekki meiri en 20%. Eftir að þeir Lúð- vik og Magnús höfðu lagt þessa tillögu fram mótmælti þáverandi formaður Alþýðubandalagsins, Ragnar Arnalds, því á opinberum vettvangi, að slíkar tillögur hefðu komið fram. Aldrei varð ljóst, hvort um vísvitandi tilraun til blekkingar var að ræða eða ein- faldlgga hitt, að formaður Al- þýðubandalagsins, sem þá var, hafði ekkf haft vitneskju um til- löguflutning ráðherra flokksins í ríkisstjórninni. Er síðari skýring- in væntanlega sú rétta. Jafnframt því að leggja fram tillögu um al- menna kauplækkun samþykktu ráðherrar Alþýðubandalagsins mikla skerðingu á kaupgjaldsvísi- tölu. Þegar vitnaðist um þessa af- stöðu þeirra Lúðvíks og Magnúsar innan Alþýðubandalagsins varð mikið uppnám á þeim vettvangi. Kapparnir féllu þá frá öllum til- lögum sínum og stuðningi við aðr- ar tillögur. Ólafur Jóhannesson kvaðst þá mundu biðjast lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Þegar ráð- herrar Alþýðubandalagsins stóðu frammi fyrir því, að þeír kynnu að missa ráðherrastólana bað Lúð- vík um frest, kúgaði flokksmenn sína til hlýðni og siðan stóð Al- .ýðubandalagið að þvi, að vinstri stjórnin lagði fram á þingi laga- frumvarp um almenna kauplækk- un í landinu og vísitöluskerðingu. Þetta frumvarp náði aldrei fram að ganga vegna þess, að Björn Jónsson, sem þá var samgöngu- ráðherra, neitaði að standa að því og sagði af sér ráðherrastörfum, Hannibal Valdimarsson lýsti því yfir, að SFV stæðu ekki lengur að stjórninni en Magnús Torfi sat sem fastast, þing var rofið og efnt til nýrra kosninga. En kjarni málsins er sá, að vorið 1974 lögðu ráðherrar Alþýðubandalagsins til að launþegar tækju á sig almenna kauplækkun og að kaupgjaldsvísi- talan yrði skert. Þessa staðreynd er nauðsynlegt að hafa í huga næstu daga, þegar umræður hefj- ast um væntanlegar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál- um. Gengislækkun — vísitöluskerðing Ráðherrar Alþýðubandalagsin: létu ekki hér við sitja vorið 1974. Eftir að þing hafði verið rofið og kosningabaráttan var hafin stjórnaði vinstri stjórnin með til- skipunum. Föstudaginn 17. maí tilkynnti vinstri stjórnin og þar með þeir Lúðvík Jósepsson og Magnús Kjartansson, að rikis- stjórnin hefði ákveðið gengis- lækkun íslenzku krónunnar. Sam- kvæmt tilkynningu Seðlabankans þann dag um þessa gengislækkun nam hún um 4% og hafði gengi krónunnar þá lækkað frá ársbyrj- un 1974 um 10%. Alþýðubanda- lagið stóð sem sagt að gengislækk- un vorið 1974. Gagnlegt er að minnast þess næstu daga. Nokkrum dögum siðar, þriðju- daginn 21. maí, sendi vinstri stjórnin frá sér tilkynningu þess efnis, að ákveðið hefði verið að kaupgjaldsvísitalan yrði óbreytt frá 1. marz 1974. Þá var málum þannig háttað, að kaupgjaldsvísi- talan hafði átt að hækka hinn 1. júní 1974 um 17—18% en ríkis- stjórnin hafði ákveðið að greiða niður hluta þeirrar vísitöluhækk- unar með peningum, sem ekki voru til og engar tillögur voru gerðar um hvernig skyldi afla. En 21. maí kom sem sagt tilkynning m.a. frá Alþýðubandalaginu þess efnis, að það sem þá stóð eftir af kaupgjaldsvísitölunni skyldi ekki koma til útborgunar. Þar með háfði Alþýðubandalagið staðið að skerðingu á kaupgjaldsvísitölu og hróflað við gildandi kjarasamn- ingum. Það er líka gagnlegt að hafa þessa staðreynd í huga næstu daga. Til viðbótar þessu stóð Alþýðubandalagið svo að því að fiskverð var ákveðið óbreytt þessa sömu daga og var það gert með bráðabirgðalögum. Þetta þýddi, að sjómenn fengu ekki þær kjarabætur, sem landverkafólk hafði fengið og að kjör þeirra voru skert enn meir en kjör land- verkafólks. Vorið 1974 tók Alþýðubandalag- ið þátt í öllu því, sem það hefur að öðru jöfnu talið sig vera á móti, gengislækkun, vfsitöluskerðingu, stórfelldri kjaraskerðingu sjó- manna og jafnvel hafði það frum- kvæði að tillögugerð um beina almenna kauplækkun. Það er ó- þarfi að láta þessar staðreyndir gleymast. Viðbrögð verka- lýðshreyfingar Gagnlegt er í framhaldi af þess- ari upprifjun að minnast þess hver viðbrögð verkalýðshreyfing- arinnar voru á þessum tíma. Vegna ráðherrastarfs Björns Jónssonar gegndi Alþýðubanda- lagsmaðurinn Snorri Jónsson, for- setastörfum í Alþýðusambandi Is- lands. Undir hans forystu mót- mælti ASÍ íhlutun í kjarasamn- inga með vísitöluskerðingu og öðrum aðgerðum en annað gerði Alþýðusambands Islands ekki. Al- þýðusambandið efndi ekki til verkfallsaðgerða í nokkurri mynd vegna þeirra efnahagsaðgerða,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.