Morgunblaðið - 05.02.1978, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1978
A NÆSTUNNI
AUSTURBÆJARBÍÓ: DOG DAY AFTERNOON
1 stuttu máli sagt er hér á feröinni ein umræddasta
og best sótta myndin á síðari árum. Hún fjallar um
makalaust bankarán kynvillinga, en féð hyggjast þeir
nota til að gera „kærustu“ eins þeirra að kynskipting.
Myndin er byggð á sönnum atburði, sem átti sér stað í
New York síðsumars fyrir fáeinum árum.
Myndinni leikstýrir Sidney Lumet, en með aðalhlut-
verkið fer A1 Pachino, en þeir félagar gerðu garðinn
frægan í myndinni SERPICO, sem sýnd var hér fyrir
skömmu.
IMINNINGU
HOWARD HAWKS
SEINNIHLUTI
Sp: Þú laöaðir fram einn
besta leik sem John Wayne
hefur sýnt í myndinni RED
RIVER.
HH: Ég taldi að Wayne
yrði góður. Ég vissi það
ekki. Hafði aðeins séð
hann í nokkrum myndum.
Og reyndar, meðan á kvik-
myndatökunni stóð um-
skrifaði ég mörg atriði sem
hann kom fram í — af því
að mér vajð það ljóst að
hann stóð sig miklu betur
en ég hafði ímyndað mér.
Þegar John Ford sá RED
RIVER, sagði hann: „Það
flaug aldrei að mér að
þessi tröllvaxni tíkarsonur
kynni að leika.“ Svo Ford
lét hann fá hlutverk í
nokkrum myndum þar sem
hann þurfti raunverulega
á leikhæfileikum að halda,
og áður en leið á löngu var
Wayne orðinn ein skær-
asta stjarnan. Það tók al-
menning langan tíma að
gera sér grein fyrir að
Wayne gat leikið, að hann
var í rauninni góður leik-
arí.
Þegar við hófum kvik-
myndatökuna hvíldi tals-
verður þrýstingur á
Wayne. Hann gerði sér
grein fyrir því að hér beið
hans stærra tækifæri til að
sýna hvað í honum bjó en
áður. Ég vék mér að hon-
um og sagði: „Vertu ekki
svona áfjáður, Duke. Ef þú
átt þrjú mjög góð atriði I
þessari mynd og styggir
ekki áhorfendurna í hin-
um, þá ertu orðinn stór-
stjarna. En ef þú reynir að
setja eitthvað það inn í at-
riðin sem á þar ekki heima,
þá verða gestirnir leiðir og
vita ekkí hvernig á því
stendur."
Nú, hann tók þetta svo
nærri sér að skömmu síðar,
við kvikmyndatökuna, kom
hann til mín og svaraði:
„Er þetta einn af þeim
hlutum sem ber að var-
ast?“ og ég svaraði um
hæl: „Vissulega, hættu við
þetta strax.“ Hvað hann og
gerði.
Sp: Motgomery Clift var
nýliði í kvikmyndaleik
þegar hann lék í RED
RIVER, hvernig var sam-
komulagið á milli hans og
gamalreynds leikara eins
og Wayne?
HH: Wayne rétt leit á
Monty sem var ósköp ungl-
ingslegur, og sagði: „Kem-
ur þessi drengur að ein-
hverju gagni?“ Ég svaraði:
„Því tökum við ekki fyrsta
atriðið og sjáum hvernig
gengur?“ Og í þessari
fyrstu upptöku sagði ég
Monty hvað hann ætti að
gera. Hann átti að drekka
kaffibolla. Ég sagði:
„Lyftu bollanum svo hátt
að rétt sjái í augun á þér.
Fylgstu svo aðeins með
Duke, og gefðu honum
ekkert eftir.“ Og loks þeg-
ar töku atriðisins var lokið
sagði Duke: „Þessi strákur
verður i lagi.“
Sp.: Fjölmargir hlutir
gerast i einu, upphafsmín-
útur RED TIVER — manni
er fleygt í ána, það eru
slagsmál og indíánarnir
koma á vettvang. Þú sóaðir
ekki tímanum í að koma
atburðarásinni i gang.
HH: Já, og þegar eitt-
hvað er um að vera yfir-
leitt, þá gerast hlutirnir
hratt. Eg þoli ekki hæga-
gang. Ég hitti Marlon
Brando einhvern timann,
það er virkilega þægilegur
náungi, og hann sagði:
„Því höfum við aldrei gert
mynd í sameiningu?“ Ég
svaraði: „Þú ert alltof :nd-
skoti rólegur. Þú þyrftir á
ljúka atriði á einum þriðja
þess tíma sem þú notar
venjulega, ef þú ættir að
gera það fyrir mig. Ef þú
getur ekki lokið því af á
þeim tíma, þá áliti ég þig
til lítils nýtan.“ Hann tók
þessu vel.
Sp.: Þú hefur látið svo
ummælt að um það leyti
sem þú gerðir RED
RIVER, hafi engir aðrir
leikstjórar verið færir um
Cary Grant og Kathanne Hepburn i Bringing up Baby
John Wayne og Montgomery Clift í Red River
að gera vestra. Hvað um
John Ford?
HH: Rétt. Við Ford vor-
um mjög góðir vinir; hann
er sá eini sem gat gert góð-
an vestra. Það er ærið
langt sfðan, en við vorum
þeir sem kunnum best til
verka. Reyndar kom Ford
hingað niður eftir til að
deyja. Eg var vanur því að
spila golf, skreppa síðan í
heimsókn til hans og taka
með honum glas. Eitt sinn
þegar ég kom f heimsókn
til hans fór hann að skelli-
hlæja og ég spurði hann af
hverju hann væri að hlæja.
Hann svaraði: „Ég fór allt f
einu að hugleiða allt það
sem ég hef stolið frá þér.“
Og ég svaraði: „Ég hugsa
að ég hafi stolið öllu meira
frá þér en þú frá mér.“
Sfðan áttum við langt og
gott tal saman um margt
það sem við höfðum stolið
hvor frá öðrum, og hvor
okkar um sig var harla
ánægður yfir því að annar
hefði stolið frá hinum, því
við vorum þeirrar skoðun-
ar að hinir náungarnir
kynnu ekki að búa til
vestra.
Sp.: Þeir gera ekki
marga vestrana þessa dag-
, ana. Heldurðu að það verði
hætt að framleiða þá fyrir
fullt og allt?
HH: Nei, þeir þurfa að-
eins að finna mannskap
sem er fær um að búa þá
til. Mér hálf-býður við
þessum New York-búum
sm koma til mín og biðja
mig um að gera einhverja
sálfræðivellu líkt og THE
LEFT HANDED GUN.
Þeir þekkja ekkert til sögu
Vestursins. Mér þótti lítið
koma til Wayne-
myndarinnar BIG JAKE.
Um nautgripabónda sem á
son sem þeysir um á mótor-
hjóli. Að mínu áliti er það
ekki Vestrið.
Árið 1958 spurði Jack
Warner (einn Warner-
bræðra) mig að því hvað
ég vildi helst gera, og ég
sagði vestra. Honum leist
ekkert á það. Þá sagðist ég
gera hann i einhverju öðru
kvikmyndaveri. „Nei
gerðu hann hér,“ sagði
Jack, „en heldurðu að
hann blessist?" Ég svaraði:
„Ég ætla að gera hann al-
veg öfugt við þá vestra sem
gerðir eru í dag.“ Þá voru
allir á kafi í gerð vestra
eins og HIGH NOON með
Gary Cooper. Hann leikur
lögreglustjóra sem hleypur
um líkt og nýhálshöggvin
kjúklingur, reynandi að fá
alla sér til hjálpar, og í
lokin er það kvekarakonan
hans sem að bjargar hon-
um. Þetta er enginn lög-
reglustjóri. Ef lögreglu-
stjóri er til einhvers nýtur
og einhver kemur til hans
og spyr hvort þeir geti að-
stoðað, þá segir hann:
„Hversu góður ertu?
Treystirðu þér á móti þeim
besta þeirra?^ Og hann
svarar: „Nei“, þá segir lög-
reglustjórinn: „Komdu þér
heim. Eg þyrfti að halda á
þér.“
Sp: Hvernig heldurðu að
standi á því að John
Wayne heldur enn vin-
sældum sfnum?
HH: Of margir leikarar
reyna að gera meira úr
atriðunum en þau bjóða
uppá. Þeir eiga bara að
ljúka þeim af og búið.
Wayne hefur alltaf haft í
huga það sem ég sagði hon-
um, og ég álít að það
talsvert að ser';.. varðandi
allt uthald. Bogart
kunni sama lagið á hlutun-
um, sama máli gegnir um
Cary Cooper. Þetta eru líka
meðfæddir hæfileikar.
Þeir gátu þetta án umhugs-
unar.
Jafnvel framsögn Wayne
er mjög einkennandi fyrir
hann. Wayne stoppar í
miðri setningu. Hann
stoppar þar sem hans betri
vitund segir honum hvar
hann á að stoppa- til að
koma setningunni vel frá
sér. Og þetta er atriði sem
er erfitt að kenna.
Ég kenndi Lauren
Bacall. Nálægt 1940 gerði
einkaritarinn minn þá vit-
leysu að senda eftir henni
hingað vestur. Allt sem ég
vildi vita var hvar hún
hefði gengið í skóla og
hvað hún hafði haft fyrir
stafni. En allt í einu var
hún komin inn á mitt gólf,
í peysu og gaberdínpilsi,
mjóróma og nefrödduð.
Ég kom boðum til einka-
ritarans. „Útvegaðu henni
bíl og sendu hana í fjögur,
fimm kvikmyndaver. Hún
Framhald á bls. 21
Kvikmyndahátíð 1978 — veislan er hafin
OG ÞA er búið að setja
Kvikmyndahátíðina í
Reykjavík annó 1978 með
tilheyrandi pomp og prakt.
Hinn margumræddi
draumur um íslenska kvik-
myndahátíð er orðinn stað-
reynd.
Og flestir töluðu fjálg-
lega um lítiðsem ekki neitt
rétt eins og venja er undir
kringumstæðum þessum.
Menntamálaráðherra
lofaði jú (eða svona allt að
því) auknum ríkisstyrk til
handa kvikmyndagerðar-
mönnum. Voru það orð í
tíma töluð og réttlættu þau
og miklu meira en það til-
urð veislu sem þessarar.
Einhverjum aðstoðar-
manni tókst síðan að draga
okkur talsvert á því að fá
vitneskju um hver hlyti
viðurkenningarstyrk
Menntamálaráðs til kvik-
myndagerðar á þessu ári.
Og það kom sjálfsagt eng-
um á óvart að það var hinn
ungi og efnilegi kvik-
myndagerðarmaður Agúst
Sigurðsson sem hlaut þau í
ár fyrir handritið LlTIL
ÞÚFA. Það er verst hvað
tvær milljónir dugá
skammt.
Loksins tók til máls
heiðursgesturinn, Wim
Wenders, yfirlætislaus og
geðfelldur ungur maður.
Frjálslegur og án allrar til-
gerðar í framkomu. Þó
heimsfrægur.
Óþarft er að kynna
Wenders eða verk hans
nánar hér á síðunni, þeim
hafa verið gerð ítarleg skil.
En Wenders er einn úr
þeim fámenna hópi ungra,
þýzkra leikstjóra, sem á ör-
fáum árum hafa endur-
heimt virðingu umheims-
ins á þarlendri kvikmynda-
list með frábærum verkum
sínum.
Heiðursgesturinn eyddi
aðeins örfáum orðum í
verk sín, en gat þess að
hann kannaðist við flestar
myndanna á hátíðinni og
benti viðstöddum einkan-
lega á tvær þeirra:
STROZEK, nýjasta verk
vinar hans (og félaga i
þýzku endurreisninni)
Werners Herzog, og á
mynd Cassavetes, KONA
UNDIR AHRIFUM, sem
hann álítur eitt af
meistaraverkum nútíma
kvikmyndalistar.
Þetta beinir huga manns
að þvf kvikmyndavali sem
boðið er uppá á hátfðinni. í
fljótu bragði virðist það
arla gott, hér er mikið af
-orvitnilegum myndum
víðs vegar að. Myndum
sem flestar hverjar hefðu
tæpast rekið á fjörur okkar
nema fyrir tilstuðlan Kvik-
myndahátíðar. Af miklu er
að taka og aðalatriðið er að
myndirnar séu vel fram-
bærilegar — yfir höfuð. Þó
má telja það víst að ein-
hverjar grátkonur eiga eft-
ir að hneykslast. Það er
kannski affarasælast að
taka það strax fram, að
FRISSI KÖTTUR og
VELDI TILFINNING-
ANNA er ekki við hæfi *
„húsmæðra í Vesturbæn-
um“.
• ^
í fljótu bragði virðist
mér að það megi skipta
myndunum í tvo hópa: í
þeim forvitnilegri flokka
ég allar fjórar myndir
Wenders; STROZEK,
KONA UNDIR ÁHRIFUM,
sem er ein kunnasta mynd
hátíðarinnar að VELDI
TILFINNINGANNA
undanskilinni — en þessi
umdeilda mynd er sann-
kallaður hvalreki. V.T. hef-
ur óviða fengið náð fyrir
augum kvikmyndaeftirlits
yfirvalda, hefur næstum
eingöngu verið sýnd í kvik-
myndahátíðum. Djarft og
grimmilegt innihald henn-
ar hefur hvarvetna slegið
áhorfendur útaf laginu —
er þetta harðsoðin klám-
mynd eða eitt af snilldar-
verkum japanskrar kvik-
myndalistar? Nú er komið
til okkar kasta að finna
svar við því.
Þá er hér á ferðinni óum-
deilanleg klámmynd,
teiknuð. Það er hin af
endemum fræga banda-
ríska FRISSI KÖTTUR.
Hafa fáir velt fyrir sér list-
rænu gildi hennar til þessa
— utan nefndarmenn þeir
sem völdu hana á Reykja-
vfkurhátið nr. 1. Ég er þó
alls ekki að fordæma
absúrdan tilverurétt henn-
ar hér, fjarri því. Nú, og
svo er hún öruggt „kassa-
stykki".
Af öðrum einkar at-
hyglisverðum myndum vil
ég jafnframt nefna FJöT
SKYLDULlFZa, „„sis;
SÆTA MYND, SEIGLU og
ÁNÆGJUDAGA. Og þær,
sem ótaldar eru enn,
standa þeim vonandi ekki
langt að baki. S.V.