Morgunblaðið - 05.02.1978, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRUAR 1978
Vinsældalistar og fréttir ðr poppheimirium. . ..
• Nýlega veitti Hljómplötuútgáfan hf. þremur tónlistamönnum gullplötUr í
verðíaun fyrir góða sölu platna sinna, en plöturnar seldust allar í meira en 5.000
eintökum á liðnu ári. Plöturnar sem verðlaunaðar voru, voru „Fyrr má nú aldeilis
fyrrvera“ með Halla og Ladda, „Hana nú“ með Vilhjálmi Vilhjálmssyni söngvara
og plata með Ruth Reginalds. Enn fremur veitti fyrirtækið þeim Magnúsi
Kjartanssyni, Tómasi Tómassyni og Þórði Árnasyni gullplötur fyrir upptöku-
stjórn. Hér á myndinni sjást gullplötuhafarnir ásamt eiginkonum sfnum og
forráðamönnum Hljómplötuútgáfunnar.
% Fyrir stuttu var tilkynnt að tveir nýir tónlistar-
menn hefðu gengið í hljómsveitina Strawbs. Þeir eru
þeir Tony Fernandez trommuleikari og hljómborðs-
leikarinn Andy Riehards, en fyrir voru í hljómsveit-
inni Dave Cousins, gítar og söngur, Dave Lambert
gítar og söngur og Chas Cronk bassi. Á kyndilmessu
(2. febrúar) kemur út ný plata með Strawbs og ber
hún heitið „Deadlines“ og lítil plata hefur komið út
og ber hún heitið „Joey and me“. Þá er hljómsveitin
í þann veginn að halda í sína fyrstu hljómleikaferð
um Bretland í tvö ár.
Fugla-
söngur
• Roger McGuinn, Gene
Clark og David Crosby komu
fyrir nokkru fram saman á
tónleikum f San Francisco þar
sem hinir tveir fyrstnefndu
höfðu haldið nokkra tónleika.
Þeir voru allir þrír í hljóm-
sveitinni Byrds sem átti miki-
um vinsældum að fagna á sjö-
unda áratugnum og hefur haft
mikil áhrif á rokktónlist nú-
tfmans. Þremenningarnir spil-
uðu nokkur lög af gömlu lög-
um Byrds og kunnu áheyrend-
ur vel að meta þau. David
Crosby kom að vísu fram sem
gestur á hljómleikunum, og
stagaðist hann á því, að hann
gæti ekki neitt, hann væri
búinn að gleyma textunum.
Hann virðist þó hafa skemmt
sér vel, þvi hann kom einnig
fram á næstu tónleikum tví-
menninganna.
Hnefaleíkarinn
Keith Moon
0 Við sögðum frá því á popp-
síðunni i siðustu viku að Who
hefði haldið hljómleika sem að
dómi gagnrýnenda voru lélegir.
Trommuieikari hljómsveitarinnar,
Keith Moon, var alls ekki ánægður
með gagnrýni eins brezku tónlist-
arblaðanna og sendi þvi skeyti
sem i stóð: „Ég Keith Moon skora
gagnrýnandann á hólm i hnefa-
leikum. Keppnin skal vera fimm
lotur tvær minútur hver. Sá sem
tapar (það hefur þegar verið
ákveðið) biður hinn opinberlega
afsokunar " Ekki varð gagnrýn
andinn við beiðni Moons og varð
þvi ekkert af hnefaleikunum.
Keith Moon hefur löngum verið
þekktur fyrir einkennileg uppá-
tæki og það nýjasta i þeim efnum
gerðist um jólin. Honum hafði ver-
ið boðið i veizlu og mætti i hana
með 32 litra af málningu. Gest-
gjafinn þurfti að bregða sér frá,
þegar veizlan stóð sem.hæst. og
sá Moon þá sitt óvænna og málaði
stofuna gráa og rauða.
Vinsœldalistar...
0 Jamaikustúlkurnar Althea og Donna eru sem fyrr f efsta sæti
brezka vinsældalistans, en þær voru með öllu óþekktar áður en
lag þeirra „Up town top rankjng“ komst á blað. „Up town top
ranking" er reaggae-lag, og þykir furðu gott. Wings eru sem fyrr f
öðru sæti, en plata þeirra „Mull of Kintyre" hefur nú náð þeim
merka áfanga að vera söluhæsta litla plata sem gefin hefur verið
út af brezkum tónlistarmönnum, og hefur hún selst í langt yfir
milljón eintaka. Aðeins eitt nýtt lag er á brezka listanum, „If I
hand words“, flutt af þeim Scott Fitzgerald og Yvonne Keely.
Bee Gecs eru aftur komnir f fyrsta sætið f Bandarfkjunum, en ú
með nýtt lag „Stayin’ alive“, en hitt lag þeirra „How deep is your
love“ er nú fallið út. Þar eru einnig fáar breytinga, tvö ný lög
„Emotion" með Samantha Sang og „Dance, dance, dance“ með
Chic, eru að vísu meðal þeirra tfu efstu, en hin lögin hafa aðeins
skipt um sæti.
Einkennilegum nöfnum á hollenska listanum hefur enn
fjölgað og þrjú ný lög hafa bætzt á listann. Það eru „Tingelinge-
ling tingelingeling” með Andre van Duin, „Is ie moeder niet
thuis“ með Nico Haak og „I can’t stand the rain“ með Eruption.
Kfnverjarnir í Hong Kong halda eins og fyrri daginn mikið upp
á Bee Gees og eru þeir enn efstir þar. Flest lög fyrri viku eru enn
á listanum, en eitt nýtt er komið inn, „Emotion” með Samantha
Sano.
Engar stórvægilegar breytingar eru heldur á vesturþýzka
listanum, en þó eru tvö ný/gömul lög komin þar á blað, „Lady in
black” með Uriah Heep og „Muli of Kintyre” með Wings.
Tfu vinsælustu lögin (Staða þeirra f sfðustu viku f sviga).
LONDON
1. (1) Up town top ranking — Althea og Donna
2. ( 2) Mull of Kintyre/Girls School — Wings
3. ( 6) Figaro — Brotherhood of man
4. ( 8) Lovely day — Bill Withers
5. ( 4) Native New Yorker — Odyssey
6. (15) If I hand words — Scott Fitzgerald/Yvonne Keely
( 3) Love’s unkind — Donna Summer
8. ( ) It’s a heartache — Bonnie Tyler
9. ( 9) Jamming/punky reggae party — Bob Marley and the
Wailejc*
10. (12) Galaxy — War
Tvö lög jöfn f öðru sæti og tvö lög jöfn f sjötta sæti.
NEW YORK
1. ( 4) Stayin’alive — Bee Gees
2. ( 1) Short people — Randy Newman
3. ( 2) Baby come back—Player
4. ( 6) Just the way you are — Billy Joel
5. ( 3) We are the champions—Queen
6. ( 5) You’re in my heart — Rod Stewart
(10) Sometimes when we touch—Dan Hill
8. (11) Dance, dance, dance—Chic
9. ( 4) Desiree — Neil Diamond
10. (13) Emotion—Samantha Sang
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
AMSTERDAM
1. (1) If I hand words — Yvonne Keely/Scott Fitzgerald
2. ( 2) Mull of Kintyre — Wings
3. ( 1) Tingelingeling tingelingeling — Andre van Duin
4. ( 7) Lailola — Jose v los Reves
5. ( 3) Egyptian reggae—Jonathan Richman
6. ( 6) She’s not there — Santana
( 4) Singing in the rain—Sheila and black devotion
8. ( 5) It’s a heartache — BonnieTyler
9. ( 2) Is ie moeder niet thuis — NicoHaak
10. (28) I can’t stand the rain—Eruption
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
BONN
1. (1) Surfin’USA — Leif Garrett
2. ( 2) Needles and pins — Smokie
3. ( 3) Rockin’ all over the world — Status Quo
4. ( 4) Don’t stop the music — Bay City Rollers
5. ( 5) Don’t let me be misunderstood — Leroy Gomez
6. ( 7) Black is black—BelIeEqoque
( 6) The name of the game — ABBA
8. ( 8) We are the champions — Queen
9. (15) Ladyinblack—Uriah Heep
10. (14) Mull of Kintyre — Wings
Tvö lög jöfn f sjötta sæti.
Enn á
ný
eru
Bee
Gees
komnir
f
efsta
sæti
banda-
rfska
vin-
sælda-
listans.