Morgunblaðið - 12.03.1978, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1978
7
Nokkrum helgidögum
föstunnar lætur ísl. kirkjan
fylgja lexíur úr síöasta riti
N-testam., Opinberunar-
bókinni, en meginefni henn-
ar eru vitranir, dulsýnir og
dulheyrnir, sem höfundur
eöa höfundar ritsins tjást
hafa fengið.
Af fornum helgiritum og
fram til þessa dags virðist
Ijóst, aö sýnir sjáendanna
og vitranir aðrar, sem ótelj-
andi vitnisburði má lesa
um, eru að jafnaði táknmál,
sem allt er þá undir komiö
aö rétt sé lesiö. Og enn
verður vandhæfni meiri á,
þegar haft er í huga, að
vandasamt er að greina
þau ójarðnesku skyndileift-
ur, sem sjáendum berast.
Svo virðist sem ýmsar
vitranir Opinberunarbókar-
innar, sem teljast vera
komnar frá Kristi hinum
upprisna. Sum orð, sem
honum upprisnum eru þar
eignuö, geta ekki verið frá
honum komin. Uppsprettan
kann aö hafa verið hrein en
þá hefur hiö tæra vatn á
leið sinni inn í mannheiminn
runnið um miður hreina
farvegi ófullkominna
manna. Viö upptökin vellur
bergvatnið blátært fram en
á langri leið blandast þaö
leir úr farveginum, sem það
fellur eftir.
tveim?) um upphaf spírit-
ismans á íslandi og fannst
mér ekki mikið til um. Var
þaö nokkur furða, aö
mönnum, sem nálega
ókunnir sálrænum fyrir-
birgöum komu inn í þeirra
kynjaskóg, yrði villugjarnt á
fyrsta áfanganum? A liðn-
um 70 árum hafa komið
fram ýmsar þær tilgátur, til
skýringa á fyrirbærunum,
sem engum höföu þá komiö
í hug. Svo komu til stjórn-
málin á einhverri harö-
skeyttustu stjórnmálaöld,
sem yfir þetta land hefur
gengið. Björn Jónsson opn-
aði Isafold sína fyrir vin-
samlegum og jákvæöum
greinum um málið, og gerö-
ist hann snemma eindreg-
inn fylgjandi spíritismans.
Vafalaust réð pólitíkin
nokkru um það, aö margir
höfuöandstæöingar hans í
stjórnmálum urðu hörðustu
andstæöingar spíritismans
á ritvellinum, en ýmsir
þeirra snerust síðar, og
sumir löngu síöar, til fylgis
viö máliö eftir að þeim próf.
Haraldi og Einari H. Kvaran
vannst tími til að kynnast
málinu af ritum beztu
manna þess og kynna þaö
þjóö sinni meö þeim
árangri, að fylgzt var af
áhuga með því um þvert og
endilangt landið.
lífsins kórónu.“ Þegar
þetta er skráö hafa kristnu
söfnuðirnir í Litlu-Asíu orðið
að þola blóðugar ofsóknir,
sem Gyðingar í borgunum
höfðu hvatt heiðnu valdhaf-
ana til. Kristnir menn höfðu
séð blóð trúbræðra renna
og vissu að enn voru
ægilegri ofsóknir í nánd.
Auðvitaö voru kristnir menn
misjafnlega sterkir á svell-
inu, við öðru var ekki aö
búast, og til þess aö styrkja
söfnuöina í baráttunni notar
höf. Opinberunarbókarinn-
ar Kristsvitrun, sem hann
fullyrðir aö sér hafi borizt:
„Vertu trúr allt til dauða, og
ég mun gefa þér lífsins
kórónu." Þegar á dögum
Páls postula, sem fyrir
alllöngu er látinn þegar
þetta er ritaö, höfðu Gyö-
ingar, sem í borgum Litlu-
Asíu voru víða fjölmennir,
beitt þeirri aðferð, að nota
til þess háttsettar konur
heiðinna manna er hneigzt
höföu að Gyöingatrú, að
æsa til ofsókna gegn
kristnu söfnuöunum. Þetta
hafði heppnazt svo vel, aö
einu sinni a.m.k. slapp Páll
lifandi vegna þess aðeins,
aö ofsækjendurnir héldu
sig búna aö ganga af
honum dauöum.
Við sem búum viö lög-
verndaöa kristna trú í landi,
ífurðuskógi
fyrírbrígða
Trúir þú á þaö, aö vitranir
hafi mannkyni veitzt aö
ofan? Trúir þú ekki því
getur þú vitanlega slegið
striki yfir þetta allt sem
helbera vitleysu. En þá
afneitar þú um leiö því, sem
er meginkenning kristin-
dóms og annarra æöri
trúarbragða um guölega
handleiöslu. Trúir þú hins
vegar á raunveruleik guð-
legra opinberana og vitrana
aö ofan og kynnir þér þá
margþættu og merkilegu
sögu ertu samstundis
staddur í furöuskógi fyrir-
brigöa, sem ganga veröur
aö með mikilli varúð.
Ég hlustaöi fyrir skömmu
á síöara útvarpserindi (af
Aö einhver mistök ættu
sér staö einkum á byrjunar-
árunum þarf engan að
undra, í furöuskógi sál-
rænna fyrirhirgöa varö
einnig frumkristninni fóta-
skortur, eins og guðspjöll
sýna, og enn löngu síðar,
þegar Opinberunarbókin
var færð í letur, vekur sitt
hvaö, sem þar er eftir
upprisnum Kristi haft,
mörgum efasemdir um höf-
undinn.
En innan um þær ófull-
komnu hugmyndir, sem þar
er aö lesa, glitra perlur
djúpsettra lífssanninda, og
er ein þeirra vissulega
þessi: „Vertu trúr allf til
dauöa, og ég mun gefa þér
getum enga hugmynd gert
okkur um það umhverfi,
sem söfnuöir píslarvættis-
kirkjunnar liföu við, og fyrir
því eru dæmi ekki fá, að á
þrengingatímum, í nábýli
við kvöl og dauða, eykst
trúnni í mannssálunum
kraftur, og opinberanir
verða tíðari en þegar lífself-
an streymir hljóölega og rás
atburöanna er hversdags-
leg.
Vitranir þær, sem Opin-
berunarbókin segir frá,
geröust á tímum hinnna
hrikalegu átaka. Þær hafa
áreiðanlega átt erindi við
marga á þeirri vargöld, og
margar perlur þessarar tor-
ráönu bókar eiga vissulega
erindi viö okkur enn.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndirsf.
Hverfísgiku 18 • Gegnt Þjóðleikhúsinu
úr flaueli
ýfrá kr. 21.000.-
) Úr terylene
)kr. 19.900.-
fli% Margir Irtir
Austurstræti 10
simi
J
J