Morgunblaðið - 12.03.1978, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.03.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1978 17 Frá kristniboðsstarfi. Kristniboðsvika í Reykjavík NU um helgina hefst hin árlega 12.—19. marz kl. 20i30. Kristni- kristniboðsvika í Reykjavík en boðar sjá að miklu leyti um efnið hún er haldin á vegum Sambands að venju með frásögnum. mynda- ísl. kristniboðsfélaga. Verða al- sýningum og predikun og ungt mennar samkomur í húsi KFUM fólk tekur til máls og syngur. og K að Amtmannsstíg 2b dagana S.Í.K. áformar að hpfia starf í Kenya á næstunni en þar búa um 12 milljónir manna af ýmsum þjóðflokkum. Þar hefur kristin trú verið boðuð lengi, segir i frétt frá S.I.K. og enn eru þar stór byggðar- lög sem íbúar vita engin deili á kristnum sið. Síðar á þessu ári fara íslenzk kristniboðahjón er lengi hafa starfað í Eþíópíu til Kenya og hefja nám í svahili. Starf S.Í.K. í Konsó í Eþíópíu er nú nærfellt 25 ára en ófriðurinn þar og óvissan um ástand þar hefur valdið því að Kristniboðs- sambandið ákvað að hasla sér völl á nýjum stað. „íslenzkir kristni- boðsvinir hafa þó engan veginn sagt skilið við Eþóópíu en vona að aðstæður breytist svo að unnt verði að efla kristniboð í landinu að nýju. Kristniboðahjon, sem komu frá Eþíópíu í fyrra bíða þess albúin að fara þangað aftur þegar dyr opnast." Um þessar mundir starfar einn íslendingur í Eþóópíu, Jóhannes Ólafsson læknir og verður hann í Gídole, 50 km frá Konsó, í þrjá mánuði. Á fyrstu samkomu kristniboðsvikunnar tala Einar Hilmarsson menntaskólanemi, Margrét Hróbjartsdóttir safnaðarsystir og Benedikt Arn- kelsson guðfræðingur. Æskulýðs- kór KFUM og K syngur undir stjórn Sij;urðar Pálssonar náms- stjóra. Á samkomunum verður veitt viðtaka gjöfum til „Snjógrip er lausnin" Senn fer að snjóa. Enginn þarf lengur að skríða undir bílinn, tjakka hann upp eða færa úr stað tjl þess að koma á keðjum. „Snjógrip er lausnin" Eitt handtak, síðan ekur þú brosandi af stað, án átaka og erfiðis. Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. Skeifunni 2, sími 82944. Hvernig líst þér á 14 daga á Flor ida og 3 á Bahama? Flogið verður frá íslandi til sólskinslandsins Florida, um Bahamaeyjar. Dvalið á Konover — glæsihóteli á sjálfri Miami ströndinni. Þar er búið í tveggja manna herbergjum með útvarpi, síma, baði, kæliskáp og litsjónvarpi, þar sem hægt er að velja um margar stöðvar. Við hótelið er sundlaug og skjannahvít baðströnd sem teygir sig mílu eftir mílu frá norðri til suðurs þar sem þú getur notið hvíldar og hressingar í sól og hlýjum ómenguðum sjó. Frá Konover er hægt að fara í skoðunarferðir til Disney World, sem telja má eitt af undrum veraldar, Seaquarium, stærsta sædýrasafns í heimi, Safari Park, þar sem frumskógar Afríku birtast þér ljóslifandi, Everglades þjóðgarðsins sem á engan sinn líka. Og ekki má gleyma sólbökuðum og litríkum kóralrifjum Florida Keys eða hinum ein- stæða neðansjávar þjóðgarði á Key Largo. Einnig er unnt að stunda sjóstangaveiði ásamt ýmsum öðrum íþróttum á sjó og landi. Og þar kostar sjálfskiptur bílaleigubíll aðeins 19—23 þúsund krónur í heila viku án kílómetradaggjalds. Að lokinni Floridadvölinni er flogið til Bahamaeyja. Þar er dvalið á Flagler Inn hótelinu á Paradise Island. Þaðan er aðeins 6—8 mínútna sigling með hótelbátnum til miðborgar Nassau, höfuðborgar eyjanna, sem jafnframt er miðstöð verslunar og hins fjölbreytta skemmtana- og næturlífs. Verðkr. 189.095.- Brottför 7. apríl. Komudagur 25. apríl. Upplýsingar og pantanir hjá söluskrifstofu okkar Lækjargötu 2 sími 27800, farskrárdeild, sími 25100, umboðsmönnum okkar um allt land og ferðaskrifstofunum. KonoverHotel FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR LSLAJVDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.