Morgunblaðið - 12.03.1978, Síða 38

Morgunblaðið - 12.03.1978, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1978 Jónína Gísladótt- ir—Minningarorð Fædd 21. apríl 1894 Dáin 3. marz 1978 Nú er góö kona gengin og verður kvödd frá Fossvogskirkju á morg- un, mánudaginn 13. marz kl. 1.30 síðdegis. Þann þriðja þessa mánaðar andaðist á heimili sínu, Brávalla- götu 44, Herdís Jóhannesdóttir á átttugusta og fjórða aldursári. Herdís var fædd að Dunk í Hörðudal, Dalasýslu, 21. apríl 1894. Foreldrar hennar voru hjón- in Anna Guðmundsdóttir og Jó- hannes Einarsson er þar bjuggu. Þau hjónin eignuðust fimm börn, fjóra syni og eina dóttur, Herdísi. Heimasætan að Dunk ólst upp hjá ástríkum foreldrum, ásamt þræðr- um sínum. Að kvöldi miðvikudags 1. þ.m. komum við tvær vinkonur hennar í heimsókn, og tók hún vel á móti okkur eins og hennar var vandi. Tveim dögum sðar var hún öll, hafði lagt sig um miðjan dag og vaknaði ekki aftur til þessa lífs. Gekk á fund feðra sinna sæl og glöð, sátt við allt og alla. Þannig vildi hún hafa það. Hún hafði á orði við okkur að mikið væri gott að fá að sofna svefninum langa, þegar maður væri orðinn það lítilfjörlegur, að vera upp á aðra kominn með alla aðdrætti. Hún fékk svo sannarlega ósk sína uppfyllta, svo er Guði fyrir að þakka. Herdís var einstaklega nett og fínleg kona, hlédræg, heiðarleg og trúverðug. Vann öll sín verk hávaðalaust. Herdís fór fljótt að vinna. Um tvítugt yfirgaf hún æskuheimili sitt og sveitina sína, sem hún alla tíma unni svo mjög og minntist með virðingu og stolti. Leiðin lá fyrst í Stykkishólm, þar sem hún lærði karlmannafata- saum. Síðar fór hún hingað suður og réð sig í vistir á góð heimili, m.a. á heimilum Geirs Thorsteins- sonar og Lofts Guðmundssonar ljósmyndara. Hún minntist oft á hvað hún hefði verið heppin með húsbændur. Einnig vann hún nokkur ár á Elliheimilinu Grund og mötuneytinu á Gimli. Því næst tíu ár í eldhúsinu á Vífilsstöðum. En síðustu níu árin í Melaskóla, þar til hún hætti um sjötugt. 011 verk hennar voru unnin af einstakri nákvæmni og vandvirkni að undrun sætti, hvort sem það var matargerð, bakstur eða handa- vinna. Og munu mörg heimili í Reykjavík og víðar bera vot um hennar fagra handbragð, sem var listaverki líkast. Herdís giftist aldrei né eignaðist börn, en frændliði sínu var hún einstök og bar mikla umhyggju fyrir öllu sínu fólki. Ekki síst fyrir nöfnu sinni Herdísi Leópoldsdótt- ur og hennar fjölskyldu, sem býr í Bandaríkjunum. Ég veit hún þakkar þeim, er lögðu henni lið, Ágústu mágkonu hennar og Siggu og ekki síst bróðursyninum Baldri Leópoldssyni, sem annaðist frænku sína til hins síðasta — þökk sé þeim öllum. Ég veit að Herdísi hefði ekki líkað nein lofræði um sig. Til þess var hún of lítillát. Ég veit hún fyrirgefur mér, því þetta er aðeins fátæklegur þakklætisvottur fyrir alla tryggð og góðvild er hún sýndi mér. Um leið og ég kveð og þakka Herdísi samfylgdina í 22 ár, þökkum við Sigurlaug allar yndis- legu stundirnar, sem við áttum áheimili hennar. Við biðjum henni Guðs blessunar. Eg votta öllum aðstandendum samúð mína. Far þú í friði, friður Guðfi þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. t Faðir okkar KONRÁÐ ÞORSTEINSSON andaðist föstudaginn 10 þ m Marta Konráðsdóttir Sigrún Konráðsdóttir Steinunn Ósk Konráðsdóttir. t Útför föður míns, vinar og bróður, BÖÐVARS GRÍMSSONAR, rafvirkjameistara, frá Hörðuvöllum, fer fram frá þjóðkirkjunni i Hafnarfirði þriðjudaginn 14 marz kl 2 e h Ásmundur Böðvarsson, Sigriður Hjálmarsdóttir Sigurður Grfmsson. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNÍNU GÍSLADÓTTUR, Glaðheimum 4, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1 3 marz kl 3 e h Blóm afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hinnar látnu láti líknar- stofnanir njóta þess Ólöf Elíasdóttir, Árni Sigursteinsson, Margrét Eliadóttir, Jón Björgvinsson Dagbjört Eliasóttir, Gisli Steinsson, Ólöf Thorlacius. Hjartkær eiginkona mín, SIGURÁSTGUÐVARÐSDÓTTIR, Laugateig 58. sem lézt í Borgarspítalanum 6 þ m verður jarðsett frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 14 þ m kl 3 00 Þeim er vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið Þorvaldur Brynjólfsson, IngibergB. Þorvaldssson, Inga Valdis Pálsdóttir Guðlin Þ. Linnet, Hans R. Linnet Kolbrún Þorvaldsdóttir, Guðmundur H. Gislason Ásta Þorvaldsdóttir, Halldór Waagfjörð og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, ÓSKARS ÁGÚSTAR S.'GURGEIRSSONAR. fyrrverandi skipstjóra, I Hörpugötu 8 Margrét Óskarsdóttir, JensJónsson, Sigrún Óskarsdóttir, Sigurður Albert Jónsson og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför föður okkar, JÓNS EINARSSONAR, frá Höfðabrekku, Ásbjörg og Karl Jónsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför sonar mins, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRARINS HALLBJÖRNSSONAR, rnatsveins, Vesturgötu 50 A, Hallbjörn Þórarinsson, Hallbjörn Þórarinsson, Helga Sigurðardóttir Matthildur Þórarinsdóttir, Þórir Svansson, Hllf Þórarinsdóttir, Ólafur Ólafsson og barnabörn. Vilborg Ólafsdótt- ir—Minning Vinir hennar — en þeir voru margir — kölluðu hana Minnie. Vilborg hét hún réttu nafni og var Ólafsdóttir. í rausnargarði foreldra ólst hún upp á glæsilegu og virtu heimili kaupmannshjóna í Keflavík, Ólafs Ófeigssonar frá Fjalli á Skeiðum og Þórdísar Einarsdóttur frá Kletti í Geiradal. Mannkosti sótti hún til þeirra beggja. Ólafur faðir hennar var, að sögn þeirra er þekktu, höfðingsmaður, ljúfur í viðmóti, ávarpsgóður og kurteis. Gilti einu hvort hann ræddi við valdsmenn eða alþýðu. Það breytti ei fasi né framkomu. Þórdís móðir hennar var rómuð fyrir gæði sín, hlýju og góðvild, trygglyndi og vinfestu. Hún var virt af öllum er hana þekktu. Unni góðum bókum og skáldskap. Var sjálf hagorð þótt hún sakir hógværðar héldi því lítt á loft. Gestkvæmt var jafnan á heimili þeirra hjóna. Ólafur stundaði umsvifamikinn atvinnu- og verzl- unarrekstur. Hús þeirra opið gestum og gangandi. Heimilið mannmargt. Börn þeirra og upp- eldisbörn ásamt glöðum hópi vina og skólasystkina þeirra. Strax í æsku þótti Minnie hafa yfirburða þyek og þrótt. Jafnöldr- um hennar og leiksystkinum er í minni forysta hennar í leikjum og starfi. Hvort heldur var í fjöru, þá er könnunarferðir voru farnar um undraheima flæðarmáls og kletta, numið staðar við naust, eða hlaupið léttum fótum um tún og stakkstæði, þá var Minnie ávallt í fararbroddi og hvatti hópinn með horskri framgöngu sinni, gleði og drengskap. Um vaskleika þótti henni kippa í kyn Fjallsættar, en þaðan koma þrekmenni er þjóð- kunn hafa orðið í fangbrögðum mörgum og forystu. Á heimili Minniear var siðavendni til orðs og æðis i heiðri höfð og brá ei frá því í leikjum hennar né starfi. Þar gekk drengskapur jafnfætisdjarf- mennsku. Skapgerð hennar og stefnufesta varð snemma augljós. I afli andstreymis fullorðinsára mótaðist sá niálmur er hún hafði að heimanfylgju frá ætt sinni og uppruna. Um fermingáraldur Minniear skipti sköpum í lífi fjölskyldunnar. Þá lést faðir hennar, Ólafur Ófeigsson og fluttist Minnie þá með móður sinni til Hafnarfjarð- ar. Þar stundaði hún nám í Flensbortzarskóla og síðan í Reyk- holti. Það er til marks um fjölhæfni Minniear og verkkunnáttu að hvert það starf er henni var falið leysti hún af stakri prýði og reglusemi. Sömu eðliskostir réðu ferð hennar í starfi sem leikjum. Ég minnist hennar frá þeim árum er hún gekk um beina í Iðnó. Kurteisi og glaðværð hennar, snyrtimennska og hreinskilni hvort sem var við gesti í veitinga-' sölum eða starfsmenn að tjalda- baki er geymd í huga þeirra er niuna þau ár. Seinna réðst hún til margvíslegra og misjafnra starfa. Hún var í hópi fyrstu og fremstu kvenna er lagði stund á bifreiða- akstur. í því starfi varð hún mörguni minnisstæð er hún ók sendiferðabifreið. Þar sem í öðrum störfuni var forsjálni í fylgd með kappi og hollum metnaði. Sú bifreið sem Minnie ók var í góðum höndum, og vegfarendur vissu að þar fór traustur og öruggur ökumaður sem vildi heilum vagni heim aka, en einnig og ekki síður " engan meiða á vegferð sinni. Urn störf hennar önnur, af- greiðslu í apóteki, hljóðfæraverzl- un, kjólabúð, blómasölu og annað er hún lagði stund á meðan heilsa leyfði má segja hið sama. Hvar- vetna var einkenni hennar trú- mennska og reglusemi, skynsam- legar ályktanir og jákvætt lífsvið- horf, kryddað kímni og góðvild. Himnasmiður sá er för ræður gaf henni gjörvuleika og atorku í vöggugjöf, gæddi hana góðum gáfum og hýrri lund, en kaus henni jafnframt hlutskipti heilsu- tjóns og þjáninga. Létti ei þeirri byrði fyrr en á banastund. Þolin- móð bar hún byrði sína og kaus að sveigja umræðu að ilmi blóma og angan rósa fremur en þyrnum þeim er stungu við fótamál hvert. Pétur Pétursson. Á stundum milli stríða var tónlistin hennar hugðarefni. Hvíld frá veruleikans þunga dómi. Dómgreind og þekking á bókmenntum var henni stuðning- ur í þjáningum er hún leið. Trygglyndi og hreinskilni aflaði henni góðra vina. Höfðingslund og höfðingsbrag bar hún ætíð, jafnt ung og heil og er hún sjúk og vanmáttug beið við dauðans dyr. Minningar bernsku og æsku, er allt lék i l.vndi, varð okkur tíðrætt um og var þá oft horfið á vit þeirra glöðu daga, út við sjó og upp við heiðarnar, þar sem fuglarnir bjuggu, þar sem við tíndum okkur ber í tínur og svanga munna. Við sjóinn okkar, í víkinni okkar, þar undum við börnin, við leiki og störf. Svipmót þeirra daga og eldur þess brims batt sálirnar föstum, heitum böndum. Allar minningarnar eru svo tendraðar gleði, og þegar hlekkirn- ir slitna, þá verður tómið svo mikið og söknuðurinn svo sár. í djúpum söknuði þessara daga minnist ég bernsku okkaT og horfinna vona, þeirra voná, sem voru bundnar við sólaruppkomu. Við sólarlag kveð ég vinu mína frá bernsku og þakka hinni hugdjörfu hetju fyrir samfylgdina í fjörunni, heiðinni og úti á berginu. Blessuð sé hennar minning. Birna Jónsdóttir. Afmælis- og minningar- greinar Að marggefnu tilefni skal athygli vakin á þvf, að af- mælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Sé vitnað til Ijóða eða sálma skal höfundar getið. Greinarn- ar þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.