Morgunblaðið - 12.03.1978, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MARZ 1978
47
Límiaflinn
ráðandiá
Hornafirði
V
HEILDARAFLI Hornafjaröar-
báta frá áramótum til febrúarloka
var 1920 tonn í 300 sjóferðum. Á
sama tíma í fyrra var aflinn 986
tonn og þá voru sjóferðir aðeins
122 en þá var aðeins einn bátur
með línu en nú 8 mest. Af afla
þessum er línufiskur 1725 tonn.
Hæsti bátur er Hvanney með 300
tonn í 41 sjóferð eða 7.3 tonn í
róðri. Allir bátar eru nú byrjaðir
með net en afli er lítill. Fiski-
mjölsverksmiðjan hefur tekið á
móti 12 þúsund tonnum af loðnu
miðað við daginn í dag og fryst
hafa verið 25 tonn. Loðnumagn á
land komið er nær það sama og
var á sama tíma í fyrra.
Gunnar.
Vitni vantar
UM klukkan 9,30 í gærmorgun
varð árekstur milli tveggja fólks-
bifreiða á gatnamótum Hring-
brautar og Njarðargötu. Þetta
voru Subaru-bifreið á leið austur
Hringbraut og Datsun-leigubif-
reið, sem ók suður Njarðargötu í
áttina að Umferðarmiðstöðinni.
Ökumönnum ber ekki saman um
stöðu umferðarljósa þegar árekst-
urinn varð og vantar því vitni að
atburðinum. Eru vitni vinsamleg-
ast beðin að gefa sig fram við
slysarannsóknadeild lögreglunnar
í Reykjavík.
— Frakkland
Framhald af bls. 1.
hefur orðið tilefni óánægju vinstri
manna, sem telja að forsetinn eigi
að virða þá hefð að hafa ekki
afskipti af flokkapólitík.
Kommúnistar hafa enn ekki lýst
því yfir afdráttarlaust, að þeir
muni draga sig í hlé í þeim
kjördæmum þar sem fram-
bjóðendur jafnaðarmanna fá fleiri
atkvæði, og er vart búizt við slíkri
yfirlýsingu fyrr en eftir helgi.
Maréhais kommúnistaforingi, sem
undanfarnar þrjár vikur hefur
haldið uppi látlausum árásum á
jafnaðarmenn, lýsti því yfir í gær,
að kommúnistar og jafnaðarmenn
gætu jafnað ágreining sinn á
einum degi, en það eru aðallega
þjóðnýtingarmál sem valda ósætti
þessara flokka. Þessi yfirlýsing
Marchais er túlkuð þannig að
samkomulag við jafnaðarmenn sé
skammt undan.
— Kúfiskur
Framhald af bls. 48
ómerktum svæðum, en þar er um
að ræða verra hráefni vegna þess
að það er minna. Við höfum því
ákveðið að taka til við kúfiskinn,
en það er álíka dýr fjárfesting og
í sambandi við hörpudiskinn og
það er ekki spennahdi í þeim*
lánaerfiðleikum sem nú eru og
með þá vaxtabyrði sem fylgir
afurðalánunum.“
Ágúst kvað þá þurfa 23—27 tonn
af óunnum hörpudiski 5 daga
vikunnar til þess að unnt væri að
endar næðu saman og með miklu
magni af kúfiski kvað hann unnt
að ná tiltölulega hagstæðu verði.
5—6 bátar stunda þessar veiðar að
staðaldri, en 7 menn eru á
hverjum báti. 60—70 manns vinna
að staðaldri við vélavinnsluna í
landi, en flest hefur starfsfólk
orðið 235 við hörpudiskvinnsluna
þegar úrskeljað var með handafli
og þá var m.a. úrskeljað á Rifi.
Morgunblaðið ræddi einnig í
gær við Óttar Yngason hjá ís-
lenzku útflutningsmiðstöðinni og
spurði hann um flutningsleiðir og
möguleika.
Hann kvað Eimskipafélagið
hafa flutt út um 95% af þeim 600
tonnum af hörpudiski sem fyrir-
tækið hefði selt úr landi, en einnig
kvað hann þá hafa gert tilraun
með flutninga í frystivögnum með
Bifröst og væri slíkur farmur nú
á leiðinni. Þessi farmur var settur
í frystivagna í Stykkishólmi inni í
frystiklefum þar, síðan ekið um
borð í Bifröst og í Bandaríkjunum
verður farmurinn fyrst hreyfður
þegar frystivagninn er kominn á
áfangastað. Bifröst flytur hörpu-
diskinn til Norfolk en Eimskip til
Gloster og kvað Óttar það hag-
stæðari löndunarhöfn.
Óttar kvað óskiljanlegt það
misræmi sem væri á flutnings-
gjöldum á þessum vettvangi.
„Fyrir tonnið af frystum þorsk-
flökum hefur þurft að greiða með
Eimskip $102,30; fyrir tonnið af
blokkfrystri rækju $121; fyrir
tonnið af blokkfrystum hörpudiski
$154 og fyrir tonnið af lausfryst-
um hörpudiski $220.
Þetta er misræmi sem við höfum
verið að reyna að fá leiðrétt, því
það er okkur óskiljanlegt að sinn
hvor taxtinn sé á nákvæmlega
sömu pakkningu, sömu þyngd.
Mismunurinn t.d. fyrir einn
framleiðanda eins og þá í Stykkis-
hólmi getur verið æði mikill og ef
við tökum þau 600 tonn sem
Sigurður Ágústsson hf.f. hefur
flutt út á tæpu ári þá þarf
fyrirtækið að borga um 8 millj. kr.
meira til Skipafélagsins en ef t.d.
hefði verið um að ræða sama magn
af þorski. _ ______
— Flugræningjar
Framhald af bls. 1.
fluttir til Bandaríkjanna. Sam-
kvæmt fyrirliggjandi heimildum
er vandamálið það, að flytja hóp
manna, sem talinn er hættúlegur.
Að sögn deildu bandarískir
embættismenn og fulltrúar flug-
félagsins um ástæður þess að
snurða hljóp á þráðinn. Einnig
kom fram að sexmenningarnir
hafa um langt skeið látið á sér
skilja að þeir vildu snúa heim og
hafa nokkrir þeirra þegar verið í
fangelsi á Kúbu um nokkurt skeið.
Talsmaður flugfélagsins kvaðst
ekki vita hvort flugræningjarnir
yrðu fluttir heim um Kanada eða
ekki en sagði að ef svo yrði þá
kæmi „Air Canada“ ekki við sögu.
Það var í febrúar 1973 að Kúba
og Bandaríkin undirrituðu samn-
ing um að reisa skorður við flug-
og skiparánum milli landanna, en
alls fundu um 150 stolnar flugvél-
ar athvar á Kúbu á sjöunda
áratugnum og fram til 1973.
— 10% hækkun
Framhald af bls. 48
markaðurinn hefði verið mjög
iíflegur í lok janúar og allan
febrúarmánuð en eftir átökin 1. og
2. marz hefði komið verulegur
afturkippur í söluna aftur og sama
svartsýnishljóð komið í almenn-
ing. Hann kvað hafa orðið nokkra
hækkun á fasteignum á síðustu
tveimur mánuðunum eða svo,
líklega um 10% hækkun, þannig að
venjulegar 3ja herbergja fjölbýlis-
húsaíbúðir væru nú komnar upp í
um 10—11,5 milljónir, 2ja her-
bergja íbúðir í 8,5 milljónir og 4ra
herbergja íbúðir í 12,5 til 13,5
milljónir króna.
— Er kenningin
Framhald af bls. 25.
inn sé málflutningur þeirra
vísindamantia, sem telji sjálfa
sig til kennivalds á þessu sviði,
að með ólíkindum sé. Það hafi
svo allt hjálpazt að — heilsu-
verndarsamtök, fituefnafram-
leiðendur og framagjarnir vís-
indamenn hafi lagzt á eitt með
að breyta þessari vægast sagt
vafasömu kenningu í trúar-
kenningu. Læknar hafi einfald-
lega ekki staðizt þessa leiftur-
árás, heldur hafi afleiðingin
orðið sú að ráðleggingar um
fitusnauða fæðu með lágu
kólesterólinnihaldi hafi orðið
eins sjálfsagðar í samskiptum
þeirra við sjúklinga og kurteis-
leg kveðja.
Mann segir, að raddir þeirra
vísindamanna, sem vildu fara
varlega í sakirnar og reyna til
þrautar kenningar og aðferðir
áður en farið var út á þá braut
að ráðleggja fólki í stórúm stíl
að líta á fitusnautt mataræði
sem helzta vopnið í baráttunni
gegn kransæðastíflu, háfi
hreinlega kafnað í öllum æs-
ingnum. Hafi þessum skoðun-
um vaxið fylgi jafnt og þétt,
meðal annars fyrir tilstuðlan
Amerísku hjartaverndarsam-
takanna, en skýrsla Intersoci-
ety Commission for Heart
Desease Resources hafi þó
rekið smiðshöggið á trúarkenn-
inguna og gefið henni nokkurs
konar gæðastimpil. Sú skýrsla
hafi orðið til með þeim hætti
að efnt var til atkvæðagreiðslu
meðal þeirra manna, sem áttu
að ganga frá skýrslunni, og
þannig hafi þetta hreinrækt-
aða vísindalega málefni verið
afgreitt, — með atkvæða-
greiðslu þar sem meirihluti réð
niðurstöðunni. Slikt telur
Mann vera ótæk vinnubrögð
þegar vísindi séu annars vegar.
Mann segir, að „kreddukenn-
ingin“, sem hann nefnir svo,
hafi smám saman orðið drjúg
tekjulind ýmissa aðila, sem
áttu beinna hagsmuna að gæta.
Ýmsar greinar matvælaiðnað-
arins hafi farið að byggja
afkomu sína á kenningunni, og
hún hafi orðið bandarísku
hjartaverndarsamtökunum
drjúg tekjulind, auk þess sem
fituefnafræði hafi orðið blóm-
legur atvinnuvegur. Hafi allt
þetta stuðlað að því að þeir,
sem reyndu að mótmæla, m.a.
þekktir vísindamenn austan
hafs og vestan, hafi ekki fengið
hljómgrunn.
í greininni í The New Eng-
land Journal of Medicine gerir
Mann grein fyrir helztu rök-
semdum sínum, og skiptir þeim
í fjóra aðalþætti:
I fyrsta lagi nefnir hann
niðurstöður tveggja rann-
sókna, sem kenndar eru við
Framingham og Tecumseh,- og
telur báðar mjög áreiðanlegar.
Hafi þær meðal annars sýnt
fram á að blóðfitugildi standi
ekki í sambandi við matarvenj-
ur þeirra, sem rannsóknirnar
tóku til. Þeir, sem mæli matar-
æðiskenningunni bót véfengi á
hinn bóginn niðurstöður þess-
ara rannsókna og tilgreini þá
ástæðu að almenningur í
Bandaríkjunum neyti fitu og
kólesterols, sem sé fyrir ofan
mörk, sem teljast verði hættu-
leg. Mann telur hinsvegar að
tölulegar upplýsingar taki af
öll tvímæli um að þessi skýring
sé ósenniíeg.
í öðru lagi, segir Mann, gefa
dánartölur sjúkrahúsa frá ár-
inu 1950 ekki til kynna að hinn
gífurlegi mataræðisáróður hafi
haft áhrif. Sé tekið tiHit til
þess að tækjabúnaður hafi
auðveldað mjög greiningu
kransæðastíflu, frá því sem
áður var, svo og þeirrar stað-
reyndar að áhugi á líkamsrækt
og hollustuháttum hafi aukizt
mjög verulega á síðari árum,
þá sé fráleitt að halda því fram
að nokkurn veginn óbreytt
hlutfallsleg dánartala s.l. 27 ár
gefi tilefni til að ætla að
kenningar um breytt mataræði
hafi stuðlað að bættu heilsu-
fari. Þvert á móti sýni tölur um
neýzlu hinna ýmsu fæðuteg-
unda, að neyzla fjölómettaðrar
fitu í Bandaríkjunum hafi
tvöfaldazt frá síðustu aldamót-
um, en á sama tíma hafi neyzla
mettaðrar fitu eða kólesteróls
haldizt nokkurn veginn
óbreytt. Á sama tíma hafi
kransæðastífla aukizt, enda
liggi engar sannanir fyrir um
að meðaltalsblóðfita hafi
minnkað í Bandaríkjunum á
árunum 1962—1973 þegar út-
breiðsla
mataræðiskenningarinnar hafi
verið með öflugasta móti.
I þriðja lagi nefnir Thomas
V. Mann tölulegar upplýsingar
sem fengnar séu úr sjúkrahús-
skýrslum um mataræði sjúkl-
inga, sem skiptist í tvo hópa:
Þá, sem ekki er vitað til að hafi
kransæðastíflu, og þá, sem séu
Örugglega haldnir sjúkdómn-
um. Niðurstöðurnar úr sjúkra-
hússkýrslunum telur Mann
engan veginn benda til þess að
með matarkúrum, sem inni-
haldi fljótandi fitu eða olíur, sé
hægt að koma í veg fyrir
kransæðastíflu eða lækna
hana. Hins vegar telur hann
sannanir liggja fyrir um að
slíkir kúrar tvöfaldi tíðni
gallsteinasjúkdóma og ýmis-
legt bendi einnig til að þeir
kunni að valda krabbameini.
I fjórða lagi nefnir hann
niðurstöður tilrauna með lyfja-
meðferð. Verulegur árangur
hafi náðst í því að lækka
blóðfitu með því að gefa
sjúklingum niacin og Clofi-
brate, en þrátt fyrir það hafi
hvorugt lyfið haft mælanleg
áhrif á kransæðastíflu eftir
fimm ára samfelldar tilraunir.
Þessar staðreyndir telur Mann
sérstaklega mikilvægar með
tilliti til þess að þessi lyf hafi
reynzt um það bil helmingi
áhrifaríkari við lækkun blóð-
fitunnar en ströngustu matar-
kúrar, en hann telur þó að
ekkert það lyf sé til, sem með
öruggum hætti geti haldið
niðri blóðfitu án þess að
hættulegar aukaverkanir komi
til.
allra nýjasta
tízkunni
Vekjum athygli á
tízkusýningu okkar
á Útsýnarkvöldi
aö Hótel Sögu
í kvöld
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆfí
laogaveg 20 Laugaveg 66 Austu>sti»n 22 Glaasibje Simi 28155
LÆKJARGOTU 2 SlMI FRA SKIPTIBOROI 2815Þ
á
VK
^ Austurstræti 22,
’ , 2. hæö, sími 28155.