Morgunblaðið - 23.03.1978, Page 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
Ómar Ragnarsson fær sér væna kútmaga, en hann fékk sér þá bæði
í forrétt, aðalrétt og eftirrétt.
Tugir íslenzkra
sjávarrétta á kút-
magakvöldi Ægis
LIONSKLÚBBURINN
Ægir hélt fyrir skömmu
kútmagakvöld á Hótel Sögu
til fjáröflunar fyrir starf-
semi sína, en um þessar
mundir er klúbburinn að
afla fjár til Sólheimaheim-
ilisins og hefur svo verið
undanfarin ár.
Troðfullt hús var á kút-
magakvöldinu í Súlnasal
Hótel Sögu, en tugir sjávar-
rétta voru þar á borðum og
má segja að allir mögulegir
íslenzkir sjávarréttir hafi
verið á boðstólum.
Kútmagakvöld Ægis er
orðinn fastur liður í vetrar-
starfi kklúbbsins og komast
færri að en vilja í þær
kræsingar sem boðið er upp
á. Veizlustjóri kvöldsins var
Baldvin Jónsson, en for-
maður undirbúningsnefnd-
ar var Magnús Ingimarsson.
Formaður Ægis er Gunnar
Kristinsson. Gestur kvölds-
ins var Gylfi Þ. Gíslason
alþingismaður og ræddi
hann í gamni og alvöru um
starfsemi Lionsmanna. Þá
var happadrætti með fjöl-
skrúðugum vinningum og
meðal þeirra skemmti-
krafta sem komu fram voru
Kristinn Hallsson, Ómar
Ragnarsson, Halli og Laddi
og dansflokkur ungs fólks.
Baldvin Jónsson veizlustjóri afhendir verðlaun í happdrætti kvöldsins,
en vinningsnúmerin voru dregin út af Kónráð Guðmundssyni
hótelstjóra sem er þarna lengst til hægri.
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarfólki
AUSTUR
BÆR
Ingólfsstræti,
Sigtún
Miöbær
Hverfisgata 4—62.
Úthverfi
Sogavegur
3R*t9Ullli(afetó
Upplýsingar í síma 35408
Annað eins veizluborð íslenzkra sjávarrétta með kútmaga á heiðursfötum höfðu menn varla séð eins og
sjá má. Ljósmyndir Mbl. kee.
Þeir eru sælir á svipinn í þriðju umferð að veiziuborðinu, en m.a. má sjá þarna Gylfa Þ. Gíslason, gest
kvöldsins, og Guðlaug Bergmann kaupmann.
Ný lína í Byron
Getum nú boðiö Byron sófasettiö i nýrri
útgáfu.
Enn glæsilegra en áöur!
Hvort sem er í leöri eöa áklæði eftir eigin
vali.
Skeifu-verö — Skeifu-gæöi — Skeifu-skii-
máiar.
VERIÐ VELKOMINI
Sjón er sögu ríkari.
Lítiö inn og skoðið þetta nýja sett — ásamt
öllu ööru sem viö höfum upp á aö bjóöa í
húsgögnum.
SMIÐJUVEGI6 SlMI 44544