Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 Stetson herflug- málaráðherra Bandaríkjanna í heimsókn hér: JOHN C. Stetson ráðherra herflugmála í Bandaríkj- unum kom til íslands f eins dags heimsókn í gærmorg- un á leið sinni vestur um haf frá Evrópu. Við kom- una sagði ráðherrann f samtali við Mbl. að heim- sókn hans hingað væri endapunkturinn í hálfs- mánaðar ferð um nokkrar mikilvægustu herstöðvar Bandaríkjamanna 1 Evrópu, m.a. í Grikklandi og Tyrklandi. „Keflavík ein mikilvæg- asta varnarstöð NATO” Ráðherrann sagði jafnframt, að ustu varnarstöðvum Atlantshafs- því loknu eiga viðræður við Einar það sem að baki þessari ferð lægi bandalagsins og myndi hann Agústsson utanríkisráðherra. væri fyrst og fremst að hann vildi meðan á dvöl hans stæði ræða Ráðherrann heldur eins og áður kynnast af eigin raun ástandi ítarlega við yfirmenn varnarliðs- sagði heim á leið í dag með þessara stöðva og ræða við þar- ins, svo og myndi hann hitta að Boeing-þotu sinni. Myndin er tekin lenda ráðamenn. máli forsætisráðherra, Geir Hall- við komu ráðherrans til Keflavík- Keflavík væri ein af mikilvæg- grímsson, seinna um daginn og að urflugvallar. Hr auney j afossvirk jun: Lægsta tilboðið að upphæð 714 millj. FJÖGUR tilboð hárust í byrjun- arframkvæmdir við Hrauneyja- fossvirkjuni gröft fyrir stöðvar- húsi og þrýstivatnspi'pum að hluta. Lægsta tilboðið hljóðaði upp á 713.883.000 krónur og það hæsta upp á 1.173.640.000 krón- ur, en kostnaðaráætlun ráðgjafa Landsvirkjunar hljóðaði upp á 850.000.000 krónur. Tilboðin voru opnuð á Hótel Sögu í gær. Tilboðstrygging var 10% af tilboðsupphæðinni. Lægsta tiiboðið var frá ístak, Miðfelli, Loftorku, Skánska Cementgjuter- iet og Phil og Sön og nam það 713.883.000 krónum. Tilboð frá Hlaðbæ hf., Suðurverki hf. og Fjölvirkjanum hf. nam 781.570.000 Sleppt eftir 99 daga varðhald FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar sleppli í gærkvöldi 25 ára gömlum manni, sem setið haföi i gæzluvarð- haldi í 99 daga vegna rannsóknar hins umfangsmikla fíkniefnamáls, sem verið hefur til meðferðar að undanförnu hjá deildinni og Fíkni- efnadómstólnum. Maður pessi mun vera einn af höfuðpaurum pessa máls en um er að ræöa verulegt smygl á hassi í fyrra aðallega í notuðum sjónvarps- tækjum. Skiptir magnið nokkrum kílóum. krónum, tilboð frá Aðalbraut hf., Sveinbirni Runólfssyni s.f., Foss- vélum hf. og Verkfræðistofunni Burði hf. nam 1.043.350.000 krón- um og tilboð frá Ellert Skúlasyni hf., Svavari Skúlasyni hf. og Ýtutæni hf. nam 1.173.640.000 krónum. Síðasttöldu fyrirtækin gerðu frávikstilboð, þar sem bor- unarframkvæmdir til að létta á vatnsaga voru með öðrum hætti en fram var sett i útboði, og lækkaði frávikið tilboðið um 100 milljónir króna, þannig að heildarupphæð þess var 1.073.640.000 krónur. Kostnaðaráætlun Harza Engineering Company Inter- national, Chicago, og Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsens var upp á 850 miiljónir. Eirkur Briem, framkvæmda- stjóri Landsvirkjunar, sagði í samtali við Mbl. að hann reiknaði Framhald á bls. 26 Hafnarfjörður: Prófkjöri sjálfstæð- ismanna lýkur í kvöld PRÓFKJÖRI sjálfstæðis- manna í Hafnarfirði um skipan framboðslista flokksins við næstu bæjar- stjórnarkosningar lýkur í kvöld kl. 22 en kosið er 1 Sjáifstæðishúsinu við Strandgötu. í gærkvöldi höfðu á 5. hundrað manns kosið. 36 frambjóðendur eru í kjöri og á að kjósa fæst 7 og flest 11. Kosið er með því að merkja með tölustaf fyrir framan nafn frambjóðenda í þeirri röð sem kjósandi vill skipa mönnum á list- ann. Atkvæðisrétt hafa allir kosningabærir stuðn- ingsmenn Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði og ennfremur félagar í Stefni, félagi ungra sjálfstæðis- manna í Hafnarfirði, á áldrinu 16—20 ára. Listi sjálfstæðismanna í Keflavik GENGIÐ hefur verið frá fram- boðslista Sjálfstæðisfiokksins í Keflavik við næstu bæjarstjórnar- kosningar. Listann skipa. 1. Tómas Tómasson sparisjóðs- stjóri, 2. Ingólfur Halldórsson aðstoðarskólameistari, 3. Ingólfur Falsson vigtarmaður, 4. Kristinn Guðmundsson málarameistari, 5. Ingibjörg Hafliðadóttir húsfreyja, 6. Árni R. Árnason bókhaldari, 7. Árni Þ. Þorgrímsson flugumferð- arstjóri, 8. Ingibjörg Eliasdóttir húsfreyja, 9. Halldór Ibsen fram- kvæmdastjóri, 10. Elías Jóhanns- son bankamaður, 11. Einar Krist- insson forstjóri, 12. Einar Guðberg framleiðslustjóri, 13. Björn Stefánsson skrifstofustjóri, 14. Jóhann Pétursson símstjóri, 15. Gunnlaugur Karisson útgerðar- maður, 16. Jóhanna Pálsdóttir fulltrúi, 17. Tómas Ibsen banka- maður, 18. Sesselja Magnúsdóttir húsfreyja. Sjálfstæðismenn hafa nú 4 af 9 bæjarfulltrúum í Keflavík. Sjálf- stæðismenn í Keflavík efndu til prófkjörs 25. og 26. febrúar og urðu úrslit þess bindandi fyrir þrjú fyrstu sætin, en í aðalatriðum réðu úrslit prófkjörsins skipan efstu sæta listans. Dóttur- og hlutdeildarfyrirtæki Flugleiða: Tap á Air Bahama gróði á Cargolux REKSTUR dótturfyrirtækja Flug- leiöa og hlutdeildarfyrirtækja félagsins bæði hérlendis og erlend- is gekk misjafnlega á síðasta ári, að pví er fram kemur í skýrslu til aðalfundar félagsins. Aukning varð talsverð í starfsemi International Air Bahama á síöasta ári, einkum var leiguflug félagsins stóraukiö. Nokkurt tap varð þó af rekstrinum, en veltan tæpir 4 millj- arðar króna. Velta annars dótturfyrirtækis Flug- leiða jókst einnig verulega á árinu eða um 60% en það var hjá Hótel Esju, þar sem veltan var 510 milljónir króna. Rekstrartap varð þó á árinu sem nam um 33,5 millj. en engu að síður var restrarbatinn milli ára um 51,5 milljón. í athugun er nú að byggja viö húsiö aö austanveröu meö rými fyrir 135—170 hótelherbergi auk veitingasala á 2. og 9. hæö. Áætlaður kostnaöur viö þessa fjár- festingu er um 2,5 milljarðar króna. Tap varð einnig á rekstri þriöja dótturfyrirtækisins, Ferðaskrifstof- unnar Úrvals, en þaö var smávægi- legt. Velta fyrirtækisins varö alls 248 milljónir króna. Hlutdeildarfyrirtækjunum vegnaöi mörgum hverjum betur en þó sér- staklega Cargolux, en hagnaöur af rekstri fyrirtækisins varö 200—250 milljónir króna og velta félagsins nær 15 milljaröar króna í samanburði viö liölega 18 milljaröa veltu Flugleiöa, svo að ekki skakkar nema 20%. Rekstur Kynnisferöa feröaskrif- stofanna sf. gekk sömuleiöis vel. Veltan var um 90 milljónir króna og jókst um 17% frá árinu áður. Velta Flugfélags Noröurlands nam um 101 miltj. króna og jókst um 53%. Stööug aukning hefur veriö í umsvifum Hótels Húsavíkur og var veltan í fyrra 130 milljónir og jókst um 53%. Þá Framhaid á bls. 26 Geir Hall- grímsson forsætis- ráðherra ræðir við K. B. Ander- sen, utanrík- isráðherra Dana, í skrifstofu sinni í for- sætisráðuneyt- inu síð- degis í gær. (Ljósm.i Ól. K. Magn.) r Asgeir Bjarna- son framkvæmda- stjóri er látinn ÁSGEIR Bjarnason framkvæmda- stjóri lézt á sjúkrahúsi í Reykjavík í fyrrakvöid, 67 ára að aldri. Ásgeir var fæddur á Húsavík 10. júní 1910, sonur Bjarna Benedikts- sonar kaupmanns og póstaf- greiðslumanns og konu hans Þór- dísar Ásgeirsdóttur. Ásgeir lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1927 og verzlunarprófi í Kaupmannahöfn 1930. Hann var skrifstofustjóri hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrenn- is frá stofnun 1932 til 1942 en sat í stjórn sparisjóðsins frá ‘42 til dauðadags. Ásgeir varð fram- kvæmdastjóri hjá Vinnufatagerð íslands og systur fyrirtækja 1942 og jafnframt sat hann í stjórn ýmissa hlutafélaga svo sem City Hotel, Andersen og Lauth hf., Verksm. Föt hf. og Kjörgarðs. Eftirlifandi kona hans er Rósa Finnbogadóttir skipstjóra í Vest- mannaeyjum Finnbogasonar. SsiS' ðVIKR (ÍK3SRRIL0TU) ÖúRÉTÍfltJBYRJRÍ WBK V'W MfAlÖÍO i llOREö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.