Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 k’AFr/Nö S-J. GRANI göslari Furðulegt! Hann >jerir allt öðruvísi en allir aðrir. Má ég fara íram úr? Þeir segja hinir, að ég muni líkjast þér þegar ég verð stór. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Einnar viku löng spilahátið er árlega haldin í skíðabænum Crans sur Sierre í Sviss. Og Philip Morris Evrópukeppnin er orðin hluti hátíðar þessarar, sem að þessu sinni var í síðasta mánuði. Spil frá keppninni, norður gaf, tvímenningur og allir voru utan hættu. Vestur S. KD7 H. 6432 T. G L. 108632 Norður S. 985 H. K T. ÁD1097642 L. D Austur S. 106432 H. ÁG108 T. K85 L. 5 Nú er ekkert með það, nú eignumst við börn og förum með þau í heimsókn til þeirra! Tafir vegna fjárskorts Borizt hefur svar frá Hafsteini Þorsteinssyni símstjóra vegna bréfs um símamál í Breiðholti en bréfið birtist hinn 12. þ.m.: „Vegna skrifa, frú Valgerðar Björgvinsdóttur, Spóahólum 12, til Velvakanda í Morgunblaðinu 12. þ.m., um ófyrirsjáanlegan og allt of langan drátt á að fá síma fluttan í Spóahóla, skal eftirfar- andi tekið fram: 1. Það er rétt ég var bjartsýnn s.l. haust um að möguleiki væri að loftlínu til bráðabirgða í hverfið. Síðar kom í ljós að það var óframkvæmanlegt þá m.a. vegna byggingaframkvæmda meö stór- virkum vinnuvélum á fyrirhuguðu línusvæði. Nánar fylgir hér skýrsla frá Línu- og áætlanadeild varðandi framkvæmdir á símalögnum í hverfið: „Stofnstrengur var lagður frá símstöð Breiðholti, að svæðinu sem afmarkast af Suðurhólum, Norðurhólum og Orrahólum í október 1977. Vegna tafa á afgreiðslu tengi- efnis erlendis frá hafa tengingar á strengnum dregist, en unnið er að þeim nú. Þegar ljóst varð að tafir yrðu á afgreiðslu tengiefnis, voru kannaðir möguleikar á loftlínu frá Krummahólum til bráðabirgða, en það reyndist ekki fært m.a. vegna umferðar stórra bíla og krana um svæðið. Að loknum tengingum á strengnum, sem væntanlega líkur í maímánuði, verður komið upp bráðabirgðalögnum inn á svæðið og þeim dreift þar sem því verður við komið, t.d. í Spóahðla 12 og önnur hús þar í nágrenninu. Fyrirhugað er að leggja varanlegt dreifikerfi í jörð í sumar samfara lögnum Rafmagnsveitu Reykjavík- ur“. Virðingarfyllst, Línu- og áætlanadeild, K. Einarsson, tæknifræðingur. Suður S. ÁG H. D975 T. 3 L. ÁKG974 Algengur lokasamningur var þrjú grönd í suður eftir þriggja tíglaopnun norðurs. Og eftir að út kom lauf var ekki sigurvænlegt að fría tígullitinn. Margir bundu vonir sínar við laufið. En lægi það ekki verr en 4—2 voru 8 slagir fyrir hendi og þann níunda mátti fá á hjarta. En austur tók hjartakónginn með ás og skipti í spaða. Og eftir það voru 7 slagir hámarkið. En ungur ísraeli reyndi blekki- spilamennsku, sem tókst. Hann spilaði spaða frá borðinu í 2. slag og af hendinni lét hann gosann. Og eins og við mátti búast skipti vestur í hjarta, kóngur og ás. Hjartagosann tók suður og spilaði laufunum. Vestur fékk á tíuna og var þá ekki í öfundsverðri stöðu. Sagnhafi hafði blekkt hann með spaðasvíningunni og lá því beint við að spila aftur hjarta. Nían á hendi sagnhafa var þar með orðin að lykilspili. Sagnhafi vann þannig sitt spil. Fékk fimm slagi á lauf, tvo' á hjarta og'ásana í tígii og spaða. MAÐURINN A BEKKNUM 21 Framhaldssaya eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaói farinn að finna til velvilja í garð Thourets heitins sem hann haföi þó aðeins séð látinn með undrun á dánu andlitinu. — Hvernig var viðskilnaður ykkar? — Ég fékk á tilfimíinguna að einhver væri í grenndinni sem gæfi hr. Louis merki. — Var það karlmaður? — Já, á miðjum aldri. — Getið þér lýst honum? — Nei, hann var svona eins og þessir menn sem sitja á bekkjum um hábjartan dag. Loks settist hann hjá okkur en hann sagði ekki orð. Svo fór ég. Og þegar ég leit við sá ég að þeir voru farnir að tala saman. — Virtust þeir tala saman í vinsemd? — Ég ggt ekki séð annað. betta var allt og sumt. Maigret hafði gengið niður alle stigana og veít því fyrir sér hvort hann ætti að fara heim og hafði svo að lokum ákveðið að borða í sínum venjulega krók á Brasserie Dauphnine. Veðrið var grátt í gráu og Signa var iitlaus. Hann íékk sér annað calvadoglas með kaffinu og fór svo til skrifstof- unnar þar sem bréfa- og skjala- stafli beið hans. Andartaki eftir komu hans hringdi Comeliau dómari. — Hvaða skoðun hafið þér á þessu máli Louis Thouret? Saksóknarinn lét málið í hend- ur mér í morgun og sagði að þér önnuðust rannsókn þess. Er þetta bara eitt af þessum leiðindamálum sem alltaf eru að koma upp þarna f hverfinu? Maigret gaf frá sér eitthvað óák.cðið hljóð sem gat bæði þýtt já og nei. — Fjölskyidan óskar eftir því að fá líkið afhent en ég vildi ekki gera neitt í málinu fyrr en ég hefði ráðfært mig við yður. Þurfio þér á því að halda? — Er Paul læknir búinn að kryfja hann? — Já, hann hringdi áðan og gaf mér munnlega skýrslu og sendir mér síðan skriflega skýrslu. Hnífurinn hefur geng- ið inn í hjartað og maðurinn hefur dáið samstundis. — Og engin merki um átök eða áflog.? — Nei, alis engin. — Þá sé ég ekkert sem mælir gegn því að fjölskyldan fái líkið. En þó vildi ég óska eftir því að fötin hans verði send í rannsóknarstofuna. — Ágætt. Og svo látið þér mig vita um gang mála. Það var óvenjulegt að Come- liau dómari væri svona sam- vinnuþýður og notalegur. Kannski var það vegna þess að blöðin höfðu varla minnst á málið og hann bjóst því við að þetta væri hversdagsiegt fyller- fsmorö sem enginn hcíði áhuga á. Maigret skaraði f ofninn og fékk sér f pfpu og næsta klukkutfmann sökkti hann sér ofan í skjalalestur. gerði at- hugasemdir út á spássfur, hringdi nokkrum sinnum og ekkert sérstakt bar til. — Má ég koma inn hús- hóndi? bað var Santoni, puntaður eins og venjulega og angaði langar leiðir af kölnarvatni svo að starfsbræður hans gátu stundum ekki orða hundizt. — Þú angar eins og gleði- kona. Santoni skalf af æsingi. — Ég held ég hafi fundið spor, tilkynnti hann. Án þcss að sýna nein merki um viðhrögð horfði Maigret á hann hálfluktum augum. — Ég verð fyrst að segja ykkur að þcssi verzlun sem dóttirin vinnur í heitir Geber og Bachelier. Verulegur hluti af því starfi sem þar fer fram felst f alls konar innheimtu- störfum. Fröken Thouret er aðeins á skrifstofunni fyrir hádcgið en sfðdegis fer hún í innheimtuferð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.