Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 39
I MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 39 Erlendur Björnsson Vatnsleysu - Minning „Mínir vinir fara fjöld, Eg kem á eftir. kannske f kvöld." Þögnin og treginn minna á þetta stef, þegar gamall og góður samferðamaður hefir runnið sitt æviskeið og horfið yfir mörkin sem liggja á milli lifenda og dauðra. „Dáinn, horfinn." Minningin lifir, slóðin er rakin, þar sem markar til spora. Þannig lifir maðurinn áfram í verkum sínum. Erlendur Björnsson var fæddur 21. júlí 1899 og dáinn 15. febrúar s.l. Faðir Erlends var Björn Bjarn- arson oddviti og síðar hreppstjóri á Brekku í Biskupstungum. Björn á Brekku. Svo var hann jafnan kenndur við þennan stað. Foreldr- ar hans voru Björn Guðmundsson og Margrét Grímsdóttir frá Borg- arholti. Björn Bjarnarson var fæddur árið 1864. Hann var jafnan heima hjá foreldrum sínum. Á yngri árum lærði hann bókband í Reykjavík, jafnframt aflaði hann sér fræðslu eftir því sem föng voru til. Varð honum vel til vina og þótti mönnum gott að eiga kynni við hann. Nokkra tilsögn fékk hann í að leika á orgel. Björn tók við búi eftir föður sinn árið 1887. Kona Björns var Jó- hanna Jónsdóttir, Þorbjarnarson- ar, Jónssonar frá Bíldsfelli og Katrínar Björnsdóttur frá Þúfu í Ölvesi. Móðir Jóhönnu var Val- gerður Jónsdóttir frá Skarði í Gnúpverjahreppi. Björn og Jóhanna áttu ekki börn saman. Björn átti tvö börn Erlend og Þóru. Móðir Erlends var Guðrún Erlendsdóttir frá Arnar- holti. Móðir Þóru var Guðrún Jónsdóttir, Jónssonar frá Múla. Þóra býr í Reykjavík, gift Karli Magnússyni, bifreiðastjóra. Björn á Brekku var góðum kostum búinn. Fróðleiksfús, fé- lagslyndur, jafnan glaður og hress í öllu dagfari. Hvar sem hann kom var honum vel fagnað. Hann var söngvinn, mikill raddmaður og hafði einkar djúpa bassarödd. Björn var snemma kvaddur til starfa fyrir sveit sína, lengst af oddviti og síðar einnig hreppstjóri. Þótti hann leysa öll þau störf vel af hendi. Jóhanna á Brekku var virðuleg kona og sviphrein, kurteis og hlýleg í viðmóti, fjölhæf til allra verka og söngelsk sem bóndi hennar. Þessi hjón virtu hvort annað að verðleikum og áttu gott samstarf um að byggja upp heimili sem var til fyrirmyndar í sveitum. Gestum var vel fagnað og oft tekið lagið. Þótt húsakosturinn væri þröngur var oft margt fólk til heimilis. Börn voru þar til fóst.urs á ýmsum aldri, bæði skyld og vandalaus. Þetta fólk sem hafði dvalið á Brekku, bar jafnan þakkarhug til Brekkuhjónanna. Góð heimili eru stoðir þjóðfélags- ins, sem geta veitt æskunni drjúgt og gott veganesti, þegar hleypt er heimdraganum. Erlendur ólst upp hjá föður sínum og konu hans Jóhönnu, sem tók sveininn að sér með ástríki, sem væri hann hennar eigin sonur. Erlendur var löngum heima og gekk að starfi, eftir því sem honum óx þroski til. Hann var röskur verkamaður og fylgdi því fast eftir er hann vildi fram- kvæma. Hann var góður ferða- maður og átti einatt góða hesta. Brekka var fremur rýr bújörð, lélegt útengi en gott beitiland. Langt var til aðdrátta héðan úr Biskupstungum. Lestarferð til Reykjavíkur tók jafnan 6 daga, skreiðarferð til Grindavíkur 8 daga. Erlendur tók snemma þátt í þessum lestarferðum. „Oft var þungt í þessum ferðum" sagði Erlendur, „en það var samt gaman að fara þetta". Erlendur naut ekki annarrar skólagöngu en farskóla fyrir ferm- ingu. í lífsreynslu og samstarfi með öðrum mönnum, efldist hann til þeirra verka, sem hann var kjörinn til að leysa af hendi. Brást hann ekki þeim trúnaði. Snemma gerðist Erlendur starf- andi félagi í Ungmennafélagi Biskupstungna. Reyndist hann brátt góður liðsmaður, félagslynd- ur, söngmaður góður, sem faðir Arnmundur Gísla- son - Minningarorð í dag verður tii moldar borinn frá Akranesskirkju Arnmundur Gíslason. Hann lést í Sjúkrahúsi Akraness 10. apríl s.l. 88 ára að aldri. Arnmundur var fæddur 3. mars 1890 að Felli á Langanesströnd. Foreldrar hans voru hjónin Gísli Árnason ættaður úr Eyjafirði og Sveinbjörg Davíðsdóttir ættuð úr Vopnafirði. Gísli og Sveinbjörg eignuðust 11 börn. Af þeim komust 7 til fullorðins ára, en 4 dóu ung. Þegar Arnmundur var 11 ára dó faðir hans úr lungnabólgu. Arn- mundur var næstyngstur systkin- anna og fluttist með móður sinni að Þorvaldsstöðum á Langanesi til Guðríðar systur Gísla. Þar voru þau í eitt ár, en fluttust þá að Djúpalæk til Einars og Sigurlaug- ar er þar bjuggu og voru þar í þrjú ár. Ekki varð veran á Djúpalæk lengri, því að þar dó Sveinbjörg móðir Arnmundar, var hann þá 15 ára að aldri. Frá Djúpalæk lá leiðin að prestsetrinu að Skeggjastöðum á Langanesi, þar sem hann naut í ríkum mæli kennslu hjá séra Ingvari Nikulássyni er þar var prestur. I kvæði sínu Æruþrís, sem Örn Arnarson æskuvinur Arnmundar orti um hann, segir svo: Fór hann nú ( fræðaleitir, fluKlæa varó & akrift »k prent enda harst þaú út um sveitir, * að enKÍnn K»'ti honum meira kennt. því hann kynni allt. sem er ok heitir, ensku. dönsku ok fótamennt. Hugur Arnmundar stóð tjl mennta og hann settist I Verslua- arskóla íslands og lauk þaðan námi eftir tvo vetur með mjög góðum vitnisburði. Til Akraness fluttist Arnmundur árið 1920. Stundaði hann þar verslunarstörf um 10 ára skeið. Verslun átti erfitt uppdráttar á þeim árum og margir urðu að leggja niður verslunar- rekstur er heimskreppan skall yfir eftir 1930. Þegar Síldar- og fiskmjölsverk- smiðja Akraness var sett á stofn árið 1936, gerðist Arnmundur þar starfsmaður og var þar um 20 ára skeið. Félagsmál lét hann sig miklu skipta og var hann einn af stofnendum Verkalýðsfélags Akraness og ritari þess um margra ára skeið. Hann var einnig fulltrúi þess á mörgum Alþýðu- sambandsþingum. Endurskoðandi Kaupfélags Suður-Borgfirðinga var hann í áraraðir. Árið 1921, 23. desember, kvænt- ist Arnmundur eftirlifandi konu sinni, Ingiríði Sigurðardóttur frá Hlíðarenda á Akranesi, var hún áður gift Jóhannesi Jónssyni ættuðum frá Vopnafirði, en hann lést úr spönsku veikinni 1918. Áttu þau saman eina dóttur, Jófríði, sem Arnmundur gekk í föðurstað. Arnmundur og Ingiríður eignuðust 4 börn. Þau eru Jóhanna gift Halldóri Backman, Sigurður kvæntur Valgerði Þórólfsdóttur, Sveinbjörg gift Geirlaugi Árna- syni og Arnfríður gift Jónasi Gíslasyni. Með Arnmundi Gíslasyni er horfinn af sjónarsviðinu mikill S A&BMILIkií« « C hans og ótrauður til aðstoðar þegar leitað var til hans. Félagið var vel starfandi og lét sig varða öll menningarmál sveitarinnar og hraut mörgu í framkvæmd, enda jafnan undir góðri forystu. Ung- mennafélögin hafa verið einskonar þjóðskóli, sem fræddi og glæddi hugsjón til verka fyrir land og lýð. Björn faðir Erlends dó árið 1920, stóð hann þá fyrir búi með stjúpmóður sinni til ársins 1922. Tók hann við búinu að fullu sama ár. Þann 18. nóv. 1922, kvæntist hann Kristínu Sigurðardóttur frá Vatnsleysu og sama dag gengu í hjónaband Þorsteinn bróðir Kristínar og Ágústa Jónsdóttir og hófu búskap á Vatnsleysu. Erlendur og Kristín hófu búskap á Brekku, en árið 1927 flytja þau að Vatnsleysu og taka til ábúðar vesturhluta jarðarinnar. Á þessum árum var fjárhagur víða þröngur og ótryggt um afkomu alla og framkvæmdir. Þá var mörgum frumbýlingnum þungt fyrir fæði og allir búskapar- hættir frumstæðir. Það voru krepputímar. Ég ætla þó að ungu hjónin á Brekku hafi horft vonglöð til framtíðarinnar. Þau áttu sér Guðstrú, eigin vilja og þrótt, fagra sveit og gott fólk. Innra með þeim bjó vorið með söngvaklið. Jafnræði var með þeim hjónum, gjörvuleg að allri gerð, bæði komin frá rausnarheimilum og höfðu hlotið góðar ættarfylgjur í vöggugjöf. Brátt hlóðust ýmis störf á Erlend vegna hreppfélagsins. Hann var hreppstjóri Biskups- tungnahrepps í full 40 ár, jafnan mannkostamaður. Hann hlaut í vöggugjöf góðar gáfur, óvenju gott skap og hlýtt viðmót. Hann var að eðlisfari hlédrægur og lítið fyrir að vera í sviðsljósinu. Orðvar var hann svo af bar og tók ævinlega málstað þess sem hallaö var á. Heiðarleiki hans var rómaður af öllum sem samskipti áttu við hann. Á sínum yngri árum fékkst hann við að yrkja. í litlu kveri sem hann gaf út, yrkir hann um móður sína á þessa leið: Man ók þá tíð. er mór sem barni hlúði, múðurhönd blíð ok þerði amatár, hvert sinn. er ók í faðminn hlýja flúði. fann ók þá hvíld. er Kræddi öll mín sár. Aldrei ég Kleymi orðum kærrar múður. eða hve blítt og vel hún að mór lót, orðunum þeim að vera vænn ok KÖður, ok varast að Kanna siðspillinKarfet. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir þau góðu kynni er ég hafði af Arnmundi um margra ára skeið og það sem hann gerði fyrir mig og mína fjölskyldu filessuð sé minning hans. G.Á. starfað í hreppsnefnd og skatta- nefnd og í sýslunefnd hafði hann átt sæti um árabil. Öll þessi störf rækti hann af trúmennsku. Sjálfur var Erlendur hlédrægur, en vann sér traust og mannhylli. Þau hjón eignuðust fimm börn. Ein dóttir þeirra, Jóhanna dó á öðru ári. Þau, sem lifa eru: Björn, bóndi í Skálholti, kvænt- ur Ingunni Maríu Eiríksdóttur, Sigurður, bóndi á Vatnsleysu, kvæntur Jónu Þuríði Ólafsdóttur, Magnús Gunnar, skrifst.m. kvænt- ur Þóru Katrínu Kolbeins, Inga Sigurlaug, gift Hjálmari Tómas- syni. Árið 1974 andaðist Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu, sama ár andaðist Kristín systir hans, kona Erlends. Úr stuttri blaðagrein um Þorstein, vil ég nú endurtaka nokkrar setningar: „Þau Erlendur og Kristín hófu búskap samtímis Þorsteini og Ágústu og bjuggu í sambýli við þau. Þessi heimili uxu og döfnuðu með líkum hætti að myndarbrag, fjölskyldur stórar og vænlegt fólk. Kristín var mikilhæf kona og bar vel tignarheiti ís- lenzkra húsmæðra, húsfreyja. Má segja að þau systkini hafi fylgst að alla ævi og hefir nú skarðað í frændgarð fólksins á Vatnsleys- um.“ Enn er vegið í sama knérunn. En stofninn er stór og limríkur. Sambýli þessa frændfólks var og er til fyrirmyndar, sem nær yfir hálfrar aldar bil. Á þessum heimilum ríkti söng- gleði, bæði foreldrar og börn voru gott söngfólk. Erlendur var söngvinn, sem faðir hans. Hafði hann ungur lært að leika á orgel. Var hann lengi aðal orgelleikari sveitarinnar við kirkjulegar at- hafnir og þó alveg sérstaklega við sóknarkirkju sína að Torfastöðum. Framan af ævi, naut Erlendur góðrar heilsu, en síðastliðið ár varð hann að þola mikla raun, vegna sjúkleika, sem hann bar með karlmennsku og geðró. Skyndilega varð að flytjá hann á sjúkrahús og tekinn var af honum annar fóturinn fyrir ofan hné. Samtímis og Erlendur var fluttur á sjúkrahúsið, varð það slys hér í sveitinni að ungur bóndi, Jón Sigurðsson í Úthlíð, varð undir heystæðu og lá við banaslysi. Var hann fluttur á sjúkrahús mjög lamaður og illa haldinn. Eftir nokkurn tíma kom ég til Reykjavíkur og heimsótti þessa sveitunga mína á sjúkrahúsum. Það lá við að ég væri með nokkurn geig eða kvíða að mæta þessum vinum mínum er dæmdir voru til svo þungra örlaga. Ég leit til Erlends. Hann tók vel kveðju minni að vanda, brosti við mér og spurði frétta úr sveitinni. Um hagi sína sagði hann allt í lagi. „Gerfifóturinn er í smíðum og svo þjálfa ég mig til gangs.“ „Einn er hann sér um sefa.“ Þá hvarf ég til Jóns í Úthlíð, þar sem hann lá í rúmi sínu á bakinu, lamaður á fótum að mitti og máttlítill í höndum. Hafði hann legið þannig dögum saman og gat sig ekki hreyft. Hann var sem Erlendur hress í bragði, orðglaður og viljasterkur, í von um bata og geta þá með nokkrum hætti gengið til þjónustu við lífið sjálft. Þessi heimsókn er mér minnisstæð og sannaði hið fornkveðna „Kostaðu hugann að herða." I byrjun febrúar s.l. hitti ég Erlend heima á Vatnsleysu. Ætl- aði hann þá bráðlega að fara til Reykjavíkur til skoðunar. Nú hafði hann fengið hækju og gerfifót og gekk furðu greiðlega. *Ég dvaldi hjá honum drjúga stund og ræddum við margt saman, um liðna daga. Við sátum að kaffi- drykkju ásamt tengdadóttur Er- lends og sonardóttur á öðru ári. Ég sé út um gluggann að bíllinn er að koma sem ég ætla með heim. Við Erlendur göngum fram gólfið og hann segir: „Nú væri okkur erfitt um skíðagöngu eins og við lékum okkur að í gamla daga.„ “Þú varst mér fremri" sagði ég „stóðst brekkurnar alla leið, en ég féll í henni miðri." Nú kvaddi ég mæðg- urnar og Erlend kvaddi ég hinstu kveðju. Stofan var björt og hlý, rósin litla rjóð lék sér á stofugólfinu. Úti þaut þorrinn að norðan yfir fanna slóð og skóf mjöllina. Það hillir í vorjafndægrin. Erlendur var í hærra lagi á vöxt, herðabreiður, fremur grannholda, beinvaxinn og hinn vörpulegasti á yngri árum. Svipurinn festulegur, Framhald á bls. 30. Höfum kaupendur að eftirtöldum veröbréfum: Verötryggö spariskírteini ríkissjóös 15. apríl, 1978, 1967 1. flokkur 1967 2. flokkur 1968 1. flokkur 1068 2. flokkur 1969 1. flokkur 1070 1. flokkur 1970 2. flokkur 1971 1. flokkur 1972 1. flokkur 1972 2. flokkur 1973 1. flokkur A 1973 2. flokkur 1974 2. flokkur 1975 1. flokkur 1975 1. flokkur 1976 1. flokkur 1976 2. flokkur 1977 1. flokkur 1977 2. flokkur 1978 1. flokkur Nýtt útboð VEÐSKULDABRÉF* Kaupgengi Yfirgengi miðað við innlausnarverð pr. kr. 100.- Seðlabankans 2330.02 45.0% 2314.43 25.3% 2016.17 10.9% 1896.01 10.2% 1413.79 10.3% 1299.69 44.5% 948.82 10.4% 893.73 43.4% 778.89 10.5% 666.70 43.4% 512.50 473.69 329.01 268.99 205.28 194.32 157.80 146.55 122.76 100.00+ dagvextir Kaupgengi pr. kr. 100 - 1 ár Nafnvextir: 26% 79.— 2 ár Nafnvextir: 26% 70.— 3 ár Nafnvextir; 26% 64,— 'Miðað er viö auðseljanlega fasteign. Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: *) Miðað er við auðseljanlega fasteign. Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉFRÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100 - 1974 — E 1975 — G 1976 — H HLUTABRÉF: 246.31 (10% afföll) 171.57 (10% afföll) 166.16 (10% afföll) Flugleiðir hf Kauptilboð óskast PiÁnÞcmncnnpÉinc Í5inni>j hi>. VERÐBRÉFAMARKAÐUR Lækjargötu 12 —- R. (Iðnaðarbankahúsinu) Simi 20580. Opið frá kl 1 3.00 til 1 6.00 alla virka daga Bu j: K -£■- »5. A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.