Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 47 Margir úrslita- leikir í körfu- bolta um helgina UM HELGINA fara fram margir leikir í úrslitum íslandsmótsins í körfuknatt- leik í hinum ýmsu flokkum. Ber þar fyrst að nefna aukaúrslitaleik í mfl. kvenna milli KR og ÍS, en sá leikur verður í íþróttahús- inu í Njarðvík í dag, laugar- dag, kl. 15.00. Þessi lið urðu efst og jöfn í íslandsmótinu og það lið, sem sigrar í dag, verður því íslandsmeistari. Ogerningur er að spá um úrslit, en örugglega má búast við fjörugum og spennandi leik. A undan kvennaleiknum fer fram leikur í úrslitakeppni 2. flokks karla, en þar leika UMFN og Fram kl. 13.00. Á morgun. sunnudag. leika hór og Snæfell síðari leik sinn um sæti í úrvalsdeildinni. Leikurinn verður í íþróttahúsinu á Akra- nesi og hefst kl. 14.30. Þór sigraði í fyrri leiknum, 64.46, og telja verður þá mun sigurstranglegri í leiknum á morgun. Á undan þeirra leik eða kl. 13.00 leika UMFS og UMFN í 1. fl. Þá verða einnig tveir leikir í íþróttahúsi Hagaskólans á morgun. Kl. 13.30 leika í 1. flokki KR og ÍS og með sigri í þeim leik tryggir KR sér íslandsmeistara- titilinn. Kl. 15.00 leika síðan í 2. flokki Fram og UMFN. Þess má að lokum geta, að úrslit eru kunn í tveimur yngri flokkanna. ÍR varð íslandsmeist- ari í 2. flokki kvenna og Ilaukar urðu íslandsmeistarar í 4. flokki karla. TVEIR GÓÐIR — Pele og George Best brosa breitt til Ijósmyndarans á þessari mynd. sem tekin var í sérstöku kveðjuhófi fyrir Pele daginn. sem keppnin hófst í bandarísku knattspyrnunni fyrir nokkru. Pele er nú hættur að leika knattspyrnu eftir að hafa leikið í þrjú ár með New York Cosmos. Best er hins vegar enn í fullu fjöri og leikur með Los Angeles Aztecs. 28 keppendur á skíðamóti Eilífs í VETUR hefur skíðalyfta verið í gangi á vegum íþróttafélagsins Eilífs í Mývatnssveit. Ilún er staðsett í svokallaðri Háuhlíð rétt Við Barnaskólann í Reykjahlíð og hefur svæðið verið upplýst á kvöldin. Mikill f jöldi barna og unglinga hefur notfært sér lyftuna. í marsmánuði var haldið skfðanámskeið sem stóð f vikutíma. leiðbeinandi var Ilallgrímur Pálsson. Laugardaginn 1. apríl var haldið svigmót á vegum frjálsíþrótta- og skíðadeildar félagsins. Fór það fram við skíðalyftuna f Háuhlíð og var keppt í fimm flokkum. alls tóku 28 keppendur þátt í mótinu. Fjórir eldri flokkarnir kepptu i sömu braut. en yngri flokkurinn í styttri braut. Úrslit í tveimur umferðum samanlagt urðu sem hér segiri 16 ÁRA OG ELDRI STÍILKUR. GuðlauK Þorsteinsdóttir 13-15 ÁRA STÚLKUR. Sixurlaug Rögnvaldsdóttir Erla Sigfúsdóttir 13-15 ÁRA DRENGIR. Jóhannes Ófeigsson Þórarinn Jónsson Björn Þorláksson 11-12 ÁRA STÚLKIJR. Berglind Ásmundsdóttir Hulda Sigfúsdóttir Ingunn Guðbjörnsdóttir 11-12 ÁRA DRENGIR. Helgi Ófeigsson Sigmundur Sa’mundsson Halldór Þorsteinsson 62.6 39.0 9-10 ÁRA STÚLKUR. Dríla Arnþórsdóttir 63.1 110.0 Unnur Röxnvaldsdóttir 93.0 220,1 9-10 ÁRA DRENGIR. 38.2 40.9 62.1 Sturla Fanndal 39.1 Sighvatur Siftlússon 63.2 Árni Þorsteinsson 6-8 ÁRA STÚLKUR. 77.1 77.7 118.8 Heiðbjörtóieigsdóttir 53.8 180.6 6-8 ÁRA DRENGIR. Karl Sverrisson 20.6 36.8 Hilmar Áirústsson 59.5 38.2 Sölvi M&r Sveinsson 67.0 Meistararnir akveða leiki ÝMSAR hræringar eru í heimi hnefaleikamanna þessa dagana og í vikunni hafa báðir heims- meistararnir. Leon Spinks og Ken Norton, gert samninga um að verja titla sína — þó ekki hvor á móti öðrum. Norton ætlar að keppa við Larry Holmes 9. júní næstkomandi og fer keppni þeirra fram í Las Vegas. Það er WBC. sem telur Norton heimsmeistara, en hjá WBA er Spinks meistarinn. í fyrradag var skrifað undir samninga um að Spinks og Muhamed Ali berðust um heimsmeistaratitilinn f Detroit fyrir 15. september á þessu ári. Joe Frazier er enn meðal þeirra stærstu f heimi hnefaleikanna og þó hann hafi ekki verið mikið í fréttum í allri ókyrrð- inni að undanförnu þykir það þó fréttnæmt að Frazier skuli hafa venð lagður ínn á sjukra- hús í vikunni. Vegna þess varð að fresta leik. sem ákveðinn hafði verið á næstunni. Það er ekki oft sem Muhammed AIi er aðeins áhorfandi. en það fer ekki á milli mála að það er Spinks. sem hefur orðið á þessari mynd. Æfa tvisvar a dag fram að Polar Cup DAGANA 21.—23. aprfl n.k. verður Norðurlandamót í körfuknattleik — Polar Cup — haldið hér á landi. Polar Cup er hald.ið til skiptis á Norðurlöndunum fimm. Síðast var mótið háð í Danmörku. Mótið var haldið hérlendis árið 1968. íslendingar lentu þá í þriðja sæti á eftir Svíum og Finnum, sem sigruðu sínum leikjum með miklum stigamun. íslenska landsliðið, sem tekur þátt í keppninni nú, hefur æft mjög vel að undanförnu undir stjórn Helga Jóhannssonar landsliðsþjálfara. Þá mun bandarískur þjálfari, Denny Houston, koma til landsins í dag og taka við þjálfun liðsins, en hann mun ásamt Helga Jóhannssyni búa liðið undir keppnina síðustu dagana fyrir mótið. Denny Houston er aðstoðarþjálfari við University of Washington en fyrir þann skóla leikur Pétur Guðmundsson. Pétur er kominn heim fyrir all nokkru og hefur æft með landsliðinu. í tengslum við Polar Cup keppnina verður nú í fyrsta sinn haldið norrænt þjálfaranámskeið. Hverju Norðurlandanna er frjálst að senda fimm þjálfara til námskeiðsins. Þáð verður þó opið öllum íslenskum þjálfurum sem áhuga hafa. Einn leikmaður íslenska landsliðsins í Polar Cup 1968 leikur enn með liðinu. Er það hinn snjalli körfuknattleiksmaður Jón Sigurðsson. Morgunblað- ið spjallaði við Jón á æfingu landsliðsins fyrir skömmu og bað hann um álit hans á mótinu og hverjir væru möguleikar íslands. Jón sagði landsliðið tvímælalaust vera betra og jafnara en það hefur verið áður, og það væri að þakka þeim bandarísku þjálfurum og leikmönnum sem hér hafa dvalið að undanförnu, þeir hefðu verið mikil lyftistöng fyrir körfuknattleikinn og aukið áhuga áhorfenda. — Ég er bjartsýnn á að okkur takist að ná þriðja sæti í mótinu að þessu sinni, en þó verðum við að vara okkur á Norðmönnum því framfarir þeirra eru augljósar og þeir koma sterkir til þessa móts. Finna tel ég vera með sterkasta liðið í mótinu, þá verða Svíar einnig sterkir en við munum veita þessum liðum mikla keppni því að það er baráttuhugur í okkur. Við æfum tvisvar á dag síðustu dagana fyrir mótið, og ég hef trú á því að bandaríski þjálfarinn geri stóra hluti með okkur, sagði Jón að lokum. Jón Sigurðsson hefur leikið alls 55 landsleikina fyrir Islands hönd og tekur nú þátt í Polar Cup í fimmta skipti. , Hinn hávaxni leikmaður Pétur Guðmundsson (2.17) kom heim til að taka átt í mótinu og er þetta í fyrsta skipti sem Pétur tekur þátt í Polar Cup. Pétur, sem leikið hefur alls fimm landsleiki, sagðist vera mjög bjartsýnn. — Ef allir standa saman trúi ég því að við getum sigrað í mótinu, sagði Pétur. — Framfarirnar eru augljósar, tækni og hittni leikmanna hefur aukist, þannig að hæfileikarnir eru fyrir hendi. Pétur, sem dvalið hefur í Bandaríkjunum að undanförnu og leikið með University of Washing- ton, sagði, að mestur munur á körfuknattleik hér — og í Bandaríkjunum væri sá að grunnþjálfun þar væri betri og leikmenn réðu þar af leiðandi yfir meiri tækni og spiluðu mun hraðar en hér gerist. Pétur sagðist stefna að því í framtíðinni að komast í atvinnumennsku í körfuknattleik, eftir að háskólanámi hans lyki. Að lokum sagðist Pétur álíta Svía hættulegustu mótherjana í Polar Cup. —þr. Hugur í körfuknatt- leiksmönnum aö standa sig á Noröur- landamótinu um aöra helgi Norðmenn ráku lestina. Þeir töpuðu öllum Jón Sigurðsson á fullri ferð með knöttinn og að ( sjálfsögðu er hætta á ferðum. Pétur Guðmundsson gnæfir yfir mótherja sína er hann lyftir sér og reynir körfuskot. DOCHERTV KAUPl IR HILL AFTUR — ÞETTA eru mestu mistök. sem forráðamenn Manchester United hafa gert á sínum ferli, að undanskildum þeim mistök- um er þeir létu mig fara frá félaginu. sagði Tommy Doch- erty eftir að skrifað hafði verið undir sölu á Gordon Hill frá Manchester til Derby. Tommy Docherty keypti Hill frá Milí- wall árið 1975 fyrir 70 þúsund pund. en Docherty var þá stjóri hjá Man. Utd. Nú hefur Docherty keypt leikmanninn aftur og kaupverðið er 275 þúsund pund. Gordon Hill hefur skorað 18 mörk með Manchester í vetur og er markahæstur meðal leikmanna liðsins. en upp á síðkastið hefur hann ekki verið í náðinni hjá Sexton framkvæmdastjóra. í fyrrakvöld vann brasilíska landsliðið 2i0 sigur á Milan og skoruðu þeir Nunez og Dirceu mörkin. Brassarnir áttu mun meira í leiknum og hefðu getað skorað mun íleiri mörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.