Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Viðbrögð verka- lýðsforystu í Noregi Eins og rakið var í forystu- grein Morgunblaðsins í gær átti allsherjarverkfall að koma til framkvæmda í Noregi í gær, föstudag, þar sem samningar höfðu ekki tekizt um kaup og kjör milli verka- lýðssamtaka og vinnuveitenda þar í landi. Til þessa verkfalls kom þó ekki vegna þess, að ríkisstjórn Verkamanna- flokksins í Noregi greip inn í vinnudeiluna og ákvað að vísa henni til gerðardóms, sem úrskurða skal um kaup og kjör launþega í Noregi næstu 2 árin og er ekki hægt að áfrýja úrskurði gerðardómsins, sem jafngildir banni við verkföll- um. Á mælikvarða okkar Islend- inga er hér um mjög harkaleg- ar aðgerðir af hálfu stjórn- valda að ræða. Allir vita, að ef íslenzk ríkisstjórn hefði gripið til slíkra ráðstafana, mundi hljóð hafa heyrzt úr horni eins og raunin hefur á orðið, jafnvel þótt um mun veiga- minni aðgerðir hafi verið að ræða hér. Þess vegna er ákaflega fróðlegt fýrir okkur að sjá, hver viðbrögð verka- lýðssamtakanna í Noregi hafa orðið við þessum aðgerðum norsku ríkisstjórnarinnar. Um þær sagði Tor Halvor- sen, formaður norska alþýðu- sambandsins, eftir að ákvörð- un norsku stjórnarinnar hafði verið opinberlega tilkynnt: „Við höfum hlítt leikreglunum allt frá því að samningavið- ræður hófust og það munum við einnig gera nú. Um leið og málamiðlunarleiðin lokast er það skylda stjórnvalda og í samræmi við þá ábyrgð, sem valdið leggur þeim á herðar, að vega og meta rétt óháðra samtaka til að reka launabar- áttu sína á móti þeim þjóðfé- lagsvanda, sem af slíkri bar- áttu hlýzt. Enda þótt við séum í grundvallaratriðum á móti því, að kjarasamningar séu útkljáðir með gerðardómi, viðurkennum við þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar og munum fara eftir henni.“ Þessi afstaða formanns norska alþýðusambandsins er mjög eftirtektarverð og óneit- anlega stingur hún mjög í stúf við afstöðu verkalýðsleiðtoga hér til þess, þegar löglega kjörin stjórnvöld telja óhjá- kvæmilegt að grípa inn í gerð kjarasamninga með einum eða öðrum hætti. Ekki fer hjá því, að sú hugsun læðist að mörg- um, að okkur hefði farnazt betur, ef forystumönnum hagsmunaafla og stjórnvöld- um hefði auðnazt að ná betri samstöðu en raun hefur orðið á hér, sem frændum okkar í Noregi sýnist hins vegar reyn- ast auðvelt. Þá er og athyglisvert að sjá, hver viðbrögð stærsta dag- blaðs í Noregi, Aftenposten, sem styður borgaraflokkana, sem nú eru í stjórnarandstöðu, eru við ráðstöfunum jafnaðar- mannastjórnarinnar. Blaðið segir: „Þegar ríkisstjórnin sá, að sámningar tækjust ekki átti hún einskis annars úr- kosta og forsætisráðherra gerði grein fyrir því, að deilunni yrði vísað til gerðar- dóms. Með tilliti til hins alvarlega efnahagsástands í Noregi hefði það líka verið út í hött að láta 230 þús. launþega fara í verkfall, sem enginn hefði haft ávinning af.“ Blaðið lýsir yfir stuðningi við ákvörð- unríkisstjórnar Odvar Nordlis og segir, að þótt gerðardómur sé ekki góð lausn hafi ríkis- stjórnin ekki átt annarra kosta völ. Það segi sig sjálft, að þegar methár framleiðslu- kostnaður og gífurlegar er- lendar skuldir séu staðreynd, þá sé ekki hægt að steypa sér út í allsherjarverkfall, ef ætlunin sé að ná því marki að halda fullri atvinnu, auka samkeppnismöguleika á er- lendum markaði og stefna að stöðugleika í efnahagslífinu. Málgagn Verkamannaflokks- ins sjáífs, Arbeiterbladet, tek- ur í sama streng og segir í forystugrein, að með tilliti til baráttunnar fyrir því að halda fullri atvinnu í landinu sé nauðsynlegt að hafa tök á efnahagsmálum og það hefði verið ábyrgðarleysi að kasta landinu út í stór verkföll. Ríkisstjórnin hafi sýnt ábyrgð og viljafestu með því að vísa kjaradeilunni til gerðardóms eftir að samningaviðræður rofnuðu. I sjálfu sér er óþarfi að hafa fleiri orð um þessi viðbrögð verkalýðsforystu og blaða í Noregi við aðgerðum norsku ríkisstjórnarinnar. Aðgerðirn- ar og viðbrögðin skýra sig sjálf og svo getur hver og einn borið saman viðhorf manna í Noregi þegar erfiðleika ber að höndum og afstöðu manna hér. Vissuiega er gagnlegt fyrir okkur Islendinga að fylgjast með því, hvernig nágranna- þjóðir okkar halda á sínum málum og hverjum augum þær líta þessi vandamál og aðgerð- ir vegna þeirra. Það er gagn- legt fyrir okkur öll að líta í eigin barm og spyrja sjálfa okkur þeirrar spurningar, að hve miklu leyti vandi okkar sé heimatilbúinn vegna þess, að okkur gengur svo erfiðlega að standa saman, þegar á þarf að halda, vegna utanaðkomandi erfiðleika. „Finnst heillandi að mála manninn íumhverfi sínu” Gísli Sigurðsson list- málari opnar sýningu á 74 verkum í Norr- æna húsinu í dag GÍSLI Sigurðsson listmálari opnar mál- verkasýningu í Norræna húsinu í dag kl. 3 og mun sýning hans standa til 24. apríl kl. 2—10 daglega. Gísli sýnir alls 74 verk, 51 olíumálverk og 21 teikningu, ýmíst pensil- eða pennateikningar. Gísli sýndi — síðast fyrir 5 árum og pá einnig í Norræna húsinu, en pá sýndi hann helmingi færri myndir. „Þá voru viðfangsefnin flest úr lands- lagi,“ sagði Gísli, og í viötalsrabbi í Morgunblaðinu þá lét ég svo um mælt að Með Biskupstungnabændum í göngum og trússhestum peirra. landið sjálft hefði mest áhrif á mig. Það virðist hirts vegar hætt að hafa sömu áhrif og það sem hefur tekið við sem yrkisefni númer 1 er fólk. í flestöllum myndunum kemur fyrir fólk, ýmist ákveðnar persónur eða hugmyndir. Miklu oftar er þó um að ræða ákveöna persónuleika eða alls liðlega 20 manns í ámóta mörgum myndum. Mér finnst mjög heillandi að mála og sýna manninn í umhverfi sínu, eins og t.d. í myndinni af Braga Ásgeirssyni í vinnu- stofu sinni og skeifusmiðinn í smiðjunni. Þá verður myndin hvort tveggja í senn, portrett af manninum og umhverfis- stemmning. Ég hef einnig unnið dálítið eftir Ijóðum, t.d. Kopernikus eftir Ijóði Hannesar Péturssonar og nokkrar Eyjamyndir við Ijóð Óskars Aðalsteins og eins er máluð mynd við Ijóð Jóhanns Hjálmarssonar. Það má segja að það sé dálítill kapítuli út af fyrir sig á þessari sýningu að ég skyggnist um öxl til uppvaxtaráranna austur í Biskupstungum og reyni að draga fram andrúm þess tíma sem þá ríkti á árunum fyrir og um 1950. Þannig er t.d. mynd frá stríðsárunum og önnur sem heitir, Beðið eftir mjólkurbílnum, og einnig er mynd af Biskupstungnamönnum í göngum á þessum tíma þegar farið var með trússhesta. Myndirnar á þessari sýningu eru víðs vegar af landinu, fólk úr ýmsum áttum í umhverfi sínu og svo er farið út fyrir það einnig: Sumt af þessu fólki er komið inn í þennan myndheim í sambandi við blaða- mennskuna þar sem ég hef átt samskipti við þetta fólk fyrir Lesbók Morgunblaðs- ins.“ Gísli Sigurðsson viö málver 3,2% aukning flutninga Flugleiða: Farþegafjöldinn næi þúsund og jókst um í SKÝRSLUM forstjóra Flugleiða á aðalfundí félagsins á Loftleiðahótel- inu í gær komu fram eftirfarandi upplýsingar um rekstur, afkomu og starfsemi flugfélagsins árið 1977 og pá erfiðleika sem nú er við að etja bæði utanaðkomandi og innbyrðis. Flutningar 1977 Flutningar félaga Flugleiða, þ.e. Flugfélags íslands, Loftleiða og International Air Bahama námu á árinu 395,3 milljónum tonn-kílómetra og höfðu aukist 3.2% frá árinu 1976. Heildarflutningar árið 1977 jukust heldur meira en framboðin sæti og farrými og er þaö annað árið í röð sem slík aukning verður. Hleöslunýt- ing er því betri en síöastliðið ár og varð 71.4% árið 1977 en var 71.1% árið áður. Framleiösluaukningin varð hlutfallslega mest í leiguflugi, eða 34.8% og er þátttaka í pílagrímaflugi stærstur þáttur í þeirri aukningu. Heildarfarþegafjöldi flugfélaganna þriggja í áætlunarflugi varð 699,599 og hafði aukist um 5.1% frá árinu áður. Heildarfarþegafjöldi árið 1977 og skipting eftir mörkuðum er sem hér segir: Norður-Atlantshafsflug 239,816 farþegar, Evrópuflug 142,155, innanlandsflug 235,394, Bahamaflug 82,231 og leiguflug 62,799. Samtals flugu með þrem flugfélögum Flugieiða 762,395 far- þegar. Til skilgreiningar skal þess getið að með Norður-Atiantshafsflugi er átt við flug sem lýkur eða hefst í Bandaríkjunum; Evrópuflug er skil- 'greint sem flug sem hefst eða lýkur í Evrópu. Noröur-Atlants- hafsflug Lítilsháttar samdráttur varð í framleiðslu og flutningum á þessum leiöum síöastliöiö ár og er það vegna síharðnandi samkeppni á flugleiðum yfir Norður-Atlantshaf. Framboðnum tonn-kílómetrum fækkaöi um 1.6% en seldum tonn-kílómetrum fækkaði minna, eða um 0.3%. Hleðslunýting er því betri en síðastliðið ár og varð 76.1% miðað við 75.1% árið áður. Vöruflutningar jukust hinsvegar mikið á þessum leiðum árið 1977, eða 36.8%. Vöruflutningarnir bæta að nokkru upp þá fækkun farþega sem urðu á þessum leiðum á árinu. Á síöastliönu ári ferðuðust 77% farþeganna um New York en 23% um Chicago og hefur hlutur flugleiðarinn- ar til og frá Chicago farið hraðvax- andi upp á síðkastið. Farþegafjöldi yfir Noröur-Atlantshaf var á síöast- liðnu ári 239,816 en voru 244,199 árið 1976 og er það 5.7% fækkun. Sætanýting síðastliðið ár var 74.4% en árið áður77.4%. Hlutur Loftleiöa á þessari flugleið var 2.8% árið 1977. Félagið varð hið 11. í röðinni mælt í fjölda farþega í reglubundnu far- þegaflugi. Evrópuflug Af einstökum mörkuðum í áætlun- arflugi milli landa varö mest aukning í Evrópuflugi árið 1977. Framboðnum tonn-kílómetrum fjölgaði um 14.9% en seldum tonn-kílómetrum fjölgaði hinsvegar um 12.2% og er því hleöslunýting í þessum þætti starf- seminnar heldur minni en árið áður. í vöruflutningum og póstflutningum varð hlutfallsleg aukning hvað mest en einnig f jölgaði farþegum í Evrópu- flugi verulega. Fluttir voru á Evrópu- leiðum 142,155 farþegar árið 1977 en voru 127,794 árið áöur og er aukning 11.2%. Á síöasta ári var hafið flug til Parísar og var flogiö þangað vikulega um hásumarið. Flugi til Dússeldorf, sem hófst 1976, var haldið áfram og í byrjun nóvember var hafiö flug til Gautaborgar en þangað hafði ekki verið flogið reglulegt áætlunarflug síðan 1973. Lent er á hinum nýja flugvelli Landvetter, sem tekinn var í notkun í október síðastliðnum. DC-8 þotur voru meira notaðar á Evrópuleiðum en árið áöur, aöallega til Kaup- mannahafnar, Glasgow, London og Frankfurt. Færeyja- og Grænlands- flug var með svipuðu sniði og árið 1976. Ferðum var fjölgað í Færeyja- flugi og jukust farþegaflutningar á þeirri leið. Innanlandsflug í innanlandsflugi jukust farþega- flutningar mjög mikið árið 1977 eftir að þrjú árin þar á undan haföi farþegatala svo til staðið í staö. Alls voru fluttir innanlands 235,394 far- þegar sem er 14.4% aukning frá árinu 1976. Þetta er í fyrsta sinn sem farþegafjöldi f innanlandsflugi Flug- félags íslands fer fram úr íbúafjölda landsins. Framboðnum tonn-kíló- metrum fjölgaöi um 10.7% en seldir tonn-kílómetrar voru 11% fleiri en árið áður. Hleöslunýting batnaði því aðeins og varð hún 59.5% á árinu. Sætanýting batnaði einnig frá fyrra ári og varð 65%. Samstarfi við Flugfélag Norðurlands var haldið áfram. Á árinu gerðust Flugleiðir eignaraðili að Flugfélagi Austurlands og var tekið upp samskonar samstarf um flug frá Egilsstöðum til einstakra staöa á Austurlandi. Þá var opnuö ný söluskrifstofa á Húsávík, en flug um Aöaldalsflugvöll hefur aukist mikiö að undanförnu. Bahamaflug Áframhaldandi aukning varð á flutningum Air Bahama á síðastliðnu ári. Framboðnir tonn-kílómetrar urðu 2.6% fleiri 1977 en árið áöur. Seldum tonn-kílómetrum fjölgaöi meir eða um 4% og var hleöslunýting 63.7% á móti 61.8% áriö áður. Fluttir voru í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.