Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978
SÍMAR
28810
24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
m
car rental
LOFTLEIDIR
T: 2 11 90 2 11 88
rodding
hojskole
(hí;{0
reddúig
Sumarskóli
maí — sept. <eftv. ágúst)
Vetrarskóli
rróv — apríl
Stundatafla send.
tu:04-841S 68(812)
Poul Bredsdorff
SKIPAÚTGCRÐ RÍKISINS
m/s Hekla
fer frá Reykjavík föstudaginn
21. þ.m. austdr um land til
Seyðisfjarðar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Vestmanna-
eyjar, Hornafjörð, Djúpavog,
Breiðdalsvík, Sföðvarfjörð, Fá-
skrúðsfjörð, Reyðarfjörð, Eski-
fjörð, Neskaupstað og Seyðis-
fjörð.
Móttaka alla virka daga nema
laugardag til 20. þ.m.
SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS
m/s Baldur
fer frá Reykjavík miðvikudaginn
19. þ.m. til Patreksfjarðar og
Breiðafjarðarhafna (og tekur
einnig vörur til Tálknafjarðar og
Bíldudals um Patreksfjörð).
Móttaka alla virka daga nema
laugardag til 18. þ.m.
SKIPAÚTGCRÐ RÍKISINS
m/s Esja
fer frá Reykjavík miðvikudaginn
19. þ.m. til ísafjarðar og tekur
vörur á eftirtaldar hafnir: Þing-
eyri, Flateyri, Súgandafjörð,
Bolungarvík og ísafjörð.
Móttaka alla virka daga nema
laugardag til 18. þ.m.
Utvarp Reykjavlk
L4UG4RD4GUR
LAUGARDAGUR
15. apríl
MORGUNNINN
7.00 Montunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10.
Morgunlcikfimi kl. 7.15 og
8.05.
Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Tilkynningar kl. 9.00. Lctt
lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15i
Krisfn Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
Barnatími kl. 11.00: Stjórn-
andi: Jónína Hafsteinsdótt-
ir. Fjailað um starfsemi
dýraverndunarfélaga o.fl.
Rætt við Jórunni Sörensen
formann Sambands dýra-
verndunarfélaga íslands og
Sigfríði Þórisdóttur dýra-
hjúkrunarkonu. Einnig Iesið
úr Dýraverndaranum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 Vikan framundan.
Ólafur Gaukur kynnir dag-
skrá útvarps og sjónvarps.
15.00 Miðdegistónleikar.
Edith Mathis syngur ljóð-
söngva eftir Wolfgang
Amadeus Mozart: Bernhard
Klee leikur með á píanó.
Julian Bream og strengja-
kvartettinn Cremona leika
Gítarkvartett í E-dúr op. 2
nr. 2 eftir Joseph Haydn.
15.40 íslenzkt mál.
Jón Aðalsteinn Jónsson
cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin.
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 Enskukennsla (On We
Go). Leiðbeinandi: Bjarni
Gunnarsson.
17.30 Leikrit fyrir börn: „Pési
pappírsstrákur“ eftir Her
dísi Egilsdóttur. Leikstjóri:
Kjuregej Alexandra. Persón-
ur og leikendur: Pappírs-
Pési/ Ester Elíasdóttir,
Maggi/ Eyþór Arnalds, Óli/
Kolbrún Kristjánsdóttir,
Gundi/ Guðmundur
Franklin Jónsson, Mummi/
Guðmundur Klemenzson,
ókunnugur strákur/ Jón
Magnússon, lögregluþjónn/
Guðríður Guðbjörnsdóttir,
skósmiður/ Róbert Arn-
finnsson, sögumaður/ Sig-
ríður Eyþórsdóttir.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Vcðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Læknir í þrem löndum.
Guðrún Guðlaugsdóttir ræð-
ir við Friðrik Einarsson dr.
med.i lokaþáttur.
20.00 Illjómskálamúsik.
Guðmundur Gilsson kynnir.
20.40 Ljóðaþáttur.
Umsjónarmaður: Jóhann
Hjálmarsson.
21.00 Píanókonsert nr. 1 í
e-moll eftir Frédéric Chopin.
Emil Giles og Fíladclfíu-
hljómsveitin leika( Eugene
Ormandy stjórnar.
21.40 Teboð.
Vísnagerð, — þjóðaríþrótt
íslendinga. Sigmar B.
Hauksson stjórnar þættin-
um.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
, 15. apríl 1978
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
17.45 Skíðaæfingar (L)
býskur myndaflokkur.
Tólfti þáttur. Þýðandi Ei-
ríkur Ilaraldsson.
18.15 On Wc Go
Enskukennsla. 22. þáttur
endursýndur.
18.30 Skýjum ofar (L)
Sænskur sjónvarpsmynda-
flokkur í sex þáttum um
þrjú börn, sem komast yfir
sérkennilega flugvél. Með
hjálp ímyndunaraflsins
geta þau flogið hvert sem
þau vilja.
2. þáttur. Flóttamaðurinn
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
19.00 Enska knattspyrnan (L)
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Augiýsingar og dagskrá
20.30 Á vorkvöldi (L)
Umsjónarmenn ólafur
Ragnarsson og Tage Amm-
endrup.
21.20 Fjórir dansar
Félagar úr íslenska dans-
flokknum sýna dansa við
tónlist eftir Asafiev, Tsjaí-
kovský, Katsjatúrían og
Spilverk þjóðanna.
Ballettmeistari Natalie
Konjus. Frá sýningu í Þjóð-
leikhúsinu í febrúar 1977.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
21.40 Afmælisveislan (L)
(The Birthday Party)
Bandarísk biómynd frá ár
inu 1969, byggð á sam-
nefndu leikriti eftir Ilarold
Pinter.
Leikstjóri William Fried-
kin. Aðalhlutverk Robert
Shaw, Dandy Nichols,
Patrick Magee og Sydney
Tafler.
Leikurinn gerist á sóðalegu
gistiheimili í Englandi. Mið-
aldra kona rekur heimilið
og hcfur einn leigjanda,
Stanley að nafni. Tveir
menn, sem virðast þckkja
Stanley, falast eftir her-
bergi.
Þýðandi Hcba Júlíusdóttir.
23.40 Dagskrárlok
Meðal efnis í ljóðaþætti
Jóhanns Hjálmarssonar í
útvarpi í kvöld er upplestur
Erlends Jónssonar úr
væntanlegri ljóðabók sinni,
„Fyrir stríö“. Ljóðabók
þessi mun koma út í haust
hjá Almenna bókafélaginu.
„Ljóðaþáttur“ hefst klukk-
an 20.40 og er 20 mínútna
langur.
Heldur er nú tekið að síga á seinni hluta
„Skíðaæfinganna“, en 12. þáttur þeirra verður
sýndur í dag. Hefjast þær að venju klukkan 17.45
og eru hálfrar klukkustundar langar.
Úr „Afmælisveizlunni“ - sem sjónvarpið sýnir í kvöld
klukkan 21.40.
„ Af mælisv eizla’ ’
Harolds Pinters
Síðast á dagskrá sjón-
varps í kvöld er bandaríska
kvikmyndin „Afmælisveizl-
an“ (the birthday party),
sem byggð er á samnefndu
leikriti eftir Harold Pinter.
Leikstjóri er William
Friedkin, en með helztu
hlutverk fara Robert Shaw,
Dandy Nicholas, Patrick
Magee og Syndey Tafler.
Sögusvið „Afmælisveizl-
unnar“ er sóðalegt gisti-
heimili í Englandi. Það er
rekið af miðaldra konu og
hefur hún einn leigjanda.
Tveir menn er virðast
þekkja leigjandann koma
að máli við konuna og vilja
fá leigt hjá henni herbergi.
„Afmælisveizlan“ hefur
verið sýnd hér á landi
tvívegis áður, í fyrra skipt-
ið í Kvikmyndaklúbbi
framhaldsskólanna fyrir
nokkrum árum og nú fyrir
stuttu var myndin sýnd í
einu af kvikmyndahúsum
borgarinnar.
Harold Pinter er einn af
þekktustu nútíma leikrita-
höfundum Bretlands. Hann
er fæddur árið 1930 í
Londoh. Snemma tók hann
ástfóstri við leiklistina og
upphaflega ætlaði hann sér
að verða leikari. Hann
skipti þó fljótlega um skoð-
un og samdi fyrstu leikrit
sín tæplega þrítugur að
aldri.
Meðal þekktustu verka
Pinters eru „Afmælisveizl-
an“, „Heimkoman" og
„Eftirlitsmaðurinn".