Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 17 Þingflokkur Alþýðubandalags: Nefnd um kosn- ingalög í þinglok ingum á stjórnarskrá og kosn- ingalögum. Ég óttast að frumvörp ein- stakra þingmanna um breyting- ar á stjórnarskránni og breyt- ingar á kosningalögunum geti frekar ýtt undir ágreining en stuðlað a,ð farsælli lausn þess- ara mikilvægu mála. Ég tel varhugaverðar þær hugmyndir að ætla án breytinga á stjórnar- skránni að gera þess konar tilfæringar sem hingað til hefur verið venja að láta fylgja stjórnarskrárbreytingum. Stjórnarskrárbreyting verður að vera samþykkt á tveimur þingum og almennar kosningar að hafa farið fram á milli. Þegar stjórnarskrárbreyting hefur verið gert, er varðar kjördæma- skipan og kosningarétt, hefur jafnan verið á fyrra þinginu gengið út frá ákveðnum breyt- ingum jafnframt á kosningalög- unum er varðar vægi atkvæða í einstökum kjördæmum. Þannig hefur þjóðin raunverulega átt þess kost að tjá sig um slíkar breytingar á kosningalögunum í þeim almennu kosningum sem verða að fara fram áður en stjórnarskrárbreyting er endan- lega samþykkt. Ef hins vegar breyting er nú gerð á kosninga- lögum er breytir vægi atkvæða án þess að það fylgi með stjórnarskrárbreytingu er kom- ið aftan að þjóðinni, því að málið er ekki borið undir hana í almennum kosningum, eins og áskilið er með stjórnarskrár- breytingu. Páll Pétursson. Misvægið ekki eins mikið og af er látið Páll Pétursson alþingismaður fyrir Norðurlandskjördæmi vestra sagðii „Þetta þing hefur verið ein- staklega upptekið af því að ræða kosningalög og hugsanlegar og framkvæmanlegar breytingar á þeim. Ég vil nefna umræður, sem Gylfi Þ. Gíslason hóf utan dagskrár í fyrstu þingvikunni í haust, frv. Jóns Skaftasonar um það, að kjósendur röðuðu sjálfir í kjörklefanum á framboðslista, en hann væri prentaður í stafrófsröð, Frv. Odds Ólafs- sonar um skiptingu Reykjanes- kjördæmis í 2 kjördæmi, frv. Ellert B. Schram, Jóhs Skafta- sonar, Guðmundar H. Garðars- sonar og Ólafs G. Einarssonar um að flytja uppbótarþingmenn til Reykjavíkur og frv. Jóns A. Héðinssonar um það, að þing- flokkar komist af án móður- skips. Ég er ekki ginnkeyptur fyrir skyndihugdettum um breytingar á kosningalögum, allra sízt ef þær eru með óðagotsblæ. Ég er varfærinn í því efni að ráðast í vanhugsaðar breytingar á kosningalöggjöf- inni. Raunar er það hláleg aðstaða fyrir mig að fara að verja þá kjördæmaskipan og þau kosningalög sem nú eru í gildi. Framhald á bls. 27 Þingílokkur Alþýðubandalagsins hefur sent frá sér eftirfarandi samþykkt. sem gerð var 12. apríl si. Nú þegar aðeins tvær til þrjár vikur eru eftir til þingslita virðist kapphlaup hafið í þingsölum um flutning frumvarpa til breytinga á kosningalögum í því skyni að rétta hlut Reykjavíkur- og Reykjanes- kjördæmis. Því miður virðist hér um sýndarmennsku að ræða, því að bersýnilega er vonlaust um af- greiðslu þessara mála fyrir þinglok. Mál þessi verður að undirbúa með viðræðum stjórnmálaflokkanna, en þau verða ekki leyst með tillögu- flutningi einstakra þingmanna. Auk þess eru frumvörp þessi með augljósum ágöllum, því að annað þeirra réttir ekki hlut Reykjanes- kjördæmis, sem augljóslega er þó verst sett, hvað þingmannafjölda varðar og gæti fremur orðið til að fækka þingmönnum úr þessu kjör- dæmi, en hitt frumvarpið myndi hins vegar valda vaxandi mismunun milli stjórnmálaflokka, hvað varðar atkvæði bak við hvern þingmann. Þingflokkur AB minnir á, að á öðrum degi þings á síðastliðnu hausti gaf forsætisráðherra yfirlýs- ingu þess efnis, að ríkisstjórnin myndi í vetur beita sér fyrir viðræðum flokkanna um hugsanleg- ar breytingar á kosningalögum. Við þetta fyrirheit var þó ekki staðið, og það var ekki fyrr en 7. apríl sl., að forystumenn stjórnarandstöðu- flokkanna voru boðaðir á stuttan fund um þessi mál til að staðfesta það, sem þá þegar blasti við ölium, að orðið væri um seinan að hyggja að verulegum breytingum á kosn- ingalögum á þessu þingi, þar sem framboðsundirbúningur væri nú of langt á veg kominn og hefði miðast við óbreytta löggjöf. Þingflokkur Alþýðubandalagsins minnir einnig á, að eitt fyrsta þingmálið á þessum vetri var tillaga nokkurra þingmanna flokksins um skipun nefndar til að undirbúa frumvarp um aukin rétt kjósenda til að hafa áhrif á, hvaða frambjóð- endur ná kosningu af þeim lista sem þeir kjósa. En tillaga þessi hefur legið óhreyfð í nefnd allan veturinn. Eins og nú er komið málum vill þingflokkur Alþýðubandalagsins skora á aðra stjórnmálaflokka á Alþingi að fallast á skipun nefndar nú í þinglok, til að fjalla um breytingar á kosningalöggjöfinni, svo að annað kjörtímabil líði ekki án þess að tekið sé á þessum málum á raunhæfan hátt, þar sem sýnt virðist, að stjórnarskrárnefnd er ekki líkleg til að hafa þar um forystu. F.h. þingflokks Alþýðubandalags- >ns, Ragnar Arnalds. Við byggðum 150m2 einbýlishús í Reykjavík á fjórum dögum! manudagui—| EKIÐ TIL REYKJAVÍKUR I-þriójudagui— AFHENDING EININGA pniðvikudagur UPPSETNING rfimmtudagun Húsið var afhent uppsett og frágengið til innréttingar, á 4 dögum tilbúió til innréttingar Gjörið svo vel.:.. skoðið kosti húseininga með eigin augum Einbýlishúsið að Steinaseli 1 Breiðholti LAUGARDAG 15.4: KL.14-22 SUNNUDAG 16.4: KL.14-22 SIGLUFIRÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.