Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 Jón I. Bjarnason: FÉLAG MATVÖRJJ- KA UPMANNA 50ARA Á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20., er þjóðin að endurheimta sjálfstaeði sitt. Mikil félagsleg vakning er í þjóðlífinu. Félagshyggja og félagsþroski fer vaxandi. Kaupmenn taka að gera sér ljóst, að verzlun byggist ekki eingöngu á innbyrðis samkeppni, heldur miklu frekar á framgangi sameiginlegra hagsmunamála, með samheldni og samstarfi. Um sama leyti fer smásöluverzlunin hér að þróast í ákveðnar sérgrein- ar, verzlanir sérhæfast. í fararbroddi í þessari þróun eru matvörukaupmenn tvímælalaust, og í dag þekkist varla annað en sérhæfðar verzlanir eða verzlunar- deildir, í matvöruverzluninni. Þessi þróun hefur tvímælalaust stuðlað mjög að bættum verzlunarháttum, þjónusta kaup- mannsins hefur aukist, hlutverk hans stækkað, en um leið hefur verzlunin haslað sér traustari og farsælli grundvöll. Árið 1928, sunnudag 15. apríl klukkan 10.00 fyrir hádegi, var almennur kaupmannafundur hald- inn í kaupþingssalnum hér í Reykjavík. Hafði fundurinn verið boðaður með hliðsjón af undir- skriftaskjali, sem gengið hafði meðal kaupmanna í Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta undirskrifta- skjal hljóðaði svo orðrétt: „Það hefur um langt skeið verið opinbert leyndarmál, að heildsalar og verksmiðjur þessa bæjar seldu vörur sínar beint til neytenda með sama verði og til okkar smásala. í þessu eiga þeir flestir, ef ekki allir, óskilið mál. Þrátt fyrir marg ítrekaðar umkvartanir einstakra smásala, virðist sú verzlun sífellt fara í vöxt. Á þennan hátt hefur verzlun stórlega verið dregin úr höndum vorum, og oss gert erfitt að halda heilbrigðu verði, þar sem almenn- ingur hefur vitað um verð heild- sála og átt greiðan aðgang að viðskiptum við þá. Sérstaklega eru það þó þeir menn, sem nokkur peningaráð hafa, — beztu viðskiptamennirnir, — sem vér þannig höfum misst. Það er augljóst mál, að um leið og vér erum sviptir efnuðustu viðskiptamönnunum, eru ástæður vorar, til heiðarlegra og skilvísra vðskipta við heildsala veiktar. Vér verðum því að krefjast þess mjög eindregið, að smásalar einir hafi í sínum höndum sölu til neytenda á þeim vörutegundum, sem þeir verzla með, en heildsalar og verksmiðjur selji eingöngu þeim kaupmönnum og kaupfélög- um, sem hafa verzlunarleyfi og opna sölubúð. Verði þessari sann- girniskröfu vorri ekki sinnt af einhverjum þeim heildsala eða verksmiðju, sem viðskipti hafa við oss, munum vér skoða það sem yfirlýsingu um það, að sá aðili kjósi fremur viðskipti sín við neytendur, en við okkur alla, sem undir þetta skrifum.“ Reykjavík í marz 1928. Undir þetta rituðu svo um það bil 115 smásalar í Reykjavík og Hafnarfirði. ólafur Jóhannesson setti fund- inn. Fundarstjóri var kjörinn Guðmundur Breiðfjörð. Fundarritari var kjörinn Jón Kristgeirsson. Málshefjandi var Ólafur Jóhannesson og hafði hann framsögu um málefnið, sem fyrir fundinum lá, — stofnun félags- skapar smásala í Reykjavík og grennd, til verndar stétt þeirra. I ræðu sinni benti Ólafur á brýna þörf slíks félagsskapar og rakti tilgang hans og takmark. Aðrir fundarmenn tóku í sama streng. Fundarstjóri bar fram svofellda tillögu: „Fundurinn samþykkir að vinna að stofnun félagsskapar til vernd- ar hagsmunum smásölukaup- manna og ályktar að kjósa fimm manna nefnd til að undirbúa stofnun félagsins og semja lög og stefnuskrá fyrir væntaniegt félag." Tillaga þessi var borin upp til atkvæða og var hún samþykkt samhljóða. Þá fór fram kosning undirbún- ingsnefndarinnar. Kjörnir voru: Guðmundur Jóhannsson, Magnús Kjaran, Ólaf- ur Jóhannesson, Sigurbjörn Þor- kelsson og Halldór R. Gunnarsson. Magnús Kjaran tók nú til máls. Mælti hann af mikilli mælsku og bar fram svofellda tillögu: „Legg til að bráðabirgðastjórninni sé falið að afgreiða undirskriftaskjal kaupmanna til heildsalanna á þann hátt, er hún álítur heppileg- ast.“ Magnús færði fram mörg rök með tillögu sinni og mælti sköru- lega, eins og segir orðrétt í fundargerðinni. Ekki voru allir á sama máli og Magnús og mæltu margir ræðu- menn á móti tillögu hans. Sigurð- ur Kristjánsson bar fram svofellda tillögu: „Fundurinn felur bráðabirgða- stjórninni að taka afstöðu gagn- vart heildsölum viðvíkjandi sölu til neytenda.“ Þessi tillaga var talin breyting- artillaga við tillögu Magnúsar Kjaran og var borin undir atkvæði fundarmanna, og var hún sam- þykkt með 15 atkvæðum gegn 8, en um 40 fundarmenn sátu hjá og greiddu ekki atkvæði. Fundar- stjóri úrskurðaði nú tillögu Magn- úsar Kjaran fallna og var hún ekki -borin upp til atkvæða. Fleira gerðist ekki á fundinum og var honum slitið. Næsti fundur, sem haldinn var, — stofnfundur, — var haldinn 13. maí kl. 10.00 f.h. í Kaupþingssaln- um. Til fundarins boðaði nefndin eða bráðabirgðastjórnin, sem kosin var á fundinum 15. apríl. Guðmundur Jóhannsson setti Tómas Jónsson fyrsti formaður Félags matvörukaupmanna. fundinn, en Guðmundur Ásbjörns- son kaupmaður og bæjárfulltrúi var nú fundarstjóri. Fundarritari var Jón Kristgeirsson. Guðmundur Jóhannsson skýrði frá störfum bráðabirgðastjórnarinnar, og las upp frumvarp að bráðabirgðalög- um fyrir félagið. Lögin kvað Guðmundur túlka eftirfarandi þrjú meginatriði: „1. Afstöðu kaupmanna gagn- vart hver öðrum. 2. Afstöðu þeirra gagnvart heildsölum. 3. Afstöðu þeirra gagnvart viðskiptamönnum út á við.“ Nú tók Magnús Kjaran til máls og skýrði frekar frá störfum bráðabirgðastjórnarinnar. Sagði hann frá því, að stjórnin hefði kosið þá Jes Zimsen og Tómas Jónsson sér til aðstoðar, en þeir voru þá elztu kaupmenn bæjarins, hvor í sinni grein. Var nú gengið til atkvæða um hvort stofna ætti félagið, og var félagsstofnun samþykkt sam- hljóða. Þá var tekið til umræðu laga- frumvarp bráðabirgðastjórnarinn- ar og var frumvarpið samþykkt samhljóða sem lög fyrir félagið. Lögin samanstanda af 9 greinum og hljóðar fyrsta gr. laganna svo: „Félagið heitir: Fjelag matvöru- kaupmanna." Önnur gr. laganna hljóðar svo: „Tilgangur fjelagsins er: Að vinna að menningu, sóma, hag og sjálfstæði stjettarinnar í hvívetna. Að uppræta hverskonar óráðvendni í viðskiptum, óskilvísi og óheilbrygða samkeppni." Nú kom fram tillaga um að fresta fundinum og fá sem flesta kaupmenn til þess að ganga í félagið og undirrita lög þess. Tillagan var samþykkt og fundin- um frestað. Var nú unnið af miklum krafti. Ólafur Jóhannesson fór um bæinn og fékk menn til að ganga í félagið. Á annað hundrað kaupmenn gengu í félagið og undirrituðu lög þess. Þar eru efstir á blaði þeir sem sæti áttu í undirbúningsnefndinni og bráðabirgðastjórninni. Næst var fundinum fram haldið á fyrirfram ákveðnum degi, 20. maí kl. 10.00 f.h. í Kaupþingssalnum. Fundarstjóri og fundarritari voru hinir sömu og áður. Á þessum fundi var fyrsta stjórn félagsins kosin og áttu sæti í henni: Tómas Jónsson formaður, Guðmundur Jóhannsson, Magnús Kjaran, Sigurbjörn Þorkelsson og Halldór R. Gunnarsson. Varamenn: Ólafur Jóhannesson, Guðmundur Breiðfjörð og Björn Jónsson. Nú var félagsstarfið hafið af fullum krafti. Á fyrsta starfsárinu eru haldnir 23 stjórnarfundir, 1 félagsráðsfundur og 9 félagsfund- ir, eða samtals 33 bókaðir fundir. Málefnin eru mörg og margvísleg. Á öðru starfsári félagsins voru haldnir 13 stjórnarfundir, 1 félagsráðsfundur og 12 félagsfund- ir, eða samtals 26 fundir. Þá var tekinn á leigu salur í Varðarhús- inu fyrir fundi félagsins 2. og 4. miðvikudag hvers mánaðar. Um- samið gjald í hvert sinn er 15 kr. og má fundurinn standa í 3 klukkutíma, eftir það greiðist 3 kr. pr. klukkustund fyrir húsið. Rætt er um, hvort selja eigi vanskila- mannalista félagsins til vefnaðar- vöruverzlana. Eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða á félags- fundi 13. febrúar 1929. „Fundurinn lítur svo á, að varhugavert sé að selja vanskila- lista matvörukaupmanna til ann- arra kaupmanna hér í bæ að svo komnu máli.“ Árið 1930 tekur félagið þátt í starfsemi Skattþegnasambandsins og á þar fulltrúa. Það á fultrúa á sambandsþingi Verzlunarmanna- félags íslands. Félagið skipar tvo menn í nefnd til að athuga lokunartíma verzlana á laugardögum yfir sumarmánuð- ina. Á fundi 4. apríl 1930 eru gerðar fjórar samþykktir um lokunartímamálið, síðan segir í fundargerðinni orðrétt: „Eftir allar þessar samþykktir, sem hver kom í andstöðu við aðra lýsti formaður þær markleysu eina og sagði fundinn ekki geta tekið afstöðu til málsins, var það síðan tekið út af dagskrá." Þannig hefur lokunartímamálið verið til umræðu í félaginu annað slagið í hartnær 50 ár. Kaffibrennslan Leifur heppni var stofnuð af félagsmönnum og starfaði í nokkur ár. Kaffið, sem hún framleiddi hét Leifskaffi. Rannsókn á kostnaði við smá- sölu í Reykjavík var framkvæmd á vegum félagsins, og á henni voru byggðar kröfur um hækkaða smá- söluálagningu. Eins og þetta sýnishorn af félagsstarfseminni fyrstu árin ber með sér, var hún þegar í upphafi framkvæmd af miklum dugnaði og markvissri festu. Enda náði félag- ið oft á tíðum mjög góðum árangri í ýmsum málum. Sem fyrr segir var Tómas Jónsson fyrsti formaður félagsins. Guðmundur Guðjónsson sat í félagsstjórninni í 25 ár, þar af í 20 ár sem formaður, eða lengur en nokkur annar. Sigurliði Kristjáns- son sat hins vegar lengst í félagsstjórninni, eða í 33 ár samfellt. Núverandi stjórn Félags Mat- vörukaupmanna skipa: Jónas Gunnarsson formaður, Ólafur Björnsson varaformaður, Jón Þór- arinsson ritari, Helgi Viktorsson gjaldkeri og Ingibjörn Hafsteins- son meðstjórnandi. Varamenn í stjórninni eru, Baldvin Eggerts- son, Bragi Kristjánsson og Örn Ingólfsson. Að jafnaði eru mörg mál á dagskrá stjórnarfunda og annarra funda í félaginu. Innan félagsins hafa fjölmargar nefndir starfað frá fyrstu tíð, en félagsmenn hafa jafnan verið reiðubúnir að leysa af hendi störf í þágu félagsins og stéttarinnar, eftir því sem þurft hefur hverju sinni. Þau mál, sem hæst hefur borið í félagsstarfinu frá byrjun, eru vafalaust verðlagsmálin og barátt- an fyrir frjálsri og haftalausri verzlun í landinu. Matvörukaupmenn hafa ætíð sýnt mikinn félagslegan þroska, enda er félag þeirra í fararbroddi innan Kaupmannasamtaka ís- lands. Félag matvörukaupmanna er eitt af þeim kaupmannafélögum, sem stofnuðu Kaupmannasamtök- in, og það er stærsta og öflugasta félagið innan vébanda þeirra. Sá árangur, sem félagið hefur náð með starfi sínu, verður ekki mældur eða metinn hér, en ég hygg að flestir kaupmenn séu sammála um það, að án félagsins væri nærri því óhugsandi að reka matvöruverzlun eins og aðstæður í þjóðfélagi okkar eru nú. Ég árna félaginu heilla við 50 ára áfangann, og ég er þess fullviss að félagið mun áfram starfa af festu og dugnaði í þágu smásöluverzlunarinnar í landinu og hagsmunamálum kaupmanna í anda stofnendanna og undir kjör- orði Kaupmannasamtaka íslands: Eining er afl. Stjórn Félags matvörukaupmannai Frá vinstri Baldvin Eggertsson, Jón Þórarinsson, Ólafur Björnsson, Jónas Gunnarsson, formaður, Ingibjörn Hafsteinsson, Helgi Viktorsson, Bragi Kristjánsson. Á myndina vantar Örn Ingólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.