Morgunblaðið - 15.04.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978
23
Michela Marconi (á myndinni miðri), sautján ára gömul ítölsk stúlka, sést her með foreldrum sínum
eftir að hún hafði verið frelsuð úr haldi hjá mannræningjum sem höfðu haldið henni nauðugri í fjörutíu
daga. Itölsk þjóðvarðarsveit brauzt inn í hús og bjargaði henni eftir að lögreglumenn höfðu tekið höndum
tvo menn sem voru að reyna að nálgast lausnargjald að upphæð 270 milljónir líra sem þeir höfðu krafizt
fyrir stúlkuna.
Skotland:
GUskow. 14. apr. Reuter.
VERKAMANNAFLOKKURINN
náði í dag beztum árangri í
aukakosningum í fjögur ár og
flokkur skozkra þjóðernissinna
beið ámóta mikinn ósigur. í
aukakosningum í Carscadden-
kjördæmi í Glasgow fékk fram-
bjóðandi Verkamannaflokksins
verulegt fylgi framyfir frambjóð-
anda Skozka þjóðernissinna-
flokksins, og komu þau úrslit
mjög á óvart enda hafði komið
fram í skoðanakönnunum að allt
benti til sigurs skozkra þjóðernis-
sinna. Eru úrslitin túikuð sem
meiriháttar áfall fyrir þann
máistað skozkra þjóðernissinna
að krefjast sjálfstæðis frá Bretum
og hin mesta traustsyfirlýsing við
James Callaghan.
Frambjóðandi Verkamanna-
flokksins, sem heitir Donald De-
war, fékk fimm þúsund fleiri
atkvæði en Keith Bovey frá
skozkum j)jóðernissinnum. Fram-
bjóðandi Ihaldsflokksins, Ian Law-
son, fékk síðan um fimm þúsund
færri atkvæði en frambjóðandi
þjóðernissinna. Þetta eru fyrstu
aukakosningar í Skotlandi síðan á
árinu 1974. Verkamannaflokkur-
inn hefur átt þingmann kjördæm-
isins en eftir lát fráfarandi
fulltrúa þess var búizt við að
skozkir þjóðernissinnar ynnu auð-
veldan sigur.
Voyager 2” læt-
ur aftur að stjórn
Shevchenko
skrifar bók
SamcinuAu þjóðunum. 14. apríl. AP.
ARKADY Shevchenko, fráfar-
andi áðstoðarframkvæmda-
stjóri S.Þ., sem hefur vakið
ólgu meðal sovézkra landa
sinna vegna þess hann neitar
að vinna frekar fyrir Sovétrík-
in og neitar að snúa heim,
hefur unnið að bók sfðustu
þrjú árin án þess hátt færi.
Gerði hann samning við
Knoph útgáfufyrirtæki í New
York cn ckki hefur verið sagt
um hvað bókin fjallar.
Shevchenko mun hafa dvalið
uppi í fjöllum í Pennsylvaniu
síðustu daga en hann fór í felur
hinn 5. apríl. Hann bíður eftir
því að fá tækifæri til að hitta
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna en
hann er nú á förum um
Evrópulönd og Miðausturlönd.
Meðal sovézku starfsmann-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
hefur afstaða Shevchenka vakið
mikla gremju og hefur því verið
komið á kreik að hann hafi átt
í erfiðleikum, m.a. vegna þess
hversu veikur hann væri fyrir
víni og vífum, og hefði hann
engan veginn staðið í stykkinu
sem aðstoðarframkvæmda-
stjóri S.Þ. Samstarfsmenn
hans staðhæfa hins vegar að
þeir hafi aldrei séð yfirmann
sinn undir áhrifum áfengis og
hann hafi sinnt starfi sínu af
mikilli álúð og samvizkusemi.
Pasadcna. Kaliforníu
14. aprfl. AP. Rcutcr.
VÍSINDAMÖNNUM við geim-
rannsóknastöðina í Pasadena
tókst í dag að koma boðum tii
rannsóknatækja í geimfarinu
„Voyager 2“, eftir að það hafði
mistekizt í viku. „Voyager 2“ er
nú á leið til Júpíters og Satúrnus-
ar og var geimskipið í 472 milljón
kílómetra fjarlægð frá jörðu er
heppnaðist að koma boðunum til
þess.
Bilun í aðalrannsóknatækjum
geimfarsins fyrir nokkrum dögum
olli því að ekki reyndist mögulegt
að senda boð til tölvna um borð í
farinu. Geimfarið er þannig útbúið
að verði bilun í tækjum þess, fara
KNUTFOLKERTS
hættir við áfrýjun
Amstcrdam 14. aprfl. Rcutcr
Hryðjuverkamaðurinn Knut
Folkerts dró í dag til baka
áfrýjunarbeiðni vegna tuttugu
ára fangelsisdóms sem hann fékk
fyrir morð á hollenzkum lög-
reglumanni. Ætlunin var að
yfirheyrslur í áfrýjunarmálinu
færu fram i næstu viku og er ekki
ljóst hvað veldur því að Folkerts
ákvað að aðhafast ekki í málinu.
Folkerts, sem er 26 ára að aldri,
Verkamannaflokkurinn
vann í aukakosningum
Veður
víða um heim
AmBterdam 6 skýjaó
Apena 20 rigning
Berlin 12 skýjaó
Briissel 5 rigning
Chicago 12 bjart
Frankturt 12 skýjaó
Ganf 8 skýjaó
Helsinki 5 bjart
Jóh.b. 22 aólskin
Kaupm.h. 5 sólskin
Lissabon 17 sóiakin
London 7 skýjað
Los Angeles 20 skýjað
Madríd 14 bjart
Malaga 16 skýjað
Miami 28 skýajð
Moskva 14 skýjað
New York 25 bjart -
Ósló 7 sólskin
Palma,
Majorca 12 skýjað
París 9 rigning
Róm 14 rigning
Stokkh. 8 sólskin
Tel Aviv 24 bjart
Tokýó 16 bjart
Vancouver 10 skýjað
Vin 2 rigning
neyðartæki í gang eftir viku, og í
gærdag var vika liðin síðan bilunin
varð. Var þá reynt að senda boð til
geimfarsins og klukkustund eftir
að þau voru send, bárust vísinda-
mönnum í Kaliforníu boð frá
tölvum í „Voyager 2“ þar sem
sagði, að boðin hefðu verið með-
tekin og að nú væru rannsókna-
tæki geimskipsins að vinna í
samræmi við þau.
Asamt „Voyager 2“ er annað
geimskip „Voyager 1“, á leið til
Júpíters og Satúrnusar og er gert
ráð fyrir að geimförin komi til
Júpíters í marz og júlí næsta ár.
Síðla árs 1980 og snemma árs 1981
ættu geimförin síðan að komast á
braut umhverfis Satúrnus.
Moskvu. 14. aprfl. Rcutcr.
LÖGREGLUMENN í Moskvu
neituðu vegfarendum um aðgang
að óopinberri sýningu á verkum
rússneska málarans Mikhail
Shemyakin sem fluttist búferlum
til Frakklands fyrir sjö árum.
Vestrænir fréttamenn sem
reyndu að komast á sýninguna,
sem er haldin í fbúðarhúsnæði í
Moskvu, segja að lögregla hafi
stöðvað þá og sagt að engin
sýning væri.
Vinir Shemyakins segja, að á
sýningunni séu þrjátíu listaverk,
flest litógrafíur, og hafi verkunum
verið smyglað til Sovétríkjanna
með það fyrir augum að gefa þau
á listasöfn í ættlandi listamanns-
ins. Shemyakin, sem er 35 ára, er
virtur listamaður í Frakklandi og
selur þar verk sín fyrir mjög háar
upphæðir. Hann hafði átt í úti-
stöðum lengi við sovézk stjórnvöld
áður en hann fluttist úr landi fyrir
Þetta gerdist 15. apríl
kveðst vera félagi í Rauðu her-
deildinni. Hann yar dæmdur í
Utrecht í desember s.l. vegna
morðs á lögreglumanni. Féll sá í
skotbardaga við Folkerts og var
Folkerts handtekinn nokkru síðar.
Hann og tveir aðrir RAF-hryðju-
verkamenn, þeir Wackernagel og
Schneider, sitja í hollenzkum
fangelsum, en vestur-þýzka stjórn-
in hefur krafizt framsals þeirra
þar sem þeir og umfram allt
Folkerts eru grunaðir um að vera
viðriðnir morðið á Siegfried
Bubach, saksóknara, og ránið og
morðið á iðjuhöldinum Hans-
Martin Schleyer.
NATO tilbúið
að fækka í
herliði sínu
Vín. 14. aprfl. Rcutcr.
HERNAÐARYFIRVÖLD í
NATO-ríkjunum skýrðu írá því í
dag að NATO væri reiðubúið að
fækka í herliði sínu, ef Aust-
ur-Evrópuríkin gerðu slíkt hið
sama.
Þetta kom fram á ráðstefnu 19
Evrópuríkja um gagnkvæma
fækkun í herjum Varsjárbanda-
lagsins og NATO, sem haldin var
í Vín.
Samkvæmt tölum hernaðarsér-
fræðinga NATO myndi tilboð
Vesturveldanna fela í sér að
hermönnum Varsjárbandalagsins
í Mið-Evrópu fækkaði um 150.000.
Samkomulag
um dagskrána
Gcnf. 13. aprfl. Rcutcr.
RÍKIN 150, sem sitja hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
náðu í dag samkomulagi um
dagskrá ráðstefnunnar, eftir að
hafa karpað um hana í þrjár
vikur. Þá náðist einnig samkomu-
lag um að lengja ráðstefnuna úr
sjö vikum i átta.
Þá voru skipaðar nefndir er
munu fjalla um málefni ráðstefn-
unnar. Efst á baugi þar er vinnsla
náttúruauðlinda á hafsbotni, sem
þegar er hafin hjá vestrænu
iðnveldunum.
ILO viður-
kennir ekki
sovézkt verka-
lýðssamband
Gcnf. I I. apríl. AP
ALÞJÓÐASAMBAND verkalýðs-
félaga (ILO) ákvað í dag að
viðurkenna ekki verkalýðsfélag
óánægðra verkamanna í Sovét-
ríkjunum sem verkalýðsfélag.
Talsmaður sovéska verkalýðsfé-
lagsins í Moskvu sagði í dag að
afstaða ILO gæti leitt til þess að
félagið leystist upp.
Búizt er við að sovésk yfirvöld
fylgi fordæmi ILO og viðurkenni
ekki hið óháða verkalýðsfélag.
Bannadur aðgangur að
listasýningu í Moskvu
sjö árum og þóttu verk hans illa
falla að hinum sósíaliska realisma
sem stjórnvöldum hugnast bezt.
Dregur úr
verðbólgu
í Englandi
London 14. apr. AP.
ENN hefur tekizt að draga úr
verðbólgu í Bretlandi og í marz var
hún 9.1 prósent og er hin lægsta
í hátt í fimmta ár. í tvö ár var
verðbólga í Bretlandi um 25% og
var með því hæsta sem gerðist í
Evrópu. I febrúarmánuði var
verðbólga 9.5 prósent.
1968 — Tveir ómannaðir
sovézkir spútnikar tengdir á
braut.
1939 — Roosevelt forseti biður
Þjóðverja að ábyrgjast að þeir
ráðist ekki á 31 þjóð sem hann
nafngreinir.
1938 — Her Francos tekur
Vinaroz.
1927 — Chiang Kai-shek mynd-
ar stjórn sína í Nanking.
1891 — Katanga-félagið stofnað
undir stjórn Leopolds Belgakon-
ungs til að stunda
koparnámurekstur.
1888 — Boulanger hefur bar-
áttu sína fyrir endurskoðun
frönsku stjórnarskrárinnar.
1865 — Lincoln forseti deyr
eftir skotárás kvöldið áður í
Ford-leikhúsinu í Washington.
1856 — Bretar, Frakkar og
Austurríkismenn ábyrgjast full-
veldi og sjálfstæði Tyrkjaveldis
í nýjum samningi.
1715 — Prússland, Saxland,
Pólland, Hannover og Danmörk
stofna bandalag gegn Svíþjóð og
stríði lýst vfir.
1689 - Loðvík XIV segir
Spánverjum stríð á hendur.
1638 — Enskir.landnemar koma
til Connecticut þar sem nú er
New Haven.
Afmæli dagsinsi Leonhard
Euler, svissneskur stærðfræð-
ingur (1707-1783) John
Lothrop Motley, bandarískur
sagnfræðingur (1814 — 1877)
Henry James, bandarískur rit-
höfundur (1843—1916).
Orð dagsinst Segðu aldrei frá
ákvörðun þinni fyrir fram. —
John Selden, enskur stjórnmála-
maður (1584-1654).