Morgunblaðið - 15.04.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGtíR 15. APRÍL 1978
31
Bridge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgesamband
Vesturlands
Vesturlandsmót í tvímennings-
keppni var haldió í Stykkishólmi
helgina 8.—9. apríl s.l.
Þátttakendur voru 24 pör frð
Akranesi, Borgarnesi, Reykholts-
dal, Búðardal, Stykkishólmi,
Grundarfirði og Ólafsvík, auk
pess sem Hjalti Elíasson og
Þórarinn Sigpórsson úr Reykjavík
spiluðu sem gestir.
Keppnisstjóri var Guðmundur
Kr. Sigurðsson, sem stjórnaði
keppninni af sinni alkunnu snilld.
Spiluð voru 4 spil milli para, eöa
alls 92 spil. Úrslit uröu þau, aö
gestapariö Hjalti og Þórarinn urðu
langefstir meö 234 stig.
Úrslit Vesturlandsmótsins urðu
annars þessi:
stig.
1. Jón Alfreðsson og
Valur Sigurðsson, Akran. 124
2. Kristinn Friðriksson og
Guöni Guðmundss.,
Stykkish.
3. Ólafur G. Olafsson og
Guöjón Guðmundsson,
Akranesi.
4. Guöjón Pálsson og
Jón A. Guðmundsson,
Borgarnesi.
5. Steingrimur Þórisson og
Þórir Leifsson,
Reykholtsdal 81
6. Guðjón Karlsson og
Eyjólfur Magnúss., Borgarn.75
7. Þórður Björgvinsson og
Karl Alfreðsson, Akran. 72
8. Davíð Stefánsson og
Jón Jóhannsson, Búöardal 33
9. Ellert Kristinsson og
Halldór S. Magnússon,
Stykkish. 31
10. Jón Gíslason og
Guömundur Sigurjónsson,
Akran. 17
Önnur pör voru fyrir neðan
miölung, sem var 0 stig.
Fimm efstu pörin unnu sér rétt
til þátttöku í úrslitakeppni íslands-
mótsins í tvímenningskeppni.
Bridgefélag
Hafnarfjaröar
Nú er eftir áð spila í eitt kvöld
(3 umferðir) í barómeter-tví-
menningskeppni félagsins og
tekur nú aö teygjast á liðnu. Staöa
efri helmings er þessi fyrir loka-
sprettinn n.k. mánudag:
1. Árni — Sævar 1199
2. Björn — Magnús 1164
3. Kristján — Ólafur 1123
4. Hörður — Þorsteinn 1112
5. Bjarni — Þorgeir 1105
6. Albert — Sigurður 1095
7. Ólafur — Sverrir 1087
8. Guðni — Kristófer 1076
9. Bjarnar — Þórarinn 1049
10. Óli — Vilhjálmur 1013
Meðalskor 1008
Síöasta spilakvöld náðu þeir
Hörður og Þorsteinn bestum
árangri eða 77 stigum yfir miölung.
(Þeir fóru í vitlausa átt fyrsta
kvöldiö). Þeir Björn og Magnús
voru líka stórstígir með 58 stig yfir
meðalskor.
Laugardaginn 15. apríl verður
spilað við Selfyssinga í 32. sinn.
Þangaö til annaö kemur i Ijós
verða menn að trúa því að hér sé
um elstu og alla vega viröulegustu
félaga- og bæjakeppni í bridge á
íslandi aö ræða. Spilaö veröur á
bökkum Ölfusár að þessu sinni.
Frá
Baröstrendinga-
félaginu
Síöasta umferð í sveita-
keppni félagsins var spiluð
síðastliðinn mánudag og uröu
úrslit pessi:
Sveit Guðbjarts Egilssonar vann
sveit Ágústu Jónsdóttur
16—4.
Sveit Ragnars Þorsteinssonar
vann sveit Guðmundar
Guðveigssonar 11—9.
Sveit Sigurðar Kristjánssonar
vann sveit Baldurs
Guðmundssonar 15—5.
Sveit Helga Einarssonár vann
sveit Gísla Benjamíns-
sonar 13—7.
Lokastaöan í sveitakeppninni
varð þessi:
stig.
1) Sveit Ragnars
Þorsteinssonar 188
í sveitinni eru auk Ragnars
Eggert Th. Kjartansson,
Finnbogi Finnbogason og
Þórarinn Þórarinsson.
2) Sveit Helga Einarssonar 110
3) Sveit Sigurðar
Kristjánssonar 103
4) Sveit Baldurs
Guömundssonar 94
5) Sveit Guðbjarts
Egilssonar 88
6) Sveit Gísla
Benjamínssonar 76
Viö endum vetrarstarfið
með tveggja kvölda . ein-
menning og er þegar orðiö
fullbókaö í hann og þeir sem
eru bókaöir þar verða að
mæta kl. 19.45, ekki mínútu
eftir þann tíma.
— Álitamál
Framhald af bls. 14.
förunum, en ekki skrifstofubáknið. Við
verðum að halda áfram að safna
þekkingunni og auðnum, ef við ætlum að
bæta lífskjör okkar, og tækin til þess eru
markaðskerfið og lýðræðisskipulagið.
Ávöxtun þekkingarinnar er verkefni
okkar, og því getum við ekki sinnt án
frelsisins. Andstæðingar frelsisins
spyrja: „Hverjir hagnast á frelsinu?" —
og syara því svo, að „kapítalistarnir"
hagnist á því, frelsið sé frelsi þeirra til
að græða. En ég held, áð Hayek hafi fært
fullnægjandi rök fyrir því, að allir
hagnist á frelsinu, að skipulag siðaðra,
frjálsra manna sé tæki til þess að dreifa
hagnaðinum, þekkingunni, gróðanum, til
allra manna. Munurinn á frjálslyndum
mönnum og stjórnlyndum er sá, að hinir
frjálslyndu vita af vanþekkingu sinni eins
og annarra, en hinir stjórnlyndu vita
aðeins af vanþekkingu annarra. Vonin er
aðal frjálslynda mannsins — vonin um
aukna þekkingu, bætt lífskjör — vissan
hins stjórnlynda.
— Draumurinn
um húsið
Framhald af bls. 32.
sameinast undir einn fána, þó ekki
væri nema að nafninu til, og
kallast Tónlistarfélag íslands. En
áður en til þess kæmi yrðu æði
mörg stórmenni að fallast í
faðma..
Kæru vinir. Áður en ég kveð
ykkur ætla égað . vitna í hann
nafna minn, Stein Steinarr. Hann
kvað:
Húsið, sefur, sefur.
Húmsins þögn um þak
og veggi breiðist.
Húsið sefur...
Að svo mæltu er draumurinn
búinn," mælti grjótið og stein-
þagnaði, enda búið að berja
höfðinu svo lengi við steininn.
Til að spara prentsvertu
Máli grjótsins til skýringar
fylgir uppdráttur, eða draumsýnin
eins og hún kom fyrir hugskots-
sjónir. Hér er að sjálfsögðu ekki á
ferðinni tillaga um húsbyggingu í
eiginlegri merkingu, heldur
fremur riss til að spara prent-
svertu. Þar sést greinilega, að
miðpúnktur Tónlistarmiðstöðvar
íslands yrði tónbóka- og hljóm-
plötusafn, einskonar almenningur,
en út frá honum dilkar, þar sem
hver einstök stofnun hefði aðsetur.
Að lokum þetta: Vonandi vakna
menn nú ekki við vondan draum,
með andfælum og jafnvel stein-
hissa, eins og áheyrandi grjótsins
gerði að morgni fyrsta apríl 1978.
— Vaxtamálin
Framhald af bls. 10
Ymis önnur skattaákvæði koma til
greina í þessu skyni. Þannig hefir
t.d. eitt land, svo að vitað sé,
heimilað þegnum sínum skatt-
frjálst tillag í húsbyggingarsjóð,
nál. kr. 250 þús. á ári, er geymist
á bundinni bankabók, unz bygg-
ingarframkvæmd hefjist.
Hækkanir al-
mennra banka-
vaxta stöðva
ekki verðbólgu,
nema síður sé
Ef' nota á bankavexti sem
hagstjórnartæki, verða þeir að
vera virkir (effective), þ.a. hafa
áhrif á eftirspurn lána. Banka-
vextir á Islandi eru og hafa verið
óvirkir frá stríðsbyrjun. Alla
þessa tíð — að undanskildum 2 eða
3 árum — hafa raunvextir verið
neikvæðir, minni en verðbólgan,
og því ekki megnað að draga úr
eftirspurninni. Ef gera ætti vexti
virka í dag, þyrftu þeir líklega að
vera á bilinu 48—62%. Er þá
reiknað með 8—12% normal vöxt-
um að viðbættri 40—50% áætlaðri
verðbólgu 1978. Hver vill reka
atvinnufyrirtæki með þess konar
vaxtakjörum? Jafnvel slíkir vextir
eru þó áhrifalausir og ná ekki að
minnka peningaframboðið, meðan
skuld ríkissjóðs við miðbankann
vex og seðlaveltan er aukin.
Gerum samt ráð fyrir, að
vaxtahækkanir haíi áhrif í því
efni að skerða útián. Má þá telja
öruggt, að slíkt dragi úr verð-
þenslu?
Því er fyrst til að svara, að þetta
er samdráttarleið, sem er seinvirk
og kostar fórnir. Ekki er heldur
víst, að hún leiði til lægra
vöruverðs. Afleiðingin gæti orðið
sú ein, að minna yrði keypt og
minna framleitt.
I þessu sambandi er fróðlegt að
skírskota til Milton Friedmans, er
sumir ráðamenn í fjármálum
hérlendis virðast telja sinn læri-
meistara. í ræðu, sem hann hélt
28. des. 1971 í ameríska hagfræði-
félaginu (American Economic
Assocation), lét hann þess getið,
að hann hefði þolað „refsingu" við
þá reynslu að sjá peningapólitík
sína bregðast djarflega auglýstum
vonum sínum. Hann vék að sam-
dráttarstefnu bandaríska mið-
bankakerfisins (FRS) í peninga-
málum 1969—70 og kvaðst ekki
hafa búizt við, „að svo mikill hluti
tekjuhjöðnunarinnar kæmi fram í
minna magni framleiddrar vöru og
þjónustu og svo lítill hluti í minni
verðbólgu“. (Bandarísk stjórnvöld
sneru baki við Friedman 1971 og
tóku þá upp tímabundna verðlags-
og kaupgjaldsbingingu. Kanada-
menn fylgdu á eftir skömmu
síðar).
Ef við viljum í alvöru
ráðast gegn verðbólgubraski
skuldakónga, er skattalöggjöf-
in nærtækasta vopnið. Fyrsta
skrefið yrði að afnema ákvæði
laga, er lætur vexti af veð-
lánum koma til frádráttar tekj-
um á framtali (nema að því er
tekur til íbúða). Þá mætti vissu-
lega skattleggja skuldahjöðnun af
völdum verðbólgu eins og hvern
annan gróða. í USA og Kanada,
svo og í EBE-löndum, tíðkast
svonefndur auðvaxtarskattur
(capital gains tax). Hann kemur á
verðauka fasteigna (nema eigið
íbúðarhúsnæði) og stundum á
verðauka annarra eigna við sölu
þeirra eða eigendaskipti af öðrum
ástæðum.
Alyktunarorð
Hér verður látið staðar numið.
Heildar niðurstaðan er á þá lund,
að háir bankavextir af skammtíma
rekstrarlánum séu ekki fær leið í
landi með opið hagkerfi. Útflutn-
ings-atvinnuvegirnir bera þá ekki,
en byrðinni er af þeim létt með
gengisfellingum, sem skaða spari-
fjáreigendur meira en aðra sam-
félagshópa. Enda þótt réttlæta
megi með gildum rökum verð-
tryggingu langtíma fasteigna- og
framkvæmdalána, verður að fara
að með gát. Mestar * vonir um
stöðvun verðbólgu eru tengdar
breytingum á ákvæðum og fram-
kvæmd skattalaga — að því
tilskildu þó, að ríkið sjálft haldi að
sér höndum.
LÆRIÐ AÐ
SNÍÐA
HEIMA
k V
Útflylliö, klippið auglýsing-
una út og sendið til:
Brevskolen SCANDIA,
Hælderni 15, DK 2850, Nær-
um — og þér munuð án
nokkurra skuldbindinga fá
nánari upplýsingar um nám-
skeið okkar.
Nafn ......................
Staða ......................
Heimilisgang ..............
A námskeiði okk-
ar læriö þér allt
sem viðkemur
konu- og barna-
fatasniði. Nám-
skeiðið er gert af
sérfræöingum,
sem hjálpa yður á
leiö yöar aö tak-
markinu, sem er:
—100% nýting á
saumavél yðar.
—að sauma falleg
föt á börn og
táninga.
—aö sauma falleg
föt á sjálfa yður á
ódýran hátt.
I stuttu máli: að gera
saumaskap bæði að
tómstundagamni og til
aö hafa góð not af. Þér
og fjölskylda yðar
verðið vel klædd fyrir
litia peninga. Nám-
skeiðið krefst engrar
undirbúningsþekkingar.
í því eru húsmæður og
ungar stúlkur, sem vilja
fá meira fyrir fata-
peningana.
Ártúnshöfðasamtökin
Aöalfundur veröur haldinn þriöjudaginn 18. apríl 1978 kl. 16
í matstofu Miöfells h.f. aö Funahöföa 7.
Dagskrá:
1. Borgarstjóri heimsækir fundinn og skýrir stöóu borgarinnar og pær
framkvæmdir sem gerðar veröa á Ártúnshöföasvæðinu af borgarinnar
hálfu áriö 1978.
2. Aðaifundarstörf
3. Fegrun og snyrting umhverfis.
4. Næturvarzla.
5. Önnur mál.
Stjórnin.