Morgunblaðið - 15.04.1978, Side 48

Morgunblaðið - 15.04.1978, Side 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 2lt»rj}unI>Iaðib LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978 Ðandarikjaflug Flugleiða: Hafa hug á fleiri lendingarstöðum FLUGLEIÐAMENN munu einskis láta ófreistaö til aö halda hlut félagsíns á flugleiðinni yfir N-Atl- antshaf, enda Þótt samkeppnin harðní stöðugt og fargjaldastríð geisi par, aö pví er Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, sagöi á aðalfundi félagsins í gær. Kom fram aö Flugleiðamenn telja að nýir viðkomustaðir í Bandaríkjunum geti aukíð félaginu ávinning, og hefur félagið tekið málið upp við íslenzk stjórnvöld og óskaö eftir að teknar veröi upp viðræður við bandarísk flugmálayfirvöld. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins munu Flugleiðamenn í þessu sambandi einkum hafa auga- staö á Baltimore og Fíladelfíu og einni borg á vesturströndinni, helzt Los Angeles. Er sennilegt að íslenzk stjórnvöld taki málið upp við banda- rísk loftferðayfirvöld í júnímánuði í sumar nk. Sigurður Helgason ítrekaöi í ræðu sinni aö hin vaxandi samkeppni á N-Atlantshafsleiðinni hefði haft nei- kvæö áhrif á afkomu Flugleiöa árið 1977 miðað við fyrri ár. Stöðnun væri í flutningum Flugleiða á þessari leið þegar litið væri yfir nokkur ár og að hlutdeild félagsins á síöasta ári heföi verið 2,8% en árið áður 3,1% og árið 1975 3,3%. Félagið gæti ekki lengur Framhald á bls. 26 Hádegisverður í Höfða. Borgarstjórahjónin héldu dönsku utanríkisráðherrahjónunum og fieiri gestum veizlu í Höfða í hádeginu í gær, og var myndin tekin áður en setzt var að borðum. Talið frá vinstrii K.B. Andersen, Sonja Bachmann, Grethe Andersen og Birgir ísl. Gunnarsson. (Ljósm. Oi.K.Magn.) Forstjóri Flugleiða á aðalfundi félagsins: Sundrung innan félags ins mesta vandamálið Afkoma félagsins versnadi og hagnaður aðeins 12,7 millj. FLUGLEIDIR voru reknar með hagnaöi á síðasta ári og er pað priöja árið í röð en afkoman varð pó snöggtum lakari nú en hin árin tvö á undan. Hagnaöurinn varð aðeíns um 12,7 milljónir króna á móti 685 milljónum árið á undan og 512 milljónum áriö 1975. Heildarvelta fyrirtækisins reyndist 18.856 milljónir króna og jókst um 10.1%. Heildarfarpegafjöldi Flugleiða jókst um 6,6% en um 5,1% ef Air Bahama er tekið með í reikninginn og var farpegafjöldinn rétt tæplega 700 51% hækk- im á ábyrgð- artrygging- um bifreiða Tryggingaráðuneytið hefur heimiiað 51% hækk- un á iðgjöldum ábyrgðar- trygginga bifreiða og gild- ir hækkunin frá 1. marz s.l. í>á hafa stjórnvöld ákveðið að flytja frumvarp á Al- þingi sem miðar að því að tryggingarupphæð hækki úr 12 millj. kr. í 24 millj. kr. og að sjálfsábyrgð hækki úr 15 þús. kr. í 24 þús. Iðgjald er mjög mismun- andi eftir bifreiðum og árgerðum og sem dæmi um hækkunina má nefna að iðgjald af Volvo 244 árgerð 1975 var 8.1. ár 30.900 kr. með 50% bónus, en það gjald hækkar nú í tæplega 47 þús. kr. Tryggingafélögin fóru fram á 67% hækkun. púsund manns hjá félögunum premur. Samdráttur varð enn nokk- ur í N-Atlantshafsfluginu eða um 5,7% enda harðnaði samkeppnín par mjög á síðasta ári og fargjaldstríð komst í algleyming. Þessir erfiðleikar settu þó ekki mestan svip á aöalfund Flugleiöa, sem haldinn var á Hótel Loftleiðum í gær, heldur óeining sem virtist vera innan félagsins, meðal hluthafa og starfsmanna, sér í lagi flugmanna og stafa mun af áformum stjórnar félagsins um aö Flugleiðir taki viö rekstri flugvéla Loftleiða og FÍ, svo að flugmenn yrðu starfsmenn Flug- leiða en ekki gömlu félaganna, eins og verið hefur. í ræðu sinni á aðalfundinum sagöi Örn Ó. Johnson, forstjóri Flugleiða, að sú sundrung sem væri ríkjandi innan félagsins væri mesta vandamál Flugleiða um þessar mundir. „Hún getur ekki verið neitt leyndarmál lengur, hún blasir við öllum og þá sérstaklega þeim, sem að undanförnu hafa orðið varir við mikla atkvæðasmölun vegna þessa fundar, undir misjöfnu yfir- skyni," sagði forstjórinn. Jafnframt vék Örn að þeim klofn- ingi sem væri milli flugmanna félags- ins, annars vegar þeirra sem störfuðu hjá Loftleiðum og hins vegar þeim er störfuöu hjá Flugfélagi íslands, sem hann kvað skaöa félagiö mjög og hefði stjórn félagsins í þessu Ijósi tekið þá ákvörðun að flugmenn beggja félaganna yrðu frá og með 28. október n.k. starfsmenn Flug leiða eins og aðrir starfsmenn félagsins. Hvatti forstjórinn starfsmenn og stjórnendur til að láta af deilum og skapa innbyröis samstöðu, sem yrði að telja algjöra forsendu þess að unnt yrði með jákvæðum árangri að takast á við aukin utanaaökomandi vandamál, sem flest benti til að biðu félgsins í næstu framtíð. ★ Hætta á glundroða Örn O. Johnson sagði í ræðu sinni að hann vildi geta nokkurra stað- reynda um flugmannamáliö er fram hefðu komið af beggja hálfu og við umræður um máliö eftir að stjórnum stéttarfélaga flugmanna var um það tilkynnt. Sagði Örn síöan orðrétt: „í fyrsta lagi: Stjórn Flugleiöa er þeirrar skoöunar að ef ekki verður Framhald á bls. 26 Skipstjór- inn dæmdur í 1,8 milljón króna sekt DÓMUR í máli skipstjórans á togaranum Elínu Þorbjarnar- dóttur ÍS 700 var kvcðinn upp hjá bæjaríógetaembættinu á ísafirði í gærmorgun. Var hann dæmdur í 1.8 milljón króna sekt. sem rennur í Landhelgis- sjóð, og gert að greiða máls- og sakarkostnað. Landhelgisgæzluflugvélin Sýr kom að togaranum á friðaða svæðinu útaf Kögri á fimmtu- dagsmorguninn og nokkru síðar kom varðskipið Þór á staðinn. Reyndist togarinn vera 5,7 mílur inn á friðaða svæðinu þegar flugvélin kom að honum. Hann var ekki á veiðum en varpan var í sjó. Við réttarhöldin kom fram að skipstjórinn taldi biluð sigl- ingatæki orsök þess að hann hefði verið á veiðum inná friðaða svæðinu. Dóminn kváðu upp Þorvarður K. Þorsteinsson bæjarfógeti og meðdómendurnir Símon Helga- son og Einar Jóhannsson skip- stjórar. Þrír úrskurðaðir 1 gæzluvarðhald: Fantaleg líkams- árás í heimahúsi ÞRÍR ungir menn í Reykjavík voru úrskurðaðir í gæzluvarðhald í gærkviildi vegna fantalegrar árásar sem þeir frömdu s.l. fimmtudagskvöid, en Rannsókn- arlögregla ríkisins óskaði eftir ga’zluvarðhaldsúrskurði við Sakadóm Reykjavíkur. Tveir VMSÍ lýsir yfir við Sjómannasambandið: Stöðva ekki siglingar nema til komi óeðlileg aukning Verkamannasambandið jafnframt reiðu- búið til viðræðna við vinnuveitendur Verkamannasamband Islands hefur í bréfi til formanns Sjómanna- sambands íslands lýst pví yfir aö pað muni ekki hindra siglingar fiskiskípa með afla fil erlendra hafna nema Ijóst sé að meö peim siglingum sé verið að fara í kringum gildandi útflutningsbann og jafn- framt sagt að ekki verði leitað til verkalýðsfélaga erlendis með beiðni um löndunarbann á pessi skip nema að höfðu samráöi við Sjómannasambandið. Þá hefur framkvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins lýst sig reiðubúið að taka' upp viöræður við samtök vinnuveitenda og hefur kosið 8 msnna nefnd í pessu skyni. í fréttatilkynningu sem Morgun- blaðinu barst í gær frá Sjómanna- sambandi íslands kemur fram að formaður sambandsins, Óskar Vig- fússon, gerði sambandsstjórn Sjó- mannasambands íslands í gær grein fyrir bréfi frá framkvæmdastjórn Verkamannasambands íslands um framkvæmd boðaðs útflutnings- banns. i tilkynningunni segir svo: „í því bréfi hefur komið fram, að þaö sé ekki ætlun Verkamannasam- bands íslands aö stööva siglingar togara á erlenda markaði nema því aðeins að til komi óeölileg aukning siglinga til þess aö komast hjá útflutningsbanninu. Framkvæmda- stjórn Verkamannasambands íslands hefur lýst því yfir, að engin tilmæli veröi send til erlendra aöila um aö stööva afgreiöslu íslenzkra skipa án þess að fullt samráð verði haft við Sjómannasamband íslands. Gaqnkvæmt traust og skilningur á Framhald á bls. 26 árásarmannanna eru 18 ára, en einn er 26 ára. Sá elzti var úrskurðaður í gæzluvarðhald til 31. maí, en tveir þeir yngri til 26. apríl. Sá elzti mun hafa talið sig eiga eitthvað sökótt við þann sem ráðist var á, en sá liggur mikið slasaður í sjúkrahúsi. Þremenningarnir réðust inn í íbúð við Hrísateig s.I. fimmtudags- kvöld ásamt þremur öðrum og réöust þeir þar á tvo menn. Annar þeirra skrámaðist en hinn liggur mikið slasaður á sjúkrahúsi eftir árásina, nefbrotinn, kinnbeinsbrot- inn, með brotnar tennur og auk þess er óttast að augnbotn hafi sprungið. Mennirnir sem ráðist var á eru 32 og 28 ára gamlir. Arásarmennirnir voru handtekn- ir daginn eftir árásina, en þeir hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður. Verðlag dagblaðanna hækk- ar frá 15. aprfl. Áskriftar- verðið hækkar í kr. 2000.- á mánuði, þannig að Morgun- blaðið kostar 1850.- fyrir aprílmánuð. Lausasöluverð er nú kr. 100,- eintakið. Grunn- verð auglýsinga cr kr. 1200,- hver dálksentimctri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.