Morgunblaðið - 03.05.1978, Side 1
MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 48 SÍÐUR
90. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Símamynd AP
Menachem Begin. forsætisráðherra ísraels, talar við athöfn á lóð
Hvíta hússins skömmu eftir komu hans til Washington. Á
myndinni eru (talið frá vinstri): frú Begin, Carter forseti,
Rosalynn Carter og Begin.
Þrír teknir í
Moro-málinu
Róm, 2. maí. Reuter. AP
LÖGREGLUMENN sem leita að hryðjuverkamönnum Rauðu
hcrdeiidanna handtóku í dag þrjá menn, þar einn sem er sagður
vera vinur manns sem er grunaður um að vera einn af ræningjum
Aldo Moros fyrrverandi forsætisráðherra.
Hann heitir Libero Maesano og
var handtekinn þegar hann var að
tala við móður sína og systur í
einni útborg Rómar, Eur. Hinir
mennirnir tveir voru handteknir
þegar þeir reyndu að flýja að sögn
lögreglunnar.
Maösano var vinur Valerio
Morucei sem er grunaður um að
hafa tekið þátt í ráninu á Moro.
Maesano var rekinn frá Sviss fyrir
fimm árum ásamt Morucci fyrir að
hafa vélbyssu undir höndum.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um er vafasamt að Maesano hafi
verið beinlínis viðriðinn rán
Moros.
Stjórnmálaleiðtogar ræddu í
dag tillögu frá ritara sósíalista-
flokksins, Bettino Craxi, sem
miðar að því að telja ræningja
Moros á að sleppa honum. Tillagan
er til komin vegna nýrra til-
250 bátar
til Hafnar
að mótmæla
Rönne. 2. maí. Reuter.
FLOTI 250 fiskiháta frá Borg-
undarhólmi sigldi áleiðis til
Kaupmannahafnar í kvöld til
að mótmæla því að fiskveiði-
réttindi þeirra hafa verið
stórskert.
Bátarnir ætla að mætast við
innsiglinguna í höfnina í Kaup-
mannahöfn á morgun.
„Við viljum beina athygli
stjórnarinnar, þingsins og þjóð-
arinnar að þeirri staðreynd að
fiskimenn á Eystrarsalti eru að
svelta í hel,“ sagði talsmaður
fiskimanna eyjaskeggja.
Svíar, Pólverjar, Aust-
ur-Þjóðverjar og Rússar hafa
allir fært út fiskveiðilögsögu
sína á Eystrasalti á undanförn-
um tólf mánuðum og þar með
hafa fiskimenn frá Borgundar-
Framhald á bls. 31
finningaþrunginna bréfa um
helgina frá Moro þar sem hann
hvetur enn til fangaskipta.
Craxi sagði að loknum viðræð-
um við Giulio Andreotti forsætis-
Framhald á bls. 31
Símamynd AP
Ilermaður á skriðdreka við eftirlitsstöð í skrifstofu erlends flugfélags nálægt miðborg Kabul skömmu
eftir byltinguna gegn stjórninni í Afghanistan.
Allt að 10.000félhi í
byltingumú í Kabul
Kabul 2. maí. Reuter. AP.
FRAM KOM í dag að Afghanist-
an er orðið fyrsta landið i
Suður Asíu sem lýtur stjórn
kommúnista og gegna óbreyttir
borgarar valdamestu embættun-
um eftir hina blóðugu herbylt-
ingu í síðustu viku.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum biðu þúsundir bana í bar-
dögum á fimmtudaginn og föstu-
daginn áður en hin vinstrisinnaða
herforingjastjórn náði fullum tök-
um á ástandinu. Samkvæmt sum-
um heimildum getur verið að allt
að 10.000 hafi beðið bana en það
er ekki hægt að fá staðfest.
Aðeins þrír herforingjar eiga
sæti í nýrri stjórn sem hefur verið
mynduð og er skipuð 21 ráðherra.
Meðal ráðherranna er Abdul
Kadir ofursti, annar æðsti maður
flughersins, sem er talinn aðal-
driffjöður byltingarinnar. Hann
verður landvarnaráðherra.
Diplómater í Kabul segja að
félagar í Khalq (Alþýðu)-flokknum
sem fylgir Rússum að málum hafi
töglin og hagldirnar í stjórninni.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um er ómögulegt að meta hve
róttæk kommúnistastjórnin verði
en yfirleitt er talið að hún muni
reyna að forðast að gera Afganist-
an að leppríki Sovétríkjanna.
Þjóðhöfðingi og forsætisráð-
herra landsins Nur Mohammec
Tarakki er 65 ára gamall og
formaður og stofnandi Khalq. En
hann er talinn hófsamur og
viðurkenna að við ríkjandi aðstæð-
ur sé ógerningur að gera Afghan-
istan að kommúnistaríki.
En helzti aðstoðarmaður hans
Badrak Karmal og Hafizullah
Amir aðstoðarforsætisráðherra
sem fer með utanríkismál eru
þekktir fyrir ósveigjanlega hug-
myndafræðileg afstöðu. Þeir klufu
sig úr kommúnitaflokknum fyrir
fimm árum og stofnuðu flokkinn
Parcham (fáninn) en gengu aftur
í aðalflokkinn í maí í fyrra fyrir
tilstilli Rússa að því er áreiðanleg-
ar heimildir herma.
Vestrænir ferðamenn og
Framhald á bls. 31
Muhammed Daod.
Breti vekur uppnám
með ummælum í Kína
London. 2. maí. Reuter.
BREZKA stjórnin vísaði í dag
á bug kröfum um að æðsti
yfirmaður brezka heraílans Sir
Ncil Cameron flugmarskálkur
og forseti landvarnaráðsins
yrði settur af fyrir að halda
andsovézka ræðu í Kína.
Vinstrisinnar í Verkamanna-
flokknum gagnrýndu hann
harðlega fyrir að segja kín-
verskum skriðdrekaforingjum
að Sovétríkin væru sameiginleg-
ur óvinur Bretlands og Kína.
James Callaghan forsætisráð-
herra viðurkenndi á þingi að
eina athugasemd eða tvær í
ræðu Sir Neils — sem hann hélt
blaðlaust þegar Kínverjar höfðu
skálað fyrir honum — „hefði
mátt orða dálítið öðruvísi".
En stjórnin tók skýrt fram að
hún stæði með flugmarskálkn-
um í málinu. Fred Mulley
landvarnaráðherra sagði í Neðri
málstofunni að Sir Neil hefði
„ekkert gert sem rýrði traust
sitt á honum.“
Pravda sagði að ummæli Sir
Neils væru ögrandi og óvinsam-
leg í garð Sovétríkjanna. í kvöld
sakaði Tass-fréttastofan David
Owen utanríkisráðherra um að
reyna að draga úr áhrifum
ummælanna og breiða yfir
glundroðann sem ummælin
hefðu haft í för með sér. Pravda
gaf í skyn að sovétstjórnin
vænti skýringa frá brezku
stjórninni á ummælum Sir
Neils.
Sir Neil sagði þegar hann
heimsótti skriðdrekasveit í Pek-
ing í gær: „Lönd okkar færast
Framhald á bls. 31
Yfirmaður Frakka
í Líbanon týndist
Beirút, 2. maí. Reuter. AP.
YFIRMANNS friðargæzlusveita
Frakka í Suður-Líbanon. Je-
an-Germain Salvan ofursta. var
saknað í kvöld eftir árásir
skæruliða sem felidu þrjá manna
hans og særðu sjö. samkva'mt
áreiðanlegum heimildum.
Seinna bárust þær fréttir að
Salvan ofursti væri fundinn og
hann lægi í sjúkrahúsi í Beirút
þar sem gert væri að sárum sem
hann hlaut þegar skotið var á
jeppa hans er hann var að
rannsaka bardaga í Tyros fyrr í
dag. Palestínumenn hófu skot- Frakkarnir þrír biðu bana þegar
hríð á franska hermenn í borg-
inni og á búðir þeirra. Salvan
fannst þegar Kurt Waldheim
framkvæmdastjóri SÞ hafði sett
sig í samband við PLO.
Franskir hermenn hófu leit að
Salvan ofursta þegar þeir höfðu
árangurslaust reynt að ná sam-
bandi við hann eftir snarpa
bardaga viö ókunna skæruliða
umhverfis hafnarborgina Tyros.
Irakska fréttastofan segir að
Salvan ofursti hafi fallið en fréttin
hefur ekki verið staðfest.
brynvagn þeirra eyðilagðist í
skothríð skammt frá Tyros fyrr í
dag.
YFIRMAÐUR
REKINN
Jafnframt tilkynnti ísraelska
landvarnarráðuneytið í kvöld að
yfirmaður ísraelska herliðsins á
vesturbakka Jórdan, David Hagoel
hefði verið leystur frá störfum
vegna atburðar þess er gerðist 21.
marz þegar ísraelskir hermenn
Framhald á bls. 30