Morgunblaðið - 03.05.1978, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1978
Frá viðræðufundi Iðju og Félags íslenzkra iðnrekenda í gær.
Vísað til funda sáttasemjara
FÉLAG íslenzkra iðnrekenda og
Iðja. félaK vcrksmiðjufólks áttu
með sér viðræðufund í K*r um
kjaramálin. Samkvæmt
upplýsinjíum Ilauks Björnssonar.
framkvæmdastjóra FÍI. voru
viðra'ðurnar vinsamlegar og
lýstu báðir aðilar þar skoðunum
sfnum. í dag er fyrsti verkfalls-
dagurinn af þremur. sem Iðja
hefur boðað í yfirstandandi
kjaradeilu.
Fundurinn stóð í um klukku-
stund. Haukur Björnsson sagði að
fulltrúar FÍI hefðu bent á að þar
sem deilan væri nú í heild komin
ti! sáttasemjara, fyndist þeim
eðlilegast að sáttaumleitanir færu
fram á þeim vettvangi. Kvað hann
iðnrekendur gjarnan myndu kjósa
að kjaramálin væru ekki í þeim
hnút, sem raun bæri vitni.
í dag er verkfall meðal Iðjufólks
í vefjariðnaði, spuna, vefnaði,
Fundur með
borgarstjóra
í kvöld
BIRGIR ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri heldur hverfafund í
kviild fyrir Iláaleitishverfi, Smá-
íbúða-. Bústaða-. og Fossvogs-
hverfi og verður fundurinn í
Félagsheimili Hreyfils að Fells-
múla 21 (gengið inn frá Grensás-
vegi). Fundrastjóri á fundinum
vcrður Gunnar Björnsson tré-
smíðameistari. en fundarritarar
verða Unnur Arngrímsdóttir hús-
móðir og Tryggvi Viggósson
liigfræðingur.
Á fundinum eru m.a. sýnd líkön
og uppdrættir af ýmsum borgar-
hverfum og nýjum b.vggðasvæðum
og einnig verða sýndar litskugga-
myndir af helztu framkvæmdum
borgarinnar nú og að undanförnu.
veiðarfæragerð, prjónaiðnaði,
fataframleiðslu, tjaldframleiðslu,
svefnpokaframleiðslu, seglagerð,
skinna- og leðuriðnaði, hjá þvotta-
húsum og efnalaugum. Næsti
verkfallsdagur er á föstudag og þá
er verkfall í matvælaiðnaði og
skyldum greinum.
Rætt um stækkun
Landakotsspítala
Gunnar Ólafsson kennari:
Valdimir Jakúb
las bréf til ís-
lendinga í Moskvu
A KAPPRÆÐUFUNDI Sam
bands ungra sjálfstæðismanna
og Æskulýðsnefndar Alþýðu-
bandalagsins sl. sunnudag í
Stapa. sagði Guðmundur ólafs-
son kennari, einn ra^iumanna
Æn. Abl.. cn hann dvaldist
um tíma við nám í Moskvu,
að Vladimir Jakúb. sem kom
fyrir nokkru fram í íslcnzku
sjónvarpi og skrifaði greinar í
íslenzk blöð. hefði njósnað um
íslenzka námsmenn í Sovét-
ríkjunum.
Guðmundur sagði orðrétt: „Eg
var við nám úti í Sovétríkjun-
um, og við, sem vorum þar við
nám, urðum fljótlega varir við
það, að bréf okkar voru lesin af
óviðkomandi aðilum, sem er að
sjálfsögðu svívirðilegt. Með
klækjum og refskap tókst okkur
að komast að því, hvaða maður
það væri, sem hefði þann starfa
að lesa íslenzk bréf úti í Moskvu.
Þessi maður heitir Vladimir og
hefur ættarnafnið Jakúb. Ég
hélt í einfeldni minni, að þennan
mann ætti ég aldrei eftir að sjá
eða heyra. En það var nú öðru
Vladimir Jakúb.
nær. Svo gerist það einn góðan
veðurdag, að þessi maður fer að
skrifa síðu upp og síður niður í
íslenzkt dagblað. Og að sjálf-
sögðu er það Morgunblaðið,
sama blað og Hannes Hólm-
steinn skrifar í.“
Vladimir Jakúb hefur m.a.
verið kennari í íslenzkum fræð-
Framhald á bls. 30
UM ÞESSAR mundir er vcrið að
vinna að athugun á framtíðar-
hlutverki og þróun Landakots-
spitala. Kom þetta m.a. fram á
hverfafundi Birgis Isleifs Gunn-
arssonar borgarstjóra s.I. sunnu-
dag. sem hann hélt fyrir íbúa Nes-
og Melahverfis. Vestur- og Mið-
bæjarhverfis. A fundinum sagði
borgarstjóri, að rætt hefði verið
um stækkun spítalans, en engin
samþykkt né beiðni um stækkun
hans héfði enn borizt borgar-
stjórn.
Borgarstjóri sagði að samkvæmt
upphaflegri teikningu að Landa-
kotsspítala væri gert ráð fyrir
einni álmu til viðbótar, þvert á
Öldugötu. Kvað hann engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
staðsetningu þessarar álmu, hæð
hennar, né hve langt hún ætti að
ganga í átt að Öldugötu. Allt væri
enn óljóst í þessum efnum, en að
sjálfsögðu yrðu engar samþykktir
gerðar varðandi byggingu fyrir-
hugaðrar álmu nema tekið væri
fullt tillit til umhverfisins þarna í
kring, og einnig yrði fyrirhuguð
framkvæmd ýtarlega fyrir íbúum
hverfisins.
Þá sagði Birgir ísleifur Gunn-
arsson, að það hefði komið fram
hjá stjórnendum sjúkrahússins, að
í fyrirhugaðri álmu yrði komið
fyrir þjónustumiðstöð, eins konar
Framhald á bls. 30
Fundir með
sáttasemjara
FYRSTI fundur sáttasemjara
ríkisins með fulltrúum Verka-
mannasambands íslands og vinnu-
veitenda er boðaður í dag klukkan
14. Þá hefur sáttasemjari ríkisins,
Törfi Hjartarson, boðað vinnuveit-
endur og fulltrúa Alþýðusam-
bands íslands til fyrsta sátta-
fundar aðila á föstudag klukkan
14.
Stal skartgripum
fyrir 4 milljónir
— en var gripinn með þýfið eftir
nokkra kiukkutíma
INNBROT var framið í skart-
gripaverzlun Vals Fannar
aðfararnótt s.l. mánudags og
hafði þjófurinn á brott með sér
skartgripi og úr að söluverðmæti
tæpar fjórar milljónir króna.
Vegna góðrar samvinnu Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og
embættis lögreglustjóra í Reykja-
vfk tókst að hafa upp á þjófinum
aðcins fjórum klukkustundum
eftir að innbrotið uppgötvaðist og
komst allt þýfið til skila.
Það var vegfarandi, sem átti
leið um Lækjartorg um hálfsex-
leytið að morgni mánudagsins,
sem varð var við að rúða hafði
verið brotin í hurð verzlunarinnar.
Var rannsókn málsins þegar hafin
og athuganir á staðnum bentu til
þess að þarna hefði verið að verki
19 ára piltur, sem áður hefur
komið við sögu hjá lögreglunni. A
tíunda tímanum um morguninn
hafðist upp á piltinum og var hann
með hluta þýfisins á sér en vísaði
á hitt. sem hann hafði falið.
Vinsamleg-
ar viðræður á
Suðurnesjum
FORMENN Verkalýðsfélaganna
á Suðurnesjum áttu í gær fundi
með fulltrúum Flugleiða annars
vegar og fulltrúum Vinnuveit-
endafélags Suðurnesja hins veg-
ar. Á þessum fundum voru ýmsar
hugmyndir viðraðar og voru
fundir aftur fyrirhugaðir í viku-
lokin.
Samkvæmt upplýsingum Karls
Steinars Guðnasonar, formanns
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur, voru viðræður vin-
samlegar, og sagði hann að vinnu-
veitendur þættust allt vilja fyrir
launþega gera. Þó hafi það komið
fram að þeir teldu að þeir sem
kveikt hefðu b4hð ættu að. ^lþkkya
það einnig.
Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri;
Nauðsynlegt að allir vinni
eigi meirihlutinn að haldast
Herbragð andstæðinga okkar að halda þvi fram að meirihlutinn í borgarstjórn sé öruggur
„EINS og reynslan hefur sýnt.
getur allt gerzt í þessum
kosningum, og því fer fjarri,
að Sjálfstæðisflokkurinn sé
öruggur með að halda meiri-
hluta í borgarstjórn,“ sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson
þeim inni.
tapi meirif“kt?'Trtrí«>fyrirÞv'
_Éggetekkig me59 full-
iþettaak'Pt' ^ upi einum
trúa og þö • áf)ur mein-
halda þe.r *u,r getur alU >
hlutanum v,ssule® e,í, a0 sihur
•arZVTSAf.xSi
borgarstjóri. er Morgunblaðið
bar undir hann ummæli Sigur-
jóns Péturssonar, efsta manns
á lista Alþýðubandalagsins,
sem viðhöfð voru eftir honum
í Þjóðviljanum síðastliðinn
laugardag. „Hér er augljós-
lega um herbragð að ræða af
hálfu andstæðinga okkar sjálf-
stæðismanna. Þeir halda því
nú allir fram, hver í kapp við
annan, að Sjálfstæðisflokkur-
inn sé öruggur með meirihlut-
ann. Þetta er til þess gert að
skapa andvaraleysi á meðal
baráttusveita sjálfstæðis-
manna og jafnframt meðal
þess mikla fjölda stuðnings-
manna meirihluta borgar-
stjórnar, sem eru óflokks-
bundnir eða kjósa jafnvel aðra
flokka í þingkosningum.“
Birgir ságði að sjálfstæðis-
menn hefðu að vísu fengið
óvenju góð úrslit í kosningun-
um fyrir fjórum árum, en hann
kvað þá hafa verið allsérstakar
aðstæður. Við völd hafi verið
vinstri stjórn, sem var mjög
óvinsæl," og reynslan í borgar-
stjórnarkoBningum sýnir, að
þegar þannig stendur á, fáum
við alltaf betri kosningu. Þegar
hins vegar líkt stendur á og nú,
að Sjálfsæðisflokkurinn er í
stjórnarforystu, þá hefur það
alltaf reynst okkur óhagstætt í
borgarstjórnarkosningum og
reyndar höfum við aldrei verið
nær því að missa meirihlutann
en einmitt, þegar við höfðum 9
borgarfulltrúa 1966. Þess vegna
gæti sú saga endurtekið sig nú,
ef sveiflan á annað borð byrjar
niður á við. Er þá útilokað að
segja, hvort hún stöðvast við 8
menn eða 7 menn.“
„Ég vil þess vegna hvetja alla
okkar stuðningsmenn,“ sagði
borgarstjóri, „að fá ekki slíka
glýju í augun, þótt andstæðing-
ar okkar haldi þessu fram. Því
er nauðsynlegt að allir vinni að
sigri, eigi hann að nást í
þessum kosningum." . v MMflH;