Morgunblaðið - 03.05.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
15
Kynnisferð
Rótarý til Ástralíu
í FEBRÚAR s.l. var efnt til dæmisþing Rótarý fór fram. Þaö-
tveggja mánaða náms- og kynnis-
ferðar á vegum Rótarý til Ástralíu
fyrir sex íslendinga og var greint
frá ferðinni og tilgangi hennar á
blaðamannafundi nýlega.
Óskar Þór Sigurbjörnsson, for-
seti Rótarýklúbbsins á Olafsfirði,
Vvar fararstjóri í ferðinni og sagði
hann m.a.: Ferðin sem hér um
ræðir var gagnkvæm náms- og
kynnisferð milli Rótarýumdæma,
nefnd Group Study Exchange.
Sumarið 1977 komu sex Ástralíu-
menn til íslands og feröuðust þeir
um landið í sex vikur.
Þessar ferðir eru fastur liður í
námsstyrkj akerfi Rótarýsj óðsins
og er þetta í annað sinn, sem
íslenzka umdæmið tekur þátt í
þessum samskiptum, sem annars
eru stöðugt milli umdæma víðs
vegar um heiminn. íslenzka um-
dæmið sendi sjö manna hóp til
Ohio í Bandaríkjunum árið 1968 og
hópur þaðan heimsótti ísland árið
1969.
Tilgangur þessara ferða er að
veita ungum mönnum utan Rót-
arýhreyfingarinnar á aldrinum
25-35 ára tækifæri til að kynnast
öðrum þjóðfélögum, þjóðskipulagi,
atvinnuvegum og íbúum og eru
þátttakendur valdir af Rótarý-
klúbbum um land allt og úr öllum
starfsgreinum.
Rótarýsjóðurinn ber allan ferða-
kostnað, en Rótarýmenn í viðkom-
andi umdæmum sjá um móttökur
og dvalarkostnað hópanna.
Islenzku Rótarýklúbbarnir til-
nefndu menn til þessarar Ástr-
alíufarar og voru fimm valdir úr
þeirra hópi auk fararstjóra, sem er
Rótarýmaður en samkvæmt regl-
um mega þátttakendur alls ekki
vera félagar í Rótarý né venzla-
menn félaga."
Þátttakendur í Ástralíuförinni
voru, auk Oskars fararstjóra,
Baldur Snær Ólafsson kennari á
Egilsstöðum, Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri frá Rótarý-
klúbbi Keflavíkur, Sveinn Smári
Hannesson viðskiptafræðingur frá
Rótarýklúbbi Kópavogs, Svavar
Stefánsson sóknarprestur Nes-
kaupsstað og Bjarni Þór Jónsson
bæjarstjóri í Siglufirði.
Lagt var upp frá Keflavík 11.
febrúar, flogið til Aþenu með
viðdvöl í Luxemborg, Frankfurt og
Búdapest. Eftir tveggja daga dvöl
í Aþenu var flogið til Karachi í
Pakistan. Næsti viðkomustaður
var Bangkok á Tailandi, síðan
Singapore og kom hópurinn til
Sidney í Ástralíu 20. febrúar. Þar
var tekið á móti þeim af ræðis-
manni íslands í Ástralíu ásamt
félögum úr Rótarýhreyfingunni
þar.
Hin skipulagða heimsókn hófst
í bænum Taree og frá þeim bæ
ferðuðust þeir í hálfan mánuð
norður eftir ströndinni, voru
ýmsir bæir heimsóttir og atvinnu-
vegir kannaðir.
Því næst lá leiðin upp í hálendið.
Þar voru heimsóttir nokkrir bæir,
m.a. Tamworth, þar sem hópurinn
kynnti sér t.d. námavinnslu.
Lá leið þeirra félaga einnig um
hinar víðáttumiklu sléttur í New
South Wales og til Casino nálægt
austurströndinni, þar sem um-
an var haldið flugleiðis áleiðis til
Islands.
Eitt skilyrðanna fyrir þátttak-
endur var að hver og einn kynnti
sér starfssvið sitt á þessum slóðum
í fimm daga. Að sögn fararstjór-
ans voru tekin við þá viðtöl í
fjölmiðlum, sem þeir töldu mikla
landkynningu fyrir ísland.
Rótarý hyggst efna til fleiri
slíkra ferða í framtiðinni og þá
með tveggja til þriggja ára milli-
bili. Að sögn Óskars Þórs Sigur-
björnssonar hafa samtökin hér á
landi möguleika á að senda fleiri
hópa og einnig eru ýmiss konar
nemendaskipti möguleg.
Á:ó.yX -r B1f.nvrrrT...l1— ----------...--—
Þátttakendur í Ástralíuförinni ásamt fararstjóra sínum í heimsókn
á lögreglustöð í bænum Maxwille í New South Wales í Ástralíu.
Hveragerði:
Bifhjól
hverfur
FYRIR TÆPRI viku var stolið
rauðu Zuzuki-bifhjóii frá Hvera-
gerði. Iljólið. sem er stýrisla'st og
rautt að lit. ber númerið X-65. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi
virðist sem hjólið hafi verið tekið
og flutt burtu á vagni. Biður
lögregian alla þá er kunna að
hafa orðið varir við hjólið að láta
sig vita.
AK.I.VSIM.ASIMINN ER:
22480
JWflrjjtmfclaÖiJí
Eru
íslendi
útía
Já margir hverjir, það fer ekkert milli mála - þó eru þeir
sérstaklega úti að akaásumrin - þáskipta þeir þúsundum.
Ástæðan?
Jú ástæðan er einföld, hún er sú að afsláttarfargjöld
okkar gera öllum kleift að komast utan ísumarleyfi til þess
að sjá sig um, kynnast frægum stöðum - og gista
heimsborgir.
Þeir sem þannig ferðast ráða ferð-
inni sjálfir - sumir fara um mörg
lönd - aðrir fara hægar yfir og
halda sig lengst þar sem
skemmtilegast er.
Það þarf engan að undra
þótt margir séu úti að aka á
sumrin - á eigin bílum eða
leigðum bílum.
Kynntu þér afsláttarfargjöld
okkar - þau gætu komið þér
þægilega á óvart - og orðið til
þess að þú yrðir líka úti að aka í
sumar.
flucfélac LOFTLEIDIR \
LSLANDS ^