Morgunblaðið - 03.05.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
35
Frá vinstri: Stefán Jóhannsson féiagsráðunautur á Vistheimilinu að
Vífilsstöðum, Ólafur Grímsson trúnaðarlæknir og Valgarður Breiðfjörð
formaöur Líknarfélagsins Risið. Ljósm. RAX.
CWfet c! tfie ^rtls.
t
Nú er loksins komin ný sending af
hinum víðfrœgu og dásamlegu
Ctwrfes o! fíie ítffz.
snyrtivörum fyrir dömur.
Mikið úrval
TOYOTA
3
i C
£S :o
3 H
^*******
■s •
£ <o
? ö)
0)<0
?>
Ó 0
<>k
0»
o>
>o
4»
4
TOYOTA
ÍT*-
VARAHLUTAUMBOÐIÐ H/F
ARMULA 23, REYKJAVÍK
SIMI 81733
■HHI
í 2 Overlock saumar
2 Teygjusaumar
□ Beinn SAUMUR
□ Zig-Zag
[]] Hraðstopp
(3ja þrepa zig zag)
| | Blindfaldur
Sjálfvirkur
hnappagatasaumur
| | Faldsaumur
Tölufótur
[7] Útsaumur
[H Skeljasaumur
[ j Fjölbreytt úrval fóta og
stýringar fylgja vélinni
Einnig höfum viö mikiö úrval af
öðrum snyrtivörum,
bœði dýrum og ódýrum.
LAUGAVEGS APÓTEK
Snyrtivorudeild
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarf ólki
Austurbær
Sóleyjargata.
Vesturbær
Ægisíöa.
Upplýsingar í síma 35408
*f$nnfrIafeU>í
Líknarfélagið Risið var stofnað á
liðnu sumri og var tilgangur stofn-
unar Þess einkum að setja á stofn
og starfrækja vistheimili fyrir fólk er
væri að koma úr meöferö vegna
ofneyzlu vímugjafa.
Hefur félagið síöan á líðnu hausti
rekið Gistiheimili aö Brautarholti 22
í Reykjavík og hafa s.l. vetur dvalið
par alls um 90 manns í lengri eöa
skemmri tíma og stundað vinnu
Þaöan og síðan e.t.v. horfið til fyrri
heimkynna. Forráöamenn vistheim-
ilisins boðuðu fréttamenn á sinn
fund nýlega og greindu frá Því að
nú lægi Þaö fyrir að húsnæði Þaö er
félagið hefði haft á leigu væri ekki
í boði lengur en til 1. júní og Því
hafin leit á öðru húsnæði og er
jafnframt efnt til happdrættis til að
standa undir kostnaði við rekstur-
inn.
Stefán Jóhannsson félagsráóu-
nautur á Vistheimilinu á Vífilsstöðum
sagði að vistheimiliö hefði veriö
stofnað til þess eins að starfrækja
eftirmeðferöarheimili fyrir það fólk
sem kæmi úr meðferð vegna of-
neyzlu vímugjafa frá Vistheimilinu að
Vífilsstöðum, Gunnarsholti, Víðinesi,
Kleppsspítala eöa frá Bandaríkjun-
um, en aö stofnun heimilisins heföu
staðiö fyrrverandi vistmenn frá
Vífilsstöðum og starfsfólk þar. Sagöi
Stefán að borið hefði á því •að erfitt
væri að útvega þessu fólki húsnæöi
og atvinnu og þar sem margt væri
þaö slitiö úr tengslum viö ástvini og
fjölskyldu gæti þarna gefizt tækifæri
til að byggja upp nokkuö fjölskyldulíf
eða heimili og skapa mönnum það
öryggi sem þyrfti til að blandast öðru
fólki og öðlast frelsi á ný.
Stefán sagöi aö til aö standa undir
kostnaði heföi verið leitað til fyrir-
tækja um fjárframlög svo og með
þaö í huga aö þau tækju fólk í vinnu
til reynslu og hefði verið brugðist vel
við þeim málaleitunum. Þá hafa verið
haldnar mánaöarlega skemmtanir til
aö afla tekna og nú síðast væri
ákveöiö að efna til happdrættis og
væri vinningur bifreið af gerðinni
Renault 5 TL, en dregið yrði hinn 17.
júní n.k.
Vistheimilið aö Brautarholti hefur
verið rekið að mestu í kyrrþey, sagði
Stefán, en nú veröum við að fá fólk
til liðs viö okkur en fyrir utan þetta
heimili er aðeins eitt rekið í Reykjavík
meö svipuðu sniöi, en það er á
Ránargötu. Á þessum heimilum
rúmast um 50 manns samtals.
— Heimilið hér hefur veriö rekið á
þann hátt aö hingað eru aðeins teknir
þeir sem eru að koma úr meðferð og
fá aö dvalja hér, þeim er hjálpaö til
aö finna atvinnu og greiða þeir fyrir
húsaskjól og mat og fyrir kemur
einnig að þeir sem hverfa héðan í
annað húsnæöi séu hér áfram í fæði.
Hafa margir lagt hönd á plóginn til aö
koma þessari starfsemi af stað og
halda henni gangandi og er formaður
félagsins Risið Valgarður Breiðfjörð,
en Ólafur Grímsson læknir hefur
verið trúnaðarlæknir heimilisins.
Um meðferð þeirra er hyrfu frá
heimilinu og kæmust í annað hús-
næði sagði Stefán að vettvangur
þeirra væri t.d. AA-samtökin en lagði
á þaö áherzlu aö ekki væru aðrir
teknir til dcalar á heimilinu nema þeir
Leita ad húsnæði
fyrir vistheimilið
að Brautarholti
er kæmu úr meðferð t.dr frá einhverri
framangreindra stofnana. Á heimilinu
geta dvalist 26—28 í einu og hefur
meirihluti þeirra veriö karlar, en um
10% konur. Stefán sagði að draumur
þeirra væri að eignast eigið húsnæði,
en um sinn yrði það að bíöa, nú væri
aöallega leitað eftir hentugu leigu-
húsnæði þar sem hægt væri að halda
starfseminni áfram eftir að hún
verður að flytja úr Brautarholtinu.
EF ÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480