Morgunblaðið - 03.05.1978, Qupperneq 37
MORGUNBLA£)IÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
37
uði árið 1940. Hann var formaður
sóknarnefndar frá upphafi til 1959
og frú Herþrúður var ein af þeim
konum, sem stofnuðu Kvenfélag
Laugarnessóknar 1941. Hún var í
stjórn frá stofndegi, varaformaður
í nokkur ár, en formaður frá 1953
í 12 ár, er hún lét af formennsku
samkvæmt eigin ósk. Undir henn-
ar öruggu stjórn mótaðist félagið
og varð að því afli, sem segja má,
aö það hafi verið innan safnaðar-
ins um undanfarin ár.
Ég átti því láni að fagna að
starfa með henni frá árinu 1953.
Það mátti mikið læra af prúð-
mennsku hennar, öryggi, hug-
kvæmni og djörfung, þegar taka
þurfti afstöðu til ýmissa mála.
Hún naut óskertrar virðingar bæði
félagskvenna og allra, sem kynnt-
ust henni. Frú Herþrúður var
glæsileg kona, það sópaði að henni.
Gestrisni hennar var þannig að
hver gestur var heiðursgestur og
þá var ekki sízt veitt af andans
verðmæti og hlýju. Það var eins og
árin færu mjúkum höndum um
hana. Þrátt fyrir háan aldur —
hún varð nýlega áttatíu og eins árs
— hélt hún glæsileik sínum og
fegurð. Ég held á slíkt gerist ekki
nema persónan sé í andlegu
jafnvægi. Það var unun að sjá
Herþrúði sem miðpunkt, þegar hin
myndarlega fjölskylda hennar
kom saman í tilefni barnaskírnar,
fermingar eða við önnur tækifæri.
Hún var eins og drottning. En um
leið var hún áreiðanlega einnig
þeirra bezti vinur. Og leyndarmál-
ið var það, að hún var ung, síung
í anda, í hugsun og tilfinningum.
Þess vegna átti hún ekki síður
samleið með barnabörnunum en
með börnunum sínum.
Þegar lífsferill hennar nú er á
enda, vil ég votta þakklæti mitt
fyrir að hafa fengið að vera henni
samferða um skeið og verða
aðnjótandi vináttu hennar og
hlýju. Ég þakka hennar mikla
starf öll árin í Kvenfélagi Laugar-
nessóknar fyrr og síðar.
Guð blessi börnum og barna-
börnum hennar og okkur öllum
vinum hennar minninguna um
sérstæða merkiskonu.
Vivan Svavarsson
Minning:
Þóra Jónasdóttir
frá Reynifelli
Móðursystir mín Þóra Jónas-
dóttir andaöist hinn 25. fyrra
mánaðar og langar mig að minn-
ast hennar með fáeinum línum,
þótt ég viti vart hvernig orða skal
þaö sem inni fyrir býr.
Þóra var fædd hinn 21. júlí 1901
að Reynifelli á Rangárvölfum,
dóttir hjónanna Jónasar Árnason-
ar, bónda Guðmundssonar, bónda
Brynjólfssonar, Keldum í sömu
sveit og konu hans Sigríðar
Helgadóttur bónda að Arbæ í
Holtum, Jónssonar bónda s.st.
Runólfssonar. Munu þetta alkunn-
ar ættir um Suðurland og rek ég
þær ekki frekar að sinni.
Þóra ólst upp hjá foreldrum
sínum við gott atlæti, leitaði sér
náms bæði innanlands og utan og
vann að námi loknu ýmis störf.
Árið 1928, hinn 22. júlí, giftist
hún Halldóri Éinarssyni,
rafmagnseftirlistsmanni, frá Mið-
ey í Austur-Landeyjum. Settu þau
bú saman í Reykjavík og hér átti
Þóra heima alla tíð, síðast liðinn
aldarfjórðung að Hringbraut 106.
Halldór og Þóra eignuðust tvo
syni, Jónas f. 12. október 1930 og
Hrólf f. 21. maí 1935, en urðu fyrir
þeirri sáru sorg að missa eldri
drenginn sinn þann 20. júní 1935.
Halldór andaðist 14. september
1955, en Þóra naut þeirrar ham-
ingju að eiga heimili með Hrólfi,
syni sínum og hans ágætu konu
Halldóru Sveinbjörnsdóttur og
dætrum þeirra. Síðustu árin voru
hamingjuár, samhentari fjöl-
skvlda er vandfundin, einkum voru
sonardæturnar ömmu sinni miklir
gleðigjafar.
Halidór Einarsson, maður Þóru
var föðurbróðir minn og alveg
einstakur mannkostamaður, leyfi
ég mér að segja, þótt mér sé málið
skylt. Hann dó aðeins 54 ára
Guðmundína Þorleifs-
dótttr— Minningarorð
Fædd 14. desember 1901
Dáin 3. apríl 1978
Amma er dáin. Við barnabörnin
sitjum eftir hnípin og sorgmædd.
Erfitt er að trúa þessu og sætta sig
við þá tilhugsun. Amma hafði
alltaf verið svo hraust. Amma
fæddist að Lykkju í Garði en ólst
upp í Garðbæ. Foreldrar hennar
voru hjónin Hólmfríður Helga-
dóttir og Þorleifur Guðmundsson.
Systkinin voru alls 10 en aðeins 4
þeirra komust vel til fullorðinsára.
Amma fluttist til Hafnarfjarðar
með foreldrum sínum árið 1919 og
átti þar ætíð' heima síðan.
Hinn 28. júní 1924 giftist hún
Gunnari Jónssyni, f. 7. júní 1894,
d. 8. marz 1978. Þau voru mjög
samrýmd. Þau bjuggu fyrstu 3
árin hjá foreldrum afa, en fluttust
þá í eigið hús að Hellisgötu 22, sem
afi hafði byggt að miklu leyti
sjálfur.
Þau eignuðuut alls 5 börn, en
misstu dreng, Baldur, sex mánaða
gamlan. Hin búa öll í Hafnarfirði.
Þau eru: Þorleifur Hólm, giftur
Guðrúnu Jónsdóttur, Jón Erlend-
ur, giftur Ólöfu Óskarsdóttur,
Helgi giftur Ingveldi Einarsdóttur
og Guðrún gift Gunnari Hólm-
steinssyni.
Amma var mikið ein með börnin
þar eð afi var langdvölum á
sjónum, þegar þau voru ung. Hann
stundaði sjómennsku í nær 40 ár.
Amma vann einnig talsvert utan
heimilis fyrr á árum meðan
harðast var í búi, til að drýgja
tekjur heimilisins. Þau voru bæði
góðir liösmenn verkalýðsfélag-
anna á þeim árum.
Það var gott að koma til ömmu
og afa. Þau voru alltaf glaðleg og
góð. Amma var hæggerð og
hlédræg. Hún var engu að síður
Kærasta umræðuefni þeirra
systkina, Guðrúnar, Helga og Þóru
voru endurminningar þaðan.
Þegar þær voru rifjaðar upp,
sátum við strákarnir af þriðju
kynslóðinni hljóðir og heillaðir.
Ennþá finnst mér ég þekkja til
á heimilinu, þótt ég kæmi þar
aidrei, húsaskipun, heimilisbrag-
ur, fólkið, sem jafnan var margt í
búskapartíð afa og ömmu, ungt og
kátt vinnufólk, elskuleg börn,
mildir og hlýir húsbændur, gamla
fólkið í horninu.
Nú er Guðrún fóstra mín ein
eftir þeirra systkina og saknar
Þóru okkar eins og við hin, en það
var eitt af einkennum þeirra, held
ég, að þykja þeim mun vænna
hvorri um aðra, sem þær voru
meira ósammála um menn og
málefni.
Samræður þeirra eru okkur
frændum og vinum ógleymanleg-
ar.
Eitt af einkennum móðursystra
minna var og er takmarkalaust
umburðarlyndi við okkur þá yngri,
hjá okkur var þetta margnefnda
kynslóðabil alls ekki til.
Börnin okkar áttu ekki síður
auðvelt að ræða við Þóru en
foreldrana, henni mátti allt segja,
sumt leyndarmál.
Við Þórunn, börn okkar og
barnabörn kveðjum nú Þóru
frænku með viröingu og þakklæti
fyrir elsku hennar og tryggö, allt
til hinstu stundar.
Fyrir okkur er heimurinn fá-
tækari eftir að hún er farin, en
gott mun þreyttum aö sofa.
Einar Ágústsson.
gamall, öllum harmdauði, okkur
þó mest er næst honum stóðu.
Svo sem að líkum lætur átti ég
tíðar komur á heimili Þóru og
Halldórs, móðursystur og föður-
bróður, og eru mér þær heimsókn-
ir ógleymanlegar bæði fyrr og
síðar.
Einkum er mér þó minnisstæð
sú fádæma tilhlökkun sem ævin-
lega greip mig þegar var leyft að
fara orlofsferðirnar til Reykjavík-
ur, fyrst árið sem móðir min dó og
ég var sjö ára, og alla mína
æskutíð þar til ég kom hingað til
vetrardvalar í skóla og bjó hjá
þeim.
Mér er ómögulegt að lýsa þessu
nánar, enda á það vitaskuld ekkert
erindi við annað fólk þótt litlum
labbakút hafi þótt sér sómi
sýndur, en fyrir hann eru þarna
óbrotgjarnir dýrgripir, geymdir í
þakklátu hjarta.
Afi og amma á Reynifelli voru
látin fyrir mína tíð. Get ég því að
sjálfsögðu ekkert um þau sagt frá
eigin brjósti. En spurnir hef ég
haft af því heimili og allar góðar.
Víst er líka að börn þeirra
minntust æskuheimilisins með
þakklæti og virðingu.
fReösur
á morgun
(il)ÐSJALL DAGSINS,
Markus Ifi. M—20.
LITIIR DAGSINS.
Ilvítur. Litur RloÁinnar
Uppstígningar-
dagur
DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11 árd.
Séra þórir Stephensen.
BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 2.
Organleikari Guöni Þ. Guömunds-
son. Handavinnu- og föndursýning
eftir messu. Átthagakór Stranda-
manna syngur. Kaffisala. Séra
Ólafur Skúlason, dómprófastur.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Séra Karl sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Séra Arngrímur Jónsson.
KÓPAVOGSKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 2. Séra Þorberg-
ur Kristjánsson.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 2
síöd. Séra Ingólfur Guömundsson
lektor predikar. Kaffisala kven-
félagsins verður í Domus Medica
kl. 3 síöd. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 2
e.h. Séra Guömundur Óskar Ólafs-
son.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa
kl. 2 síöd. Séra Þorsteinn Björns-
son.
GRUND elli- og hjúkrunarheimil-
ið: Messa kl. 2 síöd. Séra Tómas
Guðmundsson prédikar. Kirkjukór
Hveragerðis syngur.
DOMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
— Hámessa kl. 10.30 árd. Lág-
messa kl. 2 síöd.
KAPELLA St Jósefssystra í
Garöabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
EYRARBAKKAKIRKJA:
Barnaguösþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
seljum
tilfinningarík en bar tilfinningar
sínar ekki á torg þó eitthvað
bjátaði á. Hún var trúuð koma og
, setti traust sitt á Guð, bæði í sorg
og í gleði.
Amma og afi áttu fallegt og
snyrtilegt heimili og voru þau
samhent um að prýða það, en
umfram annað var það þó hlýjan
sem einkenndi það eins og viðmót
þeirra sjálfra. Marga fallega muni
gerðu þau amma og afi bæði fyrir
heimilið sitt og til að gleðja með
börnin og barnabörnin. Þau voru
baeði listfeng vel.
í desember siðastliðnum fluttust
þau á Hrafnistu í Hafnarfirði og
undu þau þar hag sínum vel.
Við barnabörnin og litla barna-
barnabarnið, sem enn er svo lítil,
að hún skilur ekki hvað hún hefur
misst, spyrjum. Af hverju? Við því
fæst ekki svar. Enginn má sköpum
renna. Líf þeirra var fagurt og
hamingjuríkt og við geymum
minningu um gæskuríka ömmu og
afa.
Guð blessi minningu þeirra.
Erla Jónsdóttir.
• Gluggatjaldaefni og húsgagnaáklæöi úr bómull og
ull — 450 tegundir
• Kókos- og sísalgólfteppi — 25 tegundir.
• Leöursófa og stóla — húsgögn í samkomusali og
fundaherbergi — sérhönnuö húsgögn handa öldruðum.
Við leggjum sérstaka áherslu á vandaðar og vel hannaðar vörur úr
náttúruefnum, sem endast vel og vinna á með aldrinum. Vörur, sem
menn geta verið stoltir af að hafa á heimili sínu.
epol
I V/Laugalæk Reykjavík
V/Laugalæk Reykjavík — sími 36677
Opið mánudaga — föstudaga frá kl. 14—18.