Morgunblaðið - 03.05.1978, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
Úrslitakeppni íslands-
mótsins í sveitakeppni
í KVÖLD hefst á Hótel Loftleiöum úrslitakeppni íslandsmótsins
í sveitakeppni, en alls taka átta sveitir þátt í keppninni. Dregið
hefir verið um töfluröð og verður hún þessii
1. Iljalti Eliasson
2. Jón Ásbjörnsson
3. Sigurjón Tryggvason
4. Stefán Guðjohnsen
5. Steingrímur Jónasson
6. Ármann J. Lárusson
7. Guðmundur T. Gislason
8. Guðmundur Hcrmannsson
í fyrstu umferðinni sem hcfst klukkan 20 í kvöld spila saman.
1 og 8. 2 og 7, 3 og 6. 4 og 5.
Keppni þessi verður án efa mjög spennandi og væntanlega allir
leikirnir úrslitaleikir. Ekki þarf að taka fram að áhorfendur eru
velkomnir og verður væntanlega eins og að undanförnu sýnt á
sýningartöflu.
Spilaðar verða 7 umferðir og verða þær sem hér segir:
1. umf. miðvikud. 3. maí kl. 20.00
2. umf. fimmtud. 4. maí kl. 13.15
3. umf. fimmtud. 4. maí kl. 20.00
4. umf. föstud. 5. maí kl. 20.00
5. umf. laugard. 6 maí kl. 13.15
6. umf. laugard. 6. mai kl. 20.00
7. umf. sunnud. 7. maí kl. 13.15
Brldge
eftir ARNOR
RAGNARSSON
Frá Barð-
strendingum
7. Sveinbjörn Axelss. 200
8. Ragnar Þorsteinss. 200
Þökkum ykkur fyrir veturinn
og bjóðum ykkur öllum gleðilegt
sumar. Sjáumst hress og kát í
haust.
Breiðfirðing-
ar sigruðu
Sl. fimmtudag fór fram árleg
keppni milli Bridgefélags
kvenna og Bridgedeildar Breið-
firðingafélagsins.
Úrslit urðu þau að Breiðfirð-
ingar fóru með sigur af hólmi á
öllum borðum nema tveimur. Á
fyrsta borði varð sveit, Jóns
Stefánssonar að láta sér nægja
5 stig á móti 15 stigum sveitar
Hugborgar Hjartardóttur.
Keppnin fór í alla staði vel
fram.
Á fimmtudag verður spiluð
önnur umferð í tvímennings-
keppni Breiðfirðinga. Spilað er í
keppni félagsins, úrslit þessi: A. 1. Guðmundur Guðveigss. urðu 114 Bridgefélag Breiðholts
2. Kristinn Oskarss 103 Þriðja umferð i barometer-
3. Pétur Sigurðsson 102 keppni félagsins var spiluð
4. Gunnlaugur Þorsteinss. 95 þriðjudaginn 25. apríl. Urslit
5. Birgir Magnússon 95 urðu þessi:
6. Finnbogi P’innbogason 94 Finnbogi Guðmarsson —
B. Sigurbjörn Ármannss. +55
1. Baldur Guðmundss. 109 Guðlaugur Karlsson —
2. Viðar Guðmundsson 108 Elísabet Sigvaldadóttir +28
3. Helgi Einarsson 106 Guðmundur Pálsson —
4. Olafur Árnason 103 Guðbjörg Jóelsdóttir +28
5. Jóhanna Árnadóttir 102 Staðan eftir 3 kvöld var þessi:
6. Ragnar Þorsteinsson 101 Finnbogi Guðmarsson —
Lokastaðan í keppninnii Sigurbjörn Ármannss. +79
1. Helgi Einarss. 212 Sigríður Rögnvaldsdóttir —
2. Ólafur Árnason 211 Vigfús Pálsson +63
3. Viðar Guðmundss. 206 Guðlaugur Karlsson —
4. Kolbrún Indriðadóttir 203 Elísabet Sigvaldadóttir +28
5. Pétur Sigurðss. 202 Síðasta umferðin var spiluð í
6. Finnbogi Finnbogas. 201 gærkvöldi.
Bridgeíélag Breiðholts var stofnað fyrir fáum árum og er
vaxandi áhugi fyrir bridgeíþróttinni í þessum byggðar
kjarna Rvíkur. Myndin var tekin í vetur, en þá stóð yfir
sveitakeppni. Formaður bridgefélags Breiðholts er
Sigurjón Tryggvason.
„Casa” hælt á Ítalíu
Ilér að ofan gefur að líta opnu
í nýjasta tölublaði ítalska tíma-
ritsins Ottagono. sem fjallar um
húsbúnað og húsagerðarlist. Er
hér farið lofsamlegum orðum um
starfsemi „Casa“ við Borgartún í
Reykjavík. en fyrirtækið starfar
jöfnum höndum sem sýningarsal-
ur og sölubúð. Þar er mikið um
ítalska húsmuni, og segir m.a. í
umsögn Ottagono. að vcrzlunin
standist fyllilcga samanhurð við
það bezta, sem um er að ræða á
sama sviði í erlendum stórborg-
um. Þá er vakin athygli á
smekklegrí hönnun og frágangi
húsakynnanna. sem verzlunin
starfar í. svo og því að vel hafi
tekizt að velja saman hluti, sem
séu upprunnir á ólfkum slóðum.
eins og t.d. Ítalíu og Finnlandi, en
í verzluninni cr mikið um muni
frá fyrirtæki Alvars Aalto hins
finnska.
Ilclgi Hjálmarsson arkitekt
teiknaði innréttingar í „Casa“, en
vcrzlunina rcka tvenn hjón. Að
sögn Einars Magnússonar. tann-
læknis í Keflavík, sem er einn
eigenda. þótti þeim húsgagnaval
hér á landi nokkuð einhæft og
langaði því til að reyna hvort
ekki væri grundvöllur fyrir verzl-
un. þar sem áhcrzla væri lögð á
listræna hönnun og háan gæða-
flokk.
Sagði Einar að þessi
tilraun hefði tekizt vonum fram-
ar.
r
Ljósmæðrafélag Islands 60 ára:
Saga ljósmæðra frá
upphafi á næsta ári
„LJÓSMÓOURSTARFIÐ er fyrsta
viðurkennda starfsgrein kvenna hér
á landi og lengst af sú eina, sem
konur áttu kost á að læra og taka
próf í,“ segir m.a. í fréttatilkynningu
frá Ljósmæðrafélagi íslands sem
verður sextugt á næsta ári. í tilefni
atmælisins mun félagið gefa út
stéttartal Ijósmæðra og láta skrá
sögu starfsgreinarinnar hér á landi.
Með stofnun landlæknisembætt-
isins árið 1760 hófst skipulögö
fræðsla Ijósmæðra hér á landi.
Fyrsti landlæknir Bjarni Pálsson,
sat að Nesi við Seltjörn og árið 1761
útskrifaði hann fjórar fyrstu Ijós-
mæðurnar.
Nú er til hjá félaginu spjaldskrá yfir
nær allar íslenzkar Ijósmæður frá
1761 til þessa dags eða um 1500
nöfn og æviágrip flestra þeirra.
Þegar Vilmundur Jónsson land-
læknir var aö viöa aö sér efni á
Þjóöskjalasafni í ritverk sitt „Læknar
á íslandi", hreyfði hann þeirri hug-
mynd viö Harald Pétursson, fyrrum
safnhúsvörð, aö skrá þyrfti einnig
fyrstu embættisstétt íslenzkra
kvenna.
Um árabil skráöi Haraldur allt er til
fannst um Ijósmæöur og eru heimild-
ir hans einkum skýrslur landlækna,
prófbækur héraöslækna, launa-
skýrslur amtmanna, manntöl og ýmis
annar fróöleikur á skjölum í safninu.
Þetta mikla safn handrita hefur
Haraldur Pétursson afhent Ljós-
mæörafélagi íslands til úrvinnslu viö
útgáfu Ljósmæöratals. Varö þaö
félaginu ómetanleg lyftistöng til aö
ráðast ( útgáfuna, en sú skoöun hefur
lengi verið ríkjandi hjá forráöamönn-
um Ljósmæörafélagsins, aö ekki
væri vansalaust aö slík skrá um
stéttina væri ekki til, segir ennfremur
í frétt frá fólaginu.
í safni Haralds er að finna meira en
eitt þúsund nöfn og æviágrlp* Ijós-
mæöra síöan 1761 eins og fyrr getur.
Jóhanna Friöriksdóttir fyrsta yfirljós-
móöir Fæöingardeildar Landspítal-
ans, safnaöi nokkrum fróöleik og
myndum af starfandi Ijósmæörum á
árunum 1930—1940. Fyrir nokkru
sendi Ljósmæörafélagiö út eyöublöö
til allra félagsmanna meö beiöni um
upplýsingar fyrir stéttartaliö.
Auk venjulegra æviatriöa, eins og
tíökast í starfsgreinatölum, er lögö
áherzla á ættartengsl með Ijósmæör-
Ritnefnd Ljósmæðrafélags íslands.
um og frásagnir ef til eru, svo og ef
eitthvað liggur eftir þær á prenti.
Annaö efni ritverksins „Ljósmæöur
á íslandi" er sögulegur fróöleikur um
stéttina, sem Anna Siguröardóttir,
forstööumaöur Kvennasögusafns ís-
lands, hefur skráö. Skráö verður
saga Ljósmæörafélagsins frá stofnun
1919, getið um lög og reglugerðir
viökomandi stéttinni og birtir kaflar
úr bókinni „Ágrip af sögu Ijósmæðra-
Sýniehom af æviégripi úr sféttartali
liósmæðfá.............—
fræöslu á islandi" eftir Sigurjón
Jónsson lækni, sem kom út 1959.
Ritnefnd starfar á vegum félagsins
meöan þetta mikla verk er í undir-
búningi og er Sólveig Matthíasdóttir
formaður nefndarinnar. Aðrir nefnd-
armenn eru Guörún L. Magnúsdóttir,
Halldóra Ásgrímsdóttir, Sigurbjörg
Guðmundsdóttir, Soffía Valdimars-
dóttir og Björg Einarsdóttir, en hún
hefur ritstjórn með höndum. Núver-
andi formaöur félagsins er Steinunn
Finnbogadóttir.
Stjórn Ljósmæörafélagsins leitaöi
upplýsinga hjá sveitarstjórnum um
Ijósmæöur fyrr og nú, jafnframt var
spurt hvort viökomandi sveitarstjórn
viidi styöja útgáfuna fjárhagslega í
viröingarskyni viö Ijósmæður við-
komandi héraöa. Um þriðjungur
sveitarstjórna hefur svaraö játandi
og sent eða gefiö fyrirheit um aðstoð.
Ljósmæörafélagiö hefur nýlega
fest kaup á húsnasöi aö Hverfisgötu
68A. Sjóöir félagsins eru ekki gildir
og segir í frétt frá félaginu að í mikið
sé ráöist aö kaupa húsnæði og
standa samtímis í aö gefa út ritið.
Ennfremur fer félagiö þess á leit aö
upplýsingar, sem kann aö skorta frá
Ijósmæörum og öörum um stéttina
berist sem ffyrst, svo og myndir.
Skrifstofa félagsins er opin daglega
að Hverfisgötu 68A miHi 16—17.