Morgunblaðið - 03.05.1978, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1978
45
ólíkindum að nokkur heiðarlegur
íslendingar vilji vitandi vits stór-
skaða sína eigin þjóð með svo
lúalegum hætti. Og ég vil vona að
þvílíkir menn finnist eigi hjá
okkar þjóð. Ef svo væri þá væri
illa komið sæmd vorri og sóma.
Ég held að allir hefðu gott af því
að hugleiða vel þessar ljóðlínur úr
frelsisóði Bláskógaskáldsins okkar
góða. Og þó alveg sérstaklega hinn
glaðbeitti foringi fyrir banni á
útflutningsvörum landsmanna á
erlendan markað.
„Öld sem kynnti heiftúð sína
blinda
dauðafjötur knýtti sjálfri sér.
Sérhver athöfn dómsorð með sér
ber.
Hvers manns starf er vald í
velferð þjóðar.
Vondan málstað flýja dísir
góðar.
Manndómsskyldan þung á öllum
er.“
J.M.
Þorkell Hjaltason.“
• Mikil viðskipti
Reykvíkingur, sem segist
hafa þurft að eiga viðskipti við
bílasölur, lét frá sér fara nokkrar
línur:
„Mig undraði stórum þegar ég
þurfti fyrir nokkru að eiga við-
skipti við bílasölu eina í borginni
Þessir hringdu . . .
• Naglana undan
Svo mælti ökumaður við
Velvakanda einn morguninn, en
honum fannst of mikiö um að
ökumenn drægju það að skipta um
hjólbarða undir bílum sínum. —
Nú þegar búið er að vera auð jörð
og komið vor fyrir allnokkru
finnst mér að allir bílar eigi að
vera komnir á sín sumardekk.
Þrátt fyrir að enn séu nokkrir
dagar þar til frestur rennur út,
finnst mér nánast ábyrgðarleysi
hjá ökumönnum að aka enn á
negldum hjólbörðum, því það er
vitað mál að þeir skemma nokkuð
götur, og það er varla við neinni
hálku að búast úr þessu. Mér
finnst að við ökumenn stöndum í
þakkarskuld við gatnamálayfir-
völd fyrir að reka vissan áróður
gegn notkun naglahjólbarðanna,
því með því hafa sjálfsagt ómæld-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Noregi í janúar
kom þessi staða upp í skák þeirra
Ingvars Berri, sem hafði hvítt og
átti leik, og Odds Barroch.
17. RxcG! - bxcG, 18. BÍ5! -
IIxdI+, 19. Hxdl —. Kb7 (Eftir
19.... Dxf5, 20. Da6+ verður
svartur mát) 20. Bxh3 og svartur
gafst upp. -
nýlega. Það sem ég furðaði mig
mest á var hversu margar þær eru
og átti ég eiginlega bágt með að
velja á milli þeirra.
Fyrir fáum árum fóru þess
konar viðskipti fram á fremur
ómerkilegum stöðum, nánast ein-
hverjum kompum, en á síðustu
árum hefur orðið mikil breyting og
framför í þessum efnum, og
keppast sölurnar hver um aðra
þvera að veita sem bezta þjónustu.
Nýjasta uppátækið í því er að
birta myndir af sölugripunum og
ókeypis gera það jafnvel sumar
þannig að hin harðnandi sam-
keppni hefur haft ýmislegt gott í
för með sér. Ég hélt satt að segja
að ekki væru nema tvær, þrjár
bílasölur, t.d. hinar gamalgrónu
við Skúlagötuna og í Bergþórugöt-
unni, en nú liggur við að maður sé
búinn að gleyma þeim fyrir
auglýsingum frá öðrum og nýtil-
komnum bílasölum. Nú er líka
verið að setja einhver lög um kaup
og sölu lausafjármuna á Alþingi
eða ræða um þau öllu heldur, en
ekki veit ég hvort þau muni ná
fram að ganga eða hvort vit er í
þeim.
Hitt er annað að sjálfsagt
vantar löggjöf um þessi efni hér og
ekki sízt þegar það er haft í huga
að t.d. varðandi bílasölu þá er um
milljónaviðskipti að ræða, skulda-
bréf, víxla og hver veit hvað og því
hlýtur það að vera nauðsynlegt að
bezta mögulega þekking og þjón-
usta sé veitt.
Reykvíkingur.“
• Úrslit í
söngvakeppninni
„Við erum hérna tvær 17 ára
úr Kópavogi. Okkur þykir það
helv... hart að þið skulið hafa
birt nú þegar úrslitin í Evrópu-
söngvakeppninni sem haldin.var
22. apríl s.l. Okkur og mörgum
öðrum finnst að þið hefðuð alveg
getað beðið með að birta úrslitin
þar til að búið væri að sýna sjálfa
keppnina í íslenzka sjónvarpinu,
því það er miklu skemmtilegra að
horfa á þáttinn án þess að vita
úrslitin fyrirfram.
Með því að birta úrslitin hafið
þið eyðilagt alla óvissuna um það
hver flytji vinsælasta lag Evrópu
1978. Við vonum að þið látið þetta
ekki koma fyrir aftur næsta ár.
Virðingarfyllst.
7600-2320.
5222-2648.“
Velvakandi getur tekið úndir þessa
gagnrýni á vissan hátt, en varla
hafa allir vitað það fyrirfram hver
úrslitin voru. En þetta ætti að
lagast með tilkomu jarðstöðvar,
sem gerir kleift að taka á móti
beinum sjónvarpssendingum.
ar milljónir sparast og það kemur menn til að skipta og gera það nú
okkur sjálfum mest til góða. þegar, helzt áður en fresturinn
Að lokum vil ég aftur hvetja rennur út.
HÖGNI HREKKVÍSI
Fritz — Fritz svei ... svei!
HÍS8?
„Auf wiedersehen!“
PUMA
íþróttatöskur
gott verö
Postsendum.
KLAPPAHSTIG 44
SIMI 1 1 783.
Reiðskóli
fyrir börn og unglinga
Sumarið 1978
í sumar veröa 5 daga námskeið í hestamennsku
fyrir börn og unglinga, 9—16 ára.
Námskeiöin byrja á mánudagsmorgni og þeim
lýkur á föstudagskvöldi.
Þátttakjendur fá fjölþætta þjálfun á hestbaki og
læra meöhöndlun og umhiröu hesta. Kennt er í
geröi, og á hringvelli. Fariö í útreiðatúra,
kvöldvökur og leikir. Fæöi og húsnæöi, og feröir
fram og aftur frá Reykjavík innifaldar í
námskeiösaialdi.
Námskeið no. 1 29. maí — 2. júní
11 no. 2 5. júní — 9. júní
11 no. 3 12. júní — 16. júní
11 no. 4 19. júní — 23. júní
11 no. S 26. júní — 30. júní
11 no. 6 14. ágúst — 18. ágúst
11 no. 7 21. ágúst — 25. ágúst
11 no. 8 28. ágúst — 1. sept.
Síðasta námskeiöiö er aöallega ætlaö þeim sem
nokkra þjálfun hafa og áhuga hafa fyrir prófi í
hlýöniæfingum.
Skráning og allari nánari upplýsingar veitir
Feröaskrifstofan Úrval, sími 26900.
aHestamiðstöðin
Geldingaholt
Reiöskóli,útreióar, tamning,hrossarækt og sala
B3P SlGeA V//GG* £ iiLVimi
Gnúpverjahrepp, Árnessýslu Simi um Ása