Morgunblaðið - 03.05.1978, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAI 1978
Tvenn samtök leyst
úr banni í Rhódesíu
1. maí:
Fjölmenn
hátíðahöld
víða um heim
London 2. maí. AP.
MILLJÓNIR manna um allan
hrim hóldu 1. maí hátíðsdaj;
vcrkalýðsins. hátídlcgan ok fóru
hátíóahöldin víðast hvar friðsam-
lcga fram. þótt sums staðar kæmi
til átaka.
I Moskvu var löjfð mcst áhcrzla
á að lofa forscta Sovctríkjanna.
Lconid I. Brczhncv. cn háti'ða-
höldin þar fóru annars fram mcð
svipuðu sniði ojf undanfarin ár.
Kommúnistar og sósíalistar fóru
fremstir í 1. maí-göngunni á
Madríd, og er gizkað á að um ein
milljón manna hafi tekið þátt i
fföngunni þar. Yfirvöld hafa þó
sajft að aðeins 800.000 manns hafi
verið í gönjfunni. Þetta er stærsta
1. maí fíanga sem farin hefur verið
á Spáni.
Nýnasistar og fasistar settu
sterkan svip á hátíðahöldin í
London, en 1. maí göngur þar voru
ekki vel sóttar. Flestir sátu heima
og nutu þess að þurfa ekki að fara
til vinnu. 1. maí í ár var frídagur
lögum samkvæmt, og er það í
fyrsta sinn sem svo er í Bretlandi.
í Istanbúl í Tyrklandi voru
miklar öryggisráðstafanir gerðar
til að koma í veg fyrir að sagan frá
því í fyrra endurtæki sig, en þá
féllu 34 göngumenn fyrir kúlum
leyniskytta.
Um fjórar og hálf milljón
manna tóku þátt í 1. maí hátíða-
höldunum í Japan, og kröfðust
göngumenn þar að stjórnin gerði
eitthvað til að draga úr atvinnu-
leysinu í landinu.
Vestur-Berlín, 1. maí.
Reuter. AP.
BANDARÍKIN skiptu í dag á
bandarískum njósnara Sovétríkj-
anna og handarískum náms-
manni scm handtckinn var er
hann var að aðstoða Austur-Þjóð-
verja við að flýja til Vest-
ur-Þýzkalands. Skipti þcssi eru
lokaáfangi flókins samkomulags
þriggja landa um skipti á mönn-
Sailsburv, Rhódesíu, 2. maí.
BRÁÐABIRGÐAST.IÓRN
Rhódcsíu aflctti í dag banni á
tvcnnum blökkumannasamtökum
í landinu og hvatti hermenn
þeirra scm cru 6000 talsins til að
Icggja niður vopn.
Litið hefur verið á ákvörðun
stjórnarinnar sem fyrsta skrefið
til að binda enda á skæruhernað-
inn í Rhódesíu.
Njósnarinn, Robert Thompson,
hefur setið í fangelsi í Bandaríkj-
unum í 13 ár, en hann var á sínum
tíma dæmdur fyrir njósnir í þágu
Sovétríkjanna. Hinn maðurinn,
Alan Van Norman, var handtekinn
í ágúst í fyrra.
Skiptin fóru fram á hinum
bandaríska hernámshluta Vest-
ur-Berlínar, og tóku um 10 mínút-
4» n
í yfirlýsingu sem fjögurra
manna stjórn landsins gaf út eftir
fund í dag lofaði hún skæruliðun-
um því að þeir myndu verða látnir
í friði, ef þeir létu af hernaði
sínum.
Blökkumannasamtökin sem nú
verða leyfð í landinu eru undir
stjórn þeirra Joshua Nkomo og
Roberts Mugabe, en þeir hafa
hinn sami og hefur staðið fyrir
nfu sprengjutilræðum í Kaup-
sögn lögreglu hefur maðurinn.
sem er 19 ára gamall náms-
maður, viðurkennt að hafa búið
til sprengjurnar og að hafa
komið tveimur þeirra fyrir.
Sprengjurnar sprungu í stór-
verzlun, strætisvagni, símaklefa
og annars staðar þar sem fjöldi
fólks var saman kominn.
Sprengingin, sem maðurinn
særftist í, varð rétt hjá aðal-
stöðvum kommúnista í
Kaupmannahöfn og olli nokkurri
skelfingu meðal nærstaddra.
Maðurinn hefur nú verið
dæmdur í fjögurra vikna gæzlu-
varðhald, en hann liggur nú á
sjúkrahúsi, og ekki verður hægt
að yfirheyra hann að marki fyrr
en í fyrsta lagi í dag.
barist hvað harðast gegn núver-
andi valdhöfum Rhódesíu.
Stjórnin hefur sagt að þegar
verði hafist handa við að afnema
„vernduðu þorpin“. Þorp þessi eru
víggirt og búa hermenn í þeim,
sem þorpsbúar. Stjórnvöld ákváðu
á sínum tíma að „vernda" þorpin
til að koma í veg fyrir að
skæruliðar kæmust yfir matvæli
og aðrar nauðsynjar.
Fyrr á þessu ári gaf Rhódesíu-
stjórn út yfirlýsingu þar sem
öllum fyrrverandi skæruliðum var
heitið sakaruppgjöf, en áreiðan-
legar heimildir í Salisbury herma
að aðeins örfáir skæruliðar hafi
nýtt sér þá reglugerð.
Þá sagði stjórnin að nú væri
hafin skráning á öllum íbúum
Rhódesíu 18 ára og eldri, til að
hægt væri að sjá hverjir yrðu á
kjörskrá þegar kosningar fara
fram í landinu 31. desember
næstkomandi.
Khacha-
turyan
látinn
Moskvu, 2. maí Reuter
SOVÉZKA tónskáldið Aram
Khachaturyan. kunnastur á
Vesturlöndum fyrir „Sverð-
dansinn" úr ballettsvitunni
„Gayaneh“ lézt í gær eftir lang-
varandi vcikindi að sögn sovézku
fréttastofunnar Tass. Ilann var
74 ára gamall.
Khachaturyan var Armeni og
kunnastur yfir balletttónlist sína
en samdi einnig þrjár sinfóníur,
fjölda píanó- og fiðlukonserta og
tónlist við rúmlega 20 kvik-
myndir. Hann var mikill aðdáandi
George Gershwins og Duke
Ellingtons.
Gosið í Etnu
heldur áfram
Catania, Sikiley, 2. maí. AP.
GOSIÐ í Etnu hélt áfram í dag,
fjórða daginn í röð, og eru
hrauntaumarnir nú orðnir fimm
kílómetra langir. Mikill kraftur er
í eldfjallinu og þeyttust glóandi
grjót úr iðrum jarðar um hálfan
kílómetra í loft upp í dag.
Síðast gaus Étna í apríl 1971, og
stóð gosið þá í nokkra mánuði og
olli talsverðum skemmdum á
ræktuðu landi við rætur fjailsins.
Einn síns
liðs á
Norðurpól
Washington, Tókýó,
2. maí. AP-Reuter.
JAPANSKI Landkönnuðurinn
Naomi Uemura náði þvi' takmarki
í gær að verað fyrstur til að
ferðast einn á hundaslcða yfir
hcimskautaísinn til norðurpóls-
ins. Á fcrðalaginu varð Uemura
fyrir árás fsbjarnar.
Uemura, sem hóf ferð sína 7.
marz á Ellesmere-eyju í norðvest-
ur héruðum Kanada, varð að
takast á við blindbyl á ferð sinni
og einnig olli ísjak honum erfið-
leikum á tímabili Bandarískir
vísindamenn í geimvísindamiðstöð
Bandaríkjanna (NASA) nálægt
Washington hafa fylgst náið með
ferðum Uemura sem hefur tæki
meöferðis sem sendir útvarps-
geisla í gegnum gervihnött.
Uemura tafðist ennfremur um
einn dag þegar einn af hundunum
sem dró sleða hans gaut sex
hvolpum. Flogið var til móts við
hann með annan hund í stað þess
sem varð léttari á drættinum.
Þegar Uemura hóf ferðalag sitt
hafði hann í hyggju að ferðast frá
Norðurpólnum á heimskautaísn-
um til Grænlands, en ljúka síðan
leiðangrinum með því að fara á
sleðanum eftir endilögnum Græn-
landsjökli. Nú er hins vegar ljóst
að heimskautaísinn er að losna í
sundur og tilkynnti Bandaríska
landfræðifélagið í dag að fljúga
yrði með Uemura og farkost hans
til Grænlands.
Þegar Uemura kemur að Græn-
landsjökli verður hann fyrst fiðkra
Framhald á bls. 32.
Skýrt frá Suður-
Kórensku flugvél-
inni í N-Kóreu
Tokýo, 27. apríl. Reuter.
HIÐ OPINBERA málgagn norð-
ur-kóresku stjórnarinnar skýrði í
fyrsta sinn í dag frá þeim
atburði, er Sovétríkin neyddu
suður-kóreska flugvél til að lenda
í Sovétríkjunum.
Dagblaðið segir frá atvikinu í
einni setningu og hljóðar hún svo:
„Tilkynnum lesendum okkar að
Sovétríkin neyddu suður-kóreska
flugvél til að lenda, eftir að
flugvélin hafði rofið lofthelgi
Sovétríkjanna."
VEÐUR
1 i heim
Amsterdam 16 skýjaó
Apena 25 skýjaó
BrUssel 16 rigning
Chicago 9 bjarf
Frankfurt 17 rigning
úenf 11 skýjaó
Helsinki 8 sólskin
Jóhannesarb. 20 sólskin
Kaupmannahöfn 11 sólskin
Lissabon 17 rigning
London 10 rigning
Los Angeles 21 bjart
Madríd 14 bjarf
Malaga 19 skýjað
Miami 27 skýjað
Moskva 7 skýjað
New York 12 skýjað
Ósló 11 sólskin
Palma, Majorca 18 bjart
París 11 bjart
Róm 15 bjart
Stokkhólmur 8 sólskin
Tel Aviv 27 bjart
Tókýo 28 skýjað
Vancouver 17 skýjaö
Vín 17 skýjað
Þetta gerðist
1977 — Bandaríkjamenn og
Vfetnamar hefja viðræður í
París til að færa sambúð sína í
eðlilegt horf, tveimur árum eftir
fall Saigon.
1968 — Eisenhower forseti
leggur til að Suðurskautið verði
vopnlaust svæði.
1945 — Bandamenn sækja
inn í Hamborg.
1917 — Bretar hefja nýjar
árásir við Arras til að rjúfa
Hindenburglínuna.
1898 — Hunguróeirðir bæld-
ar niður í Mílanó.
1859 — Frakkar segja
Austurríkismönnum stríð á
hendur.
1849 — Prússar bæla niður
uppreisn í Dresden.
1841 — Nýja-Sjáland form-
lega lýst brezk nýlenda.
1833 — Tyrkir viðurkenna
sjálfstæði Egypta og láta Sýr-
land og Aden af hendi við
Mehemet Ali.
1814 - Loðvík XVIII snýr
aftur til Parísar eftir ósigur
Napoleons.
1660 — Oliviafriðurinn undir-
ritaður: endir bundinn á stríð
Brandenborgara, Pólverja,
Austurríkismanna og Svía, yfír-
ráð Brandenborgara í
Austur-Prússlandi viðurkennd;
Pólverjar afsala sér tilkalli til
sænsku krúnunnar og Eistlands
og Líflands og Svíar og Pól-
verjar viðurkenna fullveidi
Rússlands.
finnur
Niccolo
stjórn-
1492 — Kólumlni?
Jamaica.
Afmæli dagsins.
Machiavelli, ítalskur
málaheimspekingur
(1469—1527) _ William
Broome, enskur fræðimaður —
skáld (1689-1745) - Golda
Meir, fyrrvefandí forsætisráð-
herra ísraels (1898------) —
Wiiliam Inge, leikritahöfundur
(1913-1973).
Orð dagsins. Gæfan er ekki á
bandi heigulsins — Sófókles
grískt leikritaskáld (um
496-406 f. Kr.)
Kaupmannahöfn:
Hefur staðið fyrir
9 sprengjutilræðum
Frá fréttaritara Mbl. annar mannanna tveggja sem
í Kaupmannahöfn í gær. særðust í sprengingu í
NÚ HEFUR komið í ljós að Kaupmannahöfn 1. maí, er sá
Njósnaskipti í
V estur-Berlín