Morgunblaðið - 18.05.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAI 1978
39
hefur forseti félagsins í 18 ár,
æðsta heiðursmerki félagsins,
gullkrossi, fyrir ómetanleg og
frábær störf hans í þágu þess.
Þetta heiðursmerki hefur einungis
verið veitt einu sinni áður, frú
Gróu Pétursdóttur.
Þá lýsti forseti kjöri nokkurra
heiðursfélaga á þessum tímamót-
um í sögu félagsins og afhenti
skjöl því til staðfestu. Þessir
heiðursfélagar eru:
Guðmundur Guðmundsson,
skipstjóri á Isafirði, sem um árabil
var formaður slysavarnadeildar
karla á Isafirði og forystumaður
slysavarna þar.
Sr. Stefán Eggertsson á Þing-
eyri, sem hefur lengi staðið í
fararbroddi í svd. Vörn á Þingeyri
og auk þess unnið mikið og merkt
varðgæslustarf sem óþreytandi
áhugamaður um fjarskipti.
Hjalti Gunnarsson, Reyðarfirði,
sem var formaður svd. Arsólar á
Reyðarfirði frá 1946 til 1977 og
hefur unnið ötullega að öryggis-
málum sjómanna.
Frú Sigrún Sigurðardóttir, lengi
formaður svd. Hafdísar á Fá-
skrúðsfirði og þátttakandi í lands-
þingum SVFI um fjölda ára.
Frú Guðrún Þorsteinsdóttir,
ekkja Henrys A. Hálfdanarsonar,
sem var framkvæmdastjóri félags-
ins í 28 ár.
Kristinn Lárusson, sem lengi
hefur verið forystumaður í svd.
„Sigurvon" í Sandgerði.
Frú Gróa Jakobsdóttir, Eyrar-
bakka, sem um árabil var formað-
ur svd. „Bjargar" og átti sæti í
varastjórn SVFÍ.
Tómas Þorvaldsson og Arni
Magnússon í Grindavík, en báðir
þessir menn hafa lengi staðið í
fremstu fylkingu í slysavarna-
Frú Guðrún Ólafsdóttir, sem var
ein af stofnendum svd. kvenna í
Reykjavík 1930 og hefur verið
virkur félagi þar allar götur síðan.
Sveinn Sölvason, Sauðárkróki,
sem var lengi í stjórn og formaður
svd. „Skagfirðingasveitar", en
hann var einn af stofnendum
deildarinnar 1932.
Jón I. Sigurðsson, um langa hríð
formaður og forystumaður í
Björgunarfélagi Vestmannaeyja.
Fuiltrúar á aðalfundi SVFÍ
sóttu forsetahjónin heim á Bessa-
stöðum s.l. laugardag og þáðu þar
kaffiveitingar. Á sunnudaginn var
fulltrúum boðið að skoða tvær
nýjar björgunarstöðvar. Var fyrst
skoðuð ný björgunarstöð og félags-
heimili slysavarnadeildanna
„Fiskakletts" og „Hraunprýði" í
Hafnarfirði en síðan var haldið til
Sandgerðis, þar sem verið er að
leggja síðustu hönd á björgunar-
stöð og félagsheimili svd. „Sigur-
vonar“ þar. Báðar þessar stöðvar
eru reistar eingöngu með sjálf-
boöaliðsvinnu félaga í deildunum
og björgunarsveitunum og bera
vott um mikla fórnfýsi og dugnað.
Drukkið var kaffi í glæsilegum
fundarsal hinnar nýju stöðvar í
Sandgerði í boði sveitarstjórnar-
innar þar. Þessi björgunarstöð
veröur vígð hinn 18. júní n.k. Svd.
„Sigurvon" var fyrsta deild
S.V.F.Í, stofnuð 23. júní 1928.
Gjafir
Slysavarnafélaginu bárust
margar gjafir á aðalfundinum og
skal þeirra getið hér:
Konur í félaginu gáfu því
ræðustól með útskornu merki
félagsins.
Sigmar Benediktsson færði fé-
Björgunarskýli SVFÍ á Hólasandi við Kísilveginn svo
nefnda. Kvennadeildirnar á Húsavík og í Mývatnssveit
höfðu forgöngu um að reisa það á sl. hausti.
starfi og þá sérstaklega við
björgun manna úr sjávarháska.
Tómas var formaður björgunar-
sveitar „Þorbjörns", en Arni var
skytta sveitarinnar. Frá því að
þeir komu til starfa í sveitinni
hefur hún bjargað 118 mönnum úr
strönduðum skipum.
Sigurgeir Jóhannsson, Bakka-
koti, um árabil formaður svd.
„Happasæls" í Meðallandi og
björgunarsveitarinnar þar, sem
hefur síðan 1956 bjargað 80
mönnum úr strönduðum skipum
undir hans stjórn.
Haraldur G. Júlíusson, Stokks-
eyri, sem var í 25 ár í stjórn svd.
„Drafnar" og starfar enn að
málefnum félagsins.
Frú Dóra Erlendsdóttir, Akra-
nesi, sem var í stjórn svd. kvenna
á Akranesi í 15 ár, þar af 13 ár sem
formaður.
Frú Sigríður L. Árnadóttir,
Akureyri, sem var í stjórn svd.
kvenna á Akureyri frá 1937 til
1970, lengst af sem gjaldkeri, en á
árinu 1970 tók hún við formennsku
í deildinni og gegndi til 1973.
Ragnar Þorsteinsson, bóndi og
rithöfundur frá Höfðabrekku í
Mýrdal, sem í mörg ár var
formaður svd. „Vonarinnar" í Vík
og formaður björgunarsveitarinn-
ar þar, en hún bjargaði fjölda
sjómanna úr strönduðum skipum
undir hans stjórn.
laginu að gjöf frá svd. „Svölu" á
Svalbarðseyri fagra fánastöng á
stalli, sem hann hefur sjálfur
smíðað. Einnig afhenti hann gjöf,
frá sér og konu sinni, kr. 50.000.-.
Frá körlum í blandaðri slysa-
varnadeild Hríseyjar barst pen-
ingagjöf að fjárhæð kr. 150.000.-
en konur í deildinni stóðu að því
að gefa ræðustól þann, sem fyrr er
getið.
Slysavarnadeild kvenna á Húsa-
vík og svd. „Hringurinn" í Mý-
vatnssveit afhentu félaginu gjafa-
bréf fyrir skýli á Hólasandi í
Suður-Þingeyjarsýslu, sem deild-
irnar hafa látið reisa.
Snæbjörn Ásgeirsson, Seltjarn-
arnesi, færði svd. „Voninni" í Vík
í Mýrdal að gjöf tvö „labb-rabb“
tæki og jafnframt gaf hann hinum
nýju björgunarstöðvum í Hafnar-
firði og Sandgrði vind-áttavita.
Leopold Jóhannesson á Hreða-
vatni tilkynnti að hann gæfi sem
happdrættisvinning í næsta happ-
drætti félagsins veturgamalt
trippi af úrvals kyni.
Að lokum var á fundinum lesið
bréf Olafs Albertssonar, sem um
árabil hefur verið forystumaður og
driffjöður í einu deild SVFÍ á
erlendri grund, svd. „Gefion" í
Kaupmannahöfn. Með bréfinu
fylgdi gjöf Olafs til félagsins í
tilefni 50 ára afmælis þess, d.kr.
1000.-.
Listahátið í
léttum dúr
„Skemmtun ársins” í Háskólabíói
á föstudagskvöld
Eins og undanfarin ár munu
Starlsmannafélag Sintóníuhljóm-
sveitar íslands og Félag íslenskra
leikara gangast fyrir fjölbreyttri
skemmtun f Háskólabíói til styrkt-
ar Slysasjóði. Skemmtunin er alltaf
haldin sem na»t lokadegi vetrarver
tíðar sjómanna. og að þessu sinni
föstudagskvöld 19. maí kl. 23.30. Þá
skemmta fjölmargir leikarar og
skemmtikraftar. söngvarar. Sin-
fóníuhljómsveit íslands. fslenski
dansflokkurinn. Leikfélag og kór
Menntaskólans í Ilamrahlíð o.fl.
Allir listamenn og aðstandendur
skemmtunarinnar láta vinnu sína f
té endurgjaldslaust og rennur allur
ágóði í Slysasjóð.
Sjóður þessi, sem stofnaður var
fyrir 5 árum af Starfsmannafélagi
Sinfóníunnar og Félagi ísl. leikara,
hefur það markmið að rétta hjálpar-
hönd því fólki sem hefur orðið fyrir
slysi eða á í erfiðleikum vegna slysa,
sem aðstandendur þeirra eða fyrir-
vinna hefur lent í. Einkum eru
hafðir í huga þeir, sem einhverra
hluta vegna njóta ekki trygginga hjá
tryggingastofnunum. Alls hefur nú
verið veitt úr sjóðnum til 13 slíkra
einstaklinga. Sjóðurinn er í vörslu
Slysavarnafélags íslands, og aflar
tekna með hinni árlegu skemmtun,
en einnig hafa honum borist áheit og
gjafir.
Meðal atriða á skemmtuninni á
föstudagskvöld má nefna, að heimsk-
frægur hljómsveitarstjóri stjórnar
Sinfóníuhljómsveitinni, Gísli Hall-
dórsson og Guðmundur Pálsson
flytja gamanþátt, Grænjaxlar Þjóð-
leikhússins verða á ferðinni, Kjartan
Ragnarsson syngur gamanvísur,
Islenski dansflokkurinn dansar,
Kuregej Alexandra syngur, Herdís
Þorvaldsdóttir, Guðrún Stephensen,
Jón Gunnarsson o.fl. bregða á leik.
Þá flytja Leiklistarfélag og kór
Menntaskólans í Hamrahlíð laga-
syrpu úr Túskildingsóperunni, og
Guðný Guðmundsdóttir leikur ein-
leik með Sinfóníuhljómsveitinm, og
enn fleira verður á dagskránni á
þessari „skemmtun ársins“ eða
„listahátíð í léttum dúr“ eins og
segja má með sanni.
Aðgöngumiðar eru til sölu í
bókabúð Lárusar Blöndals Skóla-
vörðustig, Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og í Háskólabíói.
Gísli Halldórssom
Á myndinni eru:
Birgir ísl. Gunnarsson, Ólafur B. Thors, Albert Guömundsson, Davíö Oddsson, Magnús L.
Sveinsson, Páll Gíslason, Markús Örn Antonsson, Elín Pálmadóttir, Sigurjón Á. Fieldsted.
Ragnar Júlíusson, Hilmar Guölaugsson, Bessí Jóhannsdóttir, (vantar á myndina), Margrét
S. Einarsdóttir, Sveinn Björnsson, Hulda Valtýsdóttir, Sigríöur Ásgeirsdóttir, (vantar á
myndina), Sveinn Björnsson, Valgarð Briem.
Við erum reiðubúin
Við erum frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum
28. maí n.k. og skipum 18 fyrstu sætin á framboðslistanum.
Við höfum flest átt sæti í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna.
Sameiginlegt áhugamál okkar er að vinna málefnum Reykvíkinga
það gagn, sem við megum.
Við teljum opið stjórnmálastarf, sem byggist á sterkum tengslum
kjósenda og kjörinna fulltrúa þeirra mjög mikilvægt.
Því erum við reiðubúin til viðræðna um málefni Reykjavíkur.
Sé þess óskaö erum við reiðubúin til aö:
# Koma í heimsóknir í heimahús til að hitta smærri hópa að máli.
# Eiga rabbfundi með hópum af vinnustöðum.
# Taka þátt í fundadagskrá félaga og klúbba.
# Eiga viðtöl við einstaklinga.
Við frambjóðendur D-listans vonum að þannig geti fólk m.a. kynnst
skoðunum okkar og viðhorfum til borgarmála og komið á framfæri
ábendingum og athugasemdum um borgarmál.