Morgunblaðið - 18.05.1978, Síða 10
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 18. MAÍ 1978
Oliver Steinn Jóhannesson:
Fræðsluumdæmi fyrir Hafnar-
fjörð og dauðagildrumar þrjár
Það vakti nokkra athygli einn
síðustu dagana sem Alþingi sat að
störfum að þessu sinni, að
menntamálaráðherra lýsti því yfir
í þinítræðu er fjallað var um
frumvarp til laíía um breytinfju á
nrunnskólalönunum, að ef hann
væri ráðherra í öðru iandi en
Islandi, þá sæi hann sig til þess
knúinn að segja af sér vegna hins
mikla kapps, sem að hans mati var
lafít á að fá fram breytinftu á
téðum fírunnskólalöfíum.
Ræða ráðherrans var löng og
sitt hvað í henni vakti furðu, en þó
kannski almennast það, að
menntamálaráðherranum, sem í
raun er siðgæðismálaráðherra
þessarar þjóðar, skyldi svo ákveðið
halda fram, að á íslandi gildi
annað siðgæðismat í þessum efn-
um en með nálægum þjóðum, og
því hygðist hann þrátt fyrir allt
sitja sem fastast. Fannst mörgum
mikið sagt og meira en tilefni gaf
til.
En hver var rót þessa máls, sú
litla þúfa, er nær hafði velt svo
þungu hlassi? Rót málsins er, að
bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafði
frá árinu 1969 rekið eigin fræðslu-
skrifstofu, en var með grunnskcla-
iögunum frá 1974 svipt þeim rétti.
Hafði bæjarstjórn samþykkt, ekki
einu sinni heldur tvisvar og í bæði
skiptin með samhljóða atkvæðum
allra 11 bæjarfulltrúanna, að óska
eftir því að sú breyting yrði gerð
á grunnskólalögunum er löghelg-
aði rekstur þessarar fræðsluskrif-
stofu á ný. Hún taldi að fræðslu-
málum Hafnarfjarðar væri betur
komið með þeim hætti að stýra
þeim svo sem verið hefði, frá eigin
fræðsluskrifstofu, sem bein skipti
hefði við menntamálaráðuneytið,
heldur en að nota fræðsluskrif-
stofu Reykjanesumdæmis — sem
hún taldi sér algerlega óviðkom-
andi — til að annast milligöngu
við ráðuneytið fyrir bæjarins
hönd.
Þótt einhugur og óvenjuleg
samstaða hafi verið í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar um þetta mál,
gerðu allir bæjarfulltrúar sér ljóst
að armur bæjarstjórnar, þótt
styrkur sé, náði ekki lengra en að
dyrum Alþingishússins. Þar innan
dyra varð því að leita liðsinnis. Lá
þá beinast við að leita til þing-
manna kjördæmisins, sem raunar
ber skylda til að fylgja eftir svo
samhljóða ósk sem hér var uppi
höfð. Hvort hér var unnið af þeim
krafti og dug, sem ráðherrann gaf
í skyn í ræðu sinni, getur menn að
sjálfsögðu greint á um, en ég verð
að játa að ég er honum þar
ósammála eins og á fleiri sviðum
þessa máls.
Með grunnskólalögunum frá
1974 var landinu skipt í 8 fræðslu-
umdæmi: Reykjavíkurumdæmi,
Reykjanesumdæmi, Vesturlands-
umdæmi, Vestfjarðaumdæmi,
Norðurlandsumdæmi vestra,
Norðurlandsumdæmi eystra,
Austurlandsumdæmi og Suður-
landsumdæmi. Sjá allir að hér er
viðhöfð sama skipting og er á
kjördæmum landsins, skipting,
sem er þegar orðin úrelt og
stórlega óvinsæl hjá miklum hluta
þjóðarinnar, m.a. Hafnfirðingum,
sem þykir illt að una því að njóta
við kosningar til Alþingis aðeins
um fimmtungs þeirra mann-
réttinda, sem ýmsir aðrir lands-
menn hafa. Og með grunnskóla-
lögunum voru þeir enn sviptir
réttindum. Stórskertir voru mögu-
leikar þeirra til að hafa afskipti af
stjórnun skólamála bæjarfélags-
ins, þegar þeir með lögunum voru
sviptir fræðsluskrifstofu sinni,
sem þó hafði starfað um fimm ára
skeið áður en grunnskólalögin
tóku gildi.
Hafnarfjörður átti á sínum
tíma þátt í því ásamt öðrum
sveitarfélögum að stofna Samtök
sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi,
skammstafað SASÍR. Var þar um
að ræða frjáls samtök, sem æltað
var að auðvelda hugsanleg skipti
sveitarfélaganna á þessu svæði
með frjálsu samstarfi þeirra á
milli, eftir því sem mál krefðust
samvinnu og samstarfs hverju
sinni, þótt þróun mála yrði önnur
en til var ætlazt er fram liðu
stundir og Hafnfirðingar segðu sig
úr samtökunum, svo sem að verður
vikið síðar. Reginmunur er á slíku
frjálsu samstarfi og því lögþving-
aða samstarfsformi, sem grunn-
skólalögin gera ráð fyrir. Augu
meirihluta alþingismanna hafa nú
opnazt fyrir þessum sannindum og
Alþingi hefur nú með samþykkt
umræddrar breytingartillögu við
grunnskólalögin viðurkennt hver
óhæfa er að þvinga sveitarfélög til
samstarfs, alls að óþörfu. Hafnar-
fjörður og grannbyggðalögin hafa
með hinu mikla frjálsa samstarfi
sínu á hinum breytilegustu verk-
efnasviðum sannað, að óþarft er að
lögþvinga samstarf sveitarfélaga.
Meirihluti alþingismanna hefur
þannig orðið við ósk bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar og samþykkt
heimildarlög til handa Hafn-
firðingum og öðrum þeim byggðar-
lögum, er svipaðan íbúafjölda
hafa, til að ráða fræðslumálum
sínum svo sem kostur er og
landslög leyfa. Hljóta allir að
viðurkenna hve miklu eðlilegra
það er að heimamenn, sem öllum
hnútum eru kunnir, hafi meiri
möguleika en fjarstýrð fræðslu-
skrifstofa til að vinna þar að af
festu, framsýni og skynsemi.
Skv. 11. grein grunnskólalag-
anna skal fræðsluráð skipað 5—7
mönnum, sem kjörnir eru af
hlutaðeigandi landshlutasamtök-
um og um kosningu og starfshætti
fer samkvæmt lögum um starfs-
hætti landshlutasamtaka sveitar-
félaga, en að öðru leyti eftir
meginreglum sveitarstjórnarlaga,
nr. 58/1961. En þótt grunnskóla-
lögin geri þannig ráð fyrir lögum
um starfshætti landshlutasam-
taka og fræðsluskrifstofurnar 8
séu til' orðnar með þessi lög sem
bakhjarl, þá hafa slík lög aldrei
verið samþykkt á Alþingi og
margra von er að svo verði heldur
ekki síðar. Er því harla veik
stoðin, sem þessar skrifstofur
standa á, — og að margra mati
vafasamt hvort þær hafa við lög
að styðjast.
Árið 1975 gekk Hafnarfjörður
úr SASÍR. Ástæðan var, að á
aðalfundi samtakanna vildu
fulltrúar Hafnarfjarðar sporna við
eyðsluþróun sem þar stefndi í, en
viðhalda og treysta hina frjálsu,
upphaflegu mynd samtakanna.
Fulltrúar Hafnarfjarðar voru
ofurliði bornir og hin sterku
eyðsluöfl, sem þarna voru að verki,
munu seint fyrirgefa þessa afstöðu
þeirra. Engu að síður hefur
samstarf Hafnarfjarðar og grann-
byggðanna eftir sem áður verið
með ágætum, svo sem áður er sagt,
og alltaf verið byggt á frjálsu
samstarfi og án lagaboða. Hafa
fulltrúar Hafnarfjarðar með þessu
sparað bænum milljónaútgjöld, —
og öðrum sveitarfélögum í Reykja-
nesumdæmi hliðstæðar fúlgur, því
allt starf SASÍR breyttist er
eyðsluöflin sáu áð þau léku ekki
lausum hala. Og enn eiga Hafn-
firðingar eftir að spara sér stórfé
þegar sú lagabreyting kemur til
framkvæmda, sem nú hefur verið
samþykkt á Alþingi, að ósk
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Og
þá er þetta ekki síður mikilvægt
sjálfstæðismál fyrir bæjarfélagið
og sigur lýðræðishugsunar yfir
miðstýringu og valdsjúku
embættismannakerfi.
Þar sem Hafnarfjörður er ekki
aðili að SASÍR hafa Hafnfirðingar
engan þátt átt í kosningu í
fræðsluráð Reykjanesumdæmis og
mjög er vafasamt að það eigi stoð
í lögum að önnur sveitarfélög eða
aðilar í Reykjanesumdæmi geti
kosið eða skipað fulltrúa í þetta
fræðsluráð fyrir Hafnarfjörð. En
jafnvel þótt Hafnarfjörður væri
aðili að SASÍR ætti bærinn þar
ekki nema mest einn fulltrúa í
fræðsluráðinu, og vegna kosninga-
fyrirkomulags gæti kosning í
fræðsluráð Reykjanesumdæmis
farið þannig að hvorki Hafnar-
fjörður eða Kópavogur, með sína
25 þúsund íbúa, ætti þar neinn
fulltrúa. Sjá allir hvílík firra þetta
er og hve réttmæt þessi
breytingartillaga við grunnskóla-
lögin var, sem Alþingi hefur nú
nýverið samþykkt.
Menntamálaráðuneytið hefur
talið Hafnfirðingum nóg að hafa
EYJOLFUR GUÐMUNDSSON skrifar fréttir frá NOREGI:
Rán í bönkum og
pósthúsum - Auk-
in oliuframleiðsla
Olíuframleiðslan
eykst
í marzmánuði sl. komst olíu-
framleiðslan á Ekkofisksva'ðinu
á Norðursjónum upp í 11 millj.
tunnur, sem mun vera metfram-
leiðsla á mánuði. Þess ber og að
geta að gasfrantleiðslan á fyrsta
'jórðungi þessa árs er rúmlega
2,5 ntillj. tonn, en þá er um að
ræða gas frá bæði Frygg- og
Ekkofisksvæðinu. Ekkofisk-
svæðið er, sem kunnugt er,
sunnarlega á svæði Norðmanna,
eða því sem næst miðsvæðis
milli Danmerkur, Noregs og
Englands. Það sem nefnt hefur
verið Fryggsvæðið er hins vegar
norðar, eða á sömu breiddar-
gráðum og Bergen.
Nú vinna um 6800 manns á
olíupöliunum á Norðursjónum,
þar af unt 2700 útlendingar.
Aukin olítiframleiðsla við
norsku ströndina hefur að vísu
vaxandi mengunarhættu í för
með sér, en m.a. af þeim
ástæðum hefur ekki verið borað
eftir olíu fyrir norðan 62.
breiddarbaug. Sérfræðingar
telja þó fullvíst að olía finnist
í.ieðfram allri norsku strönd-
inni, og norður eftir Barents-
hafi, allt norður til Svalbarða.
Það eru nijög skiptar skoðanir
um það hvort hefja eigi olíuleit
neöfram allri Noregsströnd, og
I.efir þetta verið hitamál, sem
nt.a. hefir verið rætt á norska
þinginu. Telja má sennilegt að
nokkurra ára dráttur verði á
olíuvinnslu á norðurslóðum, eða
þar til tæknin við olíuvinnslu
verður kornin á hærra stig.
Bankarán og
byssukóngar
Rán í bönkum og pósthúsum
hafa ntjög færst í vöxt, og má
segja að þetta séu daglegir
viðburðir sem almenningur er
fainn að venjast. Þetta skeður
venjulega þannig að maður með
klút fyrir andlitin^, vopnaður
skamntbyssu eða haglabyssu
snarast að gjaldkera og hrifsar
til sín alla tiltæka peningaseðla.
Þetta skeður helst strax eftir
opnun viðkomandi stofnana, eða
á þeim tímum sem fæstir
viðskiptavinir eru á staðnum. I
mörgum tilvikum tekst ráns-
manninum að komast undan, og
þá venjulega í stolnum bíl, sem
lagt hefur verið í nágrenninu.
Lögreglan hefur haft talsvert að
gera í sambandi við slík mál. og
hefir nú tekið í noktun bæði
skotvopn og hunda gegn þessum
ófögnuði.
Fyrir fáum dögum gerðu tveir
byssuóðir unglingar í Drammen
tilraun til að drepa skautakapp-
ann Sten Stensen. Unglingar
þessir miðuðu hlaðinni skamm-
byssu á Stensen, en þótt tekið
Berge Furre og Finn Gustavsen.
Verða þeir dregnir fram fyrir
dómstóla, vegna brots á þagnar-
skyldu þingmanna?
væri í gikkinn, hljóp skotið ekki
af. Voru þessir „byssukóngar" á
flótta undan lögreglunni, og
hugðust stela vörubíl, sem Sten-
sen var að dytta að. Unglingar
þessir komust þó ekki langt á
bílnum, þar eð lögreglubílar
komu fljótlega á vettvang og
sendu regn af skotkúlum gegn-
um dekk vörubílsins.
þingmenn
fyrir
lög og dóm?
,,Ég hef ekki tíma til að
standa í svona vitleysu," sagði
Stensen, sem kastað hafði sér
niður á því augnabliki sem
unglingarnir hugðust skjóta
hann.
Verða þingmenn
Sósíalíska vinstri-
flokksins drengir
fyrir lög og dóm?
Sérstök þingnefnd vinnur nú
að athugun á því hvort höfða
eigi mál á hendur þeim Berge
Furre og Finn Gustavsen, vegna
hrota á þagnarskyldu þing-
manna sem varða við norsk
hegningarlög varðandi
uppljóstranir á ríkisleyndar-
málum, er snerta öryggi
landsins.
Uppljóstranir þær sem þeir
komu með voru varðandi svo-
kallaðar Loran c miðunarstöðv-
ar, sem nota má m.a. fyrir
kafbáta, bæði norska og eins
fyrir kafbáta NATO. Um þessar
stöðvar vissi almenningur lítið,
og ekki víst að sovéskir njósnar-
ar hafi fengið upplýsingar um
þennan útbúnað. Þeir félagar
leystu hins vegar rækilega frá
skjóðunni og gerðu það nokkrum
vikum f.vrir síðustu kosningar,
augljóslega til að reyna að
hressa uppá fylgi flokks síns.
Urslit kosriinganna sl. haust
urðu hins vegar þau að flokkur
þeirra beið miklar hrakfarir, en
það sýnir að almenningur í
Noregi kærir sig ekki um
uppljóstranir á hernaðarmikil-
vægum málum, sem varða
örvggi landsins ogsamvinnuna í
NÁTO.
Þeir Berge Furre og Finn
Gustavsen eiga nú á hættu að
verða kallaðir fyrir ríkisrétt,
sjálfum sér til skammar, en
öðrum til athlægis.
Heyerdahl
kominn heim
Fornleifafræðingurinn og
ævintýramaðurinn Thor Heyer-
dahl kom fyrir nokkrum dögum
til Ósló eftir nýafstaðna
siglingu á sefbát, frá
Mesapótamíu til Austur-Afríku.
Sefbátur þessi, sem hann nefndi
„Tigris", var gerður úr seigum
seftágum, sem vaxa á sléttlend-
inu við samnefnt fljót. Stærð
bátsins var um 6x18 m og var
hann settur saman á svipaðan
hátt og álitið er að sæfarendur
í Mesópótamíu hafi gert f.vrir
5000 árum. Bátur þessi var á
floti í 132 daga, og sigling hans
var framkvæmd til að sanna þá
skoðun Heyerdahls að slíkir
bátar gætu haldist á floti í fleiri
daga, en til voru menn sem
dregið höfðu slíkt í efa.
Endalok siglingarinnar urðu
þau að Heyerdahl og félagar
kveiktu í bátnum fyrir utan
A-Afríku, og vildu á þann hátt
„mótmæla" hernaðarátökunum
á horni Afríku. Ekki er laust við
að Norðmenn, sumir hverjir, séu
óánægðir með þessi endalok,
enda augljóst mál að bátsbrenn-
an bre.vtir í engu þróun styrjald-
arinnar á umræddu svæði. Hvað
sem því líður, slappar fornleifa-
fræðingurinn nú af hjá fjöl-
skyldu sinni í Ósló, og tilkynnt
hefur verið að fyrstu dagana
vilji hann hvílast og vera í friði
fyrir blaða- og fréttamönnum.
Verkföll og
kjaradómur
í aprílmánuði stóð yfir verk-
fall bifreiðastjóra vöru- og
Framhald á bls. 62.